DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3366.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Rose Window

Tunika með hekluðum ferningi og gatamynstri, hekluð ofan frá og niður úr DROPS Cotton Light. Stærð S - XXXL.

DROPS 177-31
DROPS Design: Mynstur cl-073
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL
Efni:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-550-600-650-750 g litur 34, ljós gallabuxnablár

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 22 stuðlar og 11 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3366.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur.

ÚTAUKNING:
Aukið út í hvorri hlið með því að hekla auka loftlykkjuboga (= 6 loftlykkjur og 1 fastalykkja) um fyrsta og síðasta loftlykkjubogann í umferð (= loftlykkjubogi með 3 loftlykkjum).

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.
----------------------------------------------------------

TUNIKA:
Fyrst er heklaður ferningur, síðan eru axlirnar heklaðar og hliðarnar á hann og að lokum er fram- og bakstykki heklað niður úr. Bakstykki og framstykki eru alveg eins.

BAKSTYKKI:

HEKLAÐUR FERNINGUR:
Byrjið með heklunál 3 og Cotton Light og heklið mynstur eftir mynsturteikningu A.1b alls 4 sinnum í umferð. Mynsturteikning A.1a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar öll mynsturteikning A.1a og A.1b hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist ferningurinn ca 21 x 21 cm. Klippið frá.

Byrjið í fastalykkju merktri með stjörnu í síðustu umferð A.1b og heklið frá 3. umferð í mynsturteikningu þannig: Heklið A.2a í fastalykkju (A.2 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.2b yfir fyrstu 3 loftlykkjuboga, * heklið A.2c (= horn), heklið A.2b yfir næstu 9 loftlykkjuboga (= 3 mynstureiningar) *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, heklið A.2c í hornið og endið með A.2b yfir þá 6 loftlykkjuboga sem eftir eru (= 2 mynstureiningar) í umferð. Þegar síðasta umferðin í A.2a til A.2c hefur verið hekluð til loka mælist ferningurinn ca 34 x 34 cm.
Nú er ferningurinn í stærð S og M lokið.
Í stærð L, XL, XXL og XXXL er haldið áfram þannig:
Heklið 2 loftlykkjur, byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu og heklið A.3a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.3b umferðina hringinn en í hvert horn er heklað A.3c. Þegar mynsturteikning er hekluð til loka á hæðina mælist ferningurinn ca 39 x 39 cm og ferningur í stærð L og XL er lokið. Í stærð XXL og XXXL eru endurteknar síðustu 2 umferðirnar í A.3 1 sinni til viðbótar á hæðina. Ferningurinn mælist ca 43 x 43 cm og stæð XXL og XXXL er lokið.
Klippið frá.

HÆGRI ÖXL:
Byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu og heklið öxlina fram og til baka þannig:
Heklið A.4a um loftlykkjuboga í horni A – sjá teikningu, heklið A.4b yfir næstu 20-20-25-25-25-25 stuðlana (4-4-5-5-5-5 mynstureiningar), heklið A.4c um bilið á milli næstu 2 stuðla. Snúið og haldið svona áfram fram og til baka þar til A.4a til A.4c hefur verið heklað til loka á hæðina. Endurtakið síðan umferð 2-5 1-1-1-2-2-2 sinnum til viðbótar á hæðina. Öxlin mælist ca 8-8-8-12-12-12 cm frá heklaða ferning. Klippið frá og festið enda.

VINSTRI ÖXL:
Hoppið yfir 35-35-35-35-45-45 stuðla fyrir hálsmáli á eftir hægri öxl = 20-20-25-25-25-25 stuðlar fyrir vinstri öxl. Í bilið á milli næstu 2 stuðla er þráðurinn festur með 1 fastalykkju. Byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu og heklið A.4a, heklið A.4b yfir næstu 20-20-25-25-25-25 stuðlum (= 4-4-5-5-5-5 mynstureiningar), heklið A.4c um loftlykkjubogann í horni B (sjá mynsturteikningu). Endurtakið síðan umferð 2-5 í mynsturteikningu 1-1-1-2-2-2 sinnum á hæðina. Klippið frá og festið enda.

VINSTRI HLIÐ (á milli horna B og C – sjá mynsturteikningu):
Hoppið yfir 15 stuðla í öllum stærðum frá loftlykkjuboga í horni B. Byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu og heklið A.4d yfir næstu 10 stuðla, heklið A.4b yfir næstu 10 stuðla, heklið A.4b yfir næstu 50-50-60-60-70-70 stuðla, endið með A.4c um loftlykkjuboga í horn C á ferningi (= 12-12-14-14-16-16 loftlykkjubogar). Snúið og heklið fram og til baka þar 4. umferð í mynsturteikningu hefur verið hekluð til loka á hæðina. Nú hefur fækkað um 1 loftlykkjuboga í A.4d = 11-11-13-13-15-15 loftlykkjubogar. Heklið 3. og 4. umferð í A.4a, A.4b og A.4c 0-1-1-2-3-4 sinnum á hæðina (= 3-5-5-7-9-11 umferð með loftlykkjubogum). Nú eru 11-11-13-13-15-15 loftlykkjubogar í vinstri hlið. Heklið 3. umferð í mynsturteikningu frá röngu þannig: Heklið A.4c, heklið A.4b alls 5-5-6-6-7-7 sinnum á breidd, heklið 3 loftlykkjur og 1 fastalykkju um næsta loftlykkjuboga. Klippið frá. ATH: Þessi umferð er hekluð til að hliðin vísi aðeins út neðst niðri. Festið þráðinn með 1 fastalykkju um efsta loftlykkjubogann á hlið séð frá réttu (þ.e.a.s. loftlykkjuboginn yst við handveg), heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, hekklið 4 stuðla um sama loftlykkjuboga, heklið 5 stuðla um hvern og einn af næstu 4-4-5-5-6-6 loftlykkjubogum (= fram að síðasta loftlykkjuboga sem var heklaður frá fyrri umferð), heklið 3 stuðla um næsta loftlykkjuboga, haldið síðan áfram með 5 stuðla um hvern og einn af næstu 6-6-7-7-8-8 loftlykkjubogum og heklið 2 stuðla um síðasta loftlykkjuboga (= loftlykkjubogi með 3 loftlykkjum) = 55-55-65-65-75-75 stuðlar. Nú er hliðin tilbúin. Klippið frá og festið enda.

HÆGRI HLIÐ (á milli horn A og D – sjá teikningu)
Hægri hlið er hekluð alveg eins og vinstri hlið nema spegilmynd. Heklið frá röngu og hoppið yfir 15 stuðla frá loftlykkjuboga í horni A. Klippið ekki þráðinn frá þegar síðasta umferð með stuðlum hefur verið hekluð til loka.

ÁFRAM NIÐUR YFIR FRAM- OG BAKSTYKKI:
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Heklið nú áfram niður yfir fram- og bakstykki, fram og til baka yfir neðsta kant á hliðum og heklaða ferningi. Byrjið frá röngu og heklið 2. umferð þannig:
Heklið A.4a (= loftlykkja í 2. umferð), heklið 3-4-4-5-6-7 mynstureiningar A.4b meðfram neðsta kanti í hægri hlið, haldið síðan áfram með A.4b yfir 75-75-85-85-95-95 stuðla á ferning (á milli horna D og C), heklið 3-4-4-5-6-7 mynstureiningar A.4b meðfram neðsta kanti í vinstri hlið og endið með A.4c um síðasta stuðulinn = 21-23-25-27-31-33 loftlykkjubogar. Heklið 3. og 4. umferð í mynsturteikningu 3 sinnum (= alls 7 umferðir með loftlykkjubogum) JAFNFRAMT er aukið út um 1 loftlykkjuboga í hvorri hlið í hvert skipti sem 4. umferðin er hekluð – LESIÐ ÚTAUKNING = 27-29-31-33-37-39 loftlykkjubogar. Stykkið mælist ca 7 cm.

Heklið næstu umferð frá réttu þannig: Heklið 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga jafnframt því sem aukið er út um 14-6-13-5-4-11 st jafnt yfir = 122-122-137-137-152-167 stuðlar. Byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu og heklið þannig: Heklið A.5a, heklið A.2b (= 8-8-9-9-10-11 mynstureiningar á breidd), heklið A.5b. Í síðustu umferð í mynsturteikningu er aukið út um 15-25-20-30-35-30 stuðla jafnt yfir = 137-147-157-167-187-197 stuðlar. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist stykkið ca 15 cm.
Byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu og heklið þannig: Heklið A.4a yfir A.5a, heklið A.4b þar til 1 stuðull er eftir í umferð, heklið A.4c yfir a.5b (= 27-29-31-33-37-39 loftlykkjubogar). Endurtakið 3. og 4. umferð þar til heklaðar hafa verið 5-7-5-5-5-7 umferðir með loftlykkjuboga á hæðina. Stykkið mælist ca 20-22-20-20-20-22 cm.

Heklið næstu umferð þannig: Heklið 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga jafnframt sem auknir eru út 14-6-13-5-4-11 stuðlar jafnt yfir = 122-122-137-137-152-167 stuðlar. Heklið nú mynstur með byrjun frá 2. umferð í mynsturteikningu þannig: Heklið A.5a, heklið A.2b (= 8-8-9-9-10-11 sinnum á breidd), heklið A.5b. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist stykkið ca 70-70-75-79-83-85 cm frá öxl. Klippið frá og festið enda.

FRAMSTYKKI:
Heklið framstykki alveg eins og bakstykki. ATH: Mynsturteikning með málum sýna bakstykki. Þ.e.a.s. þegar framstykki er heklað er hægri hlið á milli B og C og vinstri hlið á milli A og C.

FRÁGANGUR:
Saumið saman axlasauma yst í lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur.
Leggið síðan framstykki að hlið á bakstykki og heklið hliðarnar saman frá réttu þannig:
Byrjið með 1 fastalykkju í fyrsta stuðul að handvegi, heklið 3 loftlykkjur, heklið 1 fastalykkju í stuðul í gangstæðri hlið, * heklið 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, heklið 1 fastalykkju í stuðul/um loftlykkjuboga í hinni hliðinni *, endurtakið frá *-* niður meðfram allri hliðinni. Klippið frá og festið enda. Heklið saman hina hliðina alveg eins.

KANTUR Í HÁLSI:
UMFERÐ 1: Byrjið mitt ofan á öxl og heklið 1 fastalykkju, * heklið 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja *, endurtakið frá *-* í kringum allt hálsmálið. Fjöldi loftlykkjuboga á að vera jafnt. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju og heklið keðjulykkjur að miðju á fyrsta loftlykkjuboga.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju um sama loftlykkjuboga, * Heklið 5 loftlykkjur, hoppið yfir 1 loftlykkjuboga, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* hringinn allt hálsmálið en endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð. Klippið frá og festið enda.

KANTUR Á ERMUM:
Byrjið með 1 fastalykkju mitt undir handveg, * heklið 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja *, endurtakið frá *-* hringinn allan handveginn, en endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið frá og festið enda. Endurtakið hringinn um hinn handveginn.

Mynstur

symbols = heklið 4 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkjuboga/á milli 2 stuðla
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun umferðar, heklið síðan keðjulykkju fram að miðju á fyrsta loftlykkjuboga
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun umferðar, heklið síðan keðjulykkjur upp að 2. loftlykkjuboga
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun umferðar
symbols = umferðin byrjar með 5 loftlykkjur og endar með 1 keðjulykkju í 5. loftlykkju í byrjun umferðar
symbols = heklið 2 stuðla saman um loftlykkjuhring/loftlykkjuboga þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni

symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjur og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjur og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar, heklið síðan keðjulykkju fram að fyrsta loftlykkjuboga

symbols = 1 stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 hálfur stuðull um loftlykkjuboga/ á milli 2 þríbrugðna stuðla
symbols = 1 tvöfaldur stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 þríbrugðinn stuðull í lykkju/um loftlykkjuboga
symbols = þegar allt A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina er klippt frá. Haldið síðan áfram með mynstur frá þessari fastalykkju – sjá útskýringu í uppskrift
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Leanne wrote:

I love this design but I am having problems with the following part . Work the 3rd row in the diagrams from the wrong side as follows: Work A.4c, work A.4b in total 5-5-6-6-7-7 times in width, work 3 chain stitches and 1 double crochet around the next chain space. Cut the strand. NOTE: This row is worked so that the side flares out a little at the bottom. What does it mean to work from the wrong side and in width? Do I crochet 5 more rows of 3rd row

05.02.2024 - 10:48

country flag Simonnet Emmanuelle wrote:

Je bloque sur l'explication du côté. La phrase "crocheter le 3eme et le 4 eme rang de A4a A4b et A4c. " Ces diagrammes ont 5 rangs. Prend t'on en compte le 1er rang?

03.05.2022 - 17:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Simonet, pour le côté gauche (coins B-C), vous crochetez d'abord les rangs 2, 3 et 4 puis vous crochetez encore 1 à 4 fois les rangs 3 et 4 (= encore 2 rangs d'arceaux x 1, 2, 3 ou 4 selon la taille), vous aurez ainsi davantage d'arceaux en hauteur. Bon crochet!

04.05.2022 - 07:53

country flag Helene wrote:

Jeg sidder med venstre side og bøvler med hvad 3. og 4. række, er. Hvornår skal man hækle 5. række? Hvis de der gentages er de to sidste rækker, passer det ikke med 5 lm-rækker men det passer med 11 buer. Var det ikke en ide at tegne et diagram for hele siden?

24.04.2022 - 14:02

country flag Pia wrote:

Hej. Var det ikke muligt, at få en opskrift, på en ikke , så kompliceret hæklet bluse? Så alle kan være med😊

30.06.2021 - 13:42

DROPS Design answered:

Hej Pia, her har du flere hæklede bluser at vælge imellem: Bluser - Hæklet

30.06.2021 - 15:05

country flag EJF wrote:

I'm working on the initial square -- when I got to the end of the A.1 charts everything was fine. Size was a perfect 8 1/4". Now I've just finished the A.2 charts (an additional 5 rounds) and the square is only 12", not 13.5" as expected -- a huge difference. I am baffled as to how this happened. Instructions say 'start in 3rd row' of the A.2 charts, which I did, and what I have matches the picture. Any idea where this went wrong?

30.03.2021 - 02:40

country flag Lorena wrote:

Si en los lados quedan 11 arcos, es imposible hacer lo siguiente porque se necesitan 13 arcos (talla M): 4 puntos altos dentro del mismo arco, 5 puntos altos dentro de cada uno de los siguientes 4 arcos, 3 puntos altos dentro del siguiente arco, continuar con 5 puntos altos en cada uno de los siguientes 6 arcos y 2 puntos altos en el último arco. Ayuda por favor, donde estan los 2 arcos que faltan? O hay un error en el patron?

26.10.2020 - 02:25

DROPS Design answered:

Hola Lorena, se cuentan los 3 puntos de cadeneta a cada lado como arcos, por lo que los 11 arcos + los 3 puntos de cadeneta a cada lado = 13 arcos.

20.11.2020 - 23:51

country flag Ann Kathrine wrote:

Hej. Jeg er i fuld gang, men jeg kan ikke få rapporterne til at passe videre ned over rygstykket. I 2. Afsnit står der at A2.b skal hækles 8 rapporter i bredden over de 122 stangmasker. Her får jeg plads til 9 rapporter. Kan I være behjælpelige?

09.05.2019 - 14:34

country flag Eva wrote:

Beställt det rekommenderade garnet och det är så många trådar som inte håller ihop så arbetet ser ut som en trasmatta bestående av rivna lakan.☹️

04.04.2019 - 20:23

DROPS Design answered:

Hei Eva. Det var leit å høre. Dersom det er noe feil med garnet har du sikkert reklamasjonsrett der du kjøpte det. Men være klar over at de enkelte trådene i bommulsgarn ikke henger like tett sammen som i feks ullgarn, på grunn av teksturen i fibrene. Men dette skal ikke være noe problem, og det skal gå helt fint ann å hekle med garnet på vanlig måte. God fornøyelse

11.04.2019 - 15:16

country flag D. Severijns wrote:

Rechterschouder. Bij de 3e toer (dus als je voor de 1e keer keert) staan bij A4c 3 kleine verticale streepjes boven elkaar. Wat is dat voor steek? Een verticaal streepje is een halve vaste. Maar ik begrijp niet hoe ik hier 3 hv moet verwerken.

06.08.2018 - 16:16

DROPS Design answered:

Dag D. Severijns, Die streepjes zijn lossen. (Zowel verticale als horizontale streepjes zijn dus lossen.)

07.08.2018 - 09:13

country flag Jette wrote:

Jeg mener, der er en trykfejl, jeg kunne i hvert fald ikke luftmaskbuerne til at stemme. Ventre side 3. sidste linje : 6-6-7-7-8-8 Der mener jeg der skal stå 5-5-6-6-7-7.

29.05.2018 - 23:30

DROPS Design answered:

Hej Jette, Vi har ikke hørt at der skal være fejl, men vi skal prøve at få design til at se på det :)

30.05.2018 - 15:06