DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4466.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

May Tee

Prjónuð peysa með stuttum ermum / t-shirt úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með útaukningu á öxlum, sléttprjóni og stuttum puffermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 232-53
DROPS Design: Mynstur vs-092
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-450-450-500-550 g litur 23, myntu rjómi

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4466.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

UPPHÆKKUN (aftan í hnakka):
Byrjið frá réttu við prjónamerki mitt að aftan, prjónið 15-15-16-16-17-18 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 30-30-32-32-34-36 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 45-45-48-48-51-54 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 60-60-64-64-68-72 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 75-75-80-80-85-90 lykkjur slétt (hér verður þú einnig að auka út fyrir öxl eins og útskýrt er í uppskrift – útauknar lykkjur eru ekki taldar með), snúið, herðið á þræði og prjónið 90-90-96-96-102-108 lykkjur brugðið (munið eftir útaukningu fyrir öxl). Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að prjónamerki mitt að aftan. Upphækkun er nú lokið og það hefur verið aukið út alls 2 sinnum fyrir öxl (8 lykkjur). Prjónið nú BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift.

ÚTAUKNING-1 (frá réttu):
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

ÚTAUKNING-2 (frá röngu – á einungis við þegar upphækkun er prjónuð):
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 106-110-114-118-122-126 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Belle. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2-2-2-3-3-3 cm.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-20-24-24-28-28 lykkjur jafnt yfir = 126-130-138-142-150-154 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (mitt að framan) – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!
Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (mitt að aftan).
Að auki eru sett 2 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjur og hvort prjónamerki af þessum 2 eru sett í lykkju. Þessi prjónamerki eru notuð þegar auka á út fyrir öxl og prjónamerkin verð að hafa annan lit en prjónamerkið mitt að framan til að aðgreina þau.
Fyrra prjónamerki: Byrjið mitt að aftan, teljið 31-32-34-35-37-38 lykkjur (½ bakstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju.
Annað prjónamerki: Teljið 62-64-68-70-74-76 lykkjur frá 1. prjónamerki (framstykki), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju.
Nú eru 31-32-34-35-37-38 lykkjur eftir á bakstykki á eftir 2. prjónamerki.
Látið þessi 2 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út hvoru megin við þau.
Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – lesið útskýringu að ofan. Upphækkunin gerir flíkina aðeins hærri í hnakka. Athugið að útaukning á öxlum er gerð samtímis og 3 síðustu umferðir eru prjónaðar í upphækkun – lestu því einnig kaflann um ÚTAUKNING FYRIR AXLASÆTI og ÚTAUKNING-2 (þegar prjónað er frá röngu.
Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, farðu beint áfram í útaukning fyrir axlarsæti.

ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI:
Prjónið sléttprjón hringinn.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð eru auknar út 4 lykkjur fyrir öxl þannig:
Aukið út á UNDAN og á EFTIR lykkju með 1. og 2. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1.

Haldið svona áfram og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 14 sinnum = 182-186-194-198-206-210 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 5 cm frá prjónamerki við hálsmáli mitt að framan.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón þar til eftir eru 5-5-6-6-7-7 lykkjur á undan 1. prjónamerki, fellið af 11-11-13-13-15-15 lykkjur (lykkja með prjónamerki + 5-5-6-6-7-7 lykkjur hvoru megin við hana – þessar lykkjur koma til með að mynda lítinn «flipa»), prjónið sléttprjón þar til eftir eru 5-5-6-6-7-7 lykkjur á undan 2. prjónamerki, fellið af 11-11-13-13-15-15 lykkjur, prjónið sléttprjón að miðju að aftan = 160-164-168-172-176-180 lykkjur.

Setjið nú 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Þetta er gert samtímis sem prjónað er – þessi nýju prjónamerki eru notuð þegar auka á út fyrir ermum.
Prjónið 40-41-42-43-44-45 lykkjur sléttprjón (½ bakstykki), setjið 1. prjónamerki, fitjið upp 36-38-40-42-46-50 nýjar lykkjur á prjóninn fyrir ermi, setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju, prjónið 80-82-84-86-88-90 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið 3. prjónamerki, fitjið upp 36-38-40-42-46-50 nýjar lykkjur fyrir ermi, setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju, prjónið 40-41-42-43-44-45 lykkjur sléttprjón (½ bakstykki) = 232-240-248-256-268-280 lykkjur. Aukið nú út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING FYRIR ERMAR:
Prjónið sléttprjón hringinn.
JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig:
Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-1.
Nú er einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 18-20-21-22-23-24 sinnum = 304-320-332-344-360-376 lykkjur.
Stykkið mælist ca 18-19-20-21-21-22 cm frá prjónamerki við hálsmál. Prjónið 1-0-0-0-0-0 cm í sléttprjóni án útaukningar – stykkið mælist 19-19-20-21-21-22 cm frá prjónamerki við hálsmál. Aukið síðan út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Prjónið sléttprjón, JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir berustykki þannig:
Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-1. Nú eru lykkjur auknar út á framstykki og bakstykki og fjöldi lykkja á ermum verður sá sami.
Endurtakið útaukningu þannig:
S: aukið út í 4. hverri umferð alls 2 sinnum.
M: aukið út í 3. hverri umferð alls 4 sinnum.
L, XL, XXL og XXXL: aukið út í annarri hverri umferð alls 6-6-7-7 sinnum, síðan í hverri umferð alls 2-5-9-13 sinnum.
Á eftir síðustu útaukningu eru 312-336-364-388-424-456 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 21-23-25-27-29-31 cm frá prjónamerki mitt að framan.
Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 42-45-50-54-60-65 lykkjur sléttprjón (½ bakstykki), setjið næstu 72-78-82-86-92-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 84-90-100-108-120-130 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 72-78-82-86-92-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 42-45-50-54-60-65 lykkjur í sléttprjóni (½ bakstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 180-196-216-236-260-284 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið – mitt í 6-8-8-10-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Byrjið umferð við annað prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6 cm millibili alls 3 sinnum = 168-184-204-224-248-272 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 23 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 72-78-82-86-92-98 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 78-86-90-96-102-110 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi – mitt í 6-8-8-10-10-12 lykkjur. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – það á að nota það þegar fækka á lykkjum.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 2-2-2-1-1-1 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-1-1-1-1-1 cm millibili alls 4-6-5-4-3-1 sinnum = 70-74-80-88-96-108 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 10-8-7-5-4-2 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-14-18-22-26-34 lykkjur jafnt yfir = 58-60-62-66-70-74 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 14-12-11-9-8-6 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Þræðið þráð upp og niður í gegnum uppfitjunarkantinn efst á ermi. Brjótið ermakúpuna þannig að hún passi í beina línu við opið þar sem lykkjur voru felldar af á öxl – ATH. Lykkjur sem felldar voru af á öxl koma til með að forma lítinn «flipa» – þessi flipi á að liggja undir ermakúpunni og kemur til með að gefa auka stuðning fyrir puppermi. Saumið ermakúpuna við opið í beina línu – sjá A.1 (myndin sýnir öxl og flipa séð ofan frá).
Endurtakið í hinni hliðinni.

Mynstur

symbols = útaukning fyrir axlarsæti
symbols = útaukning fyrir ermar
symbols = útaukning á berustykki
symbols = prjónstefna
symbols = öxl
symbols = flipi
symbols = hér er ermakúpan saumuð við handveg
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-53

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Sedef wrote:

Increase tip 1 is incorrect. Before the marker, after the marker, the tip says to take the yarn from back for both and it doesn't work. Could you please check and correct this?

23.02.2024 - 14:58

DROPS Design answered:

Dear Sedef, you are right, after marker you should pick up the stitch from the front, it will be edited, thanks for noticing. Happy knitting!

23.02.2024 - 15:44

country flag Maria wrote:

Hallo, Ik heb opgemerkt dat de schoudermeerdering in de instructie video anders worden gebreid dan dat in de uitleg staat.Meerdering vóór de steek wordt in video zo gebreid dat de lus van voor naar achter is opgenomen en dan in achterste lus gebreid . Kunt u aub dit uitleggen. Bedankt

18.01.2024 - 20:54

DROPS Design answered:

Dag Maria,

Dat zou kunnen kloppen. De instructies in het patroon zijn altijd leidend.

21.01.2024 - 12:07

country flag Kim wrote:

Hello~Thank you so much for this nice design!:) I love it! I started to work on it just a few hours ago, and I have a question. I've just finished with neck edge,and now I'm about to start with yoke. But sadly, because I'm just a beginner, I don't know how to put the marker without working the stitches. It looks like the markers are also counted as stitches. But I don't know how to make it. Before, I just learned to put marker between stitches. Please help me with this ~

07.01.2024 - 11:33

DROPS Design answered:

Dear Kim, if you use locking markers (the ones in shape of a lock or that can easily be opened) simply insert them as follows: count the number of stitches as indicated and then insert the marker inside the stitch. This will then be a stitch with a marker; it doesn't count separately, it's just counting the stitch it's sitting in. Then, you will move it upwards; when you reach the stitch with the marker in the next row, unlock it, take it out, work the stitch and then put the marker in the new stitch. Happy knitting!

07.01.2024 - 18:26

country flag HKBS wrote:

Hei! Takk for oppskrifta - dette ser ut som ein veldig fin topp! Men me har no lese oppskrifta mange ganger, og det ser ut som det er ein feil: Når ein har strikka høgare nakke har ein hatt 2 skulderaukingar. Då skal det berre strikkast 12 skulderaukingar vidare (ikkje 14, som det står i mønsteret - det gjeld berre om ein ikkje har strikka høgare nakke). Vonar de vil rette dette.

01.10.2023 - 15:14

country flag Dagmara wrote:

DODAWANIE OCZEK NA RAMIONA: Czy nie ma błędu w liczbie oczek rozmiar L? „Dalej przerabiać tak samo, dodając oczka w sumie 14 razy w każdym okrążeniu = 194” Nabrane 114 oczek + 8 (podwyższenie) + (14x4) = 178

28.07.2023 - 19:09

DROPS Design answered:

Witaj Dagmaro, w rozmiarze L na początku masz 114 oczek. Na wykończeniu dekoltu równomiernie dodajesz 24 oczka =138. Później dodajesz oczka na ramiona już na podwyższeniu dekoltu, w sumie tych powtórzeń z dodawaniem oczek musisz wykonać 14 > 14x4=56 oczek. 138+56=194 oczka. Pozdrawiamy!

29.07.2023 - 09:29

country flag Wendy wrote:

Is this pattern listed on Ravelry? I was unable to find it there. Thank you so much! Wendy

08.07.2023 - 23:01

DROPS Design answered:

Dear Wendy, maybe some of our patterns are not in Ravelry. Happy knitting!

10.07.2023 - 17:32

country flag Mary wrote:

Is increase tip #1, right side after marker, correct? Pick up from behind and knit through back loop???? Thanks

17.03.2023 - 03:34

DROPS Design answered:

Dear Mary, Increase tip 1 is worked from the right side of piece, and yes, before the marker means on the right hand side of the marker and after the marker means on the left hand side of the marker. Happy knitting!

17.03.2023 - 08:55

country flag Nicole wrote:

Bonjour. Je me permets de vous contacter car j’ai vu une vidéo sur YouTube d’une femme qui ne fait que critiquer les laines Drops et donner des avis négatifs. Je trouve ça inadmissible. Je travaille beaucoup avec vos fils que j’adore. Je vous envoie le lien de la personne en question. https://youtu.be/ruELfUwajG8. Je trouve que c’est scandaleux.

21.12.2022 - 22:28

country flag Christinetra Traen wrote:

Een top truitje, zal uit proberen. Hartelijk dank

30.09.2022 - 21:59

country flag Nicole wrote:

Bonjour. pour le rehaussement, au rg suivant on doit tricoter sur la maille où nous avons serré et tourné? Ex exemple : pour tricoter 45m je suis obligée de tricoter là où j’ai tourné à la 30 eme maille ? Ce n’est pas la même technique que pour les Germain short rows ? Merci beaucoup pour votre aide.

03.09.2022 - 11:55

DROPS Design answered:

Bonjour Nicole, dans cette technique, vous tricotez effectivement la 1ère maille au début du rang suivant, mais vous pouvez également utiliser une autre technique pour les rangs raccourcis si vous le préférez. Bon tricot!

05.09.2022 - 08:53