DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15335.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Winter Owl Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Flora og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, laskalínu og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 243-2
DROPS Design: Mynstur fl-084
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-250-300-300-350 g litur 01, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
225-225-250-275-300-350 g litur 01, natur

TÖLUR:
DROPS TALA NR 522: 6-6-7-7-8-8 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í DROPS Flora og 2 þráðum DROPS Kid-Silk = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15335.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.3 og A.6. . Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð á berustykki. Síðan er fellt af fyrir 5-5-6-6-7-7 næstu hnappagötum með ca 10-10-9-9-8-8½ cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 78-82-86-90-94-98 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Flora og 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið 2 lykkjur slétt. Prjónið stroff svona fram og til baka þar til stykkið mælist 5 cm.
Í næstu 2 umferðum eru fitjaðar upp 6 nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar – nýjar lykkjur eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan (kantlykkjur að framan) = 90-94-98-102-106-110 lykkjur.
Haldið áfram með stroff og kantlykkjur að framan í garðaprjóni þar til stykkið mælist ca 10 cm (kantur í hálsmáli er síðar brotinn saman tvöfalt þannig að kanturinn verði 5 cm). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 23 lykkjur jafnt yfir í umferð (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 113-117-121-125-129-133 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Setjið eitt prjónamerki innan við kantlykkjur að framan í annarri hliðinni, berustykkið er mælt héðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið mynstur frá réttu þannig:
Prjónið yfir vinstra framstykki þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1, A.2 (yfir 5-5-5-5-5-10 lykkjur), A.3.
Prjónið yfir vinstri ermi þannig: Prjónið A.4, A.5 og A.4.
Prjónið yfir bakstykki þannig: Prjónið A.6, A.7 (yfir 11-11-11-11-11-21 lykkjur) og A.3.
Prjónið yfir hægri ermi þannig: Prjónið A.4, A.5 og A.4.
Prjónið yfir hægra framstykki þannig: Prjónið A.6, A.7 (yfir 5-5-5-5-5-10 lykkjur), A.1 og prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – í þessari umferð byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan.
Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í A.3, A.5 og A.6 (þ.e.a.s. lykkjur eru auknar út við hvert A.4, aukið er út alls 8 lykkjur í hverri umferð frá réttu).
Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum snúnar inn í mynstur, það á ekki að myndast gat.
Kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni að loka máli.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Mynsturteikning A.1, A.2, A.4 og A.7 er endurtekin á hæðina. Þegar mynsturteikning A.3, A.5 og A.6 hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina heldur útaukning áfram á sama hátt og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og áður.

Aukið út eins og útskýrt er að ofan þar til aukið hefur verið út alls 17-19-23-25-27-30 sinnum (meðtalin útaukning sem er sýnd í A.3, A.5 og A.6) = 249-269-305-325-345-373 lykkjur. Síðan er haldið áfram með garðaprjón yfir garðaprjón og sléttprjón yfir sléttprjón þar til stykkið mælist 20-22-23-25-27-30 cm frá prjónamerki.
Nú skiptist berustykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki frá réttu þannig:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 37-39-44-48-51-57 lykkjur sléttprjón (vinstra framstykki), setjið næstu 43-49-57-59-63-65 lykkjur á þráð (ermi), fitjið upp 8-10-10-10-10-8 lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 76-80-90-98-104-116 lykkjur sléttprjón (bakstykki), setjið næstu 43-49-57-59-63-65 lykkjur á þráð (ermi), fitjið upp 8-10-10-10-10-8 lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 38-40-45-49-52-58 lykkjur sléttprjón og endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 179-191-211-227-239-259 lykkjur.
Prjónið sléttprjón með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 33-33-34-34-34-33 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð frá réttu þar sem aukið er út um 23-27-27-31-31-35 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið yfir kantlykkjur að framan) = 202-218-238-258-270-294 lykkjur. Prjónið 1 umferð eins og áður frá röngu.
Síðan er prjónað stroff þannig (fyrsta umferð er frá réttu):
Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Stykkið mælist ca 63-65-67-69-71-73 cm frá kanti í hálsmáli.

ERMI:
Setjið 43-49-57-59-63-65 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-10-10-10-10-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 51-59-67-69-73-73 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í nýjar lykkjur. Prjónið hringinn í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA!
Fækkið lykkjum svona með 6-4-2½-2½-2-1½ cm millibili alls 5-7-11-11-13-12 sinnum = 41-45-45-47-47-49 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 33-31-31-29-28-25 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-7-7-9-9-11 lykkjur jafnt yfir = 48-52-52-56-56-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm.
Fellið af þegar ermin mælist 39-37-37-35-34-31 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan. Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 13.10.2023
Efnismagn leiðrétt og upplýsingar um prjónfestu
Yfirfarið á vefsvæði: 07.12.2023
Mynsturteikning hefur verið uppfærð. Leiðrétting undir berustykki í öllum stærðum.
Yfirfarið á vefsvæði: 05.04.2024
Leiðrétting á berustykki og skiptingu fyrir ermar og fram- og bakstykki.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það á ekki að myndast gat.
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Talli Cedar wrote:

For size S: before beginning pattern we have 136sts. Pattern inc. 17 times × 8 sts = 136, which brings us to 249sts before division for body and arms. According to the instructions we are supposed to have at this point 151sts, so either there should be an indication of an additional 2sts increase, or the total should be modified to 149 and incluse (for example) a back made up of 74sts instead of 76.

10.03.2024 - 12:49

country flag Linnea wrote:

Det blir för många maskor kvar efter första varvet stickat utifrån diagrammet. Det ska vara 113 maskor på stickan (storlek s) och 101 maskor man ska sticka diagram över om man tar bort framkantsmaskorna. Men diagrammet är bara över 96 maskor?

07.03.2024 - 11:33

DROPS Design answered:

Hej Linnea. Du stickar såhär i storlek S (framkantmaskorna ej medräknade): 1+5+1+16+5+16+1+11+1+16+5+16+1+5+1 = 101 m. Mvh DROPS Design

08.03.2024 - 10:38

country flag Danielle wrote:

Hello, diagram A7 is drawn as 5sts but explained in the text as 11sts (for size S). Please help me understand how to knit the 11sts according to the pattern. Danielle

06.03.2024 - 09:26

DROPS Design answered:

Dear Danielle, work the 5 sts in A.7 a total of 2 times then work the first stitch in A.1, that way pattern is symmetrical: it starts and ends the same way. Happy knitting!

06.03.2024 - 11:45

country flag Talli Cedar wrote:

Hello, I started knitting size S. The diagram is only corrected in the text, where A.7 appears to be 11sts, but in the diagram itself it still appears as 5sts, and so I am not sure how to knit the pattern for this part of the diagram. Your assistance will be very much appreciated as this pattern is lovely. Talli

06.03.2024 - 09:24

DROPS Design answered:

Dear Mrs Cedar, repeat A.1 over the next 11 stitches, ie repeat diagram a total of 2 times in width, then work the first stitch in A.1 - so that the pattern will be symmetrical, starting and ending the same way. Happy knitting!

06.03.2024 - 11:45

country flag Annette wrote:

I got lost in the first row of the yoke! Icannot understand how I'm work all those diagrams in the same row. too many stitches left in my left needle. the way the pattern is explained is confuse. Why don"t you give everybody the oportunity to translate the other people's questions and comments?

05.03.2024 - 16:24

country flag Anne Andersson wrote:

Jag ska nu börja med ok. Och undrar över hur många maskor som hör till vänster/höger framstycke, armar och rygg?

13.02.2024 - 21:48

DROPS Design answered:

Hej Anne, hvilken størrelse strikker du?

23.02.2024 - 09:46

country flag Vittoria Enimmi wrote:

Buongiorno, Sto facendo il cardigan 243 -2 e ho un problema con il numero di maglie. Taglia S ,sprone: quando dice A.6,A.7(11 maglie) dallo schema conto A. 6 1 maglia e 1 gettato e A.7 5 maglie. Come ottengo 11 maglie? Ripeto A.7 ? Grazie. Vittoria

05.01.2024 - 22:26

DROPS Design answered:

Buonasera Vittoria, le 11 maglie tra parentesi sono riferite ad A.7 e significa che deve lavorare 11 maglie con il motivo A.7. Buon lavoro!

09.01.2024 - 20:17

country flag Tineke Adema wrote:

Ik begrijp niet wat er met de steken tussen haakjes wordt bedoeld ( pas na a2 staat 5 steken, na A7 11 steken, als ik A2 5 keer brei en A7 11 keer komt het niet uit..

25.12.2023 - 20:03

DROPS Design answered:

Dag Tineke,

Het getal tussen haakjes geeft het aantal steken aan wat je van dat patroon moet breien, dus van A.2 brei je 5 steken en van A.7 brei je 11 steken (wat neer komt op 2 keer het patroon in de breedte herhalen, plus nog 1 steek.

01.01.2024 - 13:25

country flag Bernadette wrote:

☺️ j’ai trouvé mon erreur , merci et belles fêtes

14.12.2023 - 13:51

country flag Bernadette wrote:

Modèle 243/2 Pour le dos , es bien correcte A6 A7(11mailles) et A3?en suivant tous les diagrammes je n’arrive pas au nombre de mailles . Merci

13.12.2023 - 18:18

DROPS Design answered:

Bonjour Bernadette, pouvez-vous nous indiquer quelle taille vous tricotez? Nous pourrons ainsi vérifier ensemble. Merci pour votre compréhension.

14.12.2023 - 08:09