Slice of Summer |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað sjal úr DROPS Safran. Stykkið er heklað ofan frá og niður með kúlum, gatamynstri og röndum.
DROPS 200-21 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.13. Mynsturteikning A.1 sýnir alla byrjunina á stykkinu. Mynsturteikning A.3, A.5, A.7, A.9, A.11 og A.13 sýnir miðju á sjali. Loftlykkjubogi í miðju á þessari mynsturteikningu = miðju bogi. Mynsturteikning A.2, A.4, A.6, A.8, A.10 og A.12 sýnir helming á sjali. Mynsturteikning er því lesin frá hægri til vinstri í fyrsta skipti þegar hekla á eina umferð, síðan er miðjan á sjalinu hekluð, síðan er mynsturteikning lesin frá vinstri til hægri í annað skipti sem hekla á eina umferð. RENDUR: Sjá tölur í mynsturteikningu. 1 = natur 2 = gulur 3 = eggjagulur HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta stuðli í byrjun á umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Fyrsta tvíbrugðna stuðli í byrjun á umferð er skipt út fyrir 4 loftlykkjur. LITASKIPTI (heklað fram og til baka): Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðasta stuðul/tvíbrugðna stuðul með fyrsta lit, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin, heklið síðan næsta stuðul/tvíbrugðna stuðul. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka ofan frá og niður. Sjá MYNSTUR og RENDUR. SJAL: Heklið frá A.1 til A.13 – sjá HEKLLEIÐBEININGAR og LITASKIPTI, þannig: HEKLIÐ A.1 ÞANNIG: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Safran og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju. Heklið síðan fram og til baka eftir mynsturteikningu A.1. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka eru 11 lykkjur hvoru megin við miðju boga (= alls 22 lykkjur + miðju bogi). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! HEKLIÐ A.2 OG A.3 ÞANNIG: Fyrsta umferð = ranga: Heklið A.2a yfir fyrsta stuðul, heklið A.2b yfir næstu 10 lykkjur, heklið A.2c, heklið A.3 yfir miðju boga, heklið A.2c, heklið A.2b yfir næstu 10 lykkjur og endið með A.2a yfir síðasta stuðul. Þegar allt A.2 og A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina eru 37 stuðlar hvoru megin við miðju boga (= alls 74 stuðlar + miðju bogi). HEKLIÐ A.4 OG A.5 ÞANNIG: Fyrsta umferð = ranga: Heklið A.4a yfir fyrsta stuðul, heklið A.4b yfir næstu 36 lykkjur (= 3 sinnum á breidd), heklið A.4c, heklið A.5 yfir miðju boga, heklið A.4c, heklið A.4b yfir næstu 36 stuðla (= 3 sinnum á breidd) og endið með A.4a yfir síðasta stuðul. Þegar allt A.4 og A.5 hefur verið heklað til loka á hæðina eru 71 stuðlar hvoru megin við miðju boga (= alls 142 stuðlar + miðju bogi). HEKLIÐ A.6 OG A.7 ÞANNIG: Fyrsta umferð = ranga: Heklið A.6a yfir fyrsta stuðul, heklið A.6b yfir næstu 70 stuðla (= 5 sinnum á breidd), heklið A.6c, heklið A.7 yfir miðju boga, heklið A.6c, heklið A.6b yfir næstu 70 stuðla (= 5 sinnum á breidd) og endið með A.6a yfir síðasta stuðul. Þegar allt A.6 og A.7 hefur verið heklað til loka á hæðina eru 28 loftlykkjubogar hvoru megin við miðju boga (= alls 56 loftlykkjubogar + miðju bogi). HEKLIÐ A.8 OG A.9 ÞANNIG: Fyrsta umferð = rétta: Heklið A.8a yfir fyrsta tvíbrugðna stuðul, heklið A.8b yfir næstu 28 loftlykkjuboga (= 7 sinnum á breidd), heklið A.8c, heklið A.9 yfir miðju boga, heklið A.8c, heklið A.8b yfir næstu 28 loftlykkjuboga (= 7 sinnum á breidd) og endið með A.8a yfir síðasta tvíbrugðna stuðul. Þegar allt A.8 og A.9 hefur verið heklað til loka á hæðina eru 37 loftlykkjubogar hvoru megin við miðju boga (= alls 74 loftlykkjubogar + miðju bogi). HEKLIÐ A.10 OG A.11 ÞANNIG: Fyrsta umferð = ranga: Heklið A.10a yfir fyrsta stuðul, heklið A.10b yfir næstu 36 loftlykkjuboga (= 9 sinnum á breidd), heklið A.10c yfir næsta loftlykkjuboga, heklið A.11 yfir miðju boga, heklið A.10c, heklið A.10b yfir næstu 36 loftlykkjuboga (= 9 sinnum á breidd) og endið með A.10a yfir síðasta stuðul. Þegar allt A.10 og A.11 hefur verið heklað til loka á hæðina eru 155 stuðlar hvoru megin við miðju boga (= alls 310 stuðlar + miðju bogi). HEKLIÐ A.12 OG A.13 ÞANNIG: Fyrsta umferð = ranga: Heklið A.12a yfir fyrsta stuðul, heklið A.12b yfir næstu 154 stuðla (= 11 sinnum á breidd), heklið A.12c, heklið A.13 yfir miðju boga, heklið A.12c, heklið A.12b yfir næstu 154 stuðlana (= 11 sinnum á breidd) og endið með A.12a yfir síðasta stuðul. Þegar allt A.12 og A.13 hefur verið heklað til loka á hæðina eru 54 loftlykkjubogar hvoru megin við miðju boga (= alls 108 loftlykkjubogar + miðju bogi). Klippið frá og festið enda. Sjalið mælist ca 70 cm mælt meðfram miðju boga. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (28)
Anette wrote:
Kan ikke forstå hvordan opskriften på boblerne kan ende med at der er 7 masker til sidst 1kædemaske+ Omslag og maske fra 4 db stangmasker + 1 kædemaske = 10 masker?
18.06.2019 - 23:56DROPS Design answered:
Hej Anette, du stikker nålen om luftmaskebuen, laver et omslag, nu har du 2 masker på nålen, laver 4 db stangmasker, men venter med sidste omslag og gennemtræk på hver af de 4, det vil sige at du for hver db stangmaske får en ny maske på nålen (nu har du ialt 6 masker) og sidst stikker du nålen om lm-buen, slår om (ialt 7 masker) Nu kan du lave omslaget og trække det igennem alle 7 masker på nålen. Der bliver lagt en ny video ud lidt senere idag :)
09.07.2019 - 10:13Samantha wrote:
Can't wait to get started on this but just wanted to clarify with respect to the second row of A1. Are the two stitches at the beginning and ending of row into the first and last stitches respectively? The diagram isn't overly clear as the second stitch appears to be floating somewhere between the two stitches. I hope this makes sense! Thank you!
13.05.2019 - 00:56DROPS Design answered:
Dear Samantha, on the 2nd row in A.1 you work 2 treble crochets in the first and in the last treble crochet (= at the beg of the round, replace 1st treble crochet with 3 ch - see CROCHET INFO). Happy crocheting!
13.05.2019 - 10:26Marie France wrote:
Très beau modèle et facile à réaliser avec vos explications
09.05.2019 - 21:21Shahad wrote:
Hello, i did not know how to make the BOBLE, can you explain more please :(
18.04.2019 - 18:23DROPS Design answered:
Hi Shahad, The bobble is made by working a number of stitches around the same chain-space: 1 slip stitch and 4 double treble crochets; but wait with the last yarn over and pull through on all these double treble crochets until the final stitch when the yarn over is pulled through all 7 loops on the hook. I hope this helps and happy crocheting!
19.04.2019 - 14:10Renata wrote:
Piękna chusta :)
13.04.2019 - 17:22Babs wrote:
So beatifull😍😍😍
23.01.2019 - 17:12Unsoldinodicacio wrote:
I colori del sole e dell'estate, adorabile
17.01.2019 - 14:55Milch Und Honig wrote:
Sieht sehr edel aus.
16.12.2018 - 15:52