DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 570.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15720.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Winter Owl Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Nord og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 243-1
DROPS Design: Mynstur no-075
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-350-350-400-450 g litur 01, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
225-225-250-275-300-350 g litur 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði DROPS Nord og 2 þráðum DROPS Kid-Silk = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 570.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15720.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.2 og A.5.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 76-80-84-88-92-96 lykkjur með 1 þræði DROPS Nord og 2 þráðum DROPS Kid-Silk yfir stuttan hringprjón 4,5 og stuttan hringprjón 5,5 sem haldið er saman.
Dragið út stutta hringprjón 5,5 og haldið lykkjum eftir á stuttum hringprjóni 4,5. (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 10 cm.
Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður jafnframt því sem 4. hver lykkja er prjónuð saman með 4. hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24 lykkjur jafnt yfir = 100-104-108-112-116-120 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Setjið eitt prjónamerki í stykkið, berustykkið er nú mælt héðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5,5 og prjónið mynstur þannig (byrjun á umferð er á bakstykki):
Prjónið A.1 yfir 5-5-5-5-5-10 lykkjur, A.2 (ca hálft bakstykki), A.3, A.4, A.3 (ermi), A.5, A.6 yfir 11-11-11-11-11-21 lykkjur, A.2 (framstykki), A.3, A.4, A.3 (ermi), A.5, A.6 yfir 6-6-6-6-6-11 lykkjur (afgangur af bakstykki).
Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í A.2, A.4 og A.5 (þ.e.a.s. lykkjur eru auknar út í hverri einingu af A.3, aukið er út alls 8 lykkjur í annarri hverri umferð). Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum snúnar inn í mynstur, það á ekki að myndast gat.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Mynsturteikning A.1, A.3 og A.6 er endurtekið á hæðina. Þegar mynsturteikning A.2, A.4 og A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina heldur útaukning áfram á sama hátt og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og áður.

Aukið út eins og útskýrt er að ofan þar til prjónað hefur verið alls 17-19-23-25-27-30 sinnum (ásamt útaukningum sem sýndar eru í A.2, A.4 og A.5) = 236-256-292-312-332-360 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður án útaukninga þar til stykkið mælist 20-22-23-25-27-30 cm frá prjónamerki.
Nú skiptist berustykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki frá byrjun á umferð þannig:
Prjónið 37-39-44-48-51-57 lykkjur sléttprjón (ca hálft bakstykki), setjið næstu 43-49-57-59-63-65 lykkjur á þráð (ermi), fitjið upp 8-10-10-10-10-8 lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 75-79-89-97-103-115 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 43-49-57-59-63-65 lykkjur á þráð (ermi), fitjið upp 8-10-10-10-10-8 lykkjur í hlið undir ermi, prjónið síðustu 38-40-45-49-52-58 lykkjur í sléttprjóni (afgangur af bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað til loka fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 166-178-198-214-226-246 lykkjur.
Prjónið hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 33-33-34-34-34-33 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 26-26-30-30-34-34 lykkjur jafnt yfir = 192-204-228-244-260-280 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Stykkið mælist ca 63-65-67-69-71-73 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 43-49-57-59-63-65 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-10-10-10-10-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 51-59-67-69-73-73 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í nýjar lykkjur. Prjónið hringinn í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA!
Fækkið lykkjum svona með 6-4-2½-2½-2-1½ cm millibili alls 5-7-11-11-13-12 sinnum = 41-45-45-47-47-49 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 33-32-31-29-28-25 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-7-7-9-9-11 lykkjur jafnt yfir = 48-52-52-56-56-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm.
Fellið af. Ermin mælist alls 39-38-37-35-34-33 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 13.10.2023
Efnismagn hefur verið leiðrétt og upplýsingar um prjónfestu.
Yfirfarið á vefsvæði: 07.12.2023
Mynsturteikning A.5 hefur verið uppfærð. Leiðrétting undir berustykki í öllum stærðum.
Yfirfarið á vefsvæði: 15.01.2024
Uppskriftin hefur verið yfirfærð og uppfærð. Leiðrétting á lykkjufjölda í lok berustykkis á fram- og bakstykki í öllum stærðum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu
symbols = brugðin lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það á ekki að myndast gat.
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (81)

country flag Elke wrote:

Wie teile ich die 104 Maschen der Passe für Rücken, Vorderteil und Ärmel auf. Diese Angabe fehlt. Danke

22.04.2024 - 23:53

DROPS Design answered:

Liebe Elke, so stricken Sie die 104 Maschen: A.1 über 5 Maschen, A.2 (2 Maschen) (= ca. halbes Rückenteil) A.3 (16 Maschen), A.4 (5 Maschen), A.3 (16 Maschen) (= Ärmel), A.5 (2 Maschen), A.6 über 11 Maschen, A.2 (2 Maschen) (= Vorderteil), A.3 (16 Maschen), A.4 (5 Maschen), A.3 (16 Maschen) (= Ärmel), A.5 (2 Maschen), A.6 über 6 Maschen (restliches Rückenteil) = 5+2+16+5+16+2+11+2+16+5+16+2+6=104 Maschen. Viel Spaß beim Stricken!

23.04.2024 - 08:37

country flag Fracinel wrote:

Bonjour,je ne comprend pas A5,A6 au dessus des 11 mailles ( X L ) \r\nA 5=4 MAILLES A 6=5 MAILLES = 9 mailles et non 11 mailles

14.04.2024 - 12:27

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Fracinel, quand on tricote A.6 au-dessus des 11 mailles suivantes, vous tricotez 2 fois les 5 mailles de A.6 et vous terminez par la 1ère maille de A.6 (ainsi le motif commence et se termine de la même façon. Effectivement, A.5 = 4 mailles en taille XL mais A.5 n'est pas à répéter en largeur, c'est A.6 que l'on va répéter pour avoir 11 mailles. Bon tricot!

15.04.2024 - 08:38

country flag Francinel wrote:

Magnifique nais incompréhensible dommage j'ai essayé plusieurs fois, Je ne comprend pas ça ne correspond pas

14.04.2024 - 11:50

country flag Johanna wrote:

Hei! Olen tekemässä neuleen M -koossa, ja minua mietityttää mallikerta A.6. Laskin silmukat joita on 104 lähtiessäni tekemään kaarroketta, mutta jos ohjeen mukaan tekisin A.6. kaavaa, minulla pitäisi olla 106 silmukkaa (taakse 11+6 silmukkaa vaikka kyseessä on 5 silmukan malli). Mikä kohta tässä jää minulta ymmärtämättä?

06.04.2024 - 20:43

DROPS Design answered:

Hei, tarkistin mallineuleen silmukkaluvut, mutta en löytänyt virhettä. Neulo seuraavasti: A.1 (5 s), A.2 (2 s), A.3 (16 s), A.4 (5 s), A.3 (16 s), A.5 (2 s), A.6 (11 s), A.2 (2 s), A.3 (16 s), A.4 (5 s), A.3 (16 s), A.5 (2 s) ja A.6 (6 s) = 104 s.

15.04.2024 - 18:16

country flag Sar wrote:

If I plan to make the sweater 10cm shorter, do I still need to increase 26 stitches (sizeS) on the front/back before I do the rib?

10.03.2024 - 20:37

DROPS Design answered:

Dear Sir, sure as these increases are worked to avoid the ribbing edge for being too tight; as you need more stitches with smaller needles and rib than for stocking stitch with larger needles. Happy knitting!

11.03.2024 - 08:56

country flag Donata wrote:

Buonasera. Ho iniziato a lavorare il maglione Winter Owl Sweater nella taglia xl. Non mi è chiaro come devo continuare quando si dice: "Ripetere i diagrammi A.1, A.3 e A.6. Alla fine dei diagrammi A.2, A.4 e A.5, continuare ad aumentare come prima e lavorare gli aumenti a ritorto come prima fino a quando gli aumenti sono stati lavorati per un totale di 17-19-23-25-27-30 volte (compresi gli aumenti in A.2, A.4 e A.5) = 236-256-292-312-332-360 maglie". Sono al mio primo lavoro.

20.02.2024 - 19:15

DROPS Design answered:

Buongiorno Donata, i diagrammi A.1, A.3 e A.6 sono più piccoli rispetto agli altri e vengono ripetuti più volte durante la lavorazione degli altri diagrammi. Buon lavoro!

21.02.2024 - 08:48

country flag Dorrie wrote:

Beautiful jumper but I find after the first row I am left with 2 stitches left over. I have checked and rechecked with 14 stitches over front and back to make 28 and 37 for each sleeve including the raglan makes 74 total of 102. Also I noticed it had corrections but I can’t find them

17.02.2024 - 05:49

DROPS Design answered:

Dear Dorrie, the corrections at the bottom of the page are indications for the people who printed the pattern before we updated it for the correct version. The version now online has the corrections applied already. In the raglan, for size M, you should have: first half of the back: 7 stitches (A.2 is 2 stitches for size M), sleeve: 37 stitches, front piece: 15 stitches (A.5 and A.2 is 2 stitches for size M), sleeve 37 stitches, second half of the back piece: 8 stitches (A.5 is 2 stitches for size M). So you have 15 stitches in each body piece (front and back) and 37 in each sleeve = 104 stitches + the increases in the charts. Happy knitting!

18.02.2024 - 22:09

country flag Sylvaine wrote:

Bonjour, J.ai entrepris de faire la taille M j.ai recommencé 2 fois l’empiècement mais les nombres de mailles ne correspondent pas finalement je me suis inspirée des photos et j.ai fait ma propre répartition de mailles. C.est dommage c.est un joli pull . Il faudrait reprendre les explications correctement. C.est la première fois que je trouve un modèle qui a des erreurs.

01.02.2024 - 17:38

country flag Monique wrote:

I have knit 17 rounds with increases chart for A4 complete after that increased only 1 before and after raglan, divide sleeves says 43 but i have 47,A3 16 A4 15 A3 16(47) do i borrow 4 stitches from the sleeves for the back and front? my front stitches are nowhere near the required 75? Thank you for clarifying this, so keep going with increases for front and back after A3 on each side till I have 75 in the front? including the extra 4 sleeve stitiches?

31.01.2024 - 21:36

DROPS Design answered:

Dear Monique, the stitches in A.3 will be divided into body and sleeves, if you get the correct total number of stitches ie 236 in S, just divide stitches for body and sleeves as explained (14 sts from A.3 go to the front/back piece while just the last 2 /first 2 sts A.3 belong to sleeves. Happy knitting!

01.02.2024 - 08:48

country flag Monique wrote:

So I think this makes more sense, I got 100, I need 37 for each sleeve, So i have 13 for the front and 13 back, right? So now I can start working on the charts? I find the beginning of your patterns always extremely difficult ,been knitting for 50 years, its always trying to understand the marker placements, once i got this the rest is easier,

30.01.2024 - 21:07

DROPS Design answered:

Dear Monique, correct, work the 100 sts as follows starting from mid back: A.1 (5 sts), A.2 (1 st), ( 6 sts for half back piece), A.3 (16 sts raglan), A.4 (5 sts), A.3 (16sts raglan) (37 sts sleeve including raglan sts), A.5 (1 st), A.6 (11 sts), A.2 (1 st) (13 sts front piece), A.3 (16sts raglan), A.4 (5 sts), A.3 (16 sts raglan) (37 sts including raglan sts for sleeve), A.5 (1 st), A.6 (6 sts) (7 sts for halfback piece). Hope this can help. Happy knitting !

31.01.2024 - 08:39