DROPS Safran uni colour 100% Bómull |
440.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Safran uni colour 100% Bómull 440.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu | |
= brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu | |
= snúin slétt lykkja frá réttu, snúin brugðin lykkja frá röngu | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn | |
= 2 lykkjur slétt saman | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman |
|
= í þessari umferð byrjar útaukning fyrir handveg |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Spring Peak |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónaður toppur / bolur úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-54 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um handveg): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við ystu 7-7-9-9-11-11 lykkjur i hvorri hlið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um í hliðum á framstykki og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 2 lykkjur sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. FÆKKIÐ LYKKJUM Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur sléttprjón og 1 lykkja í garðaprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig, ofan frá og niður. Stykkið er saumað saman á öxlum og í hliðum. FRAMSTYKKI: Byrjið með vinstri öxl að framan (þegar flíkin er mátuð): VINSTRI ÖXL: Fitjið upp 19-19-21-21-23-23 lykkjur á prjón 3 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroffprjón þannig: UMFERÐ 1 (rétta): 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúin slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (ranga): 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúið brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist 8-8-8-9-9-9 cm – endið eftir umferð frá röngu, snúið ekki stykkinu, en fitjið upp 65 nýjar lykkjur í lok umferðar fyrir hálsmáli. Geymið stykkið og prjónið hægri öxl. HÆGRI ÖXL: Fitjið upp 19-19-21-21-23-23 lykkjur á prjón 3 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroffprjón á sama hátt og vinstri öxl þar til stykkið mælist 8-8-8-9-9-9 cm – endið eftir umferð frá röngu. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú eru stykkin sett saman og mynstur er prjónað eins og útskýrt er að neðan – að auki eru lykkjur auknar út fyrir handveg í hvorri hlið. Lestu kaflann MYNSTUR og HANDVEGUR áður en þú prjónar áfram! MYNSTUR: Prjónið frá réttu eins og áður yfir fyrstu 18-18-20-20-22-22 lykkjur á hægri öxl, prjónið næstu lykkju brugðið, haldið áfram með stroffprjón yfir 65 lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli, prjónið fyrstu lykkju á vinstri öxl brugðið og prjónið síðustu 18-18-20-20-22-22 lykkjur á vinstri öxl í stroffprjóni eins og áður = 103-103-107-107-111-111 lykkjur. Prjónið stroffprjón yfir allar lykkjur með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 13-13-14-14-15-15 cm frá uppfitjunarkanti á bandi á öxl / hlýra. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið stroffprjón eins og áður yfir næstu 6-6-8-8-10-10 lykkjur, prjónið A.1 alls 8 sinnum, A.2, stroff eins og áður yfir næstu 6-6-8-8-10-10 lykkjur og 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur fram og til baka svona. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið sléttprjón með 6-6-8-8-10-10 lykkjur stroffprjón og 1 lykkja í garðaprjóni ysti í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! HANDVEGUR: JAFNFRAMT þegar fyrsta umferð í A.1/A.2 hefur verið prjónuð, byrjar útaukning fyrir handveg – sjá ÚTAUKNING. Aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið í 4. hverri umferð alls 4-2-0-0-0-0 sinum, í annarri hverri umferð alls 0-7-10-5-6-2 sinnum og síðan í hverri umferð alls 0-0-0-11-13-24 sinnum = 93-103-109-121-131-145 lykkjur. Þegar prjónuð hefur verið ein umferð á eftir síðustu útaukningu fyrir handvegi, fitjið upp 4-4-6-6-8-8 nýjar lykkjur fyrir handvegi í lok 2 næstu umferða = 101-111-121-133-147-161 lykkjur. Stykkið mælist ca 18-19-20-21-22-23 cm frá uppfitjunarkanti á bandi á öxl / hlýra. Framstykkið er síðan prjónað eins og útskýrt er að neðan. Setjið 1 prjónamerki í umferð – stykkið er núna mælt frá þessu prjónamerki. Prjónið sléttprjón með 6-6-8-8-10-10 lykkjur stroffprjón og 1 lykkja í garðaprjóni yst í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 2 cm frá prjónamerki, prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni yst í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 5 cm frá prjónamerki, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 5. hverjum cm alls 4 sinnum í hvorri hlið = 93-103-113-125-139-153 lykkjur. Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá prjónamerki, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 28-30-34-38-42-46 lykkjur jafnt yfir = 121-133-147-163-181-199 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 38-40-42-44-46-48 cm frá uppfitjunarkanti á bandi á öxl / hlýra. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið síðan stroffprjón þannig: UMFERÐ 1 (ranga): 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (rétta): 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúið slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist 6 cm. Fellið af aðeins laust. Framstykkið mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm. BAKSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og framstykki. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana – byrjið sauminn við handveg og endið þegar 6 cm eru eftir neðst í hvorri hlið (klauf). |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (21)
Patricia wrote:
Bonjour J’ai un doute à propos du diagramme. Il se lit bien de droite à gauche ? Merci
30.04.2024 - 19:12DROPS Design answered:
Bonjour Patricia, Les diagrames sont tricotes de droite à gauche sur l'endroit et de gauche a droite sur l'envers. Bon tricot!
01.05.2024 - 15:12Patricia wrote:
Bonjour Est-ce normal que les côtes des bretelles et du haut soient avec une aiguille n° 3 et non pas 2,5 comme dans les côtes du bas ? Ou bien est-ce une erreur ? Merci
24.04.2024 - 17:44DROPS Design answered:
Bonjour Patricia, c'est bien ainsi que l'on doit procéder: les bretelles se tricotent avec les aiguilles 3 mais les côtes du bas du top avec les 2,5. Bon tricot!
25.04.2024 - 07:47Else Rasmussen wrote:
Kan ikke finde ud af mønsteret
24.03.2024 - 11:23DROPS Design answered:
Hej Else, er det selve diagrammet du ikke kan finde ud af. Prøv at strikke de få masker i selve diagrammet, så du kan se hvordan det skal se ud :)
03.04.2024 - 13:54Corina wrote:
Thank you! But I don’t understand what “put aside” means. I keep the left shoulder and the 65 sts for neck on the needle I worked then and then cast on (on the same needle ) the right shoulder? Or do I take another pair of needles and work the right shoulder as indicated? And how do I put them together? Please help:) thanks
06.03.2024 - 16:35DROPS Design answered:
Dear Corina, you can slip them on a thread or another holder, then work the right shoulder, then after the last row worked on right shoulder, work from RS the stitches of right shoulder, and the stitches put aside (starting with the 65 sts); read PATTERN and ARMHOLE. Happy knitting!
07.03.2024 - 07:55Corina wrote:
Hello! I don't understand this part: Left shoulder - " cast on 65 new stitches at the end of row for the neck. Put piece aside and work the right shoulder" I followed the instructions, but it's not clear to me: do I put the stitches on a holder? should I have spare 3mm needles to work the next part? Thanks
06.03.2024 - 15:54DROPS Design answered:
Dear Corina, after you have worked the left shoulder for 8-9 cm (see size) you cast on 65 new stitches for neck (between both straps/shoulders) and put aside. work now the right shoulder for 8-9 cm and then from RS work both shoulders together as follows: work the right shoulder, then work the 65 sts cast on + the left shoulder = you have now front piece and you will now increase for armholes on each side. Happy knitting!
06.03.2024 - 16:30Zuzana wrote:
Skvelý model. Páči sa mi tento patentový vzor. Podľa návodu sa mi dobre plietlo a top veľmi pekne sedí. Mám z neho radosť. Plietla som vo farbe 06 džínovo modrej.
21.08.2023 - 09:26Ratna wrote:
Hi -- can you pls help with the count of the increases at the armhold. I am knitting a size XL. At the beginning of the armhole increase I have 107 stitches, same as in the pattern. Pattern calls for 5 increases every other row (10 stitches) and 11 increases every row (22 stitches) -- At this point, I will have 107 + 32 = 149 stitches. This is very different from the stitch count given in the pattern (121 stitches) Pls help
21.02.2023 - 11:15DROPS Design answered:
Dear Ratna, please note that when you work the first row in A.1/A.2 before you will decrease 2 sts in each diagram (= there will remain 89 stitches after first row has been worked, then you increase 31 sts for armholes and get 121 stitches. Happy knitting!
21.02.2023 - 17:37Pia Mortensen wrote:
Skal man stikke A1 eller A2 A1 - 8 gange og så A2 til slut og så starte med A2 på vrang siden og resten af pinden med A 1 det passer med maske antal men synes ikke det er sådan det står i forklaringen
20.02.2023 - 10:10DROPS Design answered:
Hej Pia, du starter med 1 m retstrik, så rib (antal masker i din størrelse) så strikker du A.1 8 gange, så A.2 og sidst rib og 1 retstrik ifølge opskriften :)
23.02.2023 - 15:34Elise wrote:
Bonjour ! Je ne comprends pas le choix des aiguilles. Cet ouvrage est fait avec des aiguilles droites ou des aiguilles circulaires n°2.5 ou les deux ? Merci beaucoup pour la réponse.
21.01.2023 - 17:16DROPS Design answered:
Bonjour Elise, on tricote en allers et retours sur aiguilles droites puis sur aiguille circulaire pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles. Vous pouvez utiliser des aiguilles droites si vous préférez, vos mailles seront juste plus serrées. Bon tricot!
23.01.2023 - 09:12Ania wrote:
Dzień dobry, przebrnęłam przez schematy z Waszą pomocą. Dziękuję! Teraz mam dodać dla rozm. L 12 oczek na końcu 2 kolejnych rzędów(na podkroje).Jestem na prawej str. robótki. I tu nie wiem. Dodawać 6 ocz. na jednym końcu i potem kolejne 6ocz. na drugim końcu rzędu czy dzielić to i równomiernie po 3 ocz. dodawać z każdej strony. I jeszcze drugie ważne pytanie: Dodać je na końcu rzędów czy w odległości 9 ocz. od brzegu( tak jak dotychczas je dodawałam)?
15.01.2023 - 11:15DROPS Design answered:
Brawo Aniu! Teraz nabierasz na podkroje rękawów 6 oczek na końcu 2 kolejnych rzędów, czyli przerabiasz rząd na prawej stronie i na końcu nabierasz 6 oczek (tak jak się nabiera oczka na początku robótki). Obracasz i przerabiasz rząd na lewej stronie, na końcu tego rzędu nabierasz 6 oczek. Powodzenia i miłej pracy!
16.01.2023 - 19:16