DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8778.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Ash Mint Vest

Prjónað vesti úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með V-hálsmáli, klauf í hliðum, áferðamynstri og tilfærslu á lykkjum. Stærð XS - XXL.

DROPS 227-32
DROPS Design: Mynstur sk-149
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-200-200-200-250-250 g litur 07, ljós sægrænn
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
75-75-75-75-100-100 g litur 34, salvíugrænn

DROPS PERRLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 4-4-4-5-5-5 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 60-60-60-60-80-80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 60-60-60-60-80-80 cm.

PRJÓNFESTA:
15 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með áferðamynstri og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8778.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykki og framstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Síðan við frágang er vestið saumað saman á öxlum og niður yfir hliðarsauma. Að lokum er prjónaður kantur að framan meðfram framstykkjum að miðju aftan í hnakka – kantar að framan eru prjónaðir fram og til baka á hringprjóna í 2 hlutum og saumað saman mitt að aftan.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 73-77-85-89-97-105 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 6 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 6 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka í 4 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið nú mynstur þannig: 6 lykkjur garðaprjón, A.1 (= 2 lykkjur) þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins, prjónið 6 lykkjur garðaprjón.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm. Prjónið garðaprjón yfir ystu 8-8-10-10-10-10 lykkjur í hvorri hlið. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir þessar lykkjur, fellið af 2-2-4-4-4-4 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 69-73-77-81-89-97 lykkjur.
Í stærð XS, S, M og L hoppið yfir næsta kafla og prjónið áfram frá ALLAR STÆRÐIR – sjá útskýringu að ofan. Í stærð XL og XXL, prjónið eins og útskýrt er að neðan.

STÆRÐ XL og XXL:
Fækkið nú um 1 lykkju innan við 6 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið þannig:
Næsta umferð er frá réttu og er prjónuð þannig:
Prjónið 6 lykkjur garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 6 lykkjur garðaprjón. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 4-6 sinnum = 81-85 lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
Haldið svona áfram fram og til baka með A.1 og 6 lykkjum garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm, fellið af miðju 19-19-19-23-23-23 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 24-26-28-28-28-30 lykkjur eftir fyrir öxl.
Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og garðaprjóni yfir garðaprjón. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 36-38-42-44-48-52 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þar þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 6 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka í 4 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið nú mynstur þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, A.1 þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins, prjónið 6 lykkju garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 9-9-10-10-11-11 cm, prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, A.1 yfir næstu 2 lykkjur, A.3 yfir næstu 22 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður út umferðina.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm. Prjónið nú garðaprjón yfir ystu 8-8-10-10-10-10 lykkjur að hlið (þ.e.a.s. í lok umferðar séð frá réttu). Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir þessar lykkjur, fellið af 2-2-4-4-4-4 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá röngu = 34-36-38-40-44-48 lykkjur.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Prjónið síðan eins og útskýrt er að neðan undir næsta kafla – veldu kafla fyrir þína stærð.

STÆRÐ XS, S, M og L:
Fækkið lykkjum fyrir V-hálsmáli og prjónið mynstur þannig:
MYNSTUR OG ÚRTAKA FYRIR V-HÁLSMÁLI:
Prjónið nú áfram með 6 lykkjur garðaprjón að hlið (þ.e.a.s. í lok umferðar séð frá réttu) og mynstur eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina alls 2 sinnum, prjónið A.5 yfir A.3 (þær lykkjur sem eftir eru halda áfram eins og áður). Úrtaka í A.5 er úrtaka fyrir V-hálsmáli. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina, heldur úrtakan áfram alveg eins þar til fækkað hefur verið alls um 10-10-10-12 lykkjur. Þegar öll úrtaka fyrir V-hálsmáli hefur verið gerð til loka eru 24-26-28-28 lykkjur eftir fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 58-60-62-64 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

STÆRÐ XL og XXL:
Fækkið nú lykkjum fyrir handveg, jafnframt er prjónað mynstur og úrtaka fyrir V-hálsmáli er gerð eins og útskýrt er að neðan.

ÚRTAKA FYRIR HANDVEG:
Fækkið um 1 lykkju innan við 6 lykkjur garðaprjón í lok umferðar þannig:
Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 6 lykkjur garðaprjón. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 4-6 sinnum.
MYNSTUR OG ÚRTAKA FYRIR V-HÁLSMÁLI:
Prjónið nú áfram með 6 lykkjur garðaprjón að hlið og mynstur eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina alls 2 sinnum, prjónið A.5 yfir A.3 (þær lykkjur sem eftir eru halda áfram eins og áður). Úrtaka í A.5 er úrtaka fyrir V-hálsmáli. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina, heldur úrtakan áfram alveg eins þar til fækkað hefur verið um alls 12-12 lykkjur. Þegar öll úrtaka fyrir V-hálsmáli hefur verið gerð til loka eru 28-30 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 66-68 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og garðaprjóni yfir garðaprjón. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 36-38-42-44-48-52 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þar þannig: 6 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka í 4 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið nú mynstur þannig: 6 lykkjur garðaprjón, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins, 1 kantlykkja garðaprjón.
Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 9-9-10-10-11-11 cm, prjónið mynstur þannig: 6 lykkjur garðaprjón, A.1 yfir næstu 5-7-11-13-17-21 lykkjur, A.2 yfir næstu 22 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður út umferðina.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm. Prjónið nú garðaprjón yfir ystu 8-8-10-10-10-10 lykkjur að hlið (þ.e.a.s. í byrjun umferðar séð frá réttu). Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir þessar lykkjur, fellið af 2-2-4-4-4-4 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá réttu = 34-36-38-40-44-48 lykkjur.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Prjónið síðan eins og útskýrt er undir næsta kafla – veldu kafla fyrir þína stærð.

STÆRÐ XS, S, M og L:
Fækkið lykkjum fyrir V-hálsmáli og prjónið mynstur þannig:
Prjónið nú áfram með 6 lykkjur garðaprjón að hlið (þ.e.a.s. í byrjun umferðar séð frá réttu) og mynstur eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina alls 2 sinnum, prjónið A.4 yfir A.2 (þær lykkjur sem eftir eru halda áfram eins og áður). Úrtaka í A.4 er úrtaka fyrir V-hálsmáli. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina, heldur úrtakan áfram alveg eins þar til fækkað hefur verið alls um 10-10-10-12 lykkjur. Þegar öll úrtaka fyrir V-hálsmáli hefur verið gerð til loka eru 24-26-28-28 lykkjur eftir fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 58-60-62-64 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

STÆRÐ XL og XXL:
Fækkið nú lykkjum fyrir handveg, jafnframt er prjónað mynstur og úrtaka fyrir V-hálsmáli er gerð eins og útskýrt er að neðan.

ÚRTAKA FYRIR HANDVEG:
Fækkið um 1 lykkju innan við 6 lykkjur garðaprjón í lok umferðar þannig (þ.e.a.s. í byrjun á umferð séð frá réttu) þannig: Prjónið 6 lykkjur garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 4-6 sinnum.
MYNSTUR OG ÚRTAKA FYRIR V-HÁLSMÁLI:
Prjónið nú áfram með 6 lykkjur garðaprjón að hlið og mynstur eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina alls 2 sinnum, prjónið A.4 yfir A.2 (þær lykkjur sem eftir eru halda áfram eins og áður). Úrtaka í A.4 er úrtaka fyrir V-hálsmáli. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina, heldur úrtakan áfram alveg eins þar til fækkað hefur verið um alls 12-12 lykkjur. Þegar allar úrtökur fyrir V-hálsmáli hafa verið gerðar til loka eru 28-30 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 66-68 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og garðaprjóni yfir garðaprjón. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana frá handveg og niður þar til ca 17 cm eru eftir (= klauf). Endurtakið í hinni hliðinni.
Setjið 1 prjónamerki mitt aftan í hnakka – prjónamerkið er notað þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir kant að framan.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið neðst á hægra framstykki og prjónið upp frá réttu ca 121 til 143 lykkjur innan við 1 kantlykkju garðaprjón upp að prjónamerki mitt aftan á hringprjón 4,5 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Snúið og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, en nákvæmlega þar sem úrtaka fyrir hálsmáli byrjar er aukið út með því að slá uppá prjóninn þannig: * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* 4 sinnum (= 4 lykkjur fleiri), prjónið út umferðina. Nú er prjónað stroff þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Þegar stroffið mælist 1 cm, fellið af fyrir 4-4-4-5-5-5 hnappagötum jafnt yfir þannig:
1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Neðsta hnappagatið á að vera ca 5 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið þar sem v-hálsmálið byrjar. Hin 2-2-2-3-3-3 hnappagötin eru staðsett jafnt yfir með ca 10-10-10½-7½-8-8 cm millibili.
Haldið áfram með stroff þar til kantur að framan mælist alls 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið mitt aftan í hnakka og prjónið upp jafn margar lykkjur og í hægri kanti að framan innan við 1 kantlykkju garðaprjón niður meðfram vinstra framstykki á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Snúið og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, en nákvæmlega þar sem úrtaka fyrir hálsmáli byrjar er aukið út með því að slá uppá prjóninn þannig: * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* 4 sinnum (= 4 lykkjur fleiri), prjónið út umferðina. Nú er prjónað stroff þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Saumið saman kanta að framan mitt að aftan innan við 1 kantlykkju garðaprjón.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið (það eiga að myndast göt)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (4)

country flag Michaela wrote:

Hallo, ich wusste gern wie die Maschenprobe gestrickt wird. Dort steht zwar Strukturmuster, aber nicht welches der 5 die in dieser Anleitung vorkommen. Lg

27.10.2022 - 11:41

DROPS Design answered:

Liebe Michaela, Maschenprobe stricken Sie mit den Nadeln Nr 5,5 - die Länge der Rundnadel hängt an der Größe an (60 cm in die 4 ersten Größe und 80 in die 2 lezten Größen). Viel Spaß beim stricken!

27.10.2022 - 13:39

country flag Aino wrote:

1. Please review the subheadings, there is no size XXXL. 2. I think the back piece hem ribbing directions are not sufficient for the wrong side. Should'nt the wrong side be e.g. '7 garter sts, repeat *knit 1 /purl 1* until 8 sts remain, knit 1, 7 garter sts

24.11.2021 - 22:43

DROPS Design answered:

Dear Aino, thanks for the tip, all XXXL have been now edited into XXL - on back piece you are working rib K1, P1 with 6 sts garter on each side, ie work from RS: 6 sts in garter st, *K1, P1*, repeat from *-* until 7 sts remain, work K1 and end with 6 sts in garter stitch. From WS work: 6 sts in garter st, rib *P1, K1*, repeat from *-* until 7 sts remain, work P1 and 6 sts in garter stitch. Happy knitting!

25.11.2021 - 09:27

country flag Samar wrote:

Hi. I just wanted to say a big THANK YOU for all the free patterns, all the work and effort you put in. It's simply remarkable, and so so generous! This pattern perfectly fits the yarn I have on hand, couldn't be happier. Bless you♥️🤗

08.10.2021 - 17:51

country flag Casual Comfort wrote:

Versatile

03.08.2021 - 19:11