DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13244.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Blue Annabelle

Hekluð síð peysa úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri og kúlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 199-33
DROPS Design: Mynstur cm-104
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S/M – L/XL – XXL/XXXL

EFNI:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
700-800-1000 g litur 09, ísblár

HEKLFESTA:
18 stuðlar á breidd og 9 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13244.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA:
Aukið út um 1 lykkju með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju.
Fækkið um 1 lykkju með því að hekla 2 stuðla saman þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka í hlutum, ofan frá og niður og saumað saman í lokin. Ermar eru heklaðar fram og til baka, ofan frá og niður og saumaðar saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Heklið 176-200-224 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 4 með Cotton Merino. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), 1 stuðull í hverja og eina af næstu 4 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 146-166-186 stuðlar.
Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, endurtakið A.3a þar til 3 lykkjur eru eftir (= 7-8-9 sinnum á breidd), endið með að hekla A.1 yfir síðustu 3 lykkjur. Þegar A.3a hefur verið heklað til loka, haldið áfram með A.3b og síðan A.3c, A.1 er endurtekið á hæðina til loka. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar allt A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað áfram þannig (fyrsta umferð byrjar frá röngu):
Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur, endurtakið A.5 þar til 3 lykkjur eru eftir (= 9-10-11 sinnum á breidd), endið með A.1 yfir síðustu 3 lykkjurnar – JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til með því að auka/fækka lykkjum jafnt yfir til 150-166-182 lykkjur í umferð merktri með Ö-1 – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Þegar A.x hefur verið heklað til loka á hæðina er endurtekið A.x 0-0-1 sinni á hæðina. Þegar A.y hefur verið heklað til loka á hæðina endurtakið A.y 0-0-1 sinnum til viðbótar á hæðina. Í umferð merktri með Ö-2 er lykkjufjöldinn jafnaður til með því að auka/fækka lykkjum jafnt yfir til 146-166-186 lykkjur.
Þegar allt A.5 hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað áfram þannig (fyrsta umferð byrjar frá röngu):
Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur, endurtakið A.3b þar til 3 lykkjur eru eftir (= 7-8-9 sinnum á breidd), endið með A.1 yfir síðustu 3 lykkjurnar.
Þegar allt A.3b hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað áfram þannig (fyrsta umferð byrjar frá röngu):
Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur, endurtakið A.5 þar til 3 lykkjur eru eftir (= 9-10-11 sinnum á breidd), endið með A.1 yfir síðustu 3 lykkjurnar – JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til með því að auka/fækka lykkjum jafnt yfir til 150-166-182 lykkjur í umferð merktri með Ö-1. Þegar A.x hefur verið heklað til loka á hæðina endurtakið A.x 0-1-1 sinni til viðbótar á hæðina. Þegar A.y hefur verið heklað til loka á hæðina endurtakið A.y 0-1-1 sinni til viðbótar á hæðina. Í umferð merktri með Ö-2 er lykkjufjöldinn jafnaður til með því að auka/fækka lykkjum jafnt yfir til 146-166-186 lykkjur.
Þegar allt A.5 hefur verið heklað til loka á hæðina er klippt frá og endar festir. Stykkið mælist ca 71-75-79 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið 80-93-104 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 4 með Cotton Merino.
Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), 1 stuðull í hverja af næstu 4-5-4 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 66-77-86 stuðlar.
Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGUM, endurtakið A.3a þar til eftir eru 3-14-3 lykkjur (= 3-3-4 sinnum á breidd), heklið A.4a (= 11 lykkjur) alls 0-1-0 sinnum og endið með að hekla A.1 yfir síðustu 3 lykkjur. Þegar A.3a og A.4a hefur verið heklað til loka, haldið áfram með A.3b og A.4b, A.1 er endurtekið á hæðina til loka – JAFNFRAMT er aukið út um 10-7-6 lykkjur jafnt yfir í umferð merktri með Ö-3 = 76-84-92 lykkjur. Þegar A.3b og A.4b hefur verið heklað til loka, haldið áfram með A.3c og A.4c – JAFNFRAMT er aukið út um 3-2-3 lykkjur jafnt yfir í umferð merktri með Ö-4 = 79-86-95 lykkjur.
Þegar allt A.3 og A.4 hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað áfram þannig (fyrsta umferð byrjar frá röngu):
Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur, endurtakið A.5 þar til eftir eru 12-3-12 lykkjur (= 4-5-5 sinnum á breidd), heklið A.6 (= 9 lykkjur) alls 1-0-1 sinnum og endið með A.1 yfir síðustu 3 lykkjur. Þegar A.x hefur verið heklað til loka á hæðina er endurtekið A.x 0-0-1 sinni til viðbótar á hæðina. Þegar A.y hefur verið heklað til loka á hæðina er A.y endurtekið 0-0-1 sinni til viðbótar á hæðina. Í umferð merktri með Ö-2 er lykkjufjöldinn jafnaður til með því að auka/fækka lykkjum jafnt yfir til 77-86-97 lykkjur.
Þegar allt A.5 og A.6 hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað áfram þannig (fyrsta umferð byrjar frá röngu):
Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur, heklið A.4b (= yfir 11 lykkjur) alls 1-0-1 sinnum, endurtakið A.3b þar til 3 lykkjur eru eftir (= 3-3-4 sinnum til viðbótar á breiddina) og endið með að hekla A.1 yfir síðustu 3 lykkjurnar.
Þegar allt A.3b og A.4b hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað áfram þannig (fyrsta umferð byrjar frá röngu):
Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur, heklið A.6 (= 9 lykkjur) alls 1-0-1 sinnum, endurtakið A.5 þar til 3 lykkjur eru eftir (= 4-5-5 sinnum á breidd), endið með A.1 yfir síðustu 3 lykkjur – JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til með því að auka/fækka lykkjum jafnt yfir til 79-86-95 lykkjur í umferð merktri með Ö-1 – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Þegar A.x hefur verið heklað til loka á hæðina endurtakið A.x 0-1-1 sinni á hæðina. Þegar A.y hefur verið heklað til loka á hæðina endurtakið A.y 0-1-1 sinni til viðbótar á hæðina. Í umferð merktri með Ö-2 er lykkjufjöldinn jafnaður til með því að auka/fækka lykkjum jafnt yfir til 77-86-97 lykkjur.
Þegar allt A.5 og A.6 hefur verið heklað til loka á hæðina, klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 71-75-79 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið 80-93-104 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 4 með Cotton Merino.
Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), 1 stuðull í hverja af næstu 4-5-4 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 66-77-86 stuðlar.
Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGUM, heklið A.2a (= 11 lykkjur) alls 0-1-0 sinnum, endurtakið A.3a þar til 3 lykkjur eru eftir (= 3-3-4 sinnum á breiddina) og endið með að hekla A.1 yfir síðustu 3 lykkjurnar. Þegar A.2a og A.3a hefur verið heklað til loka, haldið áfram með A.2b og A.3b, A.1 er endurtekið á hæðina til loka – JAFNFRAMT er aukið út um 10-7-6 lykkjur jafnt yfir í umferð merktri með Ö-3 = 76-84-92 lykkjur. Þegar A.2b og A.3b hefur verið heklað til loka, haldið áfram með A.2c og A.3c – JAFNFRAMT er aukið út um 3-2-3 lykkjur jafnt yfir í umferð merktri með Ö-4 = 79-86-95 lykkjur.
Þegar allt A.2 og A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað áfram þannig (fyrsta umferð byrjar frá röngu):
Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur, endurtakið A.8 þar til eftir eru 12-3-12 lykkjur (= 3-3-4 sinnum á breidd), heklið A.7 (= 9 lykkjur) alls 1-0-1 sinnum og endið með A.1 yfir síðustu 3 lykkjur. Þegar A.x hefur verið heklað til loka á hæðina er endurtekið A.x 0-0-1 sinni til viðbótar á hæðina. Þegar A.y hefur verið heklað til loka á hæðina er endurtakið A.y 0-0-1 sinnum á hæðina. Í umferð merktri með Ö-2 er lykkjufjöldinn jafnaður til með því að auka/fækka lykkjum jafnt yfir til 77-86-97 lykkjur.
Þegar allt A.7 og A.8 hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað áfram þannig (fyrsta umferð byrjar frá röngu):
Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur, heklið A.3b þar til 14-3-14 lykkjur eru eftir (= 3-3-4 sinnum á breidd), heklið A.2b (= yfir 11 lykkjur) alls 1-0-1 sinnum og endið með að hekla A.1 yfir síðustu 3 lykkjur.
Þegar allt A.2b og A.3b hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað áfram þannig (fyrsta umferð byrjar frá röngu):
Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur, endurtakið A.8 þar til 12-3-12 lykkjur eru eftir (= 4-5-5 sinnum á breidd), heklið A.7 (= 9 lykkjur) alls 1-0-1 sinnum og endið með A.1 yfir síðustu 3 lykkjur – JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til með því að auka/fækka lykkjum jafnt yfir til 79-86-95 lykkjur í umferð merktri með Ö-1. Þegar A.x hefur verið heklað til loka á hæðina endurtakið A.x 0-1-1 sinni á hæðina. Þegar A.y hefur verið heklað til loka á hæðina endurtakið A.y 0-1-1 sinni til viðbótar á hæðina. Í umferð merktri með Ö-2 er lykkjufjöldinn jafnaður til með því að auka/fækka lykkjum jafnt yfir til 77-86-97 lykkjur.
Þegar allt A.5 og A.6 hefur verið heklað til loka á hæðina, klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 71-75-79 cm.

ERMI:
Heklið 99-123-123 loftlykkjur með heklunál 4 með Cotton Merino. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), 1 stuðull í hverja af næstu 5-3-3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferð = 82-102-102 stuðlar. Heklið þannig (fyrsta umferð byrjar frá réttu): Heklið A.1 yfir fyrstu lykkju, endurtakið A.3a þar til 1 lykkja er eftir (= 4-5-5 sinnum á breidd) og endið með A.1 yfir síðustu lykkju. Þegar A.3a hefur verið heklað til loka, haldið áfram með A.3b og síðan A.3c, A.1 er endurtekið á hæðina til loka. Þegar allt A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Byrjið ca 23-28-28 cm niður frá öxl og saumið hliðarsauma, skiljið eftir ca 30 cm neðst niðri fyrir klauf. Saumið sauma undir ermum og saumið ermar í.

TVINNUÐ SNÚRA:
Klippið 2 þræði Cotton Merino ca 6 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinnast aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda.
Leggið snúruna saman tvöfalda, þræðið lykkjunni í gegnum eitt af götunum á hægra framstykki (ca 25-26-27 cm niður frá öxl). Þræðið síðan endana í gegnum lykkjuna og herðið varlega að. Gerið aðra snúru til viðbótar og festið á vinstra framstykki.

Mynstur

symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjur
symbols = umferðin hefur nú þegar verið hekluð! Byrjaðu á næstu umferð (þ.e.a.s. við örina)
symbols = byrjaðu á mynsturteikningu hér (= fyrsta umferð í mynsturteikningu)
symbols = stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = stuðull í lykkju
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 3 loftlykkjur
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = 5 loftlykkjur
symbols = 6 loftlykkjur
symbols = KÚLA: Heklið um loftlykkjubogann að neðan þannig: 1 keðjulykkja, 4 tvíbrugðnir stuðlar, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á hverjum og einum af þessum tvíbrugðnu stuðlum, 1 keðjulykkja, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 7 lykkjur á heklunálinni. ATH á bakstykki: Í lok umferðar er ekki heklað í gegnum þessa kúlu (til að stykkið verði eins í hvorri hlið)
symbols = útauknings-/úrtöku umferð (= Ö-1 til Ö-4)
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Elisabeth wrote:

Also I don't understand what the number with Ø sign means in general - is that an interval (i.e. I have to do an increase every 3 stiches with Ø3) or is that a number of stitches I have to add to the row? (so I just have to do an increase 3 times?) Or is there something else? I'm fairly new to crocheting with a pattern, so it's a bit confusing and I could really use some help (your tutorials and FAQs were super helpful though)!

01.06.2023 - 16:15

DROPS Design answered:

Dear Elisabeth, this symbol is the one you can find in the diagrams for example you can find Ø-1 on the 2nd row A.5 and A.6; Ø-2 just above A.y in the same diagram, etc.. this symbol (+ its number) are then explained in the written pattern, when you meet this symbol in the diagram, you have to work as explained in the written pattern. Happy crocheting!

01.06.2023 - 16:57

country flag Elisabeth wrote:

Hello! I've recently started crocheting this one and I seem to have a problem with increase in A.3b and A.3c, like I can do it technically, but I don't get how to count it. How many stitches are supposed to be in a row with a Ø3 once I'm done with it (considering there are 146 in S/M size to begin with and 20 on this diagram)? And with Ø4 in A.3c? Where am I supposed to add it? Like the row in A.3b has a stack of double crochets in one chain space - do I just add one extra there?

01.06.2023 - 16:09

DROPS Design answered:

Dear Elisabeth, you are working on back piece over 146 sts - this means you have decreased by Ø-2 already, and then work A.1 (3 sts), repeat A.3b a total of 7 times (= A.3b = 20 sts x 7 = 140 sts), and finish with A.1 over the last 3 stitches. Can this help? The symbols Ø-3 and Ø-4 are not worked on back piece, only apply to front piece. Happy crocheting!

01.06.2023 - 16:55

country flag Jeannette wrote:

Ik ben begonnen met het rugpand maar als ik het patroon volg klopt er niks van als je kijkt naar de foto. Ik denk dat er goed moet worden gekeken naar de volgorde in het patroon. Ik wil hem heel graag maken maar dan moet hij wel kloppen

26.03.2023 - 11:42

country flag Jessica wrote:

What is the purpose of skipping chains in the beginning of each piece? As here: “Work 80-93-104 chain stitches (including 3 chain stitches to turn with) on hook size 4 mm = US 6 with Cotton Merino. Turn and work 1 double crochet in 4th chain stitch from hook (= 2 double crochets), 1 double crochet in each of the next 4-5-4 chain stitches, * skip 1 chain stitch, 1 double crochet in each of the next 5 chain stitches”.

25.08.2022 - 04:33

DROPS Design answered:

Dear Jessica, most of the time the foundation chain is tighter than the rest of the piece, working more chain stitches at the beginning and then skipping chains evenly will allow to give a loose edge. If your chain stitches are as large as 1 stitch in width, you can cast on the number of sts required - just make sure your foundation chain won't be tight. Happy crocheting!

25.08.2022 - 09:42

country flag Jessica wrote:

I’ve gone over the FAQ and the lessons but I have no idea what this means “ Work A.1 over the first 3 stitches – read CROCHET INFORMATION, repeat A.3a until 3 stitches remain (= 7-8-9 times in width), finish by working A.1 over the last 3 stitches. When A.3a has been worked, continue A.3b and then on A.3c, repeat A.1 vertically until finished measurements.”….. A.1 seems to be a stack of multiple rows and I don’t understand how it could be worked three times in one row to being with.

18.08.2022 - 22:38

DROPS Design answered:

Dear Jessica, this lesson explains how to read crochet diagrams, Work A.1 over the first 3 sts means to repeat A.1 3 times (= 1 double crochet (US-English) x 3 ), then repeat 7,8 or 9 times the 20 sts in A.3, 3 sts remain on row which you work as shown in A.1 ( = 3 double crochets). Happy crocheting!

19.08.2022 - 08:59

country flag Ann wrote:

Hej Jag undrar om måtten på den vackra kofta. Modellen ser ut att drunkna i den hon har på sig… vilken storlek har hon på sig?

11.07.2022 - 12:44

DROPS Design answered:

Hej Ann. Modellen har oftast storlek S eller M på sig. Det bästa är om du tar mått på ett plagg du redan har och jämför med måtten på måttskissen längst ner på mönstret och väljer den storlek som ligger närmast. Mvh DROPS Design

11.07.2022 - 14:23

country flag Sandra Langer wrote:

Leider komme ich beim Rückenteil mit dem Muster nicht hin mit 71 cm. Scheint eine andere Baumwolle zu sein auf dem Bild. Wenn ich alles gehäkelt habe sind es nur53cm.

04.07.2022 - 22:07

country flag Deb wrote:

Is this pattern written any differently?? I purchased the yarn to make this sweater but I don’t read diagrams and I don’t understand the A6… Ab and all that lingo. I just need rows and stitch instructions. Is there any help?? I can follow patterns usually but this one is difficult for me. Thank you for your help.

17.08.2021 - 22:49

DROPS Design answered:

Dear Deb we usually do not give written out patterns not only because our patterns are available in several languages, but also because we believe that as opposed to written out patterns with diagrams you not only see the very next step, but the "bigger picture", how the stitches and also rows relate to each other. However, we do have a lesson on how to read knitting charts HERE, and you can always ask for help (either in person, or over the phone) in the store where youu bought your DROPS yarn from. Happy Stitching!

17.08.2021 - 23:27

country flag Andrea wrote:

Dieses Modell finde ich sehr hübsch und möchte es gern nachhäkeln. Allerdings mag ich Noppen nicht und möchte sie womöglich vermeiden. Daher die Frage: Gibt es eine weniger plastische, also flache Alternative? Wenn ja, bin ich für einen Hinweis sehr dankbar! Die Wolle liegt schon bereit... :-)

01.07.2021 - 16:07

DROPS Design answered:

Liebe Andrea, Sie können entweder gar keine Noppen stricken, oder vielleicht einfach nur 4 Stäbchen oder 4 Doppelstäbchen zusammenhäkeln (und vielleicht eben nur 1 Stb/1 DStb in A.3b z.B.) ? Am besten häkeln Sie eine Maschenprobe mit unterschiedlichen Möglichkeiten, so können Sie entscheiden. Viel Spaß beim häkeln!

01.07.2021 - 16:50

country flag Freja wrote:

Hej. På billedet af bagsiden, kan jeg se at der skal være en nedringning ved nakken. Hvordan skal den laves? Det virker som om, bagstykket bare hækles fuldkommen lige i toppen og så ender man ikke med det samme, som på billedet, hvilket jeg synes ville være meget ærgerligt. Men det kan også være, at den laves senere i opskriften?

19.06.2021 - 09:50

DROPS Design answered:

Hei Freja. Her står modellen med svai i ryggen og jakken har nok glidd bakover slik at det ser ut som om det er en nedringning ved nakken. Det er ikke forklart noen nedringning bak i nakken i oppskriften. mvh DROPS design

21.06.2021 - 11:01