Prairie Rose Set |
|
|
|
Prjónaður toppur og stuttbuxur úr DROPS Big Merino. Toppurinn er prjónaður neðan frá og upp í stroffprjóni. Stuttbuxurnar eru prjónaðar ofan frá og niður í sléttprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-3 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um handveg á topp): Fækkið lykkjum innan við 2 lykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 2 LYKKJUR Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 2 LYKKJUR Í GARÐAÐRJÓNI ÞANNIG: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 2 lykkjur garðaprjón, prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni. ÚTAUKNING (á við um stuttbuxur): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig til loka máls. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 144-160-176-192-208-224 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Big Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff þannig: * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 72-80-88-96-104-112 lykkjur. Prjónamerkin merkja hliðar á fram- og bakstykki – látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Nú er prjónað stroff þannig: 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 lykkju brugðið. Haldið svona áfram með stroff. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm, prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir miðju 10-10-10-18-18-18 lykkjur í hvorri hlið (prjónamerki situr mitt í þessum 10-10-10-18-18-18 lykkjum – aðrar lykkjur í umferð eru prjónaðar í stroffprjóni eins og áður). Í fyrstu umferð eftir 4 umferðir í garðaprjóni, fellið af fyrir handvegi þannig: Fellið af 3-3-3-7-7-7 lykkjur, prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, 62-70-78-78-86-94 lykkjur stroff eins og áður (byrjið og endið með 2 lykkjur slétt), 2 lykkjur í garðaprjóni, fellið af 6-6-6-14-14-14 lykkjur (prjónamerki situr mitt í þessum 6-6-6-14-14-14 lykkjum), prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, 62-70-78-78-86-94 lykkjur stroff (byrjið og endið með 2 lykkjur slétt), 2 lykkjur í garðaprjóni, fellið af síðustu 3-3-3-7-7-7 lykkjur. Klippið þráðinn. Framstykkið og bakstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 66-74-82-82-90-98 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með stroff fram og til baka með 2 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona fyrir handveg í annarri hverri umferð alls 0-0-4-0-3-2 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 4-4-4-4-5-6 sinnum = 58-66-66-74-74-82 lykkjur. Haldið áfram með stroff með 2 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 27-29-30-32-33-35 cm, fellið af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið fyrstu 10-10-14-14-18-18 lykkjur eins og áður og setjið þær síðan á þráð fyrir band á öxl, fellið af 38-46-38-46-38-46 lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið eins og áður yfir síðustu 10-10-14-14-18-18 lykkjur. Prjónið síðan band á öxl / hlýra eins og útskýrt er að neðan. BAND Á ÖXL / HLÝRI: = 10-10-14-14-18-18 lykkjur. Prjónið stroff fram og til baka eins og áður með 2 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 34-36-38-40-42-44 cm frá uppfitjunarkanti (band á öxl / hlýri mælist ca 7-7-8-8-9-9 cm). Fellið af. Setjið til baka lykkjur af þræði á hringprjón 4,5 og prjónið band á öxl / hlýri á sama hátt og á fyrria bandi á öxl / hlýra. FRAMSTYKKI: = 66-74-82-82-90-98 lykkjur. Prjónið á sama hátt og bakstykki, fellið af fyrir hálsmáli og prjónið band á öxl / hlýra á sama hátt og á bakstykki. FRÁGANGUR: Saumið saman böndin á öxl / hlýra innan við affellingarkantinn efst á hvorri öxl. ------------------------------------------------------- STUTTBUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Til að stuttbuxurnar verði aðeins hærri mitt að aftan, prjónið upphækkun. Stykkið er prjónað áfram í hring áður en það skiptist fyrir skálmar. Hvor skálm er prjónuð í hring á hringprjóna hvor fyrir sig, ofan frá og niður. Að lokum er tvinnuð snúra þrædd í gatakant í mitti. KANTUR: Fitjið upp 128-144-152-168-192-208 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Big Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 lykkju slétt. Þegar stroffið mælist 3 cm, prjónið gataumferð fyrir snúru þannig: 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur brugðið saman og endið með 1 lykkju slétt. Haldið áfram með stroffið með 2 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið þar til kanturinn mælist 6 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-2-4-4-6-6 lykkjur jafnt yfir = 130-146-156-172-198-214 lykkjur. Prjónið síðan stuttbuxurnar eins og útskýrt er að neðan. STUTTBUXUR: Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð = mitt að aftan. Prjónið upphækkun þannig: Byrjið frá réttu við merkiþráðinn, prjónið 8-9-10-11-12-13 lykkjur slétt, snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið 16-18-20-22-24-26 lykkjur brugðið, snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið 24-27-30-33-36-39 lykkjur slétt, snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið 32-36-40-44-48-52 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram fram og til baka með því að prjóna yfir 8-9-10-11-12-13 lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónað hefur verið fram og til baka yfir alls 96-108-120-132-144-156 lykkjur (ekki er prjónað yfir miðju 34-38-36-40-54-58 lykkjur mitt að framan). Þegar upphækkunin hefur verið gerð til loka, prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan. Stuttbuxurnar mælast nú ca 5 cm hærri að miðju að aftan. Setjið 6 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út og hvert prjónamerki er sett á milli 2 lykkja. Skiptið út merkiþræðinum mitt að aftan með prjónamerki, teljið 24-27-29-32-38-41 lykkjur, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 17-19-20-22-23-25 lykkjur (í hlið á stuttbuxum), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 24-27-29-32-38-41 lykkjur, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju (mitt að framan), teljið 24-27-29-32-38-41 lykkjur, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 17-19-20-22-23-25 lykkjur (í hlið á stuttbuxum), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, það eru 24-27-29-32-38-41 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2-3-3-3-3-4 cm mælt eftir stroff mitt að framan, aukið út um 1 lykkju á UNDAN hverju prjónamerki – sjá ÚTAUKNING (= 6 lykkjur fleiri) – ATH. Til að sleppa við að færa prjónamerkið mitt að aftan, gerið útaukningu á undan þessu prjónamerki í lok umferðar. Þegar stykkið mælist 5-6-6-6-6-7 cm mælt eftir stroff mitt að framan, aukið út um 1 lykkju á EFTIR hverju prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING (= 6 lykkjur fleiri). Aukið svona út til skiptis á undan og á eftir 6 prjónamerkjunum með 3 cm millibili alls 6 sinnum = 166-182-192-208-234-250 lykkjur (munið eftir að útaukningin á undan prjónamerki mitt að aftan er gerð í lok umferðar). Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm mælt eftir stroffi mitt að framan, fjarlægið prjónamerkin úr stykkinu. Nú er sett 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð og 1 prjónamerki í 84.-92.-97.-105.-118.-126. lykkju í umferð (mitt að aftan og mitt að framan). Í næstu umferð er aukið út bæði á UNDAN og á EFTIR lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í hverri umferð alls 6 sinnum = 190-206-216-232-258-274 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 27-28-29-30-31-32 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Nú skiptist stykkið við bæði prjónamerkin og hvor skálm er prjónuð til loka fyrir sig. Setjið fyrstu 95-103-108-116-129-137 lykkjur á stuttan hringprjón 5 og látið þær 95-103-108-116-129-137 lykkjur sem eftir eru á hringprjón 5. Klippið þráðinn. SKÁLM: = 95-103-108-116-129-137 lykkjur. Fitjið upp 3-3-4-4-5-5 lykkjur í byrjun á umferð, prjónið sléttprjón yfir 95-103-108-116-129-137 lykkjur og fitjið upp 3-3-4-4-5-5 lykkjur í lok umferðar = 101-109-116-124-139-147 lykkjur. Tengið stykkið saman og prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 4-5-6-7-8-9 cm, eða að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 31-35-36-36-41-45 lykkjur jafnt yfir = 132-144-152-160-180-192 lykkjur. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið aðeins laust af. Skálmin mælist ca 8-9-10-11-12-13 cm. Setjið lykkjur af annarri skálminni á stuttan hringprjón 5 og prjónið á sama hátt og fyrri skálm. FRÁGANGUR: Saumið saman op á milli skálma, þ.e.a.s. saumið sauminn á lengdina frá miðju að framan og að miðju að aftan í de 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið á hvorri skálm. TVINNUÐ SNÚRA: Klippið 3 þræði Big Merino ca 3½-3½-4½-4½-5½-5½ metrar, tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið þá saman tvöfalda og þá koma þeir til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Byrjið mitt framan á stuttbuxunum og þræðið snúruna upp og niður í gegnum gataumferðina í kantinum. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (28)
Martine Pousset wrote:
Bonjour je voudrais faire se modèle pour ma petite fille mais je ne tricoté qu avec des aiguilles droites et non circulaires je voulais savoir si c est le même nombres de mailles et faire pareil je vous remercie d avance
16.04.2024 - 21:37DROPS Design answered:
Bonjour Mme Pousset, cette leçon va vous donner quelques pistes pour pouvoir adapter un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!
17.04.2024 - 08:29Isabelle wrote:
I am at the point where my body work for the tank top reached 19cm. I am confused about the DECREASE TIP and other decreases that are listed on the garter stitch. It is unclear whether I should decrease before starting the first row of garter stitches or not. Could you clarify when to start decreasing the armholes? Is the DECREASE TIP only for the back piece?
16.04.2024 - 16:28DROPS Design answered:
Dear Isabelle, the DECREASE TIP tells you to decrease inside the garter stitch, that is, at the beginning of the row, after the two stitches knitted at the edge with gater stitch, at the end of the row just before the two last stitch, that is knitted with garter stitch. Happy Crafting!
16.04.2024 - 21:51Robin wrote:
I am starting the back piece—are the decreases only done on the right side and the rib pattern continues with the knitting done on the wrong side.? Just a little confused.
18.03.2024 - 07:56DROPS Design answered:
Dear Robin, the decreases for armholes are worked on every row from right side, decrease as explained under DECREASE TIP (applies to armholes on singlet):, at the same time work in rib as before with 2 edge sts in garter stitch on each side (decreases are worked inside these 2 sts). Happy knitting!
18.03.2024 - 15:09Robin wrote:
Where are the 18 stitches supposed to be in the singlet pattern to do the garter stitch? I am working on the body and have a total of 208 stitches. With markers at the beginning and again at 104 stitches.
14.03.2024 - 19:39DROPS Design answered:
Dear Robin, the 18 sts in garter stitch will be worked on both sides of body, on either side of markers, ie you will work in garter stitch 9 sts before the marker + 9 sts after the marker and repeat at the other marker. Happy knitting!
15.03.2024 - 08:20Robin wrote:
I am working on the body of the singlet and am at the point where you are to do garter stitch over middle of 18 stitches. The pattern says the thread marker is in the middle. I am not sure where the 18 stitches are. I have a total of 208 stitches and markers at the beginning and after 104 stitches.
14.03.2024 - 19:36Sarah wrote:
How many yards of yarn are required for the shorts? I want to use a different yarn so the weight will be different.
11.02.2024 - 00:48DROPS Design answered:
Dear Sarah, you can calculate the yards of yarn from the yardage of the yarn used. 50g of Big Merino = 82 yards. From here, you can obtain how many yards of yarn you will need for your size. Happy knitting!
11.02.2024 - 23:15Niccolò wrote:
Vorrei fare i pantaloni, ma non ho capito una cosa: le misure del campione si riferiscono al lavoro con i ferri 5mm? Io ho ottenuto il campione con i 4,5 quindi devo fare le coste con quelli del 3,5? grazie mille in anticipo
14.12.2023 - 17:55DROPS Design answered:
Buonasera Niccolò, è corretto, se ha raggiunto il campione con i ferri n° 4,5 mm farà le coste con i ferri n° 3,5 mm. Buon lavoro!
15.12.2023 - 21:46Djoyce wrote:
Hi, I’m having trouble with the shorts pattern: It says to increase before every marker thread until the piece measures 6cm from the rib edge. I’ve increased every row, for 3 cm and now I have more stitches in the needle than it’s mentioned in the pattern. Am I supposed to only increase every 3cm rather than increase throughout until the piece has the required measurement?
08.11.2023 - 22:24DROPS Design answered:
Dear Djoyce, you first increase 1 stitch before each marker thread (= 6 sts increased), then next time (after 3 cm) you will increase 1 stitch after each marker thread (= 6 sts increased). Repeat these increases a total of 6 times (4 more times) = you will have increased 6 sts a total of 6 times on every 3rd cm = 36 sts. Happy knitting!
09.11.2023 - 08:33Malin wrote:
Hei! Jeg bare lurte på hvorfor man må ha både rundpinne 4 og 4,5 for toppen? Er det mulig å strikke med bare en av størrelsene?
13.08.2023 - 00:39DROPS Design answered:
Hei Malin, Man legger opp og strikker første delen av vrangbord med pinnestørrelse 4, slik at den sitter tettere til kroppen. Også bytter man til størrelse 4.5 for resten av toppen. God fornøyelse!
14.08.2023 - 06:52Ella wrote:
I was wondering how much negative ease you recommend for this pattern? Also is the measurements of the garment taken not stretched, stretched, or roughly stretched.
03.08.2023 - 14:31DROPS Design answered:
Hi Ella, To get the shape shown in the photograph, use the body measurements given in the measurements chart to work the correct size. Happy knitting!
04.08.2023 - 06:41