DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8294.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Sommervind

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, tvöföldum kanti í hálsmáli, gatamynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 248-15
DROPS Design: Mynstur z-1019
Garnflokkur A + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-300-300-350-350 g litur 100, natur
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-150-175-175-200-225 g litur 20, bleikur sandur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd og 17 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir) = 10 x 10 cm.
13 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með gatamynstri (A.2) = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8294.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu eru notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið með þá lengd sem passar og skiptið eftir þörf.
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá skiptingunni á milli bakstykkis og hægri ermi, ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Fram- og bakstykki skiptist fyrir klauf og síðan er prjónað fram og til baka hvort stykki fyrir sig. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 84-88-88-96-100-104 lykkjur á prjóna 5,5 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk.
Skiptið yfir á prjón 4,5 (fitjað er upp á grófari prjóna þannig að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 13 cm. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli tvöfalt og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 6 cm.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á prjón 5,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 16-16-16-20-20-20 lykkjur jafnt yfir = 68-72-72-76-80-84 lykkjur. Setjið 1 merki hér, berustykkið er mælt frá þessu merki.
Setjið 4 merkiþræði í stykkið án þess að prjóna þannig: Setjið einn merkiþráð í byrjun á umferð, teljið 10 lykkjur (ermi), setjið 1 merkiþráð, teljið 24-26-26-28-30-32 lykkjur (framstykki), setjið 1 merkiþráð, teljið 10 lykkjur (ermi), setið 1 merkiþráð, það eru 24-26-26-28-30-32 lykkjur á eftir síðasta merkiþræði (bakstykki).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Nú er mynstrið prjónað og aukið er út fyrir laskalínu, útaukning fyrir laskalínu er teiknuð inn í mynsturteikningu.
Fyrsta umferðin er prjónuð þannig: * Prjónið 1 lykkju slétt, A.1, A.2 yfir næstu 4 lykkjur, A.3, 2 lykkjur slétt (merkið situr á milli þessa 2 lykkja), A.1, A.2 yfir næstu 18-20-20-22-24-26 lykkjur, A.3, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Haldið áfram að prjóna og auka út eins og útskýrt er í mynsturteikningu í 2. hverri umferð. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka hefur verið aukið út alls 12 sinnum fyrir laskalínu = 164-168-168-172-176-180 lykkjur. Nú er prjónað mismunandi eftir stærðum þannig:

STÆRÐ S og M:
Haldið áfram með gatamynstur eins og áður og aukið út þannig:
Aukið út í annarri hverri umferð 2-2 sinnum til viðbótar = 180-184 lykkjur. Það hefur verið aukið út fyrir laskalínu 14-14 sinnum.
Aukið svona út í 4. hverri umferð 3-4 sinnum. Það hefur verið aukið út fyrir laskalínu alls 17-18 sinnum = 204-216 lykkjur.

STÆRÐ L:
Haldið áfram með gatamynstur eins og áður og aukið út þannig:
Aukið út í annarri hverri umferð 4 sinnum til viðbótar = 200 lykkjur. Það hefur verið aukið út 16 sinnum fyrir laskalínu.
Aukið út í 4. hverri umferð 5 sinnum. Það hefur verið aukið út fyrir laskalínu alls 21 sinni = 240 lykkjur.

STÆRÐ XL, XXL og XXXL:
Haldið áfram með gatamynstur eins og áður og aukið út þannig:
Aukið svona út í annarri hverri umferð 6-8-10 sinnum til viðbótar = 220-240-260 lykkjur. Það hefur verið aukið út 18-20-22 sinnum fyrir laskalínu.
Aukið svona út í 4. hverri umferð 3-1-0 sinnum = 244-248-260 lykkjur.
Nú er útaukningu lokið á ermum.
Aukið út í 4. hverri umferð á framstykki og bakstykki 2-4-4 sinnum til viðbótar (4 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Það hefur verið aukið út alls 23-25-26 sinnum fyrir laskalínu fyrir framstykki og bakstykki og alls 21-21-22 sinnum fyrir ermar = 252-264-276 lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
=204-216-240-252-264-276 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá merki – passið uppá að næsta umferð sem á að prjóna sé ekki umferð með gataumferð. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Setjið fyrstu 44-46-52-52-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 58-62-68-74-80-84 lykkjur (framstykki), setjið næstu 44-46-52-52-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 58-62-68-74-80-84 lykkjur (bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig og stykkið er mælt héðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 128-136-148-160-180-188 lykkjur.
Setjið einn merkiþráð mitt í 6-6-6-6-10-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið (3-3-3-3-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við merkiþráðinn). Færið byrjun á umferð þannig að hún byrjar 1 lykkju á eftir merkiþræði í annarri hliðinni (þ.e.a.s. á milli 4-4-4-4-6-6 og 5-5-5-5-7-7 lykkju sem fitjaðar voru upp í hliðinni, þetta verður til þess að mynstrið á fram- og bakstykki passar yfir mynstrið á berustykki). Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, þeir eru notaðir þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf.
Haldið áfram hringinn með mynstri A.2 – passið uppá að mynstrið haldi áfram eins og á berustykki. Prjónið þar til stykkið mælist ca 17 cm frá skiptingunni í öllum stærðum. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 15 cm með klauf í hvorri hlið að loka máli).
Nú eru prjónaðar 10 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, í hvorri hlið (þ.e.a.s. 5 lykkjur hvoru megin við hvorn merkiþráð). Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir 10 lykkjur í hvorri hlið, skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki við merkiþræðina og stykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 64-68-74-80-90-94 lykkjur.
Prjónið fram og til baka með 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið og mynstur eins og áður. Þegar framstykkið mælist 22 cm – stillið af að það séu minnst 2 umferðir sléttprjón á eftir síðustu gataumferð, prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið 5 lykkjur garðaprjón, slétt yfir næstu 54-58-64-70-80-84 lykkjur og aukið jafnframt út 44-44-50-56-62-66 lykkjur jafnt yfir og prjónið 5 lykkjur garðaprjón = 108-112-124-136-152-160 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið með 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið.
Nú er prjónað stroff eins og áður (fyrsta umferð er frá réttu): Prjónið 5 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 10 cm.
Fellið af – notið prjón 5,5 fyrir affellingu. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

BAKSTYKKI:
Prjónið bakstykki á sama hátt og framstykki.

ERMAR:
Setjið 44-46-52-52-52-54 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón / sokkaprjóna 5,5. Prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6-10-10 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 50-52-58-58-62-64 lykkjur. Setjið 1 merki þráð mitt í nýjar lykkjur. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með, hann er notaður þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð hér og prjónið mynstur hringinn þannig: 1 lykkja slétt, A.2 heldur áfram eins og áður yfir næstu 48-50-56-56-60-62 lykkjur og endið með 1 lykkju slétt.
Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum í ca hverjum 5-4-3-3-2½-2 cm alls 6-6-8-8-9-10 sinnum = 38-40-42-42-44-44 lykkjur. Lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni.
Prjónið síðan þar til stykkið mælist 35-33-32-31-29-27 cm frá skiptingu – stillið af að það séu minnst 2 umferðir sléttprjón á eftir síðustu gataumferð.
Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-20-22-22-24-24 lykkjur jafnt yfir = 56-60-64-64-68-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 10 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 45-43-42-41-39-37 cm frá skiptingu.

FRÁGANGUR:
Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 01.03.2024
Efnismagn hefur verið leiðrétt í öllum stærðum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Þegar prjónað er í hring er uppslátturinn prjónaður slétt í næstu umferð, þegar prjónað er fram og til baka er uppslátturinn prjónaður brugðið í næstu umferð
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 248-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Marta wrote:

Beklage, jeg sitter igjen med 3 masker etter å ha strikket A3

08.05.2024 - 14:41

country flag Marta wrote:

Får ikke mønsteret til å stemme. Når jeg begynner på bærestykket på mønsteret, 1 m rett, A1, A2=4m, men når jeg strikker A3 blir jeg stående igjen med 5m og da får jeg ikke en rett maske på hver side av merketråden. Håper å få et svar på dette

08.05.2024 - 14:29

country flag Cornelia wrote:

Liebes DropsTeam! Sind die Umschläge aus der Hinreihe in den jeweiligen Diagrammzeichnungen in der Rückreihe bereits berücksichtigt und eingezeichnet oder müssen sie in der Rückreihe entsprechend der Erklärungen zu den jeweiligen Diagrammen noch zusätzlich gestrickt werden?

18.04.2024 - 13:54

DROPS Design answered:

Liebe Cornelia, alle Reihen sind in den Diagramme gezeigt, so sind die Zunahmen (letztes Symbol) eine neue Masche bei der nächsten Runde. Viel Spaß beim Stricken!

18.04.2024 - 15:51

country flag Katja wrote:

Kann es sein, dass die Garnmengen/Anzahl Knäuel der beiden Garne vertauscht wurden? Die Lauflängen passen, so wie sie angegeben sind, nicht zusammen.

27.02.2024 - 00:26

DROPS Design answered:

Liebe Katja, Garnmenge für Brushed Alpaca Silk wird korrigiert, man braucht dh 150-150-175-175-200-225 g. Viel Spaß beim Stricken!

01.03.2024 - 09:20

country flag Ina Tech Christensen wrote:

Skøn bluse, men jeg er forvirret. I diagrammet 2. række, skal A1 starte med en maske, der slås om. A3 skal slutte med en maske, der slås om. I diagramforklaringen står, at omslaget skal foretages mellem 2 masker. Hvordan kan det lade sig gøre, når A1 og A3 hhv. starter og slutter med et omslag? Det giver jo 2 omslag lige efter hinanden uden en maske imellem?

25.02.2024 - 12:51

DROPS Design answered:

Hei Ina. A.1 og A.3 strikkes ikke rett etter hverandre, det er 2 rettmasker mellom disse diagrammene hver gang og det er mellom disse 2 rett maskene de 4 merke sitter. I f.eks str. S strikkes 1. omgang slik: 1. merke, strikk 1 maske rett, A.1, A.2 over de neste 4 maskene, A.3, 1 maske rett, 2.merket, 1 maske rett, A.1, A.2 over de neste 18 maskene, A.3, 1 maske rett, 3. merke, 1 maske rett, A.1, A.2 over de neste 4 maskene, A.3, 1 rett, 4. merke, 1 maske rett, A.1, A.2 over de neste 18 maskene, A.3, 1 maske rett. Og du er nå ved 1. merket igjen. mvh DROPS Design

04.03.2024 - 09:14

country flag Susanne wrote:

Hej, kan denne bluse strikkes i Melody ( gruppe D), med en enkelt tråd?

13.02.2024 - 12:07

DROPS Design answered:

Hej Susanne, ja det går helt fint at strikke den i en tråd DROPS Melody. Husk at følge strikkefastheden som står i opskriften for at få størrelsen ifølge måleskitsen :)

22.02.2024 - 11:35

country flag Merete wrote:

Hej. Passer garnforbruget / meter i opskriften. I alle størrelser er der mange flere meter Alpaca end Brushed Alpaca. F.eks til str. XL 1169 meter Alpaca og Brusched Alpaca kun 840 meter. Eller regner jeg forkert. Venlig hilsen Merete David ,Tyskland

07.02.2024 - 12:17

DROPS Design answered:

Hej Merete, tak for info - garnforbruget er opdateret :)

19.03.2024 - 15:05

country flag Lauryna wrote:

Sun catcher

22.01.2024 - 11:20

country flag Marisol wrote:

Me parece precioso y me encantaría hacerlo, voto por él!!! Un saludo

20.01.2024 - 23:27

country flag Melanie wrote:

Climbing Vines Pullover or Lattice Dreams

19.01.2024 - 09:19