Mint Romance |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Daisy. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með skáhallandi öxl / evrópskri öxl, gatamynstri, tvöföldum kanti í hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 249-12 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. I-CORD: FYRSTU 2 LYKKJUR: Prjónið í hverri umferð þannig: Lyftið 1 lykkju af þræði eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. SÍÐUSTU 2 LYKKJUR: Prjónið í hverri umferð þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR: Þegar stuttar umferðir eru prjónaðar, þá kemur oft lítið gat þegar stykkinu er snúið – það er hægt að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Setjið þráðinn yfir á hægri prjón og herðið á þræðinum vel að aftan (með þessu þá myndast tvær lykkjur á prjóni). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við, jafnframt því sem lykkjum er aukið út hvoru megin á stykkið þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 hlutum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni, prjónið mynstur samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu fyrir hálsmáli er lokið. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Fram- og bakstykki skiptist fyrir klauf í hvorri hlið og síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 35-35-37-37-39-39 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Daisy. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið, UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið ÚTAUKNING-1 og prjónið 4 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 4 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið ÚTAUKNING-2 og prjónið 4 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 4 lykkjur brugðið. Síðan er prjónuð UMFERÐ 2 og 3 þar til aukið hefur verið út alls 30-35-39-39-43-48 sinnum í hvorir hlið, á eftir síðustu útaukningu eru = 95-105-115-115-125-135 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er stykkið mælt! Prjónið síðan í sléttprjóni – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA – þar til stykkið mælist 2-3-4-4-4-5 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, 0-1-1-1-0-1 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 þar til eftir eru 1-1-2-2-2-1 lykkjur í umferð, prjónið 0-0-1-1-0-0 lykkjur sléttprjón, 1 lykkja í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, A.2A, prjónið A.2B alls 9-10-11-11-12-13 sinnum, prjónið A.2C, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. JAFNFRAMT þegar eftir eru 6-6-6-10-10-10 umferðir í A.2 og næsta umferð er prjónuð frá réttu, aukið út í hvorri hlið fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan – stykkið mælist ca 12-13-14-13-13-14 cm frá merki. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir ÚTAUKNING-1 og prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur eins og áður þar til 1 lykkja er eftir í garðaprjóni, aukið út 1 lykkju til hægri, 1 lykkja í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-3-5-5-5 sinnum (= 6-6-6-10-10-10 umferðir prjónaðar) = 101-111-121-125-135-145 lykkjur á prjóni. Á eftir síðustu umferð frá röngu mælist stykkið ca 13-14-15-15-15-16 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er framstykkið prjónað meðfram öxl – lesið útskýringu að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Legið bakstykkið flatt á borð með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði/hjálparprjóni snýr að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að öxl þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 30-35-39-39-43-48 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum upp prjónaða kanti. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 11-11-11-12-12-12 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8 umferðir prjónaðar) = 34-39-43-43-47-52 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er framstykkið prjónað meðfram hægri öxl – lesið útskýringu að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn við hálsmál þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 30-35-39-39-43-48 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum upp prjónaða kanti. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 11-11-11-12-12-12 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8 umferðir prjónaðar) = 34-39-43-43-47-52 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Síðan eru framstykkin sett saman – lestu því leiðbeiningar að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 34-39-43-43-47-52 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 27-27-29-29-31-31 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið síðan 34-39-43-43-47-52 lykkjur frá vinstra framstykki = 95-105-115-115-125-135 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 14-15-15-16-18-18 cm. Nú er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, 0-1-1-1-0-1 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 þar til eftir eru 1-1-2-2-2-1 lykkjur í umferð, prjónið 0-0-1-1-0-0 lykkjur sléttprjón, 1 lykkja í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, A.2A, prjónið A.2B alls 9-10-11-11-12-13 sinnum, prjónið A.2C, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. JAFNFRAMT þegar eftir eru 6-6-6-10-10-10 umferðir í A.2 og næsta umferð er prjónuð frá réttu, aukið út í hvorri hlið fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan – stykkið mælist ca 23-24-25-23-25-26 cm. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir ÚTAUKNING-1 og prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur eins og áður þar til 1 lykkja er eftir í garðaprjóni, aukið út 1 lykkju til hægri, 1 lykkja í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-3-5-5-5 sinnum (= 6-6-6-10-10-10 umferðir prjónaðar) = 101-111-121-125-135-145 lykkjur í umferð. Á eftir síðustu umferð frá röngu mælist stykkið ca 25-26-27-27-29-30 cm. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 101-111-121-125-135-145 lykkjur frá framstykki eins og fyrsta umferð í A.3, fitjið upp 4-4-4-10-10-10 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið mitt undir ermi – setjið einn merkiþráð mitt í þessar lykkjur), prjónið síðan 101-111-121-125-135-145 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 4-4-4-10-10-10 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi – setjið einn merkiþráð mitt í þessar lykkjur) = 210-230-250-270-290-310 lykkjur í umferð. Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón fram að fyrri merkiþræði, umferðin byrjar hér og prjónið mynstur þannig: A.3: Prjónið A.3 alls 21-23-25-27-29-31 sinnum hringinn á fram- og bakstykki, JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 0-1-2-0-1-2 lykkjur jafnt yfir = 210-231-252-270-291-312 lykkjur. A.1: Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.1 hringinn á fram- og bakstykki, JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 0-1-2-0-1-2 lykkjur jafnt yfir = 210-230-250-270-290-310 lykkjur. A.2B: Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.2B alls 21-23-25-27-29-31 sinnum hringinn á fram- og baksykki. A.3: Þegar A.2B hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 alls 21-23-25-27-29-31 sinnum hringinn á fram- og bakstykki, JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 0-1-2-0-1-2 lykkjur jafnt yfir = 210-231-252-270-291-312 lykkjur. A.1: Þegar A.3 hefur veirð prjónað til loka, prjónið A.1 hringinn á fram- og bakstykki, JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 0-1-2-0-1-2 lykkjur jafnt yfir = 210-230-250-270-290-310 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist ca 28-29-29-31-31-31 cm, mælt frá handvegi. Nú skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið á fram- og bakstykki, skiptið við merkiþræðina með því að bíða með lykkjur frá bakstykki í smá stund og prjóna lykkjur frá framstykki fram og til baka – lesið útskýringu að neðan. FRAMSTYKKI: = 105-115-125-135-145-155 lykkjur. Í næstu umferð (= rétta) byrjar stroff JAFNFRAMT er aukið út um 33-39-41-43-45-55 lykkjur jafnt yfir í umferð = 138-154-166-178-190-210 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á prjón 3, prjónið 2 lykkjur I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukningu) þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur I-cord. Þegar stroffið mælist 8-8-9-9-9-10 cm, fellið af. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm. BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og framstykki. ERMAR: Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Miðja ofan á öxl er ekki sami staður og þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 5-6 cm niður á framstykki). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 4 og byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 80-84-88-98-102-106 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merki. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpuna til að ermin passi betur, umferðin byrjar mitt undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 10-10-11-11-12-13 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 10-10-11-11-12-13 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 4-5-5-4-4-3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 4-5-5-4-4-3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Endurtakið UMFERÐ 3 og 4 þar til snúið hefur verið við 6-6-6-8-8-10 sinnum í hvorri hlið. Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er endurtekin, endið umferð með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðar (mitt undir ermi). Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, það á að nota merkiþráðinn þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Áfram er prjónað í hring í sléttprjóni og mynstur yfir allar lykkjur jafnframt því sem lykkjum er fækkað undir ermi, lesið kaflann að neðan og prjónið þannig: ÚRTAKA: Þegar ermin mælist 2 cm (mælt mitt undir ermi), fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA, fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 2-2-2-5-5-5 sinnum, síðan er lykkjum fækkað í hverjum 4½-4½-3½-3-2½-2 cm alls 8-8-9-10-11-12 sinnum = 60-64-66-68-70-72 lykkjur í umferð. MYNSTUR: Þegar ermin mælist 9-9-8-8-8-8 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp (mælt frá öxl mitt ofan á ermi), prjónið mynstur þannig: * Prjónið A.1 hringinn á ermi eins langt og hægt er fram að merkiþræði mitt undir ermi (lykkjur sem e.t.v. ganga ekki upp í mynstri á undan merkiþræði eru prjónaðar í sléttprjóni), prjónið 9-9-8-8-8-7 cm sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum á hæðina, eftir það er prjónað A.1 hringinn á ermi 1 sinni til viðbótar (= alls 4 gataumferðir á erminni hringinn). Prjónið sléttprjón áfram þar til ermin mælist 43-42-40-40-39-37 cmfrá öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 12-12-10-12-14-16 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 72-76-76-80-84-88 lykkjur. Þegar stroffið mælist 8-8-9-9-9-10 cm, fellið af. Ermin mælist ca 51-50-49-49-48-47 cm frá miðju ofan á öxl. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna, prjónið upp ca 116-116-120-124-128-128 lykkjur innan við 1 lykkju, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 9-9-9-11-11-11 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4 og fellið af aðeins laust. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (10)
Lila Matz wrote:
Hallo liebes drops Team!\r\nIn welchem Reihenabstand, werden bei den Ärmeln, die Lochreihen gestrickt?\r\nVielen Dank \r\nMartina
22.03.2024 - 20:02DROPS Design answered:
Liebe Frau Matz, A.1 stricken Sie das erste Mal wenn die Ärmel 9 bzw 8 cm misst (siehe Größe), dann stricken Sie jeweils 9-9-8-8-8-7 cm glatt rechts zwischen jedem A.1 - siehe Abschnitt MUSTER. Viel Spaß beim Stricken!
02.04.2024 - 08:10Katie wrote:
Hi, I have some confusion about when to start A.1 on the front piece. For size M both front sides are worked for 11 cm, then 8 rows of increases are done, which by the gauge will get the piece to about 14cm. Then once you join the two front pieces it says to work until it measures 15cm then start A.1. which would mean only another 3 rows. However, in the photo it looks like there’s quite a few more rows between the joining of the front pieces and the beginning of the pattern. Why is that?
19.03.2024 - 21:03DROPS Design answered:
Dear Katie, to get the pattern working on both front and back piece when working them together, you will have to start A.1 after 15 cm in size M; depending on your tension in height you might need more or less row, measure these 15 cm along armhole, from where stitches were picked up for one of the shoulders. Happy knitting!
20.03.2024 - 08:07Beata wrote:
Dlaczego w opisie rękawa brakuje zaznaczenia, że można go robić z wykorzystaniem A1 (tak jest w,sweterku na zdjęciu)? Mniej więcej, co ile centymetrów należy go robić?
05.03.2024 - 01:24DROPS Design answered:
Witaj Beato, rzeczywiście ta informacja została pominięta. Korekta już została zgłoszona i wkrótce zostanie naniesiona. Prosimy o chwilkę cierpliwości. Pozdrawiamy!
05.03.2024 - 15:55Eveli wrote:
Mint'n'honey
21.01.2024 - 14:23Aurore wrote:
Tilleul
20.01.2024 - 14:52Lynda Kuit wrote:
Wings of Spring
19.01.2024 - 10:02Angelique wrote:
Dram come true
19.01.2024 - 04:04Beate Junker wrote:
Luftige Struktur
18.01.2024 - 19:50Fleur wrote:
Lovers dream jumper
18.01.2024 - 18:46Sarinna wrote:
Looks a lot like Fabled Harbor design, so new name: Fabled Gateway
18.01.2024 - 18:43