Sand Trails |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með laskalínu, köðlum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 248-3 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR: Ef prjónfestan er of stíf á hæðina, þá verður handvegur of lítill – hægt er að jafna þetta út með því að prjóna nokkrar umferðir fleiri á milli úrtöku. LASKALÍNA: Aukið út lykkum á undan og á eftir merkiþráðum. FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR MERKIÞRÆÐI ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN MERKIÞRÆÐI ÞANNIG: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið út 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt / brugðið eins og áður (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn – svo ekki myndist gat, síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í stroffprjón (mikilvægt er að lykkjur sem auknar er út passi við stroff sem þegar hefur verið prjónað hvoru megin við A.1, A.2 og A.3, ekki við miðju að neðan/undir). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað í hring, neðan frá og upp að handveg. Ermar eru prjónaðar í hring upp að handvegi. Fram- og bakstykki og ermar er sett saman og berustykkið er prjónað í hring á meðan lykkjum er fækkað fyrir laskalínu. Í lokin er kantur í hálsmáli prjónaður sem brotinn er inn og saumaður niður að röngu. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 160-176-208-208-224-256 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið hringinn í stroff þannig: Prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 lykkju brugðið. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar og 1 merkiþráð eftir 80-88-104-104-112-128 lykkjur, merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja brugðið. Prjónið stroff þar til stykkið mælist 8-8-8-9-9-9 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið lykkjur frá framstykki þannig: * Prjónið 1 lykkju brugðið, stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 0-4-4-4-8-8 lykkjur, A.1, A.2 yfir næstu 24-24-32-32-32-40 lykkjur, A.3, 2 lykkjur brugðið (= mitt framan á stykki), A.4, A.5 yfir næstu 24-24-32-32-32-40 lykkjur, A.6, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) yfir næstu 0-4-4-4-8-8 lykkjur og prjónið 1 lykkju brugðið *, merkiþráðurinn situr hér, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar yfir lykkjur á bakstykki. Haldið áfram með þetta mynstur upp úr. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist ca 36-36-37-38-38-38 cm, athugið vel í hvaða umferð í mynstri sem var síðasta prjónaða umferðin. SKIPTING FYRIR HANDVEG: Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki, prjónið umferðina þannig: Fellið af fyrstu 4-4-5-5-7-7 lykkjur í umferð fyrir handveg, prjónið 72-80-94-94-98-114 lykkjur eins og áður, fellið af næstu 8-8-10-10-14-14 lykkjur fyrir handveg, prjónið 72-80-94-94-98-114 lykkjur eins og áður og fellið af síðustu 4-4-5-5-7-7 lykkjur fyrir handveg. Klippið þráðinn og leggið fram- og bakstykki til hliðar á meðan ermar eru prjónaðar. ERMAR: Fitjið upp 48-48-52-52-56-56 lykkjur á sokkaprjóna 6 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið hringinn í stroffprjóni (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) í 8-8-8-9-9-9 cm. Setjið 1 merkiþráð á milli 2 fyrstu lykkja brugðið í stærð S, M, XXL og XXXL, setjið merkiþráð á milli 2 fyrstu lykkja slétt í stærð L og XL – Nú byrjar umferðin hér. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu, það á að nota hann þegar auka á út mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 8, prjónið mynstur þannig: Prjónið stroff eins og áður yfir næstu 5-5-7-7-9-9 lykkja, A.1, prjónið A.2 yfir næstu 24 lykkjur, A.3, prjónið stroff eins og áður yfir síðustu 5-5-7-7-9-9 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar ermin mælist 10-10-11-12-12-12 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í ca hverjum 4-2½-3-2-2-1½ cm alls 8-12-10-14-12-16 sinnum = 64-72-72-80-80-88 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist ca 45-44-44-44-41-40 cm – stillið af að endað sé í sömu umferð í mynstri eins og á fram- og bakstykki. Fellið af miðju 8-8-10-10-10-10 lykkjur undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 4-4-5-5-5-5 lykkjur hvoru megin við merkiþráðinn) = 56-64-62-70-70-78 lykkjur í umferð. Prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Haldið áfram með mynstur. Prjónið 1 umferð jafnframt því sem ermar eru settar inn á sama hringprjón og framstykki og bakstykki, ermar eru settar á prjóninn þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handvegi = 256-288-312-328-336-384 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 merkiþræðir, merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja). Byrjið umferð við merkiþráð á undan bakstykki. Þegar stykkið mælist 1 cm frá skiptingu byrjar úrtaka við laskalínu við merkiþræðina – lykkjum er fækkað mismunandi við framstykki/bakstykki og ermum – lestu því ÚRTAKA FYRIR LASKALÍNU FRAMSTYKKI / BAKSTYKKI og ÚRTAKA FYRIR LASKALÍNU ERMAR í kaflanum að neðan, áður en byrjað er á úrtöku fyrir laskalínu. ÚRTAKA FYRIR LASKALÍNU FRAMSTYKKI / BAKSTYKKI: Lestu útskýringu LASKALÍNA og LEIÐBEININGAR að ofan. Fækkað er alls 22-26-33-33-31-39 sinnum hvoru megin við framstykki/bakstykki jafnt yfir þannig: ÚRTAKA 1: Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð alls 7-6-0-2-7-2 sinnum. ÚRTAKA-2: Fækkið lykkjum í hverri umferð alls 15-20-33-31-24-37 sinnum. ÚRTAKA FYRIR LASKALÍNU ERMAR: Lestu útskýringu á LASKALÍNA og LEIÐBEININGAR að ofan. Fækkað er alls 22-26-25-29-29-33 sinnum hvoru megin við ermar jafnt yfir þannig: ÚRTAKA 1: Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð alls 7-6-8-6-9-8 sinnum. ÚRTAKA 2: Fækkið lykkjum í hverri umferð alls 15-20-17-23-20-25 sinnum. Á EFTIR SÍÐUSTU ÚRTÖKU: Á eftir síðustu úrtöku eru 80-80-80-80-96-96 lykkjur í umferð. Berustykkið mælist ca 20-22-23-24-26-28 cm frá skiptingunni, peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá uppfitjunarkanti fyrir öxl. Það eru 28-28-28-28-36-36 lykkjur á milli merkiþráða á framstykki/bakstykki og 12 lykkjur á milli merkiþráða á hvorri ermi. KANTUR Í HÁLSMÁLI: = 80-80-80-80-96-96 lykkjur. Prjónið síðan með hringprjón 6, frá merkiþræði á undan bakstykki og prjónið umferð 1 þannig: * Prjónið 1 lykkju slétt, stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) – stroffið á að passa yfir mynstur frá bakstykki/framstykki, endið með 1 lykkju slétt á undan næsta merkiþræði, yfir 12 lykkjur á ermi er prjónað frá merkiþræði þannig: 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið saman 2 sinnum, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið saman 2 sinnum og 1 lykkja slétt (= 4 lykkjur færri, það eru 8 lykkjur á milli merkiþráða á ermi) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Það eru 72-72-72-72-88-88 lykkjur í umferð og stroffið gengur upp í stroff 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið alla leiðina hringinn. Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist 13-13-13-15-15-15 cm. Fellið af aðeins laust og brjótið kant í hálsmáli tvöfaldan að röngu og saumið niður – til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði ekki of stífur er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Kantur í hálsmáli mælist ca 6-6-6-7-7-7 cm uppábrotin. FRÁGANGUR: Saumið 8-8-10-10-10-10 affelldar lykkjur mitt undir ermi við 8-8-10-10-14-14 affelldar lykkjur á fram- og bakstykki. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (74)
Helén Bielsten Rosenberg wrote:
Hej fråga ang ditt svar se nedan: "Det står utmärkt när du har stickat fram till mitten av framstycket och du har då stickat 44 maskor (4+8+24+6+2 m). Mvh DROPS Design" Se att det blir 44 men hur räknas den 1:a aviga maskan efter markeringtråden? Då lär det bli 45 till mitten ?
09.05.2024 - 15:47Moa wrote:
När man ska sticka räta och aviga från flätstickan, så händer det ibland att man förra varvet inte stämmer överrens med nästa i form av typ av maska. T.ex, man börjar med att sticka två aviga maskor räta, och sen vet jag inte om jag ska sticka nästa två räta maskor aviga, eller om jag ska flytta över de aviga maskorna? Men då blir det helt snett. Vet inte hur jag ska förklara... Förstår du mitt problem?
09.05.2024 - 14:47Helén Bielsten Rosenberg wrote:
Hej Tack för svar. Men symbolen är i så fall missvisande i förklaring till diagram A1 o A2 o A3 rad 1. Dessa ser inte ut som i förklaringen. Men då stickar jag dessa med flätsticka bakom Toppen att kunna skriva o få svar då jag tar upp stickandet igen efter ca 30 år....
08.05.2024 - 11:31Helén Bielsten Rosenberg wrote:
Hej igen symbolen för = sätt 4 maskor på flätsticka bakom arbetet, sticka 2 räta, sätt de 2 aviga maskorna från flätstickan tillbaka på vänster sticka och sticka dessa 2 maskor aviga och sticka 2 räta från flätstickan.Finns inte med i diagramen
07.05.2024 - 12:57DROPS Design answered:
Hej Helén. Den symbolen finns tex på första varvet i diagram A.1, A.2 och A.3. Mvh DROPS Design
08.05.2024 - 10:49Helén Bielsten Rosenberg wrote:
Hej, jag har 88 maskor =framstycke. om jag stickar enl beskrivningen startar ska jag sticka mitten vid 29 maskor A3 . Detta kommer inte att bli på mitten?
07.05.2024 - 12:52DROPS Design answered:
Hej Helén. Det står utmärkt när du har stickat fram till mitten av framstycket och du har då stickat 44 maskor (4+8+24+6+2 m). Mvh DROPS Design
08.05.2024 - 10:53Heidi Risbråthe wrote:
Hei. Jeg strikker str L, og har en mistanke om at det er feil i mønsteret her. Kan det stemme at man skal legge opp like mange på L og XL (208 masker). Det blir også feil med 32 masker over A.1,A.2. her skal det vel være 40? Jeg er en erfaren strikker, men her har jeg satt meg helt fast...har rekket opp 3 ganger...og nå lagt denne genseren på vent, da jeg ikke får regnestykket til å gå opp dessverre.
07.05.2024 - 09:19Charlotte Kjølby wrote:
Hej.. Jeg strikker str XL. Jeg har startet mønsteret efter ribben, men har stadig 16 masker tilbage inden jeg når "halvvejsmarkøren" Mønsteret skulle være strikket korrekt, er der fejl i opskriften mon?
03.05.2024 - 14:01DROPS Design answered:
Hej Charlotte, du har 104 m på forstykket: 1 vr, 4m rib (= 2 r / 2 vr), A.1 (8m), A.2 over 32m, A.3 (6m), 2 vrang (= midt foran), A.4 (8m), A.5 over 32 m, A.6 (6m), 4m rib (= 2 vr / 2 r) 1 vr = 104 m og det gentager du bagpå :)
03.05.2024 - 15:12Nicole wrote:
Bonjour Tout va bien.je pensais qu’il y avait une erreur dans le nombre de mailles Tout est parfait
24.04.2024 - 10:42Nicole wrote:
Bonjour Pour la TS, combien de torsades dois je faire pour arriver au milieu du devant?(sur 40 mailles ) Merci
23.04.2024 - 10:44DROPS Design answered:
Bonjour Nicole, je ne comprends pas vraiment votre question, à quel niveau en êtes-vous? Vous tricotez la taille S, c'est bien cela? Pouvez-vous nous en dire plus pour que nous puissions vous aider? Merci pour votre compréhension.
23.04.2024 - 12:31Tuija Lahti wrote:
Hi, Lovely pattern! Will this pattern instruction be available in finnish? If yes, when might? Or should I just use this english instruction already available?
19.04.2024 - 12:31DROPS Design answered:
Hi Tuija, to get the Finnish instruction, please click on the drop-down menu just under 'Pattern instructions', you will see there all language versions available. Happy knitting!
19.04.2024 - 12:35