DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7568.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Hortense Wrap Cardigan

Hekluð peysa / vafningspeysa úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er heklað neðan frá og upp með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 232-35
DROPS Design: Mynstur cm-138
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-450-500-550-600 g litur 05, púðurbleikur

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4.

HEKLFESTA:
18 stuðlar á breidd og 9 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7568.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju / stuðull.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur (þær koma í stað fyrsta stuðulinn), þ.e.a.s. hoppið yfir síðustu lykkju frá fyrri umferð. Síðasti stuðullinn í umferð er heklaður í 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð.
Í byrjun á hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum eru heklaðar 4 loftlykkjur (þær koma í stað fyrsta tvíbrugðna stuðulinn), hoppið yfir síðustu lykkjuna frá fyrri umferð. Síðasti tvíbrugðni stuðullinn í umferð er heklaður í 4. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig:
* bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.
Fækkið um 2 stuðla með því að hekla 3 stuðla saman þannig:
* bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 3 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni.

ÚTAUKNING (á við um hliðar):
Aukið út með því að hekla 2 stuðla í ysta stuðul í hvorri hlið.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkin og bakstykkið er heklað fram og til baka í stykkjum. Stykkin eru saumuð saman. Lykkjur eru heklaðar fyrir ermar í kringum handveg og ermarnar eru heklaðar fram og til baka, ofan frá og niður.

BAKSTYKKI:
Heklið 75-83-89-99-107-119 loftlykkjur - lesið LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan, með heklunál 4 með DROPS Cotton Merino. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar) – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, 1 stuðull í hverja af næstu 71-79-85-95-103-115 loftlykkjum = 73-81-87-97-105-117 stuðlar. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul.
Heklið síðan mynstur þannig:
1 stuðull í hvern af fyrstu 4-3-6-6-5-6 stuðlum, A.1 alls 6-7-7-8-9-10 sinnum, A.2 og 1 stuðull í hvern af síðustu 4-3-6-6-5-6 stuðlum.
Haldið svona áfram með mynstrið. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8 cm, fækkið um 1 stuðul í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA = 71-79-85-95-103-115 lykkjur.
Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 12 cm = 69-77-83-93-101-113 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 15 cm, aukið út um 1 stuðul í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING!
Aukið svona út með 6-6½-4½-7½-5-5 cm millibili alls 3-3-4-3-4-4 sinnum = 75-83-91-99-109-121 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, fækkið lykkjum fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan – stillið af að næsta umferð sé umferð með stuðlum. Klippið þráðinn og heklið mynstrið þannig:

Hoppið yfir fyrstu 4-5-5-6-7-9 stuðla fyrir handveg, festið þráðinn með 1 fastalykkju í næsta stuðul, 3 loftlykkjur (fyrsti stuðull), heklið 2-2-3-3-3-3 stuðla saman, 1 stuðul í hvern af næstu 8-6-9-7-16-15 stuðlum, A.1 alls 4-5-5-6-5-6 sinnum, A.2, 1 stuðul í hvern af næstu 8-6-9-7-16-15 stuðlum, heklið 2-2-3-3-3-3 stuðla saman og 1 stuðul í síðustu lykkju, snúið (þ.e.a.s. ekki er heklað yfir síðustu 4-5-5-6-7-9 stuðla í umferð að neðan) = 65-71-77-83-91-99 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur og heklið 2-2-3-3-3-3 stuðla saman í hvorri hlið í hverri umferð alls 2-4-2-3-5-7 sinnum (meðtalin fyrsta úrtaka sem var gerð þegar hoppað var yfir lykkjur fyrir handveg), síðan 0-0-2-2-2-2 stuðlar saman í hvorri hlið í hverri umferð alls 0-0-3-3-2-1 sinnum = 63-65-67-69-71-73 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur yfir miðjulykkjur og 1 stuðul í hvern af ystu stuðlum í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm, heklið stykkið áfram í stuðlum, endið e.t.v. gatamynstrið sem byrjað.
Þegar stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm, heklið hálsmál þannig:
1 stuðul í hvern af fyrstu 21-22-22-23-23-23 stuðlum, heklið 2 stuðla saman, snúið = 22-23-23-24-24-24 stuðlar fyrir öxl.
Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm. Klippið þráðinn og festið.
Hin öxlin er hekluð þannig:
Hoppið yfir miðju 17-17-19-19-21-23 lykkjur fyrir hálsmáli, heklið 2 stuðla saman, 1 stuðul í hvern af síðustu 21-22-22-23-23-23 stuðlum. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm. Klippið þráðinn og festið.

HÆGRA FRAMSTYKKI.
Heklið 61-67-71-77-81-89 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með og 5 kantlykkjur að framan við miðju að framan) með heklunál 4 með DROPS Cotton Merino. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar) – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, 1 stuðull í hverja af næstu 57-63-67-73-77-85 loftlykkjum = 59-65-69-75-79-87 stuðlar.

Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til 5 stuðlar eru eftir, 1 stuðull í fremri lykkjubogann á hverjum af síðustu 5 stuðlum (kantur að framan).
Heklið síðan mynstur frá réttu þannig: 1 stuðull í aftari lykkjubogann á hverjum af fyrstu 5 stuðlum (kantur að framan), 1 stuðull í hvern af næstu 3 stuðlum, A.1 alls 4-5-5-6-6-7 sinnum, A.2 alls 1-0-1-0-1-1 sinnum og endið með 1 stuðul í hvern af síðustu 6-7-6-7-6-4 stuðlum.

Haldið svona áfram með mynstur, kantur að framan er heklaður í fremri lykkjubogann á lykkju fyrir neðan þegar heklað er frá röngu og aftari lykkjubogann á lykkjunni þegar heklað er frá réttu.
Þegar stykkið mælist 8 cm, fækkið um 1 stuðul í lok næstu umferðar frá réttu = 58-64-68-74-78-86 lykkjur.
Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 12 cm = 57-63-67-73-77-85 lykkjur.
Mynstrið heldur áfram eins og áður.

Lestu kaflann útaukning í hlið og úrtaka við miðju að framan áður en þú heklar áfram.

ÚTAUKNING Í HLIÐ:
Þegar stykkið mælist 15 cm, aukið út um 1 stuðul í lok næstu umferðar frá réttu.
Aukið svona út með 6-6½-4½-7½-5-5 cm millibili alls 3-3-4-3-4-4 sinnum.
Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, stillið af að næsta umferð sé frá réttu, heklið næstu umferð frá réttu þannig:
Heklið eins og áður og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli þar til eftir eru 15-14-18-17-27-28 lykkjur, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 8-6-9-7-16-15 stuðlum, heklið 2-2-3-3-3-3 stuðla saman og 1 stuðul í síðustu lykkju, snúið (þ.e.a.s. ekki er heklað yfir síðustu 4-5-5-6-7-9 stuðla í umferð að neðan = handvegur).
Haldið áfram með mynstur og heklið 2-2-3-3-3-3 stuðla saman við handveg og hver umferð alls 2-4-2-3-5-7 sinnum (meðtalin fyrsta úrtaka sem var gerð þegar hoppað var yfir lykkjur fyrir handveg), síðan 0-0-2-2-2-2 stuðlar saman í hverri umferð alls 0-0-3-3-2-1 sinnum.

ÚRTAKA VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN:
Þegar stykkið mælist 16 cm, er einungis byrjað á gatamynstri í fyrstu mynstureiningu af A.1 frá réttu (þ.e.a.s. gatamynstrið næst kanti að framan) ef það eru 10 stuðlar (meðtalinn kantur að framan) á undan fyrsta gati við miðju að framan (þ.e.a.s. 2 loftlykkjur), ef það eru færri en 10 stuðlar (meðtalinn kantur að framan) á undan fyrstu umferð með götum í gatamynstri er heklaður 1 stuðull í staðinn í hvern stuðul yfir lykkjurnar.

Yfir kanti að framan eru heklaðar ystu 3 lykkjur við miðju að framan í tvíbrugðnum stuðlum (í stað stuðla) þær lykkjur sem eru eftir eru heklaðar eins og áður. Haldið er áfarm að hekla í fremri og aftari lykkjubogana. Þetta er gert til að kanturinn að framan dragi ekki stykkið saman þegar úrtaka fyrir hálsmáli byrjar. Heklið svona yfir kant að framan í 3 cm (mælt í stuðlum). Heklið síðan áfram með stuðla eins og áður.
Þegar stykkið mælist 18 cm, fækkið um 2 lykkjur innan við 5 kantlykkjur að framan í hverri umferð, með því að hekla 3 stuðla næst kanti að framan saman.
Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 10 sinnum, síðan er fækkað um 1 lykkju innan við 5 kantlykkjur að framan í hverri umferð, með því að hekla 2 stuðla næst kanti að framan saman. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 12-14-16-17-18-21 sinnum.
Þegar öll úrtaka hefur verið gerð til loka eru 22-23-23-24-24-24 lykkjur í umferð.
Þegar stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm, heklið stykkið áfram í stuðlum (kantur að framan heldur áfram eins og áður), endið e.t.v. gatamynstur sem er byrjað.
Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm, heklið einungis yfir fyrstu 5 kantlykkjur að framan, þar til stykkið mælist 6½-6½-7-7-7½-8 cm frá þeim lykkjum sem eru eftir á öxl. Klippið þráðinn.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið 61-67-71-77-81-89 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Cotton Merino. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), 1 stuðull í hverja af næstu 57-63-67-73-77-85 loftlykkjum = 59-65-69-75-79-87 stuðlar.
Heklið 1 stuðul í fremri lykkjubogann í hvern fyrstu 5 stuðlum (kantur að framan) og 1 stuðull í hvern af þeim stuðlum sem eftir eru.
Heklið síðan mynstur frá réttu þannig:

Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 6-7-6-7-6-4 stuðlum, A.2 alls 1-0-1-0-1-1 sinnum, A.3 alls 4-5-5-6-6-7 sinnum, 1 stuðull í hvern af næstu 3 stuðlum og 1 stuðull í aftari lykkjubogann í hvern af síðustu 5 stuðlum (= kantur að framan). Haldið svona áfram með mynstur, kantur að framan er heklaður í fremri lykkjubogana að neðan þegar heklað er frá röngu og aftari lykkjubogana að neðan þegar heklað er frá réttu.
Þegar stykkið mælist 8 cm, fækkið um 1 stuðul í lok næstu umferðar frá réttu = 58-64-68-74-78-86 lykkjur.
Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 12 cm = 57-63-67-73-77-85 lykkjur.
Mynstrið heldur áfram eins og áður.

Lestu kaflann útaukning í hlið og úrtaka við miðju að framan áður en þú heklar áfram.

ÚTAUKNING Í HLIÐ:
Þegar stykkið mælist 15 cm, aukið út um 1 stuðul í byrjun á næstu umferðar frá réttu.
Aukið svona út með 6-6½-4½-7½-5-5 cm millibili alls 3-3-4-3-4-4 sinnum.
Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, stillið af að næsta umferð sé frá réttu, klippið þráðinn frá.
Hoppið yfir fyrstu 4-5-5-6-7-9 stuðla fyrir handveg, heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju, 3 loftlykkjur, heklið 2-2-3-3-3-3 stuðla saman, 1 stuðul í hverja af næstu 8-6-9-7-16-15 lykkjum og mynstur eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru.
Haldið áfram með mynstur og heklið 2-2-3-3-3-3 stuðla saman innan við 1 lykkju við handveg í hverri umferð alls 2-4-2-3-5-7 sinnum (meðtalin fyrsta úrtaka sem var gerð þegar hoppað var yfir lykkjur fyrir handveg), síðan 0-0-2-2-2-2 stuðla saman í hverri umferð alls 0-0-3-3-2-1 sinnum.

ÚRTAKA VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN:
Þegar stykkið mælist 16 cm, er einungis byrjað á gatamynstri í síðustu mynstureiningu af A.3 frá réttu (þ.e.a.s. gatamynstrið næst kanti að framan) ef það eru 10 stuðlar (meðtalinn kantur að framan) á undan síðasta gati við miðju að framan (þ.e.a.s. 2 loftlykkjur), ef það eru færri en 10 stuðlar (meðtalinn kantur að framan) á undan gati er heklaður 1 stuðull í staðinn í hvern stuðul yfir lykkjurnar.

Yfir kanti að framan eru heklaðar ystu 3 lykkjur við miðju að framan í tvíbrugðnum stuðlum (í stað stuðla) þær lykkjur sem eru eftir eru heklaðar eins og áður. Haldið er áfarm að hekla í fremri og aftari lykkjubogana. Þetta er gert til að kanturinn að framan dragi ekki stykkið saman þegar úrtaka fyrir hálsmáli byrjar. Heklið svona yfir kant að framan í 3 cm (mælt í stuðlum). Heklið síðan áfram með stuðla eins og áður.
Þegar stykkið mælist 18 cm, fækkið um 2 lykkjur innan við 5 kantlykkjur að framan í hverri umferð, með því að hekla 3 stuðla næst kanti að framan saman.
Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 10 sinnum, síðan er fækkað um 1 lykkju innan við 5 kantlykkjur að framan í hverri umferð, með því að hekla 2 stuðla næst kanti að framan saman. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 12-14-16-17-18-21 sinnum.

Þegar öll úrtaka hefur verið gerð til loka eru 22-23-23-24-24-24 lykkjur í umferð.
Þegar stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm, heklið stykkið áfram í stuðlum (kantur að framan heldur áfram eins og áður), endið e.t.v. gatamynstur sem er byrjað.
Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm, heklið einungis yfir síðustu 5 kantlykkjur að framan, þar til stykkið mælist 6½-6½-7-7-7½-8 cm frá þeim lykkjum sem eru eftir á öxl. Klippið þráðinn.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma og hliðarsauma fallega saman.
Saumið saman kantlykkjur að framan mitt aftan í baki og saumið við kant í hálsmáli aftan í hnakka.

ERMI:
Heklið kant í kringum op fyrir ermar þannig:
Festið þráðinn með 1 fastalykkju í lykkjuna við hliðarsauminn, * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* yfir lykkjur undir ermi, heklið síðan upp meðfram handvegi þannig: * Heklið 1 loftlykkjju, 1 fastalykkja um næstu umferð *, heklið frá *-* um alla umferðina aftur niður að lykkjum undir ermi og heklið yfir þessar lykkjur alveg eins og í byrjun á umferð. Stillið af að endað sé með 1 fastalykkju í síðustu lykkju undir ermi. Passið uppá að þessi umferð dragi ekki opið fyrir ermi saman, heklið e.t.v. fleiri loftlykkjur á milli hverra fastalykkja. Klippið þráðinn frá = ca 38-41-43-46-49-53 loftlykkjubogar.

Heklið frá réttu þannig:
Ermakúpan er hekluð fram og til baka yfir fleiri og fleiri loftlykkjuboga, þar til heklað hefur verið yfir alla loftlykkjubogana.
Byrjið í 5. loftlykkju niður frá axlasaumi séð frá réttu. Heklið 1 fastalykkju um loftlykkjubogann, heklið 2 stuðla um næstu loftlykkju (þ.e.a.s. upp að axlasaumi), heklið 2 stuðla um hverja af næstu 7 loftlykkjum og endið með 1 keðjulykkju um næsta loftlykkjuboga = 16 stuðlar. Snúið og heklið frá röngu þannig:
Heklið 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja um næsta loftlykkjuboga, 2 stuðlar í hvern stuðul og endið með 1 keðjulykkju um næsta loftlykkjuboga í hinni hlið á stykkinu = 32 stuðlar.
Snúið.
Heklið 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja um næsta loftlykkjuboga, 2 stuðlar í fyrsta stuðul, 1 stuðull í hvern stuðul þar til eftir er 1 stuðull, 2 stuðlar í næsta stuðul og endið með 1 keðjulykkju um næsta loftlykkjuboga = 34 stuðlar.
Haldið svona áfram að auka út um 1 stuðul í hvorri hlið alls 5-6-8-9-10-12 sinnum = 42-44-48-50-52-56 lykkjur. Þ.e.a.s. nú eru eftir ca 16-17-15-16-17-17 loftlykkjubogar.
Í næstu umferð er heklað til skiptis 1 stuðul og 2 stuðlar um hvern af síðustu loftlykkjubogunum niður að hliðarsaum. Snúið og heklið 1 stuðul í hvern stuðul og til skiptis 1 stuðul og 2 stuðla um þá loftlykkjuboga sem eftir eru í hinni hliðinni á stykkinu = ca 66-69-70-74-77-81 stuðlar. Í næstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 62-65-68-74-77-81 lykkjur.
Heklið fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul.
Þegar ermin mælist 3 cm þar sem stykkið er styst, fækkið um 1-1-1-1-0-0 stuðul í hvorri hlið á stykki. Fækkið lykkjum svona með 3-4-7-0-0-0 cm millibili alls 4-3-2-1-0-0 sinnum = 54-59-64-72-77-81 stuðlar.
Heklið fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 15-15-14-14-13-12 cm þar sem stykkið er styst. Klippið þráðinn og festið.

Heklið hina ermina á sama hátt. Saumið ermasauma.

SNÚRA:
Heklið loftlykkjuröð ca 40 til 50 cm. Heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hverja loftlykkjju. Klippið þráðinn frá. Saumið við hægra framstykki (þar sem fyrsta úrtaka fyrir hálsmáli var gerð). Heklið loftlykkjuröð ca 80 til 100 cm. Heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hverja loftlykkju. Klippið þráðinn. Saumið við vinstra framstykki (þar sem fyrsta úrtaka fyrir hálsmáli var gerð).

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.08.2023
FRÁGANGUR: Saumið axlasauma og hliðarsauma fallega saman.
Saumið saman kantlykkjur að framan mitt aftan í baki og saumið við kant í hálsmáli aftan í hnakka.

Mynstur

symbols = stuðull í lykkjuna fyrir neðan
symbols = þríbrugðinn stuðull um 2 loftlykkjur 2 umferðum fyrir neðan, þ.e.a.s. heklað er um 2 loftlykkjur og um 6 loftlykkjur í umferðinni fyrir neðan

symbols = heklið 2 stuðla saman þannig: * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni um loftlykkjubogann fyrir neðan, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð, þetta sýnir bara hvernig á að hekla næstu umferð í lykkjurnar
symbols = 2 loftlykkjur
symbols = 6 loftlykkjur
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag SCHIpani wrote:

Bonjour je ne comprend pas bien se passage es ce possible de me le détailler 6-7-7-8-9-10 fois A.1 au total, A.2 et 1 bride dans chacune des 4-3-6-6-5-6 dernières brides.\r\nContinuer ainsi.

04.04.2024 - 23:04

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Schipani, chaque chiffre se réfère à la taille dans le même ordre des tailles indiquées pour ce modèle, autrement dit, le 1er pour la taille S, le 2ème pour la taille M etc. Ainsi, en taille S par exemple, vous crochetez vos 73 mailles ainsi: 4 brides, 6 x A.1 (soit 6 x 10 mailles = 60 mailles), A.2 (= 5 mailles) et 4 brides = 4+60+5+4=73 brides. Bon crochet!

05.04.2024 - 08:20

country flag Anni wrote:

Hallo! Ich verstehe nicht ganz wie ich das rechte Vorderteil, den Absatz 'Abnahmen am vorderen Rand' häkeln soll. Ab wann sollen die Abnahmen passieren und wie kann ich das Muster erfolgreich weiterführen? Finde es sehr schwer zu verstehen. Vielleicht ist es möglich, ein Foto vom fertigen Cardigan zu sehen, bei dem man diesen Part auch gut erkennen kann um sich daran zu orientieren? Vielen Dank!

27.02.2024 - 20:17

DROPS Design answered:

Liebe Anni, um nur komplette Rapporte von dem Muster zu haben wird man nur Stäbchen anstatt Muster häkeln wenn man nicht genügende Maschen für ein ganzes Rapport wegen Abnahmen am vorderen Rand hat. Die anderen Muster häkelt man aber wie zuvor weiter, dh wenn man weniger als 10 Maschen zwischen 2 Lochmuster hat, dann häkelt man nur Stäbchen, siehe auch Fotos, wo die Lochmuster eine schöne Diagonale bilden (nur komplette Rapporte). Viel Spaß beim Häkeln!

28.02.2024 - 09:20

country flag Allene wrote:

Hi! Just to confirm, in the US-English pattern, when it talks about "single-double" crochet stitches, is that meant to be an ordinary treble crochet? After glancing at the UK-English pattern that is what I expect. Thanks!

24.02.2024 - 17:10

DROPS Design answered:

Dear Allene, it looks like there is a typo in the US-pattern, replace the first double crochet with 3 chains and the first double treble with 4 chains, pattern will be fixed thanks for noticing. Happy crocheting!

26.02.2024 - 08:26

country flag Caroline Steinfort wrote:

De vraag is al eerder gesteld maar het antwoord heeft mij niet verder geholpen. Het gaat om de instructie voor de mouw. Als ik na de eerste toer 16 stokjes heb gehaakt, moet het werk worden gekeerd. Ik haak de 3 lossen maar heb dan geen lossenlus maar 16 stokjes voor me. Welke lossenlus wordt bedoeld?

06.10.2023 - 22:40

country flag Eliza wrote:

Hej igen! Hittade mina fel hehe tack ändå!

28.07.2023 - 21:03

country flag Eliza wrote:

Hej! Förstår inte riktigt mönstret. Har nu repeterat A.1 6 gånger och har 15 maskor kvar att virka i. Men jag behöver ju repetera A.1 en gång till. Vart har jag gjort fel? Sen ska ju A.2 ha 5 maskor och sen avsluta med 3, det finns inte nog med maskor kvar. Snälla hjälp!

28.07.2023 - 20:46

DROPS Design answered:

Hej Eliza, du har 73 stolpar, Sedan virkas det mönster så här: 1 stolpe i var och en av de första 4 stolparna, A.1 totalt 6 gånger (= 60st ), A.2 (5 st) och 1 stolpe i var och en av de sista 4 stolparna = totalt 73

07.08.2023 - 10:40

country flag Chantal Bonneton wrote:

Bonjour,\r\nMerci beaucoup pour votre réponse très rapide. Toutes mes amitiés. Chantal

09.06.2023 - 09:21

country flag Bonneton Chantal wrote:

Bonsoir,\r\nJe viens de terminer le devant droit. En fin d’explications, il est noté. : « crocheter seulement les 5 mailles de bordure devant pendant encore 6,5 cm ». Faudra-t-il coudre cette petite bande autour de l’encolure du dos ? Il n’y a aucune indication à ce sujet. Merci de votre réponse. Chantal Bonneton

09.06.2023 - 00:03

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bonneton, effectivement, cette info manque (je remonte tout ça à nos stylistes, merci); cette petite bande correspond effectivement à la bordure d'encolure que l'on va ensuite assembler avec celle de l'autre devant, puis le long de l'encolure dos. Bon crochet!

09.06.2023 - 09:12

country flag Sara wrote:

Scusate, non riesco a capire come lavorare nel filo davanti/dietro per il bordo. Si intende maglie in rilievo davanti/dietro o altro? Grazie, Sara

11.04.2023 - 13:35

DROPS Design answered:

Buonasera Sara, deve lavorare in entrambi i fili delle maglie. Buon lavoro!

11.04.2023 - 22:40

country flag Emile wrote:

For the size large, is the last increase on the back piece supposed to be after the start of the armholes? Also regarding the armholes, the pattern mentions "making sure the next row is a row of double crochets," does this just mean the row without any lace motif?

25.02.2023 - 06:25

DROPS Design answered:

Dear Emile, no, the first increase is already included in the total times. So, for size L, you increase after 4.5, 9 and 13.5cm, from the 15 cm mark. Therefore, you should be at 28.5cm after all increases and start the armholes at 30cm. And yes, a row of double crochets is one where you are only working double crochets, with no lace motifs. Happy crocheting!

26.02.2023 - 23:27