Sherwood Smiles |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, axlarsæti, sléttprjóni og stuttum puffermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 239-16 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING-1 (frá réttu): AUKIÐ ÚT TIL HÆGRI Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT TIL VINSTRI Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚTAUKNING-2 (frá röngu): AUKIÐ ÚT TIL HÆGRI Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT TIL VINSTRI Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Síðan er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum, stuttu umferðirnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna. Afgangur af berustykki er prjónaður í hring á hringprjóna. Berustykkið skiptist til fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 116-120-124-134-140-148 lykkjur með DROPS Safran yfir stuttan hringprjón 2,5 og stuttan hringprjón 3,5 sem haldið er saman. Dragið út stutta hringprjón 3,5 og haldið lykkjum eftir á stuttum hringprjóni 2,5 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 7 cm. Nú er stroffið brotið inn að röngu, þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður jafnframt því sem ca 4. hver lykkja er prjónuð saman með samsvarandi ca 4. hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú er kominn tvöfaldur kantur í hálsmáli. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 26-26-30-32-34-38 lykkjur jafnt yfir = 142-146-154-166-174-186 lykkjur. Síðan er prjónað A.1 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (mitt að framan). Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan – berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI MEÐ ÚTAUKNINGU FYRIR AXLARSÆTI: Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert prjónamerki er sett á milli 2 lykkja. Þessi prjónamerki eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti og prjónamerkin verða að hafa annan lit en prjónamerki að framan til að aðgreina þau. Fyrsta prjónamerki: Teljið 28-29-31-32-34-37 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju. Annað prjónamerki: Teljið 15-15-15-19-19-19 lykkjur frá 1. prjónamerki (axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 56-58-62-64-68-74 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 15-15-15-19-19-19 lykkjur (axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Það eru 28-29-31-32-34-37 lykkjur eftir í umferð á eftir 4. prjónamerki (hálft bakstykki). Látið þessi 4 prjónamerki fylja með í stykkinu, það á að auka út við hvert og eitt að þessum prjónamerkjum. Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan, þannig að stykkið verði aðeins hærra aftan í hnakka. Þetta er gert jafnframt því sem aukið er út fyrir axlarsæti. Byrjið frá réttu mitt að aftan og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir axlarsæti á UNDAN 1. prjónamerki og á EFTIR 2. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1 (2 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá 2. prjónamerki. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir axlarsæti á UNDAN 2. og 4. prjónamerki og á EFTIR 1. og 3. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá 3. prjónamerki. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir axlarsæti á UNDAN 3. og 1. prjónamerki og á EFTIR 4. og 2. prjónamerki (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir axlarsæti á UNDAN 2. og 4. prjónamerki og á EFTIR 1. og 3. prjónamerki (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir axlarsæti á UNDAN 3. og 1. prjónamerki og á EFTIR 4. og 2. prjónamerki (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir axlarsæti á UNDAN 2. og 4. prjónamerki og á EFTIR 1. og 3. prjónamerki (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 7 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir axlarsæti á UNDAN 3. prjónamerki og á EFTIR 4. prjónamerki (2 lykkjur fleiri), prjónið sléttprjón að miðju að aftan. Stuttu umferðirnar hafa nú verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út alls 6 sinnum fyrir axlarsæti við hvert prjónamerki = 166-170-178-190-198-210 lykkjur í umferð. Þ.e.a.s. lykkjum hefur einungis verið fjölgað á framstykki og á bakstykki og fjöldi axlalykkja verðu sá sami. Síðan er prjónað sléttprjón í hring yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT heldur útaukning áfram fyrir axlarsæti á sama hátt og áður í hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 20-22-26-28-28-28 sinnum meðtalin 6 skipti í hálsmáli = 222-234-258-278-286-298 lykkjur. Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 6-7-8-9-9-9 cm frá prjónamerki framan við hálsmál. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður fram að 1. prjónamerki, fellið af 15-15-15-19-19-19 axlalykkjur, prjónið sléttprjón fram að 3. prjónamerki, fellið af 15-15-15-19-19-19 axlalykkjur, prjónið eins og áður út umferðina = 192-204-228-240-248-260 lykkjur. Haldið prjónamerkjunum í stykkinu – prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir ermum. Prjónið 48-51-57-60-62-65 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki, fitjið upp 52-52-52-66-66-66 nýjar lykkjur á prjóninn fyrir ermi, prjónið 96-102-114-120-124-130 lykkjur sléttprjón (framstykki), fitjið upp 52-52-52-66-66-66 nýjar lykkjur á prjóninn fyrir ermi, prjónið 48-51-57-60-62-65 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki) = 296-308-332-372-380-392 lykkjur. Aukið síðan út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING ERMAR: Prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-1. Nú er einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 23-24-25-21-27-25 sinnum, síðan er aukið út í hverri umferð alls 0-0-5-9-0-0 sinnum = 388-404-452-492-488-492 lykkjur. Stykkið mælist ca 20-22-25-25-26-25 cm frá prjónamerki við hálsmál. Síðan er aukið út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING BERUSTYKKI: Færið 4 prjónamerkin til þannig að þau sitji í hvorri hlið á ermum (prjónamerkin sitja nú í lykkju og það eru 96-98-110-124-118-114 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í). Haldið áfram í sléttprjóni. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki þannig: Aukið út á UNDAN og á EFTIR hverju af 4 prjónamerkjunum – munið eftir ÚTAUKNING-1. Nú á að auka út lykkjur á framstykki, bakstykki og á ermum. Aukið svona út í hverri umferð alls 6-6-4-7-11-15 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 436-452-484-548-576-612 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 22-24-26-27-29-29 cm frá prjónamerki mitt að framan. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 54-57-61-67-73-80 (hálft bakstykki), setjið næstu 110-112-120-140-142-146 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 108-114-122-134-146-160 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 110-112-120-140-142-146 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 54-57-61-67-73-80 lykkjur (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 232-248-268-292-320-352 lykkjur. Prjónið sléttprjón í hring þar til stykkið mælist 20-20-20-20-20-22 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 63-73-77-83-93-97 lykkjur jafnt yfir = 296-320-344-376-412-450 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl. ERMI: Setjið 110-112-120-140-142-146 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 3,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 118-122-132-152-156-162 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi – mitt í 8-10-12-12-14-16 lykkjur. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum. Byrjið umferð við prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 12-14-16-18-20-22 lykkjur jafnt yfir = 106-108-116-134-136-140 lykkjur. Þegar stykkið mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverjum cm alls 9-8-6-6-5-5 sinnum = 88-92-104-122-126-130 lykkjur. Eftir síðustu úrtöku er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-12-22-36-36-38 lykkjur jafnt yfir = 78-80-82-86-90-92 lykkjur. Prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 13-12-10-10-9-9 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Þræðið þráð upp og niður í gegnum uppfitjunarkantinn efst á ermi. Brjótið ermakúpuna þannig til að hún passi við opið þar sem lykkjur voru felldar af á öxl. Saumið ermakúpuna við axlalykkjur sem felldar voru af. Endurtakið í hinni hliðinni. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (22)
Ella Haugland wrote:
Ang. Bærestykkeøkning. Jeg skjønner ikke helt hvor disse merkene skal sitte? Det står i en kommentar her at man skal telle fra startmerket, men da kommer jeg midt på armen og midt bak og midt foran. Tenker de bør sitte i siden av armene. Får det heller ikke å gå opp i str. XL. 124 x 4 = 496 og ikke 492.
24.04.2024 - 22:50DROPS Design answered:
Hej Ella, du skal flytte mærkerne så du har 1 mærke i hver side af ærmet og du skal have 124 masker på ærmet imellem mærketrådene. Se også videoen: Hvordan øke i bærestykket til et plagg med sadelskulder
26.04.2024 - 11:23Vibeke wrote:
Ang bærestykkeøkning. Jeg skjønner ikke helt hvordan jeg skal finne riktig maske å sette merkene i. Skal jeg telle meg ut fra midt bak?
23.01.2024 - 22:16DROPS Design answered:
Hei Vibeke, Du teller fra begynnelsen av omgangen, riktig antall masker og setter merket før neste masken, tell igjen riktig antall masker og setter merket før neste masken, osv. God fornøyelse!
24.01.2024 - 06:39Nettan wrote:
Hej! Stickar denna i strl S och ska snart börja göra resåren i slutet. Funderar över varför jag ska öka med hela 63maskor innan resår? Låter väldigt mycket?! På den ritande bilden ser det ut som det är väldigt rakt från ärmhålan ner till resåren!! Hur ser tröjan ut på? Bilderna visar inte riktigt detta Mvh
17.11.2023 - 15:58DROPS Design answered:
Hei Nettan. Jo, det skal økes før man strikker vrangborden. Dette gjøres for å få en pen overgang mellom fram-og baskstykket. Når man bytter til mindre pinne str. og øker masker masker før vrangbord vil man få samme mål det er under ermhullet og vrangborden (rakt från ärmhålan ner till resåre). Om man ønsker en trangere/smalere vrangbord, man kan la være å øke masker før vrangbord, bare husk å ha et maskeantallet vrangborden går opp i. mvh DROPS Design
20.11.2023 - 09:12Margaretha wrote:
Hej! Jag stickar tröjan 239-16 på rundsticka. När jag lagt upp maskor för ärmen har jag svårt för att fortsätta sticka vidare, jag når inte fram med stickorna så jag kan fortsätta. Hur ska jag göra för att fortsätta?
16.09.2023 - 21:43DROPS Design answered:
Hei Margaretha Kan være litt stramt men bruk en settpinne til hjelp. Strikk noen masker med en settpinne før du setter maskene på rundpinnen igjen. Vil bli lettere etter noen omganger. mvh DROPS Design
18.09.2023 - 14:22Katharine wrote:
Thank you so much for your quick answer. This is very helpful. Now I can go on knitting :)
14.09.2023 - 09:44Katharine wrote:
Hello I have again a question concerning the short rows it says in the first row - turn when 2 stitches have been worked past 2nd marker- does the increase stitch count as one and do I knit another additional stitch and then turn? And do I always repeat this the same way till row 7? Thank you once more for your help.
13.09.2023 - 23:57DROPS Design answered:
Hi Katharine, The 2 stitches which are worked after the marker do not include the increase, and the same applies to all the short rows (so work the increase after the marker, then work 2 more stitches before turning). Happy knitting!
14.09.2023 - 06:43Katharine wrote:
Thank you very much for your quick answer. I did make a new gauge with the size 4 needles and had 24 stitches. So I decided to work with the size 4 and 3 needles as I prefer to have the pullover bigger then the size M. I'll see how it goes and hope it works out well. I've noticed that the models are different and I'm learning to look at the measurements more acurately that I then choose the correct size :)
04.09.2023 - 12:39Katharine wrote:
Hello I have a question concerning the swatch. I knitted 10 cm with the needle size 3.5 and had 26 stitches for the whidth, that means 2 stitches more then the mentioned 24 stitches. I would prefere the size M but a little bit bigger (but not the size L). What would you advise me to do? Thank you for your help.
02.09.2023 - 11:26DROPS Design answered:
Dear Katharine, you could try using a 4mm needle, for the swatch. On another hand, with your gauge, if you work the stitches for the M size you will obtain the measurements of the L size. You can use the stitch count for the S size and you will obtain the measurements for the M size. Take into account that often, when starting to work, the gauge may vary from the initial one and will become looser. Happy knitting!
03.09.2023 - 22:57Bea wrote:
Ciao, È il mio primo progetto grande e volevo capire come seguire lo schema descritto come A. 1. Sto lavorando con i ferri circolari 2.5 e ho appena finito il bordo del collo doppio. Grazie in anticipo per l'aiuto.
30.06.2023 - 07:35Melissa wrote:
Is there a video tutorial on attaching the sleeve to the saddle shoulder? Or could you give me a bit more of a detailed instruction on how to do so? Thank you!
25.05.2023 - 19:00DROPS Design answered:
Dear Melissa, in this video we show (for another pattern) how to work such a saddle shoulder and, from time code 4:43 how to sew the cast on stitches for sleeve onto the cast off stitches. Happy knitting!
26.05.2023 - 10:01