DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Spring Fairy

Heklaður kjóll fyrir börn úr DROPS Safran. Stykkið er heklað ofan frá og niður með laskalínu og opnu sólfjaðramynstri. Stærð 0 mánaða – 4 ára.

DROPS Baby & Children 38-1
DROPS Design: Mynstur e-080-bn
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: 0/6 - 6/12 - 12/18 mánaða (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 52/68 - 68/80 -80/86 (92 - 98/104)

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-200-200 (200-250) g litur 17, hvítur

HEKLFESTA:
22 stuðlar á breidd og 8 áferðamynsturs umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

DROPS PERLUTALA, Blóm (hvít) NR 600: 3 stykki í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju. Þegar heklað er í hring, endið umferð með 1 keðjulykkju í loftlykkju frá byrjun á umferð. Þegar heklað er fram og til baka, endið umferð með 1 fastalykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð með stuðlum.
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðli með 3 loftlykkjur. Þegar heklað er í hring, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð.
Þegar heklað er fram og til baka, endið umferð með 1 stuðli í loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð með fastalykkjum.

ÁFERÐAMYNSTURS UMFERÐ:
* 1 umferð fastalykkjur, 1 umferð stuðlar *, heklið frá *-* (1 umferð fastalykkjur + 1 umferð stuðlar = 1 áferðamynsturs umferð).

ÚTAUKNING-1:
Aukið út 1 fastalykkju/stuðul með því að hekla 2 fastalykkjur/stuðla í sömu lykkju.

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 136 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 57) = 2,4. Í þessu dæmi er aukið út í ca til skiptis í aðra hverja og 3. hverja lykkju.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er fram og til baka frá miðju að aftan þar til allt opið að aftan hefur verið heklað til loka, síðan er stykkið heklað áfram í hring.

BERUSTYKKI:
Heklið 94-99-104 (104-115) loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við með) með heklunál 3,5 með Safran. Fyrsta umferð er hekluð þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, * 1 fastalykkja í hverja af 3 næstu loftlykkjum, hoppið yfir 1 loftlykkju *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 0-1-2 (2-1) loftlykkjur og endið með 1 fastalykkju í hverja af 0-1-2 (2-1) síðustu loftlykkjum = 70-74-78 (78-86) fastalykkjur í umferð.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið fyrir laskalínu þannig (byrjið mitt að aftan – ATH: Það er EKKI heklað þegar prjónamerkin eru sett í stykkið):
Hoppið yfir 10-11-12 (12-14) fastalykkjur (= hægra bakstykki þegar flíkin er mátuð), setjið 1 prjónamerki í næstu fastalykkju, hoppið yfir 13 fastalykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu fastalykkju, hoppið yfir 20-22-24 (24-28) fastalykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fastalykkju, hoppið yfir 13 fastalykkjur (= ermi) og setjið síðasta prjónamerki í næstu fastalykkju (nú eru 10-11-12 (12-14) fastalykkjur í vinstra bakstykki á eftir síðasta prjónamerki.
LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ HEKLAR!
Lestu HEKLLEIÐBEININGAR og heklaðu næstu umferð frá réttu þannig:
Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju, en í hverja fastalykkju með prjónamerki í eru heklaðir 2 stuðlar + 2 loftlykkjur + 2 stuðlar = 82-86-90 (90-98) stuðlar í umferð.
Heklið síðan ÁFERÐAMYNSTURS UMFERÐ – sjá útskýringu að ofan (heklað er fram og til baka með 1 fastalykkju/stuðull í hverja lykkju frá fyrri umferð, en í hverja umferð með fastalykkju frá röngu eru heklaðar 2 loftlykkjur yfir 2 loftlykkjur frá fyrri umferð í laskalínu).
JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu (þ.e.a.s. í umferð með stuðlum) aukið út fyrir laskalínu þannig: Heklið 2 stuðla + 2 loftlykkjur + 2 stuðla um hvern loftlykkjuboga í hverri laskalínu (= 16 stuðlar fleiri í umferð).
Endurtakið útaukningu í hverri umferð frá réttu, alls 4-5-5 (6-6) sinnum = 146-166-170 (186-194) lykkjur í umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu er hekluð 1 umferð með fastalykkjum frá röngu eins og áður (með 2 loftlykkjur yfir 2 loftlykkjur frá fyrri umferð).

Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í hverja af fyrstu 20-23-24 (26-28) fastalykkjum (= hægra bakstykki), hoppið yfir næstu 33-37-37 (41-41) fastalykkjur (= ermi), heklið 8-6-10 (10-10) LAUSAR loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 40-46-48 (52-56) fastalykkjum (= framstykki), hoppið yfir næstu 33-37-37 (41-41) fastalykkjur (= ermi), heklið 8-6-10 (10-10) LAUSAR loftlykkjur og heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 20-23-24 (26-28) fastalykkjum (= vinstra bakstykki).
Berustykkið er nú tilbúið og stykkið er heklað í hring.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!
Byrjið mitt að aftan með réttuna út (byrjun á umferð = mitt að aftan) og heklið 1 umferð með fastalykkjum (heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul frá fyrri umferð og 1 fastalykkju í hverja loftlykkju undir hvorri ermi – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR) = 96-104-116 (124-132) fastalykkjur í umferð. Heklið nú þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju, en aukið út 6-4-4 (8-12) stuðla jafnt yfir – SJÁ ÚTAUKNING-1 og 2 = 102-108-120 (132-144) stuðlar.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul.
UMFERÐ 3: * 1 stuðull í fyrstu/næstu fastalykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 fastalykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 34-36-40 (44-48) stuðlar með 2 loftlykkjur á milli hverra.
UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul og 3 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga = 136-144-160 (176-192) fastalykkjur.
UMFERÐ 5: Heklið fastalykkjur og aukið út 57-61-57 (53-49) fastalykkjur jafnt yfir = 193-205-217 (229-241) fastalykkjur.
Heklið síðan mynstur hringinn eins og útskýrt er í A.1, þ.e.a.s. heklið A.1A yfir fyrstu lykkjuna, heklið síðan 16-17-18 (19-20) mynstureiningar með A.1B.
Þegar umferð 1-5 hefur verið heklað einu sinni, endurtakið umferð 2-5 áfram þar til stykkið mælist ca 23-28-32 (37-43) cm frá öxl – ATH: Stillið af að endað sé eftir heila mynstureiningu á hæðina. Heklið síðan þannig:

Endurtakið nú umferð 2-5 í A.2A og A.2B alveg eins þar til heklaðar hafa verið 3 mynstureiningar á hæðina með A.2 (e.t.v. að óskaðri lengd). Klippið þráðinn frá og festið. Kjólinn mælist ca 35-40-44 (49-55) cm frá öxl og niður.

JÖFNUN Á HÁLSMÁLI:
Til að flíkin passi betur er hekluð smá upphækkun aftan í hnakka. Setjið 1 prjónamerki í lykkjur í hvert “horn” í hálsi, þ.e.a.s. í byrjun á hverri laskalínu og 1 prjónamerki mitt að framan.
Heklið með heklunál 3,5 með Safran þannig:
Byrjið mitt að aftan og heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki í, heklið 1 hálfan stuðul í næstu lykkju, 1 stuðul í lykkju með prjónamerki í og 1 hálfan stuðul í næstu lykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir á undan næstu lykkju með prjónamerki í, 1 hálfur stuðull í næstu lykkju, 1 stuðul í lykkju með prjónamerki í og 1 hálfur stuðull í næstu lykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til eftir eru 4-5-5 (5-5) lykkjur á undan prjónamerki mitt að framan. Snúið stykkinu og heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju til baka mitt að aftan, en við hvert prjónamerki eru heklaðar 3 fastalykkjur saman, þ.e.a.s. heklið 1 fastalykkju í hálfan stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fastalykkju í stuðul með prjónamerki í, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fastalykkju í næsta hálfa stuðul, en nú á að draga síðasta uppsláttinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni (= 2 fastalykkjur færri). Klippið þráðinn frá og endurtakið frá miðju að aftan að miðju að framan í hinni hliðinni.

TÖLUKANTUR AÐ AFTAN:
Heklið meðfram vinstra opið mitt að aftan þannig: Heklið 1 fastalykkju um hverja fastalykkju umferð og 2 fastalykkjur um hverja stuðla umferð. Heklið alls 4 umferðir með fastalykkjum fram og til baka, klippið þráðinn frá og festið.
Meðfram hægra opi mitt að aftan eru hekluð hnappagöt þannig (byrjið frá réttu við hálsmál): Heklið 3 fastalykkjur (1 fastalykkja í fastalykkju umferð og 2 fastalykkjur um stuðla umferð). 4 loftlykkjur (= 1 hnappagat), hoppið yfir ca 1 cm, heklið fastalykkjur til ca miðju á kanti að framan, 4 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, heklið fastalykkjur þar til 1 cm er eftir í kanti að framan, 4 loftlykkjur og festið með 1 fastalykkju í síðustu lykkju. Klippið þráðinn frá og festið. Saumið tölur í tölukant í vinstri hlið.

PICOTKANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið í kringum hálsmálið þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju sem var hekluð, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* út umferðina, klippið þráðinn frá og festið.

SÓLFJAÐRAKANTUR Í KRINGUM ERMI:
Heklið í kringum op á ermum þannig: 1 fastalykkja í hverja af 8-6-10 (10-10) lykkjum mitt undir ermi og 1 fastalykkju í hverja og eina af 33-37-37 (41-41) fastalykkjum yfir ermi = 41-43-47 (51-51) fastalykkjur í umferð. Heklið síðan þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju, en aukið út 1-5-1 (0-0) stuðla jafnt yfir = 42-48-48 (51-51) stuðlar.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul.
UMFERÐ 3: * 1 stuðull í fyrstu/næstu fastalykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 fastalykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 14-16-16 (17-17) stuðlar með 2 loftlykkjur á milli hverra.
UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul og 3 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga, en 7-3-3 (7-7) sinnum í umferð er einungis heklaðar 2 fastalykkjur um loftlykkjuboga = 49-61-61 (61-61) fastalykkjur.
Heklið síðan mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.1A og A.1B alveg eins og á fram- og bakstykki = 4-5-5 (5-5) sólfjaðrir í umferð. Þegar umferð 1-5 hefur verið heklað einu sinni, klippið þráðinn frá og festið.
Endurtakið í kringum hina ermina.

Mynstur

symbols = þessi umferð er útskýrð í uppskrift
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = fastalykkja efst í picot
symbols = fastalykkja um loftlykkju/lofltykkjuboga
symbols = loftlykkja
symbols = 1 picot: 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju sem var hekluð
symbols = 1 picot: 4 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju sem var hekluð
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull í lykkju frá fyrri umferð
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjur og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju
symbols = fastalykkjan er hekluð í þennan stuðul
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby & Children 38-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag Nathalie wrote:

Bonjour je fais la robe baptême mais je ne comprends pas le diagramme a1b je suis bloquee auriez vous une vidéo pour me permettre de continuer merci d'avance

25.02.2024 - 11:20

DROPS Design answered:

Bonjour Nathalie, dans cette vidéo, nous montons comment réaliser ce diagramme pour les chaussons, elle devrait vous aider pour la robe, car le diagramme est le même. Bon crochet!

26.02.2024 - 09:19

country flag Helen Few wrote:

Do you recommend pressing crocheted garments in Drops Safran

24.02.2024 - 19:39

DROPS Design answered:

Dear Mrs Few, some crocheter/knitter block every project, some other never block, so just do as you are used to, you can also just wash finished project and let it dry flat - remember to always follow all instructions of the label/shadecard. Happy crocheting!

26.02.2024 - 08:37

country flag Lena Ovesson wrote:

Hur tvättar o torkar man denna fina klänning?

24.02.2024 - 12:14

DROPS Design answered:

Hej Lena. Du hittar tvättråd för DROPS Safran här. Mvh DROPS Design

27.02.2024 - 07:42

country flag Marie-Christine BONDOUX wrote:

Bonjour, Comment effectuer le point A.1A et A.1B en ce qui concerne le rang n° 2. Merci d'avance pour votre aide. Cordialement.

07.02.2024 - 14:07

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bondoux, dans cette vidéo, nous montrons comment réaliser ce motif pour les chaussons, elle pourra vous aider pour la robe. Bon crochet!

08.02.2024 - 08:17

country flag Chrochet Stine wrote:

Hei, Har nettop begynt på denne kjolen. Har heklet en del, men forstår ikke helt poenget med andre rad( fm etter oppleggsraden av lm). Hvilken funksjon har det at jeg hopper over en luftmaske? Når jeg gjør det (uten å legge til en luft maske i hullet) ser det veldig ujevnt ut. Redd slutt resultatet ikke blir noe bra. Har lest hele oppskriften og finner ikke noe som forklarer hvorfor man skal hekle 3 fm og hoppe over en. Oppfatter det som at man like gjerne kunne ha heklet 86 fm i str 98?

20.01.2024 - 12:54

DROPS Design answered:

Hei Chrochet Stine. Det gjøres for at "oppleggskanten" ikke skal stramme. mvh DROPS Design

29.01.2024 - 11:07

country flag Malene Rasmussen wrote:

Hej Drops Håber i kan hjælpe. Jeg er ved at hækle kjolen i str. 0-6 mdr. Jeg er nået til omkring 5, med udtagninger jævnt fordelt. Jeg har prøvet at bruge udtagningsberegneren, altså 193 divideret med 57 udtagninger = 3,38 (3,5) og herefter tager ud i skiftevis hver 2. Og 3., men ender ikke med de 193 masker som jeg skal? Hvordan skal jeg tage ud de 57 masker ud, så jeg ender på 193 masker i alt?

04.01.2024 - 17:12

DROPS Design answered:

Hej Malene, du kan tage 1 maske ud efter hver 3. maske, men tæl så du kun tager 57 masker ud :)

11.01.2024 - 14:13

country flag Malene Rasmussen wrote:

Hej Jeg er igang med første række efter luftmaskekæden. Jeg hækler i størrelsen 56/68. Kan det virkelig passe, at jeg skal slutte rækken med at springe en luftmaske over? Derefter skal jeg jo vende arbejde og arbejde tilbage igen, så jeg ender med at have en luftmaske tinglene?

02.01.2024 - 20:07

DROPS Design answered:

Hej Malene, du skal ikke have nogle luftmasker tilbage når du har hæklet 70 fm på første række :)

09.01.2024 - 14:33

country flag Annika 😀 wrote:

Förstår inte mönstret .. har virkat .. repat upp omgång efter omgång .. jag gör storlek 12/18 månader. Önskar få mönstret skrivet i rader som första delen varit. Vill gärna få denna fina klänning klar.

29.07.2023 - 14:02

DROPS Design answered:

Hej Annika, här hittar du en video med samma solfjäder mönster: solfjäder

07.08.2023 - 10:49

country flag Tanj wrote:

Hej! Jag förstår mig inte på diagrammet alls.. jag fastnar bara.. går det att få det nedskrivet hur diagrammen fungerar..

09.08.2022 - 21:27

DROPS Design answered:

Hej, se gerne videoen nederst i mönsteret "Hur man virkar I och OM en maska, det er næsten samme mønster, så du vil forstå princippen :)

10.08.2022 - 12:02

country flag Tanja wrote:

Halloich habe schon mehrere Anleitungen von drops gearbeitet aber bei dieser verzweifel ich etwas. jetzt bin ich beim ersten muster angekommen. Ich blicks nicht. 1.rd eine Luftmasche ( A.1A) , dann A1B eine feste masche überspringen und dann das Pico arbeiten, laut anleitung. Laut video mach ich statt der ersten Luftmasche sofort die 3 lm fürs Picot. was ist richtig?

06.07.2022 - 19:55

DROPS Design answered:

Liebe Tanja, so häkeln Sie A.1A (= 1 Lm) = Anfang der Runde, dann wiederholen Sie A.1B = *3 Lm, 1 Stb in die 1. Lm (= 1 Pikot), 2 M überspringen, 1 fm In die nächste M*, von *bis* 4 Mal wiederholen = 1 Rapport A.1B. Dieses Video zeigt, wie man diese Diagramme" für die passenden Babyschühchen häkelt, es kann Ihnen sicher helfen. Viel Spaß beim häkeln!

07.07.2022 - 08:47