Hermine Jacket |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, áferðamynstri og klukkuprjónslykkjum á berustykki. Stærð 2 til 12 ára.
DROPS Children 41-13 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 103 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim 93 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 9,3. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 9. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kantlykkjum að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum er í þessu dæmi prjónuð ca 8. og 9. hver lykkja slétt saman. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsi mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 6-7-8-7-8-8½ cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 99-101-103-107-109-111 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með DROPS Alpaca. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3-3-3-4-4-4 cm, munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið 1 umferð brugðið frá réttu (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni) og aukið jafnframt út um 2-6-10-12-16-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 101-107-113-119-125-131 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= 30-32-34-36-38-40 mynstureiningar með 3 lykkjum), prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Eftir þriðju umferð í A.1 eru 131-139-147-155-163-171 lykkjur í umferð. Prjónið A.1 til loka, endurtakið síðan 2 umferðir með stjörnu í A.1 þar til stykkið mælist 6-7-7-8-8-9 cm frá prjónamerki við háls – endið eftir heila mynstureiningu á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A (= 4 lykkjur), prjónið A.2B þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= 29-31-33-35-37-39 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið fyrstu lykkju í A.2A þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 247-263-279-295-311-327 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= 59-63-67-71-75-79 mynstureiningar með 4 lykkjur), prjónið fyrstu lykkju í A.2A þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 12-13-14-15-16-17 cm frá prjónamerki við hálsmál. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 10-6-6-2-6-2 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 257-269-285-297-317-329 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm frá prjónamerki við háls. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 41-43-46-48-51-53 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 52-54-56-58-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 71-75-81-85-91-95 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 52-54-56-58-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 41-43-46-48-51-53 lykkjur (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 165-173-185-193-205-213 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Prjónið þar til stykkið mælist 16-19-22-24-27-29 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm til loka máls, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Til að stroffið sem prjóna á dragi ekki stykkið saman, aukið út lykkjur eins og útskýrt er að neðan. Prjónið 1 umferð slétt frá rétu þar sem aukið er út um 24-24-26-26-30-30 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 189-197-211-219-235-243 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-55 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 52-54-56-58-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 - prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja og eina af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-60-62-64-68-70 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2-2-2-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-3-3½-4½-4½-5 cm millibili alls 5-5-5-5-6-6 sinnum á hæðina = 48-50-52-54-56-58 lykkjur. Prjónið áfram án úrtöku þar til ermin mælist 18-22-26-29-32-36 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm til loka máls, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 21-25-29-33-36-40 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina alveg eins. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (8)
Andreani wrote:
Bravo a drops design pour les modeles et leurs explications via les tuto
27.02.2023 - 21:29Andreani wrote:
J ai realise ce modele avec deux types de laine il est tres reussi surtout avec lalpaga tres doux au toucher et tres souple les explications sont bien faites . bonne idee des tuto pour les debutantes bravo a drops
27.02.2023 - 21:27Ester wrote:
Increase 4 stitches by working 5 stitches in the Fisherman’s rib stitch as follows (from the right side): Knit 1 in the stitch below this stitch, but do not slip the stitch from the left needle, * make 1 yarn over, knit 1 in the same stitch but do not slip the stitch from the left needle *, work from *-* 1 more time, then slip the stitch from the left needle = 4 stitches increased. Can you please explain this one more time?
05.12.2022 - 07:06DROPS Design answered:
Hi Ester, You are working 4 extra stitches in one and the same stitch (the Fisherman's rib stitch). You first knit the stitch as normal but do not slip it from the left needle, make 1 yarn over and knit the same stitch again, make 1 yarn over and knit the stitch 1 more time . So you now have 3 knitted stitches and 2 yarn overs on the right needle and can slip the Fisherman's rib stitch from the left needle. As you would have had 1 knitted stitch (if you had not done all the increases) this means you have increased 4 stitches. Happy knitting!
06.12.2022 - 06:54Chantal Lessard wrote:
Bonjour, je n'ai pas d'aiguilles 2.5mm circulaire, est-ce que je peux commencer le col avec des aiguilles double pointe ? car il se travaille en aller-retour. Merci beaucoup de votre aide. Chantal
04.11.2022 - 13:54DROPS Design answered:
Bonjour Mme Lessard, si vous avez des aiguilles droites en 2,5 elles seront plus pratiques, mais si vous n'avez que des doubles pointes en 2,5 ça le fera aussi, répartissez bien vos mailles pour ne pas en perdre et rappelez-vous de bien tourner pour tricoter alternativement sur l'endroit et sur l'envers. Bon tricot!
04.11.2022 - 13:57María José wrote:
No entiendo la explicación del canesú del patrón z-048-bn Si hago la labor como la entiendo, no se parece a la fotografía. No sé dónde estoy fallando
28.09.2022 - 18:52DROPS Design answered:
Hola María José, ¿puedes concretar en qué apartado del canesú tienes problemas?
03.10.2022 - 00:00Maryse wrote:
(suite) par ailleurs je crois qu'il y a confusion ensuite entre A2 A et A2B merci d'éclaircir ce point aussi
18.12.2021 - 08:38DROPS Design answered:
Bonjour Maryse, lorsque vous avez répété les 2 derniers rangs de A.1 jusqu'à ce que votre ouvrage mesure 6-7-7-8-8-9 cm depuis le marqueur, tricotez A.2A (= 4 m) au-dessus du 1er A.1 du rang (sur l'endroit), et tricotez A.2B au-dessus de chaque A.1 jusqu'à la fin du rang, et terminez par la 1ère m de A.2A (au-dessus de la 1ère m de A.1 = la même maille = 1 m en côte anglaises), ainsi vous augmentez dans chaque A.1 sauf dans le 1er et vous avez ensuite 8 m dans chaque A.2B et tout le rang (1 m en côtes anglaises, 3 m env), vu sur l'endroit. Bon tricot!
20.12.2021 - 07:18Maryse SIKSOU wrote:
Bonjour je ne suis pas certaine de comprendre l'empiècement Après avoir fait A1 et A1*(4 mailles) on doit reprendre le motif sur 3 mailles avant de passer à A2 ? merci de votre retour
18.12.2021 - 08:32DROPS Design answered:
Bonjour Mme Siksou, quand A.1 a été tricoté entièrement en hauteur (= 6 rangs), répétez les 2 derniers rangs de A.1 (= ceux marqués par une étoile) jusqu'à la hauteur indiquée, puis tricotez A.2A et A.2B (vous allez augmenter dans A.2B). Bon tricot!
20.12.2021 - 07:15Duverger wrote:
Traduire en français
28.11.2021 - 18:10DROPS Design answered:
Bonjour Duverger, vous pouvez trouver le trouver ici: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=10510&cid=8 Bon tricot!
28.11.2021 - 18:36