Ash Mint Slipover |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónað vesti / slipover úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með V-hálsmáli, klauf í hliðum, áferðamynstri og tilfærslu á lykkjum. Stærð XS - XXL.
DROPS 227-31 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Prjónið 6 lykkjur garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 6 lykkjur garðaprjón. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykki og framstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Síðan við frágang er vestið saumað saman á öxlum og niður yfir hliðarsauma. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í hring á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 73-77-85-89-97-105 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 6 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 6 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú mynstur þannig: 6 lykkjur garðaprjón, A.1 (= 2 lykkjur) þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, prjónið 6 lykkjur garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm. Prjónið garðaprjón yfir ystu 8-8-10-10-10-10 lykkjur í hvorri hlið. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir þessar lykkjur, fellið af 2-2-4-4-4-4 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 69-73-77-81-89-97 lykkjur. Í stærð XS, S, M og L hoppið yfir næsta kafla og prjónið áfram frá ALLAR STÆRÐIR – sjá útskýringu að ofan. Í stærð XL og XXL, prjónið eins og útskýrt er að neðan. STÆRÐ XL og XXL: Fækkið nú um 1 lykkju innan við 6 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 4-6 sinnum = 81-85 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: Haldið svona áfram fram og til baka með A.1 og 6 lykkjum garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm, fellið af miðju 19-19-19-23-23-23 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 24-26-28-28-28-30 lykkjur eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og garðaprjóni yfir garðaprjón. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 73-77-85-89-97-105 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 6 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 6 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú mynstur þannig: 6 lykkjur garðaprjón, A.1 (= 2 lykkjur) þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, prjónið 6 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 9-9-10-10-11-11 cm, prjónið mynstur þannig: Prjónið 6 lykkjur garðaprjón, A.1 eins og áður yfir næstu 5-7-11-13-17-21 lykkjur, A.2 yfir næstu 22 lykkjur, A.1 eins og áður yfir næstu 7 lykkjur (miðju lykkjan af þessum 7 lykkjum er miðju lykkja á framstykki = slétt lykkja), A.3 yfir næstu 22 lykkjur, A.1 eins og áður yfir næstu 5-7-11-13-17-21 lykkjur, 6 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm. Prjónið nú garðaprjón yfir ystu 8-8-10-10-10-10 lykkjur í hvorri hlið. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir þessar lykkjur, fellið af 2-2-4-4-4-4 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 69-73-77-81-89-97 lykkjur. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Prjónið síðan eins og útskýrt að neðan undir næsta kafla – veldu kafla fyrir þína stærð. STÆRÐ XS, S, M og L: Skiptið stykkinu fyrir hægra og vinstra framstykki, jafnframt er prjónað mynstur og úrtaka fyrir V-hálsmáli er gerð eins og útskýrt er að neðan. MYNSTUR OG ÚRTAKA FYRIR V-HÁLSMÁLI: Prjónið nú áfram með 6 lykkjur garðaprjón að hlið og mynstur eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar A.2 og A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina alls 2 sinnum, prjónið A.4 yfir A.2 og A.5 yfir A.3 (þær lykkjur sem eftir eru halda áfram eins og áður). Úrtaka í A.4 og A.5 er úrtaka fyrir V-hálsmáli. Þegar A.4 og A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina, heldur úrtakan áfram alveg eins þar til fækkað hefur verið alls um 10-10-10-12 lykkjur (á hvoru framstykki). SKIPTING FYRIR HÆGRA OG VINSTRA FRAMSTYKKI: Þegar stykkið mælist 37-38-39-40 cm, skiptist stykkið fyrir hægra og vinstra framstykki með því að miðju lykkjan og lykkjur fyrir hitt framstykkið sem prjóna á, er sett á þráð (miðju lykkja = 1 lykkja slétt). Prjónið síðan hvora öxl til loka fyrir sig með mynstri og úrtöku eins og útskýrt er að ofan (stykkið skiptist áður en allar úrtökur hafa verið prjónaðar til loka í mynstri). Þegar öll úrtaka fyrir V-hálsmáli hefur verið gerð til loka, eru 24-26-28-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 58-60-62-64 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og garðaprjóni yfir garðaprjón. Prjónið hina öxlina á sama hátt. STÆRÐ XL og XXL: Fækkið nú lykkjum fyrir handveg, jafnframt sem stykkið skiptist fyrir hægra og vinstra framstykki og prjónað er mynstur og úrtaka fyrir V-hálsmáli er gerð eins og útskýrt er að neðan. ÚRTAKA FYRIR HANDVEG: Fækkið um 1 lykkju innan við 6 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið alveg eins og á bakstykki – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 4-6 sinnum = 81-85 lykkjur. MYNSTUR OG ÚRTAKA FYRIR V-HÁLSMÁLI: Eftir síðustu úrtöku fyrir handveg er prjónað áfram með 6 lykkjur garðaprjón að hlið og mynstur eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar A.2 og A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina alls 2 sinnum, prjónið A.4 yfir A.2 og A.5 yfir A.3 (þær lykkjur sem eftir eru halda áfram eins og áður). Úrtaka í A.4 og A.5 er úrtaka fyrir V-hálsmáli. Þegar A.4 og A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina, heldur úrtakan áfram alveg eins þar til fækkað hefur verið um alls 12-12 lykkjur (á hvoru framstykki). SKIPTING FYRIR HÆGRA OG VINSTRA FRAMSTYKKI: Þegar stykkið mælist 41-42 cm, skiptist stykkið fyrir hægra og vinstra framstykki með því að miðju lykkjan og lykkjur fyrir hitt framstykkið sem prjóna á, er sett á þráð (miðju lykkja = 1 lykkja slétt). Prjónið síðan hvora öxl til loka fyrir sig með mynstri og úrtöku eins og útskýrt er að ofan (stykkið skiptist áður en allri úrtöku er lokið í mynstri). Þegar öll úrtaka fyrir V-hálsmáli hefur verið gerð til loka, eru 28-30 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 66-68 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og garðaprjóni yfir garðaprjón. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana frá handveg og niður þar til ca 17 cm eru eftir (= klauf). Endurtakið í hinni hliðinni. Setjið 1 prjónamerki mitt aftan í hnakka – prjónamerkið er notað þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir kant að framan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp frá réttu ca 106 til 130 lykkjur innan við 1 kantlykkju garðaprjón í kringum kant í hálsmáli á stuttan hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – en stillið af að miðju lykkjan að framan sé prjónuð slétt og að stroffið gangi jafnt upp alla leiðina hringinn. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju að framan. JAFNFRAMT í hverri umferð er fækkað um 2 lykkjur mitt að framan þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki í, lyftið 2 næstu lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt og steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Þegar lykkjum er fækkað svona þá kemur miðju lykkjan mitt í V-hálsmáli allan tímann að fylgja eins og bein lína mitt að framan. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð þar til kantur í hálsi mælist ca 3 cm í prjónstefnu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (31)
Ulla wrote:
Hei Jeg går ut fra at de rette maskene i mønster A1 skal strikkes på retten, dvs man starter på A1 fra vrangen? (Ellers skulle jeg også ønske at spørsmålene som var stilt på andre språk kunne enkelt oversettes.)
29.01.2024 - 20:01DROPS Design answered:
Hei Ulla, Om du begynner mønster A.1 fra retten eller vrangen begynner du med 1 rett, deretter 1 vrang. Det spiller ingen rolle. Men hvis du helst vil begynne fra retten avslutter du vrangbord etter en pinne fra vrangen. God fornøyelse!
30.01.2024 - 06:43Sibylle wrote:
Hallo Zusammen, leider komme ich beim Vorderteil nicht mit den Maschen zurecht. Laut Anleitung wird die Arbeit erst später geteilt. Nach dem stricken von A.2 und A.3 geht es mit A.4 und A.5 weiter. Wenn ich 6 Maschen kraus rechts, 13 Maschen A 1 und dann A.4 + A.5 stricke komme ich auf 82 Maschen -statt 18 Maschen. Was mache ich falsch?
07.01.2024 - 21:42DROPS Design answered:
Liebe Sibylle, meinen Sie 81 anstatt 18? In XL stricken Sie: 6 M kraus rechts, 13 M A.1, 22 M A.2, 7 M A.1, 22 M A.3, 13 M A.1, 6 M krausrechts = 6+13+22+7+22+13+6=89 Maschen, dann werden 4 Maschen am Anfang der 2 nächsten Reihen abgekettet = 89-8=81 M. Wie zuvor, mit 6 Maschen kraus rechts beidseitig weiterstricken. Die Maschenanzahl wird dann später abnehmen, wenn man A.4 und A.5 strickt. Viel Spaß beim stricken!
08.01.2024 - 10:44Nicole Carrier wrote:
Bonjour! Pour m'assurer que je comprend bien le patron, pour le devant: quand on a tricoté 2 fois A2 et A4, on fait A3 et A5 qui correspondent aux diminutions donc à la pointe de l'encolure en V, n'est-ce pas? Ce qui devrait arriver à environ 39 cm du bas?
26.11.2023 - 22:16DROPS Design answered:
Bonjour Mme Carrier, en taille M, après les emmanchures et après avoir tricoté 2 x A.2 et A.3 en hauteur, on va tricoter A.4 et A.5, et, répéter ces diminutions 10 fois au total (5 fois les diagrammes A.4/A.5 en hauteur), en même temps, à 39 cm, divisez l'ouvrage au milieu pour terminer chaque devant séparément. Il doit vous rester 28 mailles pour l'épaule quand les diminutions sont terminées. Bon tricot!
27.11.2023 - 10:12Dorte Jensen wrote:
Er i gang med forstykket. Efter 2xstrik af A2og A3 kan jeg ikke komme videre. Skal jeg fortsætte med A5&A6 1 gang og hvad med de midterste 7 masker? Skal jeg samtidigt strikke 10 retmasker i hver side inden indtagning til ærmegab? Skal der tages ind til hals samtidigt med indtagning til ærmegab? Mvh
03.11.2023 - 08:29DROPS Design answered:
Hej Dorte, A.4 og A.5 er indtagningerne til V-hals og du tager ind på hver.2pind til du har taget 10 masker ind på hvert forstykke. Se også måleskitsen nederst i opskriften, her kan du også se hvornår du skal lukke af til ærmegab :)
09.11.2023 - 14:54Nata Osipowa wrote:
Melody?
08.08.2023 - 00:17Catherine Martin wrote:
Bonjour, je ne comprends pas le principe du diagramme A1. Je fini par 1 rang endroit et un rang envers. Merci de m apporter plus d explications, En vous remerciant Cordialement Catherine Martin
18.01.2023 - 18:00DROPS Design answered:
Bonjour Mme Martin, le diagramme A.1 se tricote ainsi, en commençant sur l'endroit: rang 1 (et- tous les rangs impairs): 1 m end, 1 m env; rang 2 (et tous les rangs pairs: 2 m env. Vous alternez ainsi 1 m jersey (1ère maille de A.1) et 1 m point mousse (2ème m de A.1, que l'on tricote à l'envers tous les rangs). Bon tricot!
19.01.2023 - 10:09ALEXANDRA wrote:
Bonjour! Je voudrai savoir comment faire pour tricoter avec des aiguilles droites et combien de mailles faut-il mettre pour le devant et pour le dos dans la taille xl. Merci
28.12.2022 - 10:06DROPS Design answered:
Bonjour Alexandra, seul le col se tricote ici en rond, autrement dit, on utilise une aiguille circulaire pour tricoter le devant et le dos (séparément) pour avoir suffisamment de place pour loger toutes les mailles, vous pouvez ainsi utiliser des aiguilles droites pour le devant /le dos, mais le col devra être tricoté en rond. Bon tricot!
02.01.2023 - 11:06Estelle wrote:
Bonjour Je souhaite réaliser ce modèle, pouvez-vous m’indiquer le nombre de pelote qu’il faut acheter pour une taille L ? Merci
05.10.2022 - 22:49DROPS Design answered:
Bonjour Estelle, vous trouverez les fournitures nécessaires dans l'en-tête et la quantité de laine, au poids pour chaque taille, en même temps que les aiguilles et l'échantillon, ainsi, en taille L, il va vous falloir 200 g DROPS Sky/50 g la pelote = 4 pelotes + 75 g DROPS Kid-Silk/25 g la pelote = 3 pelotes. Bon tricot!
06.10.2022 - 08:25Alena wrote:
Good day, I can't understand how to continue A4 and A5 after 4 sts have been cast off for the armholes (size S). Now I have 73 sts instead of 77. There will not be enough sts for the pattern if I continue the remaining sts as before (6 sts in garter st, 7 sts A1, 22 sts A4, 7 sts A1, 22 sts A5 etc..). Thank you for the help.
02.10.2022 - 20:22DROPS Design answered:
Dear Alena, after casting off 4 stitches, you work 1 less repeat of A.1 on each side. Happy knitting!
03.10.2022 - 00:33Adelina wrote:
Buonasera, posso utilizzare solo il filato Sky omettendo il Kid silk?
30.08.2022 - 18:48DROPS Design answered:
Buonasera Adelina, può lavorare il modello con il solo filato Sky, tenendo conto che il risultato e il campione risulteranno diversi rispetto a quelli indicati nel modello. Buon lavoro!
31.08.2022 - 09:44