DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10472.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Emerald Lake Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með háum kanti í hálsmáli, laskalínu, köðlum og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.

DROPS 244-11
DROPS Design: Mynstur sk-183
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

GARN:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-450-450-500-550 g litur 06, sægrænn

TÖLUR:
DROPS TALA NR 623: 6-6-7-7-7-7 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10472.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju á eftir/undan A.2/A.3. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.
Uppslátturinn er prjónaður frá röngu á undan og eftir A.2/A.3 þannig:
Á UNDAN A.2/A.3:
Prjónið uppsláttinn snúinn slétt, það á ekki að myndast gat.
Á EFTIR A.2/A.3:
Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, stingið inn vinstri prjóni í lykkjuna og setjið til baka yfir á vinstri prjón (uppslátturinn er snúinn), prjónið uppsláttinn brugðið, það á ekki að myndast gat.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, það á ekki að myndast gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu á eftir stroffi í hálsmáli.
Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-8-8-8½-9 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Hár kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna.

HÁR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 130-130-130-142-142-142 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Sky.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 8 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 1-1-1-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur slétt, A.1, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 5 sinnum, 2 lykkjur slétt, A.1, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 3-3-3-4-4-4 sinnum, 2 lykkjur slétt, A.1, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 5 sinnum, 2 lykkjur slétt, A.1, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 1-1-1-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur slétt, 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 10-10-10-11-11-11 cm – endið eftir umferð frá röngu. Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið 1 prjónamerki í stykkið á eftir kanti að framan í byrjun á umferð. Stykkið er síðar mælt frá þessu prjónamerki.
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið sléttprjón yfir næstu 6-6-6-10-10-10 lykkjur og fækkið jafnframt um 2-0-0-3-1-1 lykkjur jafnt yfir, aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, prjónið A.2 yfir lykkjur í A.1, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið sléttprjón yfir næstu 22 lykkjur og fækkið jafnframt um 2 lykkjur jafnt yfir, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.2 yfir lykkjur í A.1, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið sléttprjón yfir næstu 14-14-14-18-18-18 lykkjur og fækkið jafnframt um 6-2-2-4-0-0 lykkjur jafnt yfir, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.2 yfir lykkjur í A.1, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið sléttprjón yfir næstu 22 lykkjur og fækkið jafnframt um 2 lykkjur jafnt yfir, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.2 yfir lykkjur í A.1, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið sléttprjón yfir næstu 6-6-6-10-10-10 lykkjur og fækkið jafnframt um 2-0-0-3-1-1 lykkjur jafnt yfir, endið með 8 lykkjur í garðaprjóni – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – lesið útskýringu að ofan.
Nú hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu og það eru 148-156-156-160-168-168 lykkjur í umferð.
Prjónið til baka frá röngu með 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan, sléttprjón og síðasta umferð í A.2 í hverri skiptingu á milli framstykkja / bakstykkis og erma – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina.

Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni, 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2 í hverri skiptingu á milli framstykkja / bakstykkis og erma. A.3 er endurtekið á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Að auki heldur útaukning áfram fyrir LASKALÍNA í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 7-12-15-14-13-9 sinnum, ásamt útaukningu í fyrstu umferð á eftir stroffi í hálsmáli = 196-244-268-264-264-232 lykkjur.
Síðan heldur útaukningin áfram fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykkjum / bakstykki. Þ.e.a.s. það er aukið út á framstykkjum / bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð (aukið er út til skiptis 4 og 8 lykkjur).
Aukið svona út 22-18-18-20-22-30 sinnum á framstykkjum / bakstykki og 11-9-9-10-11-15 sinnum á ermum.
Nú eru 328-352-376-384-396-412 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 22-23-25-26-27-30 cm frá prjónamerki eftir stroff í hálsmáli.
Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 58-61-64-66-69-73 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 56-62-68-68-68-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-16-20-24 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 100-106-112-116-122-130 lykkjur eins og áður (bakstykki), setjið næstu 56-62-68-68-68-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-16-20-24 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 58-61-64-66-69-73 lykkjur eins og áður (framstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 232-248-264-280-300-324 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-10-12-16-20-24 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu – það á að nota þá þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið.
Prjónið fram og til baka í sléttprjóni með 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og A.3 eins og áður (þær 8-10-12-16-20-24 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi eru prjónaðar í sléttprjóni).
Þegar stykkið mælist ca 23-24-24-25-26-25 cm frá skiptingu – stillið af að síðasta umferð sé prjónuð frá réttu og það hafa verið prjónaðar 2 eða 4 umferðir á eftir umferð með snúningi í kaðli, skiptist stykkið upp við báða merkiþræðina og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 62-66-70-74-79-85 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu þar sem lykkjum er aukið út jafnt yfir þannig: Prjónið 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið sléttprjón yfir næstu 33-36-39-41-44-48 lykkjur og aukið jafnframt út um 5-6-7-5-6-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið ÚTAUKNING, prjónið A.4 yfir lykkjur í A.3, prjónið sléttprjón yfir næstu 3-4-5-7-9-11 lykkjur og aukið jafnframt út 0-3-2-4-2-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, endið með 1 lykkju í garðaprjóni = 67-75-79-83-87-95 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig:

STÆRÐ XS:
2 lykkjur í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, prjónið A.4 yfir lykkjur í A.3, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 9 sinnum, prjónið 2 lykkjur slétt og 8 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 56 cm frá öxl.

STÆRÐ S, M, L, XL og XXL:
2 lykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 1-1-2-2-3 sinnum, 2 lykkjur slétt, prjónið A.4 yfir lykkjur í A.3, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 10-11-11-12-13 sinnum, 2 lykkjur slétt og 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 62-66-70-74-79-85 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu þar sem lykkjum er aukið út jafnt yfir þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið sléttprjón yfir næstu 3-4-5-7-9-11 lykkjur og aukið jafnframt út um 0-3-2-4-2-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.4 yfir lykkjur í A.3, prjónið sléttprjón yfir næstu 33-36-39-41-44-48 lykkjur og aukið jafnframt út 5-6-7-5-6-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, endið með 8 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 67-75-79-83-87-95 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig:

STÆRÐ XS:
8 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 9 sinnum, 2 lykkjur slétt, prjónið A.4 yfir lykkjur í A.3, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm. Fellið af aðeins laust.

STÆRÐ S, M, L, XL og XXL:
8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 10-11-11-12-13 sinnum, 2 lykkjur slétt, prjónið A.4 yfir lykkjur í A.3, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 1-1-2-2-3 sinnum, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm. Fellið af aðeins laust.

BAKSTYKKI:
= 108-116-124-132-142-154 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu þar sem lykkjum er aukið út jafnt yfir þannig: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið sléttprjón yfir næstu 3-4-5-7-9-11 lykkjur og aukið jafnframt út 0-3-2-4-2-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.4 yfir lykkjur í A.3, prjónið sléttprjón yfir næstu 66-72-78-82-88-96 lykkjur og aukið jafnframt út 8-10-12-12-14-14 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.4 yfir lykkjur í A.3. prjónið sléttprjón yfir næstu 3-4-5-7-9-11 lykkjur og aukið jafnframt út 0-3-2-4-2-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, endið með 1 lykkju í garðaprjóni = 116-132-140-152-160-176 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig:

STÆRÐ XS:
2 lykkjur í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, prjónið A.4 yfir lykkjur í A.3, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 18 sinnum, 2 lykkjur slétt, prjónið A.4 yfir lykkjur í A.3, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm. Fellið af aðeins laust.

STÆRÐ S, M, L, XL og XXL:
2 lykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 1-1-2-2-3 sinnum, 2 lykkjur slétt, A.4 yfir lykkjur í A.3, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 20-22-23-25-27 sinnum, 2 lykkjur slétt, prjónið A.4 yfir lykkjur í A.3, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 1-1-2-2-3 sinnum, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm. Fellið af aðeins laust.

ERMI:
Setjið 56-62-68-68-68-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-16-20-24 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 64-72-80-84-88-92 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi – mitt í 8-10-12-16-20-24 lykkjur.
Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 4-4-3-3-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 8½-4½-3-2½-2½-2 cm millibili alls 4-7-10-11-12-13 sinnum = 56-58-60-62-64-66 lykkjur.
Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 34-34-33-32-32-30 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-14-16-18-16-18 lykkjur jafnt yfir - munið eftir ÚTAUKNING = 68-72-76-80-80-84 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroffprjón hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 42-42-41-40-40-38 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.
Ef óskað er eftir að hafa tvöfaldan kant í hálsmáli, er hægt að brjóta stroffið niður að innanverðu á stykki og festa með nokkrum sporum við hverja laskalínu.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, það á ekki að myndast gat
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 244-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Tigresse wrote:

Bonjour, Je trouve ce modèle sympa, mais il n'y a pas la taille 3XL. J'aimerais savoir si ce modèle taille grand s'il vous plaît ? Si oui, pensez-vous que la taille 2XL conviendrait? Merci d'avance pour vôtre réponse.

03.05.2024 - 13:04

DROPS Design answered:

Bonjour Tigresse, pour trouver votre taille, mesurez un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma en bas de page; retrouvez ici plus d'infos sur les tailles, et tous les modèles en 3XL ici, n'hésitez pas à ajouter des filtres si besoin. Bon tricot!

03.05.2024 - 15:47

country flag Anneke Meier wrote:

Jammer dat de fout in de berekening van de hals niet is gecorrigeerd! Hopelijk wordt dit alsnog gedaan en hoeven de volgende breisters het niet uit te halen zoals ik nu heb moeten doen.

19.12.2023 - 13:59

country flag Julia wrote:

Thank you. i am trying to know what is considered the front piece and the back piece there are 8 raglan increase places, but which are the 2 front and the 2 back...it is hard to tell after which parts?..

12.12.2023 - 17:34

DROPS Design answered:

Dear Julia, you work from one band to the other band. So the first stitches are the left front piece, 1st raglan line, left sleeve stitches, 2nd raglan line, back piece, 3rd raglan line, right sleeve stitches, 4th raglan line, right front piece. The increases are worked on each side of A.2. So, the increases for the body would be: before A.2 in the 1st raglan line (left front piece), after A.2 in the 2nd raglan line (= back piece), before A.2 in the 3rd raglan line (= back piece), after A.2 in the 4th raglan line (= right front piece). Happy knitting!

17.12.2023 - 17:59

country flag Julia wrote:

Hello, I am knitting the yoke and am at "Continue to increase for raglan every 2nd row but every 2nd increase is only on the front and back pieces, i.e., increase on the front and back pieces every 2nd row and on the sleeves every 4th row (alternately 4 and 8 increased stitches). " where is the delineation of front and the back .... i know the sleeves are where the "increases for raglan" are done but where do i do the increases for front and back only every 2nd row? thx

12.12.2023 - 15:16

DROPS Design answered:

Daer Julia, you will continue increasing for raglan just as before, but you will now increase alternately 4 sts (front pieces and back piece only) and 8 sts (front pieces, sleeves and back piece, just as before). This means for body increase at the end of left front piece and back piece and increase at the beg of back piece and right front piece. Happy knitting!

12.12.2023 - 17:08

country flag Marieke Venema wrote:

De berekening bij de hoge hals klopt niet. Er staat een rekenfout in de vertaling. Hierdoor missen ee 8 steken. Daar waar staat dat *-* 4 x herhaald moet worden staat in de originele versie dat dit 5x herhaald moet worden. In dat geval klopt het wel.

06.10.2023 - 18:53

country flag Birgit wrote:

Hallo, ich verstehe leider nicht wo die Vorderteile bzw. das Rückenteil anfängen bzw. aufhören. Und deshalb verstehe ich auch das nicht: "Dann die Raglanzunahmen in jeder 2. Reihe weiterarbeiten, aber bei jedem 2. Mal, wenn zugenommen wird, nur an den Vorderteilen/am Rückenteil zunehmen. D.h. an den Vorderteilen/am Rückenteil wird weiter in jeder 2. Reihe zugenommen und an den Ärmeln nur noch in jeder 4. Reihe". Ist vor A3 jede 2. Reihe und nach A3 jede 4. Reihe?

04.10.2023 - 14:19

country flag Jun wrote:

I don't know where I'm getting this wrong but the starting point on the neck doesnt add up. There's only 122sts following the written pattern for xs~m size pattern and I keet getting 8 sts left. 8garter+6rib+11(a1)+18rib+11(a1)+14rib+11(a1)+18rib+11(a1)+6rib+8garter=122st

12.09.2023 - 02:15

DROPS Design answered:

Dear Jun, between A.1 you shouldn't have 18 sts for sleeve but 22 sts instead: work*k2, p2* and repeat 4 more times = 5 times in total = 20 sts + K2 = 22 sts in total. Happy knitting!

12.09.2023 - 09:35

country flag Lígia Rodrigues wrote:

Juliet

07.08.2023 - 10:12

country flag Petra wrote:

Caroleen

03.08.2023 - 22:55

country flag Mariela wrote:

Climbing Fern

03.08.2023 - 14:26