Carefree Summer |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað poncho með gatamynstri úr DROPS Cotton Light. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 199-16 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. HEKLLEIÐBEININGAR (á við um loftlykkjur): Það er mjög auðvelt að hekla loftlykkjur fastar en aðrar lykkjur. 1 loftlykkja á að jafngilda 1 fastalykkju/stuðli/tvíbrugðnum stuðli/þríbrugðnum stuðli o.s.frv. á breiddina. Passið uppá að lykkjan sem er gerð í loftlykkju dragist aðeins upp á heklunálina þannig að lykkjan verði nægilega laus. Ef loftlykkjurnar eru heklaðar of fast þá kemur mynstrið til með að verða stíft í þeim einingum þar sem eru margar loftlykkjur. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Í byrjun á hverri umferð með þríbrugðnum stuðlum er fyrsta þríbrugðna stuðli skipt út fyrir 5 loftlykkjur. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju. ÚRTAKA: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni),heklið síðan næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er það þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka í stykkjum ofan frá og niður. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR (á við um loftlykkjur). Bakstykkið er fyrst heklað fram og til baka í hægri og vinstri öxl, síðan eru stykkin sett saman áður en heklað er áfram. Framstykkið er fyrst heklað fram og til baka í hægri og vinstra framstykki, síðan eru stykkin sett saman og eftir það er heklað alveg eins og bakstykki. BAKSTYKKI: Hægri öxl: Heklið 68-79-86 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Cotton Light – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. Snúið og heklið stuðla þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3-2-3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 10-12-13 sinnum = 55-64-70 stuðlar. Klippið frá og geymið stykkið. Vinstri öxl: Heklið 68-79-86 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Cotton Light. Snúið og heklið stuðla þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3-2-3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 10-12-13 sinnum = 55-64-70 stuðlar. UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið A.1a (= 7 lykkjur), A.1b (= 3 lykkjur) yfir þá 48-57-63 stuðla sem eftir eru á vinstri öxl, heklið 29-29-32 lausar loftlykkjur í lok umferðar (= hálsmál) og haldið síðan áfram með mynstur yfir hægri öxl þannig: A.1d (= 1 lykkja), A.1b (= 3 lykkjur) yfir næstu 48-57-63 stuðla (= þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð), endið með A.1c (= 6 lykkjur). Nú hafa verið heklaðar saman hægri og vinstri öxl og það eru 29-29-32 loftlykkjur fyrir hálsmáli. Heklið síðustu umferð í mynsturteikningu þannig: UMFERÐ 3: A.1c, A.1b yfir næstu 16-19-21 loftlykkjuboga, A.1d, heklið 1 stuðul í hverja af 29-29-32 loftlykkjum, haldið síðan áfram með A.1b yfir næstu 16-19-21 loftlykkjuboga, endið með A.1a = 139-157-172 lykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið nú mynstur þannig: A.2a (= 7 lykkjur), A.2b (= 42-48-53 mynstureiningar með 3 lykkjum) þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, A.2c (= 6 lykkjur). Þegar allt A.2-A.2c hefur verið heklað til loka á hæðina er mynstur heklað þannig: A.3a (= 4 lykkjur), A.3b (= 3 lykkjur), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 9-18-17 lykkjum, A.3c (= 18 lykkjur) alls 6-6-8 sinnum, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 9-18-8 stuðla, A.3d (= 3 lykkjur), A.3e (= 3 lykkjur). Þegar A.3a-A.3e hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað mynstur A.2a-A.2c alveg eins og áður í stykkinu, en í síðustu umferð í mynsturteikningu er aukið út um 3-3-0 stuðla jafnt yfir (aukið er út yfir lykkjur í A.2b) – sjá ÚTAUKNING = 142-160-172 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 22 cm. Nú er heklað mynstur þannig: Heklið A.3a yfir fyrstu 4 lykkjurnar, A.3b yfir næstu 3-12-18 lykkjurnar (= 1-4-6 mynstureiningar), A.4 (= 42 lykkjur) alls 3 sinnum, A.3d yfir næstu 6-15-21 lykkjur (= 2-5-7 mynstureiningar), endið með A.3e yfir síðustu 3 lykkjur. Heklið umferð með hvítri stjörnu í byrjun á mynstureiningu alls 3-4-5 sinnum á hæðina áður en heklað er áfram og heklið næst síðustu umferð í mynsturteikningu (með hvítri stjörnu) alls 2-3-4 sinnum. Í síðustu umferð er fækkað um 3-3-0 stuðla jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 139-157-172 lykkjur. Þegar allt A.4 hefur verið heklað til loka mælist stykkið ca 44-46-48 cm. Heklið A.2a-A.2c alveg eins og áður í stykkinu, en í síðustu umferð er aukið út um 0-3-0 stuðla jafnt yfir = 139-160-172 lykkjur. Heklið mynstur þannig: A.3a yfir fyrstu 4 lykkjurnar, A.3b yfir næstu 3-3-9 lykkjur (= 1-1-3 mynstureiningar), A.5 (= 21 lykkjur) alls 6-7-7 sinnum, A.3d yfir næstu 3-3-9 lykkjur (= 1-1-3 mynstureiningar), A.3e yfir síðustu 3 lykkjurnar. Endurtakið umferð með hvítri stjörnu í byrjun á mynsturteikningu alls 1-2-3 sinnum á hæðina áður en heklað er áfram og endurtakið næst síðustu umferð í mynsturteikningu (með hvítri stjörnu) alls 1-2-3 sinnum. Í síðustu umferð er fækkað um 0-3-0 stuðla jafnt yfir = 139-157-172 lykkjur. Heklið nú A.2a-A.2c alveg eins og áður í stykkinu. Stykkið mælist ca 69-73-77 cm frá öxl og niður. Klippið frá og festið enda. FRAMSTYKKI: Hægra framstykki: Heklið 68-79-86 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Cotton Light. Snúið og heklið stuðla þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3-2-3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 10-12-13 sinnum = 55-64-70 stuðlar. Nú er mynstur heklað (frá réttu) þannig: A.7a (= 7 lykkjur), A.7b (= 15-18-20 mynstureiningar með 3 lykkjur) þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, A.7c (= 3 stuðlar). Haldið áfram fram og til baka svona þar til 4. umferð (umferð með svörtum ferningi) hefur verið hekluð til loka. Klippið frá. UMFERÐ 5: Heklið 12-12-15 lausar loftlykkjur, haldið síðan áfram eins og útskýrt er í umferð með ör í mynsturteikningu A.7c, A.7b og A.7a = 70-79-88 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur A.7a-A.7c eins og áður og heklið 1 stuðul í hverja af 12-12-15 lykkjum sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli. Þegar A.7a-A.7c hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað þannig: A.3a yfir fyrstu 4 lykkjurnar, A.3b yfir næstu 3 lykkjurnar, 1 stuðull í hvern af næstu 9-18-9 stuðlum, A.3c alls 3-3-4 sinnum á breiddina. Þegar allt A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað áfram þannig (frá réttu): Heklið A.2a yfir fyrstu 7 lykkjurnar, A.2b alls 21-24-27 sinnum. Haldið áfram fram og til baka svona þar til eftir er 1 umferð í mynsturteikningu. Klippið frá og geymið stykkið og heklið vinstra framstykki. Vinstra framstykki: Heklið 68-79-86 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Cotton Light. Snúið og heklið stuðla þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3-2-3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 10-12-13 sinnum = 55-64-70 stuðlar. Nú er mynstur heklað (frá réttu) þannig: A.6a (= 7 lykkjur), A.6b (= 16-19-21 mynstureiningar með 3 lykkjur) þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, A.6c (= 6 lykkjur). Haldið áfram fram og til baka svona þar til 5. umferð hefur verið hekluð til loka. Í lok 5. umferðar eru heklaðar 12-12-15 lausar loftlykkjur fyrir hálsmáli. UMFERÐ 6: Heklið 3 loftlykkjur, 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja og eina af næstu 10-10-13 lausar loftlykkjur (= 12-12-15 stuðlar yfir loftlykkjur fyrir hálsmáli), heklið síðan A.6a-A.6c eins og áður = 70-79-88 lykkjur. UMFERÐ 7: Heklið A.6a-A.6c eins og áður og heklið 1 stuðul í hverja af þeim 12-12-15 lykkjum sem eftir eru fyrir hálsmáli. Nú er mynstur heklað (frá réttu) þannig: A.3c alls 3-3-4 sinnum á breiddina, 1 stuðull í hvern af næstu 10-19-10 stuðlum, A.3d yfir næstu 3 lykkjurnar, A.3e yfir síðustu 3 lykkjurnar. Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.3c hefur verið heklað til loka á hæðina. Heklið nú mynstur (frá réttu) þannig: A.2d (= 1 lykkja), A.2b þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, A.2c yfir síðustu 6 lykkjurnar. Haldið svona áfram fram og til baka þar til 1 umferð er eftir í mynsturteikningu. Snúið við og heklið síðustu umferð í mynsturteikningu samtímis sem 2 framstykkin eru hekluð saman í eitt framstykki (frá röngu) þannig: Heklið A.2c yfir fyrstu 6 lykkjurnar, heklið A.2b (þ.e.a.s. 1 stuðul í hvern stuðul) út umferðina á vinstra framstykki, jafnframt er aukið út um 1-1 stuðul í stærð S/M og L/XL og fækkað er um 2 stuðla í stærð XXL/XXXL, haldið síðan áfram yfir hægra framstykki með A.2b (þ.e.a.s. 1 stuðul í hvern stuðul) þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, jafnframt er aukið út um 1-1 stuðul í stærð S/M og L/XL og fækkað er um 2 stuðla í stærð XXL/XXXL, endið með A.2a yfir síðustu 7 lykkjurnar í umferð = 142-160-172 lykkjur. Heklið nú mynstur þannig: Heklið A.3a yfir fyrstu 4 lykkjurnar, A.3b yfir næstu 3-12-18 lykkjurnar (= 1-4-6 mynstureiningar), A.4 (= 42 lykkjur) alls 3 sinnum, A.3d yfir næstu 6-15-21 lykkjurnar (= 1-4-6 mynstureiningar), A.4 (= 42 lykkjur) alls 3 sinnum, A.3d yfir næstu 6-15-21 lykkjurnar (= 2-5-7 mynstureiningar), endið með A.3e yfir síðustu 3 lykkjurnar. Heklið umferð með hvítri stjörnu í byrjun á mynstureiningu alls 3-4-5 sinnum á hæðina áður en heklað er áfram og heklið næst síðustu umferð í mynsturteikningu (með hvítri stjörnu) alls 2-3-4 sinnum. Í síðustu umferð er fækkað um 3-3-0 stuðla jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA = 139-157-172 lykkjur. Þegar allt A.4 hefur verið heklað til loka mælist stykkið ca 44-46-48 cm. Heklið A.2a-A-2c alveg eins og áður í stykkinu, en í síðustu umferð er aukið út um 0-3-0 stuðla jafnt yfir = 139-160-172 lykkjur. Heklið mynstur þannig: A.3a yfir fyrstu 4 lykkjurnar, A.3b yfir næstu 3-3-9 lykkjurnar (= 1-1-3 mynstureiningar), A.5 (= 21 lykkjur) alls 6-7-7 sinnum, A.3d yfir næstu 3-3-9 lykkjurnar (= 1-1-3 mynstureiningar), A.3e yfir síðustu 3 lykkjurnar. Endurtakið umferð með hvítri stjörnu í byrjun á mynstureiningu alls 1-2-3 sinnum á hæðina áður en heklað er áfram og endurtakið næst síðustu umferð í mynsturteikningu (með hvítri stjörnu) alls 1-2-3 sinnum. Í síðustu umferð er fækkað um 0-3-0 stuðla jafnt yfir = 139-157-172 lykkjur. Heklið nú A.2a-A.2c alveg eins og áður í stykkinu. Stykkið mælist ca 69-73-77 cm frá öxl og niður. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma í lykkjur eina og eina þannig að saumurinn verði eins ósýnilegur og hægt er. Saumið tölur í hvora hlið á framstykki: Saumið tölu innan við 2 stuðla og í miðju umferð í A.4 (þ.e.a.s. í umferð þar sem blómið er sem breiðast). Heklið eina hneslu fyrir tölu í hvorri hlið á bakstykki þannig: Festið þráðinn með 1 keðjulykkju í miðju umferð í A.4 (sömu umferð og talan var fest í), heklið 8 loftlykkjur og endið með 1 keðjulykkju í kanti. Klippið frá og festið enda. KANTUR Í HÁLSMÁLI OG Í OPI VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN: Festið þráðinn með 1 fastalykkju neðst niðri í opi við miðju að framan, heklið * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja *, heklið frá *-* upp að kanti í hálsi, heklið 1 auka loftlykkjuboga í hornið og haldið síðan áfram með loftlykkjuboga í kringum allt hálsmálið, heklið 1 auka loftlykkjuboga í hornið í hinni hliðinni í kanti í hálsi við miðju að framan og heklið niður að byrjun á umferð. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju sem var hekluð. Klippið frá og festið enda. TVINNUÐ SNÚRA: Klippið 4 þræði ca 1,5 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinnast aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda á snúrunni og klippið endana til þannig að það verði jafn og fallegur dúskur báðum megin. Gerið aðra snúru til viðbótar á sama hátt. Þræðið snúrurnar í gegnum heklaða kantinn í horni við hálsmál í hvorri hlið. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (23)
Vasileia wrote:
Unfortunately still cannot understand this point of the project as well as how can the next row can be worked. Is there any relevant and helpful video?
12.03.2023 - 23:52DROPS Design answered:
Dear Vasileia, all the videos related to this pattern are linked at the bottom of the instructions. Happy Crafting!
13.03.2023 - 00:58Vasileia wrote:
Hello there! Front piece. Row 5: says 12 chain stitches but the diagram shows 13 chain stitches! Then the stitches become 79. Please explain. Thanks in advance. Then
12.03.2023 - 22:23DROPS Design answered:
Dear Vasileia, the chart shows a symbol which is a circle (right before the arrow), and corresponds to the 12-12-15 chain stitches, as you can see in the diagram instructions. These chain stitches count as stitches when adding up to 79. Happy crocheting!
12.03.2023 - 22:57Wilma Snel wrote:
Ik heb op 25-12-2021 een vraag gesteld maar heb nog steeds geen antwoord
19.01.2022 - 21:23Le Dang wrote:
Hi, For the Row 3 in Back Piece, shouldn’t it be: “ROW 3: A.1c, A.1d, A.1b over the next 16-19-21 chain-spaces, work 1 treble crochet in each of the 29-29-32 chain stitches, continue with A.1b over the next 16-19-21 chain-spaces and finish with A.1a = 139-157-172 stitches.” If I understand it well, A.1d should be done before doing A.1b over the next 16 chain-spaces. Could you please check it? Many thanks!
23.07.2020 - 13:18DROPS Design answered:
Dear Mrs Le Dang, pattern is right like this, from WS you will work the diagram in the reversed order - read more about diagrams here. Happy crocheting!
29.07.2020 - 09:13Susan wrote:
Working on pattern Carefree Summer and have 2 questions: #1: if I am told to do A.1a and A.1b do I do first row of A.1a and then first row of A.1b and then second row of A.1a and A.1b? #2: why do I end up with 6 stitches at the end of Row 2 and then chain 29?
28.06.2020 - 23:40DROPS Design answered:
Dear Susan, you work first row of A.1a, then repeat first row of A.1b over the remaining stitches (on next row work row 2 in A.1b, then row 2 in A.1a - read more about diagrams here). At the end of left shoulder you will crochet 29 chains for the neck and continue row working over the stitches from right shoulder. Happy crocheting!
29.06.2020 - 09:03Myrte wrote:
Be carefull, so many translation page are incorrect. They write you use treble crochet but if you use it, the shirt will be too long. So you should stay to the original pattern. You HAVE to use double crochet. A magyar erp-t ír helyesen, viszont van benne elírás.
16.04.2020 - 01:00DROPS Design answered:
Dear Myrte, make sure you are reading the appropriate English pattern, 1 treble crochet (UK-English) = 1 double crochet (US-English). read more here. Happy crocheting!
16.04.2020 - 10:09Fátima wrote:
MUITO LINDA !!!!!
16.03.2020 - 13:16Marie Bonche wrote:
Mille excuses : j'ai retrouvé mes 2 mailles manquantes. Étourdie ! Lol
04.08.2019 - 14:50Marie Bonche wrote:
Bjr, je suis au 3 ème rg du dos et je trouve 137 m : 6m de A1c, 3x16 brides=48m de A1b, 29 brides de l'encolure, 48 brides de A1b et 6m de A1c. Ai je oublié des mailles ou s'agit il d'une erreur ? Merci de votre réponse. Bien cordialement
04.08.2019 - 14:43Helen wrote:
Ik kom op het achterpand niet uit bij patroon 3, wat ik ook doe ik kom niet aan die 157 steken. Alvast bedankt!
02.08.2019 - 21:10DROPS Design answered:
Dag Helen,
Na het opzetten van beide schouders heb je 64 steken van de rechter en 64 steken van de linker schouder na TOER 1, als je dan toer 2 haakt komen er nog 29 lossen bij om beide delen met elkaar te verbinden, waardoor je op een totaal van 157 steken komt. Bij TOER 3 haak je A.1c (= 6 steken), A.1b over 19 lossenlussen (= 57 steken), A.1d (= 1 steek), 29 stokjes over de 29 lossen, A.1d (= 1 steek), A.1b over 19 lossenlussen (= 57 steken), A.1c (= 6 steken). Hierdoor kom je op een totaal van 157 steken.
10.08.2019 - 18:08