Blue Annabelle |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð síð peysa úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri og kúlum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 199-34 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. ÚTAUKNING/ÚRTAKA: Aukið út um 1 lykkju með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju. Fækkið um 1 lykkju með því að hekla 2 stuðla saman þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka í hlutum, ofan frá og niður og saumað saman í lokin. Ermar eru heklaðar fram og til baka, ofan frá og niður og saumaðar saman í lokin. BAKSTYKKI: HÆGRI ÖXL: Heklið 78-91-102 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 4 með Cotton Merinog. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), 1 stuðull í hverja af næstu 2-3-2 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 64-75-84 stuðlar. Klippið frá og festið enda. VINSTRI ÖXL: Heklið 78-91-102 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 4 með Cotton Merino. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), 1 stuðull í hverja af næstu 2-3-2 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 64-75-84 stuðlar. Heklið nú vinstri öxl saman við hægri öxl, þ.e.a.s. næsta umferð er hekluð þannig (= frá réttu). Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjurnar – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, endurtakið A.3a þar til eftir eru 1-12-1 lykkjur á vinstri öxl (= 3-3-4 sinnum á breidd), heklið A.4a (= 11 lykkjur) alls 0-1-0 sinnum, heklið A.1 yfir síðustu lykkju, heklið 18-16-18 lausar loftlykkjur fyrir hálsmáli, haldið áfram yfir hægri öxl með því að hekla A.1 yfir fyrstu lykkjuna, heklið A.2a (= 11 lykkjur) alls 0-1-0 sinnum, endurtakið A.3a þar til eftir eru 3 lykkjur (= 3-3-4 sinnum á breidd) og endið með að hekla A.1 yfir síðustu 3 lykkjurnar = 146-166-186 stuðlar. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið síðan A.3a (A.1 er endurtekið á hæðina til loka), þ.e.a.s. heklið með byrjun frá röngu þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur, endurtakið A.3a þar til eftir eru 3 lykkjur (= 7-8-9 sinnum á breidd) – heklaður er 1 stuðull í hverja og eina af 18-16-18 loftlykkjum í hálsmáli, endið með að hekla A.1 yfir síðustu 3 lykkjur = 146-166-186 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.3a er hefur verið heklað til loka, haldið áfram með A.3b og síðan með A.3c (A.1 er endurtekið á hæðina til loka). Þegar allt A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað áfram þannig (fyrsta umferð byrjar frá röngu): Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjurnar, endurtakið A.5 þar til 3 lykkjur eru eftir (= 9-10-11 sinnum á breidd), endið með A.1 yfir síðustu 3 lykkjur – JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út með því að auka/fækka lykkjum jafnt yfir 150-166-182 lykkjur í umferð merktar með Ö-1 – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Þegar A.x hefur verið heklað til loka er A.x endurtekið 0-0-1 sinni á hæðina. Þegar A.y hefur verið heklað til loka á hæðina er A.y endurtekið 0-0-1 sinni á hæðina. Í umferð merktri með Ö-2 er lykkjufjöldinn jafnaður til með því að auka/fækka lykkjum jafnt yfir til 146-166-186 lykkjur. Þegar allt A.5 hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað áfram þannig (fyrsta umferð byrjar frá röngu): Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur, endurtakið A.3b þar til eftir eru 3 lykkjur (= 7-8-9 sinnum á breidd), endið með A.1 yfir síðustu 3 lykkjur. Þegar allt A.3b hefur verið heklað til lokaá hæðina er heklað áfram þannig (fyrsta umferð byrjar frá röngu): Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur, endurtakið A.5 þar til 3 lykkjur eru eftir (= 9-10-11 sinnum á breidd), endið með A.1 yfir síðustu 3 lykkjurnar – JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út með því að auka/fækka lykkjum jafnt yfir til 150-166-182 lykkjur í umferð merkt með Ö-1. Þegar A.x hefur verið heklað til loka á hæðina er A.x endurtekið 0-1-1 sinni til viðbótar á hæðina. Þegar A.y hefur verið heklað til loka á hæðina er A.y endurtekið 0-1-1 sinni til viðbótar á hæðina. Í umferð merktri með Ö-2 er lykkjufjöldinn jafnaður til með því að auka/fækka lykkjum jafnt yfir til 146-166-186 lykkjur. Þegar allt A.5 hefur verið heklað til loka á hæðina er klippt frá og endi festur. Stykkið mælist ca 71-75-79 cm frá öxl og niður. FRAMSTYKKI: HÆGRI ÖXL: Heklið 78-91-102 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 4 með Cotton Merino. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), 1 stuðull í hverja af næstu 2-3-2 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 64-75-84 stuðlar. Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, endurtakið A.3a þar til eftir eru 1-12-1 lykkjur (= 3-3-4 sinnum á breidd), heklið A.4a (= 11 lykkjur) alls 0-1-0 sinnum og endið með að hekla A.1 yfir síðustu lykkjuna. Þegar A.3a og A.4a hefur verið heklað til loka, heklið áfram þannig (fyrsta umferð byrjar frá röngu): Heklið A.1 og A.6 yfir fyrstu lykkju, heklið A.4b (= yfir 11 lykkjur) alls 0-1-0 sinnum, endurtakið A.3b þar til 3 lykkjur eru eftir (= 3-3-4 sinnum á breidd), endið með A.1 yfir síðustu 3 lykkjur. Haldið áfram þar til allt A.6 hefur verið heklað til loka á hæðina (nú er eftir 1 umferð í A.3b). Klippið frá og festið enda. VINSTRI ÖXL: Heklið 78-91-102 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 4 með Cotton Merino. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), 1 stuðull í hverja af næstu 2-3-2 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 64-75-84 stuðlar. Heklið A.1 yfir fyrstu lykkjurnar – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, endurtakið A.2a (= 11 lykkjur) alls 0-1-0 sinnum, endurtakið A.3a þar til 3 lykkjur eru eftir (= 3-3-4 sinnum á breidd) og endið með að hekla A.1 yfir síðustu 3 lykkjur. Þegar A.2a og A.3a hefur verið heklað til loka, heklið áfram þannig (fyrsta umferð byrjar frá röngu): Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur, endurtakið A.3b þar til eftir eru 1-12-1 lykkjur (= 3-3-4 sinnum á breidd), heklið A.4b (= yfir 11 lykkjur) alls 0-1-0 sinnum og endið með A.7 og A.1 yfir síðustu lykkju. Haldið áfram þar til allt A.7 hefur verið heklað til loka á hæðina (nú er eftir 1 umferð í A.3b). Nú hanga saman vinstri og hægri öxl. Klippið frá og festið enda. FRAM- OG BAKSTYKKI: Byrjið frá réttu og heklað síðustu umferð í A.3b (A.1 er endurtekið á hæðina til loka) þ.e.a.s. heklið þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjurnar, endurtakið A.3a þar til 3 lykkjur eru eftir (= 7-8-9 sinnum á breidd) – heklaður er 1 stuðull í hverja af 10 loftlykkjum í hálsi, endið með að hekla A.1 yfir síðustu 3 lykkjurnar = 146-166-186 stuðlar. Þegar A.3b hefur verið heklað til loka á hæðina, haldið áfram með A.3c. Þegar allt A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað alveg eins og á bakstykki, þ.e.a.s. frá og með eftir að A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina í fyrsta skipti (haldið nú áfram með A.1 og A.5). ERMI: Heklið 99-123-123 loftlykkjur með heklunál 4 með Cotton Merino. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), 1 stuðull í hverja af næstu 5-3-3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferð = 82-102-102 stuðlar. Heklið þannig (fyrsta umferð byrjar frá réttu): Heklið A.1 yfir fyrstu lykkju, endurtakið A.3a þar til 1 lykkja er eftir (= 4-5-5 sinnum á breidd) og endið með A.1 yfir síðustu lykkju. Þegar A.3a hefur verið heklað til loka, haldið áfram með A.3b og síðan A.3c, A.1 er endurtekið á hæðina til loka. Þegar allt A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Byrjið ca 23-28-28 cm niður frá öxl og saumið hliðarsauma, skiljið eftir ca 30 cm neðst niðri fyrir klauf. Saumið sauma undir ermum og saumið ermar í. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (17)
MARÍA JOSÉ MARTÍNEZ wrote:
¿me podrían decir como he de interpretar la instrucción: "repetir A.3a hasta que resten 1-12-1 punto en el hombro izquierdo (= 3-3-4 veces a lo ancho), trabajar A.4a (= 11 puntos) "? es que no entiendo lo que quiere decir 1-12-1. Muchas gracias
27.04.2020 - 08:43DROPS Design answered:
Hola Maria Jose. Los patrones están preparados para varias tallas. Cuando hay solo un número es igual para todas las tallas, cuando hay varios números hay que interpretarlo de la siguiente manera: 1-12-1 puntos ( 1 para la talla S/M, 12 para la talla L/XL y 1 para la talla XXL/XXXL). Recomendamos marcar todas las numeraciones para la talla elegida antes de empezar la labor.
28.04.2020 - 16:48María José Martínez wrote:
¿Me podrían confirmar si el pedido nº 200416161555, ha sido realizado correctamente? es que no he recibido ningún correo de confirmación y la página web no me lo aclara. Mil gracias
16.04.2020 - 16:30DROPS Design answered:
Hola Maria Jose. Nosotros no tenemos esta información. Tienes que contactar con la tienda donde has hecho el pedido,
22.04.2020 - 19:56Marina Massei wrote:
Buonasera, non so come aggiungerlo ai preferiti, potete aiutarmi? Grazie. È una bellissima maglia🤩
27.05.2019 - 23:26DROPS Design answered:
Buongiorno Marina. Per aggiungere il modello ai preferiti, deve cliccare su "Aggiungere ai preferiti" che trova vicino ai tasti per stampare il modello e la fotografia del modello (sotto il riquadro con l'immagine del filato ed i ferri /uncinetti). Le viene chiesto di inserire l'indirizzo mail a cui associare i preferiti, indirizzo che le consentirà poi di vedere i suoi preferiti . Buon lavoro!
28.05.2019 - 09:49Stina Sanborn wrote:
Mycket snygg modell, som passar alla former!
12.02.2019 - 11:30Marianne Karlsson wrote:
Fin modell med många omväxlande mönster
30.01.2019 - 16:43Kate Moffitt wrote:
Looks lovely would work well in lace weight, dk and poss aran for winter love itx
03.01.2019 - 17:00Laura Waterfield wrote:
Pretty details.
14.12.2018 - 11:57