Weekend Games |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsi, áferðamynstri og axlarsæti. Stærð 3 til 14 ára.
DROPS Children 40-18 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 87 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim 77 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 4,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti, ermar og berustykki frá RÉTTU): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚTAUKNING-3 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti frá RÖNGU): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsi hefur verið prjónaður til loka (þ.e.a.s. í skiptingunni á milli kants í hálsi og berustykkis). Fellið síðan af fyrir 4-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 7-7-7½-7-7-7½ cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsi og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermar og að lokum eru lykkjur auknar út fyrir berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSI: Fitjið upp 87-89-91-93-95-99 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á stuttan hringprjón 3 með Sky. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 7 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 18-20-22-24-22-22 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan = 105-109-113-117-117-121 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og 5 ystu lykkjurnar í hvorri hlið eru prjónaðar slétt = kantur að framan). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er einnig gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti og prjónamerkin verða að hafa annan lit en prjónamerkið við hálsinn til að aðgreina þau. Fyrsta prjónamerki: Byrjið mitt að framan, teljið 21-22-22-22-22-23 lykkjur (= framstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju. Annað prjónamerki: Teljið 15-15-17-19-19-19 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 33-35-35-35-35-37 lykkjur frá 2. prjónamerki (= bakstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 15-15-17-19-19-19 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 21-22-22-22-22-23 lykkjur eftir í umferð á eftir 4. prjónamerki (= framstykki). Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt þessa prjónamerkja. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Lestu allan kaflann áður en þú prjónar! Stykkið er prjónað áfram í A.1 með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu eru auknar út 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Í næstu umferð frá röngu eru auknar út 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 4. og 2. prjónamerki og aukið út á EFTIR 3. og 1. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-3. Þ.e.a.s. aukið er út í hverri umferð og það er aukið út mismunandi frá réttu og frá röngu, svo að lykkjurnar liggi fallega. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út alveg eins í hverri umferð (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu) alls 12-14-16-20-22-26 sinnum = 153-165-177-197-205-225 lykkjur - útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 4-5-6-7-8-9 cm frá prjónamerki við háls. Aukið síðan út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Haldið áfram með A.1 og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-2. Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 10-10-8-7-8-8 sinnum = 193-205-209-225-237-257 lykkjur. Stykkið mælist ca 11-12-12-12-14-15 cm frá prjónamerki við háls. Aukið síðan út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI: Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjunum sitja í ystu lykkjunni í hvorri hlið á framstykki og bakstykki. Nú eru 35-35-33-33-35-35 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverjum af 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING-2. Lykkjur eru nú auknar út á framstykki, bakstykki og báðum ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 5-5-6-5-5-4 sinnum = 233-245-257-265-277-289 lykkjur. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar, mælist stykkið ca 15-16-16-16-17-18 cm frá prjónamerki við háls. Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 15-16-16-17-18-19 cm frá prjónamerki við háls. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 38-40-42-44-46-48 lykkjurnar (= framstykki), setjið næstu 46-48-50-50-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 65-69-73-77-81-85 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 46-48-50-50-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 38-40-42-44-46-48 lykkjur (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 153-161-169-181-189-197 lykkjur. Haldið áfram með A.1 fram og til baka eins og áður með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Prjónið þar til stykkið mælist 15-18-21-24-25-26 cm frá skiptingu. Nú eru ca 3 cm til loka máls, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Skiptið yfir á hringprjóna 3. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (stroffið á að passa fallega yfir A.1 með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir garðaprjón). Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 36-40-44-48-50-52 cm frá öxl og niður. ERMAR: Setjið 46-48-50-50-52-54 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 - prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-8-8-8 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. í miðju af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið A.1 hringinn (passið uppá að mynstrið passi við berustykki). Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-3½-3½-4-4 cm millibili alls 7-8-8-9-9-10 sinnum á hæðina = 38-38-40-40-42-42 lykkjur eftir. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 21-25-30-34-38-42 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3 cm til loka máls. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm – passið uppá að stroffið passi fallega yfir A.1. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 24-28-33-37-41-45 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina alveg eins. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsi að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfalt uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsi dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju framan í köntum að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (3)
VOISINplus wrote:
Cardigan
27.04.2024 - 10:10Rei wrote:
(11~12 size ) Shouldn't the yoke increase be more than 81stitch?
01.09.2023 - 10:19DROPS Design answered:
Dear Rei, before yoke increases, there are 237 sts on needle in this size, then you increase (like raglan) 8 sts a total of 5 times on every other row = 40 sts increased + 237 = 277 sts before dividing. Can this help? Happy knitting!
01.09.2023 - 15:27Jennifer Martone wrote:
I am having a hard time understanding stitch pattern used in this sweater. The picture shows a different stitch and the directions say knit every row garter stitch. The sweater is not done in garter stitch.
25.08.2022 - 00:42DROPS Design answered:
Dear Mrs Martone, the pattern in this jacket is worked following diagram A.1, work as follow over 2 sts: from RS: K1, P1, from WS, P2 (read from the left towards the right), repeat these 2 rows, in other words, you will get rib (1 stitch in stocking stitch (1st st in A.1), 1 stitch in garter stitch (2nd stitch in A.1). Happy knitting!
25.08.2022 - 09:36