DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

White Sails

Prjónaður toppur úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 230-1
DROPS Design: Mynstur e-338
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tillheyrir garnflokki A)
150-200-200-200-250-250 g litur 18, natur

PRJÓNAR:
DROPS PRJÓNAR NR 3.
DROPS PRJÓNAR NR 2,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um í hliðum á framstykki og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu.
Aukið út um 1 lykkju innan við ystu 2 lykkjur frá hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um handveg og v-hálsmál):
FRÁ RÉTTU:
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju, prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).
FRÁ RÖNGU:
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig:
Prjónið 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju, prjónið þessar 2 lykkjur snúnar brugðið saman (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka, hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Böndin á öxlum / hlýrar er prjónað á framstykki og síðan saumað við bakstykki. Að lokum eru hliðarsaumar saumaðir.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 100-112-122-136-150-166 lykkjur á prjóna 2,5 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stroffið mælist 3 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 10-12-12-14-14-16 lykkjur jafnt yfir = 90-100-110-122-136-150 lykkjur.
Skiptið yfir á prjón 3. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 6 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 6 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 98-108-118-130-144-158 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 6-8-10-12-14-16 lykkjur í hvorri hlið (aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni eins og áður).
Eftir 4 umferðir garðaprjón eru felldar af 5-7-9-11-13-15 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu tveimur umferðum = 88-94-100-108-118-128 lykkjur.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona fyrir handveg í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 16-17-18-19-21-22 sinnum í hvorir hlið = 56-60-64-70-76-84 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 7-7-7-7-9-9 lykkjur jafnt yfir = 63-67-71-77-85-93 lykkjur. Skiptið yfir á prjón 2,5.
Prjónið stroff frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 3 cm. Fellið aðeins laust af.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 100-112-122-136-150-166 lykkjur á prjóna 2,5 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjón í hvorri hlið.
Þegar stroffið mælist 3 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 10-12-12-14-14-16 lykkjur jafnt yfir = 90-100-110-122-136-150 lykkjur.
Skiptið yfir á prjón 3. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 42-47-52-58-65-72 lykkjur sléttprjón, A.1, 42-47-52-58-65-72 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið áfram með þetta mynstur.
Þegar stykkið mælist 6 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 6 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 98-108-118-130-144-158 lykkjur.
Þegar stykkið mælist ca 26-27-28-29-30-31 cm (stillið af að næsta umferð sé 3. eða 7. umferð í A.1), prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 6-8-10-12-14-16 lykkjur í hvorri hlið (aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni og mynstri eins og áður).
Eftir 4. umferðir garðaprjón er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Fellið af 5-7-9-11-13-15 lykkjur fyrir handveg, prjónið 42-45-48-52-57-62 lykkjur sléttprjón, setjið 2 næstu lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 næstu lykkjur slétt saman og setjið síðan þessar 43-46-49-53-58-63 lykkjur á hægri prjóni á þráð eða hjálparprjón = STYKKI-1.

STYKKI-2:
Prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni snúnar slétt saman, prjónið 41-44-47-51-56-61 lykkjur sléttprjón og 6-8-10-12-14-16 lykkjur í sléttprjóni.
Snúið stykkinu, fellið af 5-7-9-11-13-15 lykkjur fyrir handveg, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni = 43-46-49-53-58-63 lykkjur.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg og v-hálsmáli.
Lykkjum er fækkað í hvorri hlið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni – sjá ÚRTAKA, en lykkjum er fækkað mismunandi fyrir handveg og v-hálsmáli. Lestu því kaflann HANDVEGUR og V-HÁLSMÁL áður en þú prjónar áfram.

HANDVEGUR:
Fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 16-17-18-19-21-22 sinnum.

V-HÁLSMÁL:
Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmál í hverri umferð (bæði frá réttu og frá röngu) alls 7-7-9-9-13-17 sinnum og síðan í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 15-17-17-18-17-17 sinnum.

Eftir alla úrtöku fyrir handveg og v-hálsmáli eru 5-5-5-7-7-7 lykkjur eftir fyrir bandi á öxl / hlýri.

BAND Á ÖXL / HLÝRI:
= 5-5-5-7-7-7 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu, * færið lykkjurnar til að byrjun á umferð, herðið á þræði og prjónið 5-5-5-7-7-7 lykkjur slétt frá réttu *, prjónið frá *-* þar til bandið /hlýri mælist ca 9-9-10-11-11-11 cm (5-5-5-6-6-6 cm tilheyrir framstykki og 4-4-5-5-5-5 cm tilheyrir bakstykki) – bandið /hlýri er saumað við bakstykkið, stillið e.t.v. að óskaðri lengd á bandi / hlýra. Klippið þráðinni, þræðið þráðinn í gegnum 5-5-5-7-7-7 lykkjur, herðið á þræði og festið vel.

STYKKI-1:
Setjið til baka 43-46-49-53-58-63 lykkjur frá STYKKI-1 á prjón 3. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg og v-hálsmáli. Fækkið lykkjum alveg eins og í STYKKI-2 = 5-5-5-7-7-7 lykkjur eftir fyrir band / hlýra. Prjónið bandið / hlýra alveg eins og á stykki-2.

FRÁGANGUR:
Saumið bandið á öxl / hlýra við bakstykki – yst í hvorri hlið.
Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 18.04.2023
STYKKI-1: Setjið til baka 43-46-49-53-58-63 lykkjur frá STYKKI-1 á prjón 3.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið síðan fyrstu lykkjunni sem var prjónuð yfir hinar 2 þannig að lykkjan liggi utan um hinar 2 lykkjurnar
symbols = þetta sýnir enga lykkju þar sem lykkjan er ekki til, eða búið er að fækka um þessa lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

White Sails

Alexandra, Åland Islands

White Sails

Rosie, United Kingdom

White Sails

Gabriela, Czech Republic

White Sails

Meiling, Italy

White Sails

Maria S, Sweden

White Sails

Kornelia, Poland

White Sails

Maria Staffansson, Sweden

White Sails

Maria Staffansson, Sweden

Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (62)

country flag Emanuela wrote:

Ciao, non capisco come interpretare il simbolo tutto nero del diagramma A.1 che dice nessuna maglia; passare direttamente al simbolo successivo del diagramma. Significa che devo passare la maglia senza lavorarla? Grazie

11.04.2024 - 21:41

DROPS Design answered:

Buonasera Emanuela, significa che in quel punto la maglia non c'è e deve lavorare il simbolo successivo. Buon lavoro!

11.04.2024 - 22:21

country flag Corina Avram wrote:

Hello! I want to knit this top, but I am not sure what size to make it. I have 88cm in bust measurements, would this mean that I should knit size L or M? In Size M the circumference of the item is exactly 88 cm, but it seems too tight. Thanks

01.02.2024 - 10:33

DROPS Design answered:

Dear Mrs Avram, measure a similar garment you have and like the shape and compare these measurements to the chart, this is the best way to find out the matching size; read more here. Happy knitting!

01.02.2024 - 15:43

country flag Maika wrote:

Hola! En la parte donde dice que hay que * Rematar 5-7-9-11-13-15 puntos para la sisa, tejer 42-45-48-52-57-62 puntos en punto jersey, colocar los 2 puntos siguientes en una aguja auxiliar en el frente de la pieza, tejer los 3 puntos siguientes juntos de derecho y colocar estos 43-46-49-53-58-63 puntos en un hilo o en una aguja suplementaria = PARTE-1.* , no me quedan 43 puntos tengo 46 puntos. Porqué?

21.01.2024 - 20:46

DROPS Design answered:

Hola Maika, trabaja la fila como sigue: cerrar 5 pts para la sisa, el último pt rematado cuenta como el 1º pt en pt jersey, trabajar 41 pts más en pt jersey, colocar los 2 pts en una aguja para trenzar delante de la labor, trabajar 3 puntos juntos de derecho (disminuyes a 1 pt) y colocar los 42 pts en pt jersey + el pt disminuido (= 43 pts) en un gancho auxiliar para trabajar la Parte -1 después. Ahora trabajas como sigue sobre los 47 pts restantes de la fila (Parte-2): trabajar juntos de derecho retorcido los pts desde la aguja para trenzar, trabajar 41 pts en pt jersey y 6 pts en pt musgo.

22.01.2024 - 23:51

country flag Claudia wrote:

Favor de no hacer caso a mi pregunta anterior, Mi pregunta es sí es correcto que se tejan 3 puntos juntos Cómo dice el párrafo siguiente:” Rematar 5-7-9-11-13-15 puntos para la sisa, tejer 42-45-48-52-57-62 puntos en punto jersey, colocar los 2 puntos siguientes en una aguja auxiliar en el frente de la pieza, tejer los 3 puntos siguientes juntos de derecho y colocar estos 43-46-49-53-58” Ya que no me quedan los mismos puntos de cada lado.

25.08.2023 - 07:44

DROPS Design answered:

Hola Claudia, tienes 42 pts + los 3 pts juntos (= 1 pt) que son los 43 que vas a deslizar. En el otro lado, tienes los 2 puntos de la aguja auxiliar de la parte 1 que se trabajan juntos (= 1 punto) + 41 pts en pt jersey + 1 pt después de cerrar 5 pts de la sisa.

28.08.2023 - 00:05

country flag Claudia wrote:

En este párrafo: “ Después de los 2 surcos tejer la hilera siguiente por el lado derecho de la manera siguiente: Rematar 5-7-9-11-13-15 puntos para la sisa, tejer 42-45-48-52-57-62 puntos en punto jersey, colocar los 2 puntos siguientes en una aguja auxiliar en el frente de la pieza, tejer los 3 puntos siguientes juntos …. = PARTE-1.”. Es correcto la tener 3 puntos junto?, porque no me checando las cuentas.

25.08.2023 - 07:36

DROPS Design answered:

Hola Claudia, tienes 42 pts + los 3 pts juntos (= 1 pt) que son los 43 que vas a deslizar. En el otro lado, tienes los 2 puntos de la aguja auxiliar de la parte 1 que se trabajan juntos (= 1 punto) + 41 pts en pt jersey + 1 pt después de cerrar 5 pts de la sisa.

28.08.2023 - 00:05

country flag Hilde wrote:

Sorry, ik heb mijn vraag te vroeg gesteld. Ik heb intussen de oplossing gevonden. Ik moest gewoon overschakelen op naalden zonder stop, met punten aan beide zijden. Nu gaat het prima.

09.07.2023 - 02:34

country flag Hilde wrote:

Hallo, Mijn topje is bijna af maar bij de bandjes gekomen, begrijp ik dit niet : "Brei 1 naald recht aan de goede kant * duw de steken terug naar het begin van de naald, trek de draad aan en brei de 5-5-5-7-7-7 steken aan de goede kant opnieuw recht *, brei van *-* tot...." Kan iemand me helpen?

07.07.2023 - 21:43

country flag Ute Burrage wrote:

Hi, first of all, thanks for all the patterns! Secondly, can this be knit in the round? I just don’t like seaming…thank you!

02.07.2023 - 13:27

DROPS Design answered:

Dear Mrs Burrage, yes probably, you can remove the edge stitches, make sure the number of stitches fit for the ribbing edge and then increase on each side of piece and read diagrams, seen from RS (until you divide piece for each side). Happy knitting!

03.07.2023 - 10:34

country flag Marie-Laure Bougant wrote:

Et pour les rangs côte mousse on compte aussi la maille lisière au-dessus des 6….16 mailles ?

27.06.2023 - 16:07

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bougant, tout à fait, vous tricotez au point mousse les 6 à 16 premières mailles et les 6 à 16 dernières mailles du rang (= de chaque côté, y compris les m lisières). Bon tricot!

28.06.2023 - 08:32

country flag Marie-Laure Bougant wrote:

Bonjour, Quand on rabat les 5….15 mailles pour les emmanchures (dos), nous devons y inclure les mailles lisière ou commencer à rabattre après? Merci, Bonne journée.

27.06.2023 - 12:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bougant, effectivement, vous devez rabattre les 5 à 15 premières mailles en début de rang sur l'endroit (y compris la m lisière), tricotez le rang jusqu'à la fin, tournez, rabattez les 5 à 15 premières mailles au début du rang sur l'envers (y compris la m lisière) et tricotez le rang jusqu'à la fin. Continuez en jersey avec 1 maille lisière de chaque côté (= la 1ère et la dernière maille). Bon tricot!

27.06.2023 - 13:40