DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2958.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Pink Paradise

Prjónuð peysa úr DROPS Flora eða DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri og köðlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 248-14
DROPS Design: Mynstur fl-086
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-300-350-350-400-450 g litur 30, eyðimerkurrós

Eða notið:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-350-400-450-500-550 g litur 49, eyðimerkurrós

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2958.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um mynsturteikningu A.2 og A.5). Lykkjufjöldinn er mismunandi í A.1, A.2 og A.3 þar sem lykkjufjöldi í köðlum skiptist á milli þess að vera 2 og 3 lykkjur, lykkjufjöldi í mynstri gengur út frá að það séu 3 lykkjur í köðlum.

LASKALÍNA:
Aukið er út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn og í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt – svo það myndist gat. Á bakstykki og ermum eru útauknar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni, á framstykki eru nýjar lykkjur prjónaðar eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.1 og A.3. Þegar prjónað hefur verið að ör í mynsturteikningu, prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Það eru auknar út 4 lykkjur í umferð með því að auka út hvoru megin við merkiþræði þannig:
Byrjið 1 lykkju á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið síðan útaukningu við merkiþráðinn í hinni hliðinni (= 4 lykkjur fleiri).

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 2 lykkjur í umferð með því að fækka um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf.
Stykkið er prjónað ofan frá og niður og allt stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.
Þegar kantur í hálsmáli og berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Eftir fram- og bakstykki eru ermar prjónaðar niður á við í hring á hringprjón / sokkaprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 124-128-132-136-148-148 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Flora eða DROPS Baby Merino. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan jafnframt því sem í umferð 1 er aukið út um 4-0-6-2-0-0 lykkjur jafnt yfir = 128-128-138-138-148-148 lykkjur. Setjið 1 merki í byrjun umferðar (= mitt að aftan), berustykkið er mælt frá þessu merki.

BERUSTYKKI:
Setjið 4 merkiþræði í stykkið þannig: Merkiþræðirnir eru settir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar og þeir eru notaðir þegar auka á út fyrir laskalínu og eru settir á milli 2 lykkja þannig:
Teljið 22-22-25-25-27-27 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið 1 merkiþráð, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð, teljið 45-45-50-50-55-55 lykkjur (= framstykki), setjið 1 merkiþráð, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð. Það eru 23-23-25-25-28-28 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merkiþræði (= hálft bakstykki). Nú er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og prjónið frá merkiþræði mitt að aftan þannig:
Notið hringprjón 3,5, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði (= hálft bakstykki), aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, 2 lykkjur sléttprjón, aukið út fyrir laskalínu, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði (= ermi), aukið út fyrir laskalínu, 2 lykkjur sléttprjón, aukið út fyrir laskalínu, prjónið A.1, A.2 yfir 17-17-22-22-27-27 lykkjur, A.3, þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði (= framstykki), aukið út fyrir laskalínu, 2 lykkjur sléttprjón, aukið út fyrir laskalínu, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði (= ermi), aukið út fyrir laskalínu, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, aukið út fyrir laskalínu, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, aukið út fyrir laskalínu, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, aukið út fyrir laskalínu, 2 lykkjur sléttprjón, aukið út fyrir laskalínu og prjónið sléttprjón út umferðina (= hálft bakstykki).

Síðan heldur mynstrið áfram hringinn með þessum hætti, jafnframt því sem aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við 2 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma í annarri hverri umferð alls 19-18-26-29-27-24 sinnum = 280-272-346-370-364-340 lykkjur – munið eftir að lykkjufjöldinn gengur út frá því að það séu 3 lykkjur í köðlum í A.1, A.2 og A.3 (= 8 lykkjur fleiri í hverri umferð).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Síðan heldur útaukningin áfram þannig:
Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð á framstykki og bakstykki eins og áður, en á ermum er nú einungis aukið út í 4. hverri umferð (= til skiptist 4 og 8 lykkjur fleiri), endurtakið þessa útaukningu alls 8-14-6-10-16-24 sinnum á framstykki og bakstykki og 4-7-3-5-8-12 sinnum á ermum.
Eftir síðustu útaukningu eru 328-356-382-430-460-484 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 17-20-20-24-27-30 cm frá merki eftir kant í hálsmáli.
Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 19-20-22-24-27-30 cm frá merki – stillið af að síðasta umferð sem prjónuð er sé 3. eða 4. umferð í A.2 (2 lykkjur og 1 uppsláttur eða 3 lykkjur í hverjum kaðli).

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 49-54-57-64-70-75 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), setjið næstu 65-69-77-87-89-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-14-14-16-20 lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi), prjónið 99-109-114-128-141-151 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 65-69-77-87-89-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-14-14-16-20 lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 50-55-57-64-71-76 lykkjur í sléttprjóni (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 222-242-256-284-314-342 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 12-12-14-14-16-20 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, Merkiþræðirnir eru notaðir þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki.
Byrjið umferð við merkiþráð, prjónið hringinn í sléttprjóni / mynstri eins og áður.
Þegar stykkið mælist 3 cm, aukið út 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í hverjum 8-8-8-8-7-7 cm alls 3 sinnum = 234-254-268-296-326-354 lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist 26-27-27-27-25-25 cm – stillið af að síðasta umferð sem var prjónuð sé umferð merktri með svartri stjörnu í A.2, setjið eitt merki hvoru megin við miðju 76-76-80-80-84-84 lykkjur í mynstri A.1 til A.3 (ATH! Nú eru 14-14-18-18-22-22 lykkjur í A.2).
Nú er næsta umferð frá merkiþræði prjónuð þannig (í hlið á undan framstykki):
Notið hringprjón 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT því sem aukið er út um 5-4-7-8-7-8 lykkjur jafnt yfir næstu 17-22-23-30-35-42 lykkjur (= 22-26-30-38-42-50 lykkjur í stroffi sem endar með 2 lykkjur slétt), merkiþráðurinn situr hér, yfir 76-76-80-80-84-84 lykkjur á milli merkja er prjónað A.4, A.5, A.6 (= 2 lykkjur færri og stroffið passar fallega yfir mynstur), hin merkin sitja hér. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) fram að merkiþræði í hlið, jafnframt er aukið út um 5-4-7-8-7-8 lykkjur jafnt yfir næstu 17-22-23-30-35-42 lykkjur (= 22-26-30-38-42-50 lykkjur í stroffi sem endar með 2 lykkjur slétt), merkiþráðurinn situr hér.
Prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkju slétt), jafnframt því sem aukið er út um 37-39-40-42-47-49 lykkjur jafnt yfir síðustu 117-127-134-148-163-177 lykkjur (154-166-174-190-210-226 lykkjur í stroffi sem endar með 2 lykkjur brugðið) = 272-292-312-344-376-408 lykkjur.
Stroffið passar nú yfir allar lykkjur (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið), haldið svona áfram með stroff hringinn. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af aðeins laust. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 65-69-77-87-89-91 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 12-12-14-14-16-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 77-81-91-101-105-111 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð mitt í 12-12-14-14-16-20 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn.
Prjónið sléttprjón umferðina hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-4½-3-4½-4 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 4½-4½-2½-2-1½-1½ cm alls 7-7-10-13-13-13 sinnum = 63-67-71-75-79-85 lykkjur.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 34-34-32-31-28-26 cm frá skiptingunni.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 9-9-9-9-9-11 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 72-76-80-84-88-96 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af aðeins laust. Ermin mælist ca 37-37-35-34-31-29 cm frá skiptingunni.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 05.04.2024
Uppskriftin hefur verið uppfærð. Leiðrétting á fram- og bakstykki og mynsturteikningu A.3.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat
symbols = 2 lykkju slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = engin lykkja, hoppið yfir í næstu rúðu í mynsturteikningu

symbols = prjónið 3 lykkjur slétt, steypið fyrstu prjónuðu lykkjunni yfir hinar 2 lykkjurnar

symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = 1 lykkja slétt í fremri lykkjubogann og 1 lykkja slétt í aftari lykkjubogann (= 1 lykkja fleiri)
symbols = svört stjarna, á við um þegar prjónað er stroff neðst á fram- og bakstykki, lesið útskýringu í mynstri
symbols = þegar prjónað hefur verið upp að ör eru útauknar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 248-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Margreet wrote:

In het patroon stasn volledig zwarte vakjes,bij A2 loop ik er meteen tegenaan, ook bij a1, a3 a4 en a6 staan ze. In de patroonuitleg vind ik dit niet terug, wat moet ik daar doen?

15.04.2024 - 14:53

DROPS Design answered:

Dag Margreet,

De zwarte vakjes zijn geen steken. Als je het telpatroon uit zou knippen, dan zou je de zwarte vakjes er a.h.w. ook uit moeten knippen. Je gaat dus gelijk verder met de volgende steek.

15.04.2024 - 21:03

country flag Margreet wrote:

In het patroon staat bijA2 en ook bij A1 en A3 een volledig zwart vakje, wat wordt daarmee bedoeld? Ik vind dat niet terug in de payroonuitleg

15.04.2024 - 14:51

country flag Orru Nathalie wrote:

Bonjour \r\nDepuis la correction du 5 avril, les diagrammes A1 et A3 n’apparaissent plus\r\nCordialement

13.04.2024 - 16:26

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Orru, vous devriez pouvoir les afficher, pensez à rafraîchir la page (Ctrl + F5), nettoyez les cookies/le cache de votre navigateur si besoin. Bon tricot!

15.04.2024 - 08:41

country flag Melanie wrote:

Wo finde ich denn die Angaben wann wie gezopft wird? Weder in den Diagrammen noch in dem schriftlichen Teil finde ich die Informationen.

05.04.2024 - 20:48

DROPS Design answered:

Liebe Melanie, das finden Sie mit der Diagrambeschreibung. Viel Spaß beim Stricken!

08.04.2024 - 09:20

country flag Jutta wrote:

Wird beim Rippenmuster am Rumpfteil nicht auf Nadelstärke 3 gewechselt, wie bei am Ärmel und Hals.?

03.04.2024 - 14:12

DROPS Design answered:

Liebe Jutta, ja genau, das wird auch dazugeschrieben, danke für den Hinweis. Viel Spaß beim Stricken!

05.04.2024 - 10:01

country flag Nicole wrote:

Disregard my first question about row 29. But, I am still confused that once you complete A.1 and A.3, how do you continue with the pattern?

02.04.2024 - 01:21

DROPS Design answered:

Dear Nicole, just repeat the lace pattern to continue the V and repeat the small cables as before. Happy knitting!

03.04.2024 - 08:00

country flag Nicole wrote:

I'm confused. I'm making the size small and I am on row 29 of A.1/A.3 and am still doing the raglan increases up to the 19 times. So I should be adding an increase into that row, however they are not built into the pattern anymore. Why is that? Also, when A.1 and A.3 are completed in their entirety what rows do we repeat for the body? I feel like the pattern is not clear on how to continue the pattern for the body.

01.04.2024 - 19:54

DROPS Design answered:

Dear Nicole, work the new stitches as shown in diagrams A.1/A.3 then work the new stitches for raglan in stocking stitch - see RAGLAN at the beginning of the written pattern. continue lace pattern and small cables just as before to keep the V lace pattern and the same rythm for the cables. Happy knitting!

02.04.2024 - 15:41

country flag Riinlaht wrote:

Kuviossa A3 ensimmäisellä rivillä puuttuu yksi langankierto. Merkki löytyy myöhemmin kaaviossa rivillä 7, siellä se on ylimääräinen. Voitteko korjata virheen. There is a mistake on pattern A3 round 1 and 7, yarn rotation is on wrong place. Could You correct it, please.

29.03.2024 - 15:17

country flag Jutta wrote:

Bitte die Reihen 1,3,5 und 7 korrigieren. Da sind die Umschläge an der falschen Stelle. Haben schon einige geschrieben, aber wurde leider nicht korrigiert.

27.03.2024 - 18:49

country flag Jutta wrote:

In A3 wird in der ersten Runde nach dem zusammenstricken kein Umschlag gemacht. Der fehlt aber dann beim weiterstricken.da passt es mit den Maschen nicht mehr. Fehlt dann eine. Außerdem werden in Runde 7 dann 2 Umschläge gemacht. In A1 ist es anders. Sind das Fehler oder ist es so wie im Schema gezeichnet, richtig?

27.03.2024 - 08:45

DROPS Design answered:

Liebe Jutta, danke für den Hinweis, Diagram A.3 wurde korrigiert. Viel Spaß beim Stricken!

05.04.2024 - 10:00