So Charming Socks |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaðar tátiljur með sólfjaðrakanti fyrir skírn eða nafnagjöf úr DROPS Safran. Stærð 15 - 23.
DROPS Baby 29-4 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun hverrar umferðar með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju. Þegar heklað er í hring endar umferð með 1 keðjulykkju í loftlykkju frá byrjun umferðar. Þegar heklað er fram og til baka endar umferð með 1 fastalykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar frá fyrri umferð með stuðlum. Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Þegar heklað er í hring endar umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar. Þegar heklað er fram og til baka endar umferð með 1 stuðli í loftlykkju frá byrjun fyrri umferðar með fastalykkjum. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 fastalykkju/stuðul með því að hekla 2 fastalykkjur/stuðla í sömu lykkju. ÚRTAKA: Heklið 1 fastalykkju/stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næstu fastalykkju/stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin, dragið þráðinn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fastalykkju/stuðul. HEKLLEIÐBEININGAR: Í umferð eftir að stuðlar framan á tátilju hafa verið heklaðir saman 2 og 2 verður að hekla aðeins fastar framan á tátiljunni, þ.e.a.s. að herða þarf aðeins á þræðinum á milli hverra stuðla sem eru heklaðir. Þetta er gert til þess að miðjustykkið framan á tátilju verði ekki allt of laust. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJA: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og byrjið á sóla – ATH: Heklað er í hverja lykkju (ekki á milli lykkja). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið 19-21-23-25 loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við með) með heklunál 3 með Safran. Fyrsta umferðin er hekluð þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja af næstu 17-19-21-23 loftlykkjum = 18-20-22-24 fastalykkjur, snúið stykkinu. Heklið síðan 1 fastalykkju í hverja fastalykkju frá fyrri umferð JAFNFRAMT er aukið út um 2 fastalykkjur í byrjun og lok fyrstu umferðar með því að hekla 3 fastalykkjur í fyrstu og síðustu fastalykkju í umferð = 22-24-26-28 fastalykkjur. Heklið fastalykkjur fram og til baka þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 3-4-4-5 cm. Fækkið nú um 2 fastalykkjur í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA = 18-20-22-24 fastalykkjur í umferð – ATH: Í lok umferðar byrjar úrtaka þegar eftir eru 4 fastalykkjur, síðan eru heklaðar 4 síðustu fastalykkjur saman 2 og 2. Stykkið mælist ca 3-4-4 (5) cm. Klippið frá og festið enda, sólinn er nú tilbúinn. Heklið síðan stuðla í kringum sóla þannig: UMFERÐ 1: Byrjið við miðju að aftan (= miðja í annarri skammhlið) – Heklið 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju, 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið 1-2-2-3 stuðla fram að horni, 2 stuðlar í horni, 1 stuðull í hverja af 18-20-22-24 fastalykkjum meðfram hlið, 2 stuðlar í horn, 4-6-6-8 stuðlar meðfram skammhlið (= tá), 2 stuðlar í hornið, 18-20-22-24 stuðlar meðfram hlið, 2 stuðlar í hornið og 2-3-3-4 stuðlar meðfram skammhlið að miðju að aftan, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 52-60-64-72 stuðlar. NÆSTA UMFERÐ Í STÆRÐ 22/23 (þessi umferð er ekki hekluð í hinum stærðunum): Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul = 72 stuðlar. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ Í ÖLLUM STÆRÐUM ÞANNIG: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul, en fækkið um 1 stuðul í hvoru af 2 hornum framan á tá – LESIÐ ÚRTAKA = 50-58-62-70 stuðlar. HEKLIÐ SÍÐAN FRÁ MIÐJU AÐ AFTAN ÞANNIG (Heklið 1 lykkju í hverja lykkju frá fyrri umferð): UMFERÐ 1: 19-22-24-27 fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman – LESIÐ ÚRTAKA, 6-8-8-10 stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og 19-22-24-27 fastalykkjur = 48-56-60-68 lykkjur. UMFERÐ 2:18-21-23-26 fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman, 6-8-8-10 stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og 18-21-23-26 fastalykkjur = 46-54-58-66 lykkjur. UMFERÐ 3:17-20-22-25 fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman, 6-8-8-10 stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og 17-20-22-25 fastalykkjur = 44-52-56-64 lykkjur. UMFERÐ 4 í stærð 22/23 (þessi umferð er ekki hekluð í hinum stærðunum): 24 fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman, 10 stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og 24 fastalykkjur = 62 lykkjur. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ Í ÖLLUM STÆRÐUM ÞANNIG: 16-19-21-23 fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 10-12-12-14 næstu stuðla saman 2 og 2, 1 hálfur stuðull og 16-19-21-23 fastalykkjur = 39-46-50-55 lykkjur. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ Í ÖLLUM STÆRÐUM ÞANNIG: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 14-17-19-21 fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman, 5-6-6-7 stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og 14-17-19-21 fastalykkjur = 37-44-48-53 lykkjur. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ Í STÆRÐ 22/23 (þessi umferð er ekki hekluð í hinum stærðunum) ÞANNIG: 20 fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman, 7 stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og 20 fastalykkjur = 51 lykkja. ALLAR STÆRÐIR: = 37-44-48-51 lykkjur. Heklið 1-1-2-2 umferð með 1 stuðli í hvern stuðul JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 30-36-36-36 stuðlar í 1. umferð – LESIÐ ÚTAUKNING/ÚRTAKA – ATH: Ef óskað er eftir að gera tátiljuna stærri eða minni í opi þá er hægt að jafna lykkjufjöldann að óskuðu máli, en vegna mynsturs þá verður lykkjufjöldinn að vera deilanlegur með 6. SÓLFJAÐRAMYNSTUR: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul = 30-36-36-36 fastalykkjur. UMFERÐ 2 (= gataumferð fyrir silkiborða): * 1 hálfur stuðull í fyrstu/næstu fastalykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 fastalykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 10-12-12-12 hálfir stuðlar með 2 loftlykkjum á milli hverra. UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul og 3 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga, en í stærð 15/17 er einungis heklaðar 2 fastalykkjur um loftlykkjuboga alls 3 sinnum í umferð og í stærð 18/19 + 20/21 + 22/23 eru heklaðar 4 fastalykkjur um loftlykkjuboga alls 1 sinni í umferð) = 37-49-49-49 fastalykkjur (lykkjufjöldinn er deilanlegur með 12 + 1). Heklið nú sólfjaðramynstur hringinn þannig: Heklið A.1A yfir fyrstu lykkju, heklið síðan 3-4-4-4 mynstureiningar með A.1B. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina, klippið frá og festið enda. Heklið aðra tátilju á sama hátt. SILKIBORÐI: Klippið silkiborðann í tvennt. Byrjið við miðju framan á annarri tátiljunni og þræðið silkiborðann upp og niður í gegnum gataumferð. Hnýtið slaufu við miðju að framan. Gerið alveg eins á hinni tátiljunni. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (15)
Mette Nielsen wrote:
Kære Drops design Jeg kommenterer her da jeg ikke ved hvordan jeg ellers får fat på jer. Jeg skriver fordi der er en butik på Etsy, der sælger drops mønstre i butikkens eget navn og kalder designsne for deres egne. Hvordan melder vi dette til Drops, så de kan tage deres rettigheder tilbage og lukke butikken?! Mange tak
16.02.2021 - 16:09DROPS Design answered:
Hej Mette, tak for info, vi skal se på det :)
18.02.2021 - 09:44Faith wrote:
Thanks for creating this blog. Your crochet sockets are beautiful and the colors are attractive. I would love you to make a video of it. So I can learn how to make mine as well. I await your urgent reply and thanks once more for creating this blog.
22.05.2020 - 13:54Margret wrote:
Guten Tag Nicht nur für dieses Modell möchte ich mich herzlich bedanken.Auch die Tatsache, dass man die Anleitungen ausdrucken kann, ohne bei einer Firma seine Daten hinterlassen zu müssen, finde ich super ! Weiter so! MfG Margret
14.11.2019 - 09:07Irene wrote:
En la vuelta 2 del patrón de abanicos, es decir, la hilera de agujeros para el listón de seda, ¿se hacen puntos medio altos o puntos altos? En el texto dice que puntos medios altos, pero en la vuelta siguiente se dice que se trabajen puntos bajos en los puntos altos de la vuelta anterior... Gracias!
26.08.2019 - 22:00DROPS Design answered:
Hola Irene. Enviaré tu pregunta al departamento de diseño. Pero puedes trabajar puntos altos o medio altos para la vuelta para pasar la cinta, ya que esto solo afecta a la anchura de los agujeros, pero no al diseño del modelo.
08.09.2019 - 14:05Erika Reinhold wrote:
DIE NÄCHSTE RUNDE IN ALLEN GRÖSSEN: 16-19-21-23 feste Maschen, = 39-46-50-55 Maschen.DIE NÄCHSTE RUNDE IN ALLEN GRÖSSEN: 14-17-19-21 feste Maschen häkeln, 37-44-48-53 Maschen. wie bitte soll das gehen? entweder ich reduziere die Seiten oder die Mitte. hier ist die Seite von 19 auf 17 und die mitte von 8 auf 6 maschen reduziert
07.08.2019 - 18:21DROPS Design answered:
Liebe Frau Reinhold, es wird in der Mitte durch die 2 Stb zs abgenommen - aber gleichzeitig häkeln Sie weniger fM und mhr Stb um das richtige Form zu behalten. Viel Spaß beim häkeln!
08.08.2019 - 09:39Erika Reinhold wrote:
Könnte man es möglich machen eine Übersetzungsfunktion für die Fragen und Kommentare einzubauen? Dann könnte man sehen, ob die Frage schon einmal gestellt und beantwortet wurde.
06.08.2019 - 12:23DROPS Design answered:
Liebe Frau Reinhold, die Fragen/Antwort und Kommentare können Sie auch mit einer Online-Übersetzer übersetzen. Gerne können Sie immer Ihre Frage hier stellen, oder auch sich direk an Ihrem DROPS Store wenden. Viel Spaß beim häkeln!
07.08.2019 - 11:53Simard wrote:
Dans le patron vous dite de faire une maille serré dans le haut du picot c est où exactement
07.06.2019 - 21:47DROPS Design answered:
Bonjour Mme Simard, au rang précédent vous avez crocheté 3 ml, 1 bride dans la 1ère des 3 ml pour former un picot, au rang suivant, vous crochetez la maille serrée dans la pointe de ce picot. Bon crochet!
20.06.2019 - 09:06Patricia CASTAGNOTTO wrote:
Bonjour, pourrais je avoir une video pour ces très jolis chaussons ? Merci
03.04.2019 - 22:18DROPS Design answered:
Bonjour Mme Castagnotto, nous n'avons pas de vidéo pour ce modèle, toutefois, lisez attentivement les indications pour la taille souhaitée et suivez bien le diagramme (comment lire un diagramme au crochet). Pour toute question complémentaire, n'hésitez pas à utiliser cette rubrique ou bien contactez le magasin où vous avez acheté votre laine pour toute assistance individuelle. Bon crochet!
04.04.2019 - 09:38Susanne Bylund wrote:
Ingen som vill svara...behöver hjälp för att kunna fortsätta... Mvh/Susanne Bylund
06.02.2019 - 14:18Susanne Bylund wrote:
Ska man börja med bara 1 maska på A1 o sen enbart upprepa A2 3 ggr? Mvh/Susanne Bylund
05.02.2019 - 13:47DROPS Design answered:
Hej, jo du ska virka A.1A över den första maskan en gång och sedan upprepar du A.1B 3 gånger.
06.02.2019 - 17:30