DROPS Wish
DROPS Wish
50% Alpakka, 33% Bómull, 17% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16368.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Hush of Night

Prjónuð síð peysa úr DROPS Wish. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með vösum og köntum í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 228-12
DROPS Design: Mynstur wi-007
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
600-650-700-800-850-950 g litur 09, gallabuxnablár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Wish
DROPS Wish
50% Alpakka, 33% Bómull, 17% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16368.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 81 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 23) = 3,4.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca aðra hverja og 3. hverja lykkju og 3. og 4. hverja lykkju slétt saman. Lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur.

ÚRTAKA-2 (á við um hálsmál á framstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 1 lykkju á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig (á við um vinstra framstykki):
Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).
Fækkið um 1 lykkju á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig (á við um hægra framstykki):
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykki og framstykkin eru prjónuð fram og til baka. Á framstykkjum eru prjónaðir vasar. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Að lokum er prjónaður upp kantur að framan/kantur í hálsmáli í kringum opið á allri peysunni.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 81-87-95-101-107-115 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna 6 með DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff fram og til baka frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til stykkið mælist 12 cm.
Prjónið 1 umferð sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið um 23-23-25-27-29-31 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 58-64-70-74-78-84 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm, fellið lykkjur af fyrir handvegi þannig: Fellið af fyrstu 3-5-7-7-7-9 lykkjur, prjónið eins og áður út umferðina. Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 3-5-7-7-7-9 lykkjur, prjónið eins og áður út umferðina = 52-54-56-60-64-66 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm, fellið af miðju 10-10-10-12-12-12 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (= 21-22-23-24-26-27 lykkjur eftir á hvorri öxl). Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 20-21-22-23-25-26 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram eins og áður þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 36-42-46-48-50-54 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna 6 með DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff fram og til baka frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til stykkið mælist 12 cm.
Prjónið 1 umferð sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið um 9-12-13-14-14-15 lykkjur jafnt yfir = 27-30-33-34-36-39 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 8.
Í næstu umferð frá réttu eru lykkjur auknar út fyrir vasa þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið síðan 2 lykkjur í hverja lykkju með því að prjóna 1 lykkju í fremri lykkjubogann og 1 lykkju í aftari lykkjubogann í hverja lykkju þar til eftir eru 4-7-10-9-11-14 lykkjur í umferð, prjónið 3-6-9-8-10-13 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 49-52-55-58-60-63 lykkjur.
Í næstu umferð frá röngu er prjónað þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 3-6-9-8-10-13 lykkjur brugðið, prjónið brugðnar lykkjur yfir allar lykkjur sem prjónaðar voru í aftari lykkjubogana frá fyrri umferð, á meðan alla lykkjur sem prjónaðar voru í fremri lykkjubogana frá fyrri umferð eru settar á þráð (þ.e.a.s. setjið aðra hverja lykkju á þráð og prjónið aðra hverja lykkju). Þráðurinn með lykkjum á að liggja frá réttu á stykki, það á að nota þráðinn síðar til að prjóna vasa.

Þegar allar lykkjur hafa verið settar á þráð, eru 22-22-22-24-24-24 lykkjur á þræði og 27-30-33-34-36-39 lykkjur á prjóni.
Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-48 cm, fækkið um 1 lykkju við miðju framan í hálsmáli – sjá ÚRTAKA-2! Fækkið lykkjum svona með 5-5-6-6-6½-6½ cm millibili alls 4 sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm, fellið af fyrstu 3-5-7-7-7-9 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á næstu umferð frá röngu.
Þegar allar úrtökur hafa verið gerðar fyrir handveg og hálsmáli til loka, eru 20-21-22-23-25-26 lykkjur á prjóni. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 36-42-46-48-50-54 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna 6 með DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff fram og til baka frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til stykkið mælist 12 cm.
Prjónið 1 umferð sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið um 9-12-13-14-14-15 lykkjur jafnt yfir = 27-30-33-34-36-39 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 8.
Í næstu umferð frá réttu eru lykkjur auknar út fyrir vasa þannig:
Prjónið 4-7-10-9-11-14 lykkjur slétt, prjónið síðan 2 lykkjur í hverja lykkju með því að prjóna 1 lykkju í fremri lykkjubogann og 1 lykkju í aftari lykkjubogann í hverja og eina af næstu 22-22-22-24-24-24 lykkjum og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 49-52-55-58-60-63 lykkjur.
Í næstu umferð frá röngu er prjónað þannig: Prjónið brugðnar lykkjur yfir allar lykkjur sem voru prjónaðar í aftari lykkjubogana frá fyrri umferð, á meðan allar lykkjur sem voru prjónaðar í fremri lykkjubogana frá fyrri umferð eru settar á þráð (þ.e.a.s. setjið aðra hverja lykkju á þráð og prjónið aðra hverja lykkju), prjónið 3-6-9-8-10-13 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þráðurinn með lykkjum á að liggja að réttu á stykki, það á að nota þráðinn síðar til að prjóna vasa.

Þegar allar lykkjur hafa verið settar á þráð, eru 22-22-22-24-24-24 lykkjur á þræði og 27-30-33-34-36-39 lykkjur á prjóni.
Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-48 cm, fækkið um 1 lykkju við miðju framan í hálsmáli – sjá ÚRTAKA-2! Fækkið lykkjum svona með 5-5-6-6-6½-6½ cm millibili alls 4 sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm, fellið af fyrstu 3-5-7-7-7-9 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á næstu umferð frá réttu.
Þegar allar úrtökur hafa verið gerðar fyrir handveg og hálsmáli til loka, eru 20-21-22-23-25-26 lykkjur á prjóni. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið af.

VASI:
Setjið til baka 22-22-22-24-24-24 lykkjur af þræði frá öðru framstykkinu á hringprjón 8. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til vasinn mælist 14-14-14-15-15-15 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 9 lykkjur jafnt yfir = 31-31-31-33-33-33 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið stroff fram og til baka með byrjun frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið áfram með stroff þar til vasinn mælist 18-18-18-19-19-19 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið annan vasa á sama hátt.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 40-42-42-44-44-46 lykkjur á sokkaprjóna 6 með DROPS Wish. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 12 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12 lykkjur jafnt yfir = 28-30-30-32-32-34 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 8. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi.
Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar auka á út lykkjum mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 14 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 5-4½-4-3½-3-3 cm millibili alls 7-7-8-8-9-9 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Þegar ermin mælist 46-44-43-42-42-40 cm, skiptist stykkið við prjónamerki og stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna 8 í sléttprjóni með 1 kantlykkju í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 49-49-49-48-48-48 cm, fellið af – sjá AFFELLING.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið ytri sauminn á vasanum fallega við framstykkin (þ.e.a.s. þá hlið á vasa sem snýr að hliðarsaumum). Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni og saumið botninn á handveg – sjá teikningu.

KANTUR AÐ FRAMAN / KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp frá réttu ca 215-221-227-235-241-247 lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á hringprjón 6 – byrjið neðst á hægra framstykki, prjónið upp lykkjur upp að hálsmáli, aftan í kanti í hálsi og niður meðfram vinstra framstykki. Þegar lykkjur eru prjónaðar upp meðfram vösum, prjónið upp lykkjur í gegnum vasann og framstykki (þ.e.a.s. í gegnum 2 lög). Stillið af að lykkjufjöldinn dragi ekki kantinn á peysunni saman, prjónið e.t.v. fleiri lykkjur (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1).
Prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff.
Þegar stroffið mælist 4 cm, aukið út þannig:
Prjónið yfir fyrstu 77-79-81-85-89-91 lykkjur eins og áður, aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir hverri brugðinni lykkju þar til eftir eru 77-79-81-85-89-91 lykkjur og prjónið síðustu lykkjur eins og áður. Þetta er gert til að kanturinn í hálsmáli sitjið betur aftan í hnakka. Haldið áfram með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til kanturinn mælist 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING!

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 05.10.2021
Nýtt efnismagn: DROPS Wish frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E) 600-650-700-800-850-950 g litur 09, gallabuxnablár

Mynstur

symbols = Ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (53)

country flag Joan Gigliati wrote:

The pattern for the right side pocket seems to be incorrect based on the picture of the completed project. Also, the left side pattern has the sleeve reduction on the wrong side. Is there a corrected version of this pattern? Thank you

06.04.2024 - 03:20

DROPS Design answered:

Dear Joan, the pockets and the sleeves are knitted the same way on both sides. It might look differently on one side, because the modell has her hands in her pockets differently, but they are knitted the same way. Also, both sleevs are knitted the same way, both has decreases on "each side of the marker thread". As for the armholes on the front, for the right side you cast off at the beginning of the row on the wrong side, for the left side, you cast of at the beginning of the row on the right side. Happy Knitting!

06.04.2024 - 21:42

country flag Ewa wrote:

Nie rozumiem opisu dotyczącego wykonania obszycia przodów. Co to znaczy "dodawać 1 oczko wykonując 1 narzut na końcu każdej grupy oczek lewych"? O jakiej "grupie oczek lewych" jest mowa? Czy należy robić narzuty po każdym lewym oczku? Czy tylko narzut po 77-79-81-85-89-91 pierwszych oczek, i przed końcowymi 77-79-81-85-89-91 oczkami?

12.01.2024 - 18:27

DROPS Design answered:

Witaj Ewo, tak chodzi o narzut za każdym lewym oczkiem, ponad oczkami środkowymi obszycia. Chodzi o to aby ściągacz przy dekolcie był nieco szerszy i lepiej się układał. Pozdrawiamy!

13.01.2024 - 09:47

country flag Wusel7 wrote:

Kannn ich die Jacke auch mit 4 Faaden Alpaca stricken?

06.11.2023 - 23:51

DROPS Design answered:

Liebe Frau Wusel7, ja mit 4 Fäden Alpaca können Sie auch stricken, versuchen Sie mal unseren Garnumrechner um die neue Garnmenge kalkulieren zu lassen. Viel Spaß beim stricken!

07.11.2023 - 08:56

country flag Monika Holmström wrote:

Stämmer verkligen garnåtgången på drops Husf of the night? Står att det garnet kostar 269 till detta mönste

26.09.2023 - 08:32

DROPS Design answered:

Hej Monika. Tack för info, detta är nu rättat. Mvh DROPS Design

26.09.2023 - 11:10

country flag Natratics Éva wrote:

Kedves Drops Design. Ha a többi hasonló kardigánhoz 700-1000 gramm kell egy átlagosan M-es méretű darabhoz, akkor ehhez a modellhez sem lesz elég az összesen 300-400 gramm Wisch fonal Üdv. Éva

16.01.2023 - 13:30

country flag Wioletta wrote:

W jakim celu wykonuje się pierwsze oczko brzegowe ściegiem francuskim?

07.11.2022 - 18:14

DROPS Design answered:

Witaj Wioletto, odpowiedź znajdziesz na filmie TUTAJ. Pozdrawiamy!

08.11.2022 - 08:55

country flag Anna Winters wrote:

Het breipatroon Hush of Night geeft voir pen 8 11 steken in de breedte aan. Ik krijg er 12 maar op pen 9 worden het er weer minder en vind ik het breiwerk te los. Wat moet ik nu doen?

08.10.2022 - 10:54

DROPS Design answered:

Dag Anna,

Je zou dan op basis van de stekenverhouding het aantal op te zetten steken aan kunnen passen. Dus ongeveer per 10 cm (zie maattekening onderaan het patroon) 1 steek extra opzetten. Houd er ook rekening mee dat je dan dus extra steken over houdt na het afkanten voor het armsgat e.d.)

08.10.2022 - 16:14

country flag Gisele ARNAUD wrote:

Modèle DROPS Design: Modèle n° wi-007 Bonjour, Je ne comprends pas les mesures indiquées sur le schéma du modèle. Exemple pour la taille XXL il est indiqué de monter 115 mailles pour le dos. L'échantillon est de 11 mailles pour 10 cm donc en montant 115 mailles cela donnera 104 cm pour le dos. Le schéma indique 75. Merci de m'expliquer les chiffres du schéma. Gisèle Arnaud.

24.07.2022 - 16:44

DROPS Design answered:

Bonjour Gisele, l'echantillon donne est pour le point jersey et aiguilles no 8. Deuxieme chose: le nombre de mailles sera reduit apres les cotes (de cette facon les cotes et la partie en jersey auront la meme larguer). Bon tricot!

25.07.2022 - 07:45

country flag Aziliz Ollivier wrote:

Bonjour, êtes-vous au courant qu\'une bloggeuse distribue des modèles drops sans vous citer ? Voir : mimitricot.com Elle se fait aussi de la pub sur Facebook dans des groupes de tricot et crochet, en montrant vos modèles comme les siens. J'ai reconnu la mannequin. Je n'ai pas apprécié cette façon de faire. Cordialement, Aziliz Ollivier

04.07.2022 - 17:54

country flag Kine Clevenger wrote:

Hei, Går det ann å strikke denne på rundpinner?

14.06.2022 - 19:12

DROPS Design answered:

Hej Kine, ja du kan strikke denne frem og tilbage på rundpinde :)

15.06.2022 - 15:34