Breakfast in Paris |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Hekluð peysa með kúlum úr DROPS Air. Stærð S - XXXL.
DROPS 205-12 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Það er mikilvægt að hekla loftlykkjurnar í byrjun á stykkinu ekki of fast, ef kanturinn verður of stífur er hægt að nota grófari heklunál. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10. Allar mynsturteikningarnar eru ekki notaðar í öllum stærðum. KÚLA – HEKLIÐ 5 ÞRÍBRUGÐNA STUÐLA SAMAN: Heklið 1 þríbrugðinn stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin = 2 lykkjur á heklunálinni. Heklið 4 þríbrugðna stuðla saman alveg eins = 6 lykkjur á heklunálinni. Bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni. Herðið vel að áður en heklað er áfram. ÚRTAKA: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokinn, heklið 1 stuðul alveg eins. Bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka í stykkjum sem saumuð eru saman í lokin. BAKSTYKKI: Heklið 70-76-82-88-96-104 lausar loftlykkjur með heklunál 5 og Air – ef loftlykkjurnar eru ekki nægilega lausar þá kemur stykkið til með að dragast saman í kantinum – sjá LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan. Heklið mynsturteikningu A.1-A.4 frá réttu þannig: Heklið A.1 yfir 1-1-1-1-1-1 lykkju, heklið A.2 yfir 0-2-0-2-2-2 lykkjur, heklið A.3 þar til 1 lykkja er eftir (= 17-18-20-21-23-25 sinnum) og heklið A.4 yfir 1 lykkju. Heklið mynsturteikningu svona 1 sinni á hæðina. Heklið síðan eftir mynsturteikningu A.5-A.10 frá réttu þannig: STÆRÐ S: Heklið mynsturteikningu A.5 yfir 1 lykkju, heklið mynsturteikningu A.6 yfir 1 lykkju, heklið mynsturteikningu A.7 yfir 1 lykkju, heklið mynsturteikningu A.8 þar til 3 lykkjur eru eftir (= 8 lykkjur), heklið mynsturteikningu A.6 yfir 2 lykkjur og heklið mynsturteikningu A.10 yfir 1 lykkju. STÆRÐ M: Heklið mynsturteikningu A.5 yfir 1 lykkju, heklið mynsturteikningu A.6 yfir 1 lykkju, heklið mynsturteikningu A.8 þar til 2 lykkjur eru eftir (= 9 sinnum), heklið mynsturteikningu A.6 yfir 1 lykkju og heklið mynsturteikningu A.10 yfir 1 lykkju. STÆRÐ L: Heklið mynsturteikningu A.5 yfir 1 lykkju, heklið mynsturteikningu A.9 þar til 1 lykkja er eftir (= 10 sinnum) og heklið mynsturteikningu A.10 yfir 1 lykkju. STÆRÐ XL: Heklið mynsturteikningu A.5 yfir 1 lykkjur, heklið mynsturteikningu A.6 yfir 2 lykkjur, heklið mynsturteikningu A.7 yfir 1 lykkjur, heklið mynsturteikningu A.8 þar til 4 lykkjur eru eftir (= 10 sinnum), heklið mynsturteikningu A.6 yfir 3 lykkjur og heklið mynsturteikningu A.10 yfir 1 lykkju. STÆRÐ XXL: Heklið mynsturteikningu A.5 yfir 1 lykkju, heklið mynsturteikningu A.6 yfir 2 lykkjur, heklið mynsturteikningu A.7 yfir 1 lykkju, heklið mynsturteikningu A.8 þar til 4 lykkjur eru eftir (= 11 sinnum), heklið mynsturteikningu A.6 yfir lykkjur og heklið mynsturteikningu A.10 yfir 1 lykkju. STÆRÐ XXXL: Heklið mynsturteikningu A.5 yfir 1 lykkju, heklið mynsturteikningu A.6 yfir 2 lykkjur, heklið mynsturteikningu A.7 yfir 1 lykkju, heklið mynsturteikningu A.8 þar til 4 lykkjur eru eftir (= 12 sinnum), heklið mynsturteikningu A.6 yfir 3 lykkjur og hekli mynsturteikningu A.10 yfir 1 lykkju. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið svona þar til stykkið mælist alls 38-39-40-41-42-43 cm. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM! Nú á ekki lengur að hekla yfir ystu 2-2-3-3-3-3 lykkjur í hvorri hlið – hér á að sauma ermarnar niður síðar. Klippið því þráðinn frá og byrjið á næstu umferð með því að hekla í 3.-3.-4.-4.-4.-4. lykkju inn frá hlið og endið umferð þegar eftir eru 2-2-3-3-3-3 lykkjur í umferð = 66-72-76-82-90-98 lykkjur. ATH! Passið uppá að kúlumynstrið haldi áfram eins og áður yfir hvert annað. Heklið eins og áður þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Nú eru ekki kúlurnar ekki lengur heklaðar, skiptið út 1 kúlu fyrir 1 stuðul. Heklið áfram með stuðlum þar til stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm (nú eru eftir 4 umferðir að loka máli). Nú er ekki lengur heklað yfir miðju 20-20-22-22-24-24 stuðla (= hálsmál) = 23-26-27-30-33-37 stuðlar á hvorri öxl. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 stuðul við hálsmál, sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í næstu umferð frá réttu (= alls 2 úrtökur) = 21-24-25-28-31-35 stuðlar. Heklið þar til stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm. Heklið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Heklið nú eins og bakstykki fram þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Nú eru kúlurnar ekki lengur heklaðar skiptið út 1 kúlu með 1 stuðli. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist ca 51-53-55-57-59-61 cm (það er eftir 6 umferðir að loka máli). Nú er ekki heklað lengur yfir miðju 18-18-20-20-22-22 stuðlana (= hálsmál) = 24-27-28-31-34-38 stuðlar á hvorri öxl. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 stuðul við hálsmál, sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í 2 næstu umferðum frá réttu (= alls 3 úrtökur) = 21-24-25-28-31-35 stuðlar. Heklið þar til stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm. Heklið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Heklið 52-54-56-58-62-66 lausar loftlykkjur með heklunál 5 og Air. Heklið 2-2-3-3-3-3 umferðir með stuðlum fram og til baka (hér á að sauma síðar fram- og bakstykki niður við ermi). Heklið síðan stuðla fram og til baka, en hver umferð er sett saman með 1 keðjulykkju í fyrsta stuðul sem var heklaður í umferð og stykkinu er snúið (þá verður áferðin alveg eins á allri erminni og þá þarf ekki að sauma saman í lokin). Heklið síðan áfram þar til stykkið mælist alls 20-19-18-17-15-13 cm (nú eru eftir ca 34 cm að loka máli í öllum stærðum). Aukið nú út 2 stuðla neðan undir ermi, aukið út með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul innan við fyrsta og síðasta stuðul í umferð (= 2 stuðlar fleiri). Endurtakið útaukningu í 3. hverri umferð alls 8 sinnum = 68-70-72-74-78-82 lykkjur. Heklið þar til stykkið mælist 48-47-46-45-43-41 cm (ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Í næstu umferð er lykkjum fækkað með því að hekla 2 og 2 stuðla saman út umferðina = 34-35-36-37-39-41 lykkjur. Heklið 1 umferð til viðbótar og fækkið 6-7-4-5-3-5 lykkjur jafnt yfir = 28-28-32-32-36-36 lykkjur. Nú er kantur heklaður neðst á ermi frá réttu þannig: Heklið 3 loftlykkjur (= kemur í stað 1. stuðul), heklið 1 stuðul um næsta stuðul frá framhlið á stykki, * heklið 1 stuðul um hvorn af næstu 2 stuðlum frá bakhlið á stykki, heklið 1 stuðul um hvorn af næstu 2 stuðum frá framhlið á stykki *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Haldið áfram að hekla svona þar til kanturinn mælist ca 4 cm, ermin mælist ca 54-53-52-51-49-47 cm. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma kant í kant svo að saumurinn verði ekki þykkur. Saumið ermar í – það stykki sem er heklað fram og til baka efst á ermi, á að sauma niður við framstykki/bakstykki þar sem opið var gert fyrir handveg. Saumið hliðarsauma. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið kant í kringum allt opið í hálsi, byrjið frá réttu við öxl. Heklið ca 76-76-80-80-84-84 hálfa stuðla meðfram kanti í kringum allt opið við hálsmál (fjöldi lykkja verður að vera deilanlegur með 4) og endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju. Heklið 3 loftlykkjur (= 1 kemur í stað 1. stuðul), heklið 1 stuðul um næsta hálfa stuðul frá framhlið á stykki, * heklið 1 stuðul um hvorn af næstu 2 hálfu stuðlum frá bakhlið á stykki, heklið 1 stuðul um hvorn af næstu 2 hálfu stuðlum frá framhlið á stykki *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Heklið 1 umferð til viðbótar á sama hátt. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (18)
Margit wrote:
I will make this. I hope i can. Love margit
05.09.2019 - 04:57SYLVIE68 wrote:
Super modèle mais je souhaiterais avoir les explications en tricot
09.07.2019 - 14:56Patti wrote:
Bello bello bello !!
20.06.2019 - 12:36Johanna wrote:
Very Nice crocheted Sweater and Cardigan playful !
15.06.2019 - 22:29Giovanna wrote:
è stupendo!
10.06.2019 - 18:51ELSA ALIS DOMINGUEZ wrote:
Is very pretty! I love!
06.06.2019 - 09:26Nita Sands wrote:
Love the sleeves and the little pom poms.
06.06.2019 - 03:57Bat wrote:
Très jolis mais en tricot et non en crochet
05.06.2019 - 17:49