Rose Window |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Tunika með hekluðum ferningi og gatamynstri, hekluð ofan frá og niður úr DROPS Cotton Light. Stærð S - XXXL.
DROPS 177-31 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. ÚTAUKNING: Aukið út í hvorri hlið með því að hekla auka loftlykkjuboga (= 6 loftlykkjur og 1 fastalykkja) um fyrsta og síðasta loftlykkjubogann í umferð (= loftlykkjubogi með 3 loftlykkjum). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. ---------------------------------------------------------- TUNIKA: Fyrst er heklaður ferningur, síðan eru axlirnar heklaðar og hliðarnar á hann og að lokum er fram- og bakstykki heklað niður úr. Bakstykki og framstykki eru alveg eins. BAKSTYKKI: HEKLAÐUR FERNINGUR: Byrjið með heklunál 3 og Cotton Light og heklið mynstur eftir mynsturteikningu A.1b alls 4 sinnum í umferð. Mynsturteikning A.1a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar öll mynsturteikning A.1a og A.1b hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist ferningurinn ca 21 x 21 cm. Klippið frá. Byrjið í fastalykkju merktri með stjörnu í síðustu umferð A.1b og heklið frá 3. umferð í mynsturteikningu þannig: Heklið A.2a í fastalykkju (A.2 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.2b yfir fyrstu 3 loftlykkjuboga, * heklið A.2c (= horn), heklið A.2b yfir næstu 9 loftlykkjuboga (= 3 mynstureiningar) *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, heklið A.2c í hornið og endið með A.2b yfir þá 6 loftlykkjuboga sem eftir eru (= 2 mynstureiningar) í umferð. Þegar síðasta umferðin í A.2a til A.2c hefur verið hekluð til loka mælist ferningurinn ca 34 x 34 cm. Nú er ferningurinn í stærð S og M lokið. Í stærð L, XL, XXL og XXXL er haldið áfram þannig: Heklið 2 loftlykkjur, byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu og heklið A.3a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.3b umferðina hringinn en í hvert horn er heklað A.3c. Þegar mynsturteikning er hekluð til loka á hæðina mælist ferningurinn ca 39 x 39 cm og ferningur í stærð L og XL er lokið. Í stærð XXL og XXXL eru endurteknar síðustu 2 umferðirnar í A.3 1 sinni til viðbótar á hæðina. Ferningurinn mælist ca 43 x 43 cm og stæð XXL og XXXL er lokið. Klippið frá. HÆGRI ÖXL: Byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu og heklið öxlina fram og til baka þannig: Heklið A.4a um loftlykkjuboga í horni A – sjá teikningu, heklið A.4b yfir næstu 20-20-25-25-25-25 stuðlana (4-4-5-5-5-5 mynstureiningar), heklið A.4c um bilið á milli næstu 2 stuðla. Snúið og haldið svona áfram fram og til baka þar til A.4a til A.4c hefur verið heklað til loka á hæðina. Endurtakið síðan umferð 2-5 1-1-1-2-2-2 sinnum til viðbótar á hæðina. Öxlin mælist ca 8-8-8-12-12-12 cm frá heklaða ferning. Klippið frá og festið enda. VINSTRI ÖXL: Hoppið yfir 35-35-35-35-45-45 stuðla fyrir hálsmáli á eftir hægri öxl = 20-20-25-25-25-25 stuðlar fyrir vinstri öxl. Í bilið á milli næstu 2 stuðla er þráðurinn festur með 1 fastalykkju. Byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu og heklið A.4a, heklið A.4b yfir næstu 20-20-25-25-25-25 stuðlum (= 4-4-5-5-5-5 mynstureiningar), heklið A.4c um loftlykkjubogann í horni B (sjá mynsturteikningu). Endurtakið síðan umferð 2-5 í mynsturteikningu 1-1-1-2-2-2 sinnum á hæðina. Klippið frá og festið enda. VINSTRI HLIÐ (á milli horna B og C – sjá mynsturteikningu): Hoppið yfir 15 stuðla í öllum stærðum frá loftlykkjuboga í horni B. Byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu og heklið A.4d yfir næstu 10 stuðla, heklið A.4b yfir næstu 10 stuðla, heklið A.4b yfir næstu 50-50-60-60-70-70 stuðla, endið með A.4c um loftlykkjuboga í horn C á ferningi (= 12-12-14-14-16-16 loftlykkjubogar). Snúið og heklið fram og til baka þar 4. umferð í mynsturteikningu hefur verið hekluð til loka á hæðina. Nú hefur fækkað um 1 loftlykkjuboga í A.4d = 11-11-13-13-15-15 loftlykkjubogar. Heklið 3. og 4. umferð í A.4a, A.4b og A.4c 0-1-1-2-3-4 sinnum á hæðina (= 3-5-5-7-9-11 umferð með loftlykkjubogum). Nú eru 11-11-13-13-15-15 loftlykkjubogar í vinstri hlið. Heklið 3. umferð í mynsturteikningu frá röngu þannig: Heklið A.4c, heklið A.4b alls 5-5-6-6-7-7 sinnum á breidd, heklið 3 loftlykkjur og 1 fastalykkju um næsta loftlykkjuboga. Klippið frá. ATH: Þessi umferð er hekluð til að hliðin vísi aðeins út neðst niðri. Festið þráðinn með 1 fastalykkju um efsta loftlykkjubogann á hlið séð frá réttu (þ.e.a.s. loftlykkjuboginn yst við handveg), heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, hekklið 4 stuðla um sama loftlykkjuboga, heklið 5 stuðla um hvern og einn af næstu 4-4-5-5-6-6 loftlykkjubogum (= fram að síðasta loftlykkjuboga sem var heklaður frá fyrri umferð), heklið 3 stuðla um næsta loftlykkjuboga, haldið síðan áfram með 5 stuðla um hvern og einn af næstu 6-6-7-7-8-8 loftlykkjubogum og heklið 2 stuðla um síðasta loftlykkjuboga (= loftlykkjubogi með 3 loftlykkjum) = 55-55-65-65-75-75 stuðlar. Nú er hliðin tilbúin. Klippið frá og festið enda. HÆGRI HLIÐ (á milli horn A og D – sjá teikningu) Hægri hlið er hekluð alveg eins og vinstri hlið nema spegilmynd. Heklið frá röngu og hoppið yfir 15 stuðla frá loftlykkjuboga í horni A. Klippið ekki þráðinn frá þegar síðasta umferð með stuðlum hefur verið hekluð til loka. ÁFRAM NIÐUR YFIR FRAM- OG BAKSTYKKI: HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið nú áfram niður yfir fram- og bakstykki, fram og til baka yfir neðsta kant á hliðum og heklaða ferningi. Byrjið frá röngu og heklið 2. umferð þannig: Heklið A.4a (= loftlykkja í 2. umferð), heklið 3-4-4-5-6-7 mynstureiningar A.4b meðfram neðsta kanti í hægri hlið, haldið síðan áfram með A.4b yfir 75-75-85-85-95-95 stuðla á ferning (á milli horna D og C), heklið 3-4-4-5-6-7 mynstureiningar A.4b meðfram neðsta kanti í vinstri hlið og endið með A.4c um síðasta stuðulinn = 21-23-25-27-31-33 loftlykkjubogar. Heklið 3. og 4. umferð í mynsturteikningu 3 sinnum (= alls 7 umferðir með loftlykkjubogum) JAFNFRAMT er aukið út um 1 loftlykkjuboga í hvorri hlið í hvert skipti sem 4. umferðin er hekluð – LESIÐ ÚTAUKNING = 27-29-31-33-37-39 loftlykkjubogar. Stykkið mælist ca 7 cm. Heklið næstu umferð frá réttu þannig: Heklið 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga jafnframt því sem aukið er út um 14-6-13-5-4-11 st jafnt yfir = 122-122-137-137-152-167 stuðlar. Byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu og heklið þannig: Heklið A.5a, heklið A.2b (= 8-8-9-9-10-11 mynstureiningar á breidd), heklið A.5b. Í síðustu umferð í mynsturteikningu er aukið út um 15-25-20-30-35-30 stuðla jafnt yfir = 137-147-157-167-187-197 stuðlar. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist stykkið ca 15 cm. Byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu og heklið þannig: Heklið A.4a yfir A.5a, heklið A.4b þar til 1 stuðull er eftir í umferð, heklið A.4c yfir a.5b (= 27-29-31-33-37-39 loftlykkjubogar). Endurtakið 3. og 4. umferð þar til heklaðar hafa verið 5-7-5-5-5-7 umferðir með loftlykkjuboga á hæðina. Stykkið mælist ca 20-22-20-20-20-22 cm. Heklið næstu umferð þannig: Heklið 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga jafnframt sem auknir eru út 14-6-13-5-4-11 stuðlar jafnt yfir = 122-122-137-137-152-167 stuðlar. Heklið nú mynstur með byrjun frá 2. umferð í mynsturteikningu þannig: Heklið A.5a, heklið A.2b (= 8-8-9-9-10-11 sinnum á breidd), heklið A.5b. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist stykkið ca 70-70-75-79-83-85 cm frá öxl. Klippið frá og festið enda. FRAMSTYKKI: Heklið framstykki alveg eins og bakstykki. ATH: Mynsturteikning með málum sýna bakstykki. Þ.e.a.s. þegar framstykki er heklað er hægri hlið á milli B og C og vinstri hlið á milli A og C. FRÁGANGUR: Saumið saman axlasauma yst í lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur. Leggið síðan framstykki að hlið á bakstykki og heklið hliðarnar saman frá réttu þannig: Byrjið með 1 fastalykkju í fyrsta stuðul að handvegi, heklið 3 loftlykkjur, heklið 1 fastalykkju í stuðul í gangstæðri hlið, * heklið 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, heklið 1 fastalykkju í stuðul/um loftlykkjuboga í hinni hliðinni *, endurtakið frá *-* niður meðfram allri hliðinni. Klippið frá og festið enda. Heklið saman hina hliðina alveg eins. KANTUR Í HÁLSI: UMFERÐ 1: Byrjið mitt ofan á öxl og heklið 1 fastalykkju, * heklið 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja *, endurtakið frá *-* í kringum allt hálsmálið. Fjöldi loftlykkjuboga á að vera jafnt. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju og heklið keðjulykkjur að miðju á fyrsta loftlykkjuboga. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju um sama loftlykkjuboga, * Heklið 5 loftlykkjur, hoppið yfir 1 loftlykkjuboga, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* hringinn allt hálsmálið en endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð. Klippið frá og festið enda. KANTUR Á ERMUM: Byrjið með 1 fastalykkju mitt undir handveg, * heklið 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja *, endurtakið frá *-* hringinn allan handveginn, en endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið frá og festið enda. Endurtakið hringinn um hinn handveginn. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (21)
Anne-griet wrote:
What a lovely tunic! I can't wait to crochet this. This one just has to make it into the Spring & Summer 2017 collection!
13.12.2016 - 17:28