Aisling Cardigan |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum og klukkuprjónslykkju á ermum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 250-14 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 2 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma, merkiþræðirnir sitja á milli þessa 2 lykkja. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu strax eftir stroff efst í hálsmáli. Síðan er fellt af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8½-9-7½ -8-8½ cm millibili. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Fitjaðar eru upp lykkjur fyrir hálsmáli og prjónað er fram og til baka – jafnframt er aukið út í hvorri hlið umferðar þar til réttum lykkjufjölda hefur verið náð og hálsmálið hefur verið formað til loka. Síðan er berustykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmálið og prjónaður er kantur í hálsmáli sem brotinn er tvöfaldur að röngu og saumaður niður. HÁLSMÁL: Fitjið upp 70-70-70-78-78-78 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Nú eru settir 4 merkiþræðir í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Merkiþræðirnir eru notaðir þegar auka á út fyrir laskalínu og hver merkiþráður er settur á milli 2 lykkja, þannig: Teljið 3 lykkjur, setjið 1 merkiþráð, teljið 20 lykkjur (ermi), setjið 1 merkiþráð, teljið 24-24-24-32-32-32 lykkjur (bakstykki), setjið 1 merkiþráð, teljið 20 lykkjur (ermi), setjið 1 merkiþráð, teljið 3 lykkjur. Prjónið fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið brugðið, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 72-72-72-80-80-80 lykkjur. UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið slétt yfir lykkjur á framstykki og bakstykki, yfir 20 lykkjur á hvorri ermi er prjónað A.1, jafnframt því sem aukið er út fyrir LASKALÍN hvoru megin við 4 merkiþræðina – lesið útskýringu að ofan (8 lykkjur fleiri fyrir laskalínu og 7 lykkjur fleiri í hverju A.1), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 96-96-96-104-104-104 lykkjur. UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið síðustu umferð í A.1 og brugðið yfir þær lykkjur sem eftir eru, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 98-98-98-106-106-106 lykkjur. UMFERÐ 4 (rétta): Prjónið slétt yfir lykkjur á framstykki og bakstykki og A.2 yfir A.1 frá ermum, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkiþræðina (8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 108-108-108-116-116-116 lykkjur. UMFERÐ 5 (ranga): Prjónið mynstur og sléttprjón eins og áður, fitjið síðan upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar = 111-111-111-119-119-119 lykkjur. UMFERÐ 6 (rétta): Prjónið mynstur og sléttprjón eins og áður, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkiþræðina (8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar = 122-122-122-130-130-130 lykkjur. UMFERÐ 7 (ranga): Prjónið mynstur og sléttprjón eins og áður, fitjið síðan upp 10-10-10-14-14-14 nýjar lykkjur í lok umferðar = 132-132-132-144-144-144 lykkjur. UMFERÐ 8 (rétta): Prjónið KANTUR AÐ FRAMAN yfir fyrstu 7 lykkjur og mynstur og sléttprjón eins og áður, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkiþræðina (8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 10-10-10-14-14-14 nýjar lykkjur í lok umferðar = 150-150-150-166-166-166 lykkjur. UMFERÐ 9 (ranga): Prjónið mynstur og sléttprjón eins og áður og 7 lykkjur KANTUR AÐ FRAMAN í hvorri hlið – lesið útskýringu að ofan. Hálsmálið hefur nú verið prjónað til loka og aukið hefur verið út 4 sinnum fyrir laskalínu. Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan, Nú byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón, A.2 og kantlykkjur að framan og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu (8 lykkjur fleiri) 2 sinnum til viðbótar (alls 6 sinnum ásamt útaukningu í hálsmáli). Síðan heldur útaukningin áfram fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu), en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð, aukið er út til skiptis 4 og 8 lykkjur. Aukið svona út 18-22-26-26-30-30 sinnum á fram- og bakstykki (9-11-13-13-15-15 sinnum á ermum). Haldið áfram í sléttprjóni, A.2 og kantlykkjum að framan og útaukningu fyrir laskalínu, en nú er einungis aukið út á fram- og bakstykki, útaukningu fyrir ermum er lokið. Aukið út í annarri hverri umferð alls 2-1-0-0-0-4 sinnum (ekki er aukið út í stærð L, XL, XXL). Nú hefur verið aukið út alls 26-29-32-32-36-40 sinnum á fram- og bakstykki og 15-17-19-19-21-21 sinnum á ermum (ásamt útaukningu í stuttum umferðum í hálsmáli). Á eftir síðustu útaukningu eru 282-302-322-338-362-378 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í sléttprjóni og A.2 og kantlykkjur að framan þar til stykkið mælist ca 24-26-29-29-33-36 cm, mælt mitt að aftan. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið fyrstu 46-49-52-56-60-64 lykkjur (framstykki), setjið næstu 57-61-65-65-69-69 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 76-82-88-96-104-112 lykkjur (bakstykki), setjið næstu 57-61-65-65-69-69 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 46-49-52-56-60-64 lykkjur sem eftir eru (framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 188-200-212-232-252-272 lykkjur. Prjónið sléttprjón með kantlykkjur að framan eins og áður þar til stykkið mælist 18-18-17-19-17-16 cm frá skiptingunni. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 36-40-44-48-52-56 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 224-240-256-280-304-328 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: 7 kantlykkjur að framan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 7 kantlykkjur að framan. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMAR: Setjið 57-61-65-65-69-69 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-10-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 67-71-75-77-83-85 lykkjur. Setjið einn merkiþráð mitt í nýjar lykkjur. Prjónið sléttprjón og haldið áfram með A.2 hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í ca hverjum 5-3½-2½-2½-2-1½ cm alls 6-8-9-10-11-11 sinnum = 55-55-57-57-61-63 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 34-33-32-31-28-25 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-5-7-7-7-9 lykkjur jafnt yfir = 60-60-64-64-68-72 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 42-41-40-39-36-33 cm frá skiptingunni. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 104 til 120 lykkjur í kringum hálsmálið á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir) – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4 – stillið af að stroffið passi með að laskalínulykkjur haldi áfram sem sléttar lykkjur (séð frá réttu) í kanti í hálsmáli. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 7 kantlykkjur að framan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 7 kantlykkjur að framan. Haldið áfram með stroff eins og áður með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til kantur í hálsmáli mælist 10 cm. Fellið af aðeins laust. Brjótið kantinn í hálsmáli að innanverðu á stykki og saumið niður. Saumið saman op við miðju framan í kanti að framan með smáu spori. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (4)
Hanne wrote:
Jeg har et spørsmål til halskanten. Etter 5cm skal jeg felle 4m i hver side. Deretter står det at jeg skal fortsette med vrbord og 1 rille. Men om jeg feller 4 m blir det jo igjen 3m av stolpen. Burde jeg ikke da hatt 3m rille i hver side? Eller skal de to siste maskene i halskanten nå strikkes i vrbord? Eller skulle jeg felt 6m?
30.04.2024 - 23:26DROPS Design answered:
Hej Hanne, de masker bukkes ind på vrangsiden, så de kommer ikke til at ses :)
03.05.2024 - 13:51Anneli Magnusson wrote:
Om man ska sticka med två olika Garner, hur kan det då i detta mönster vara olika garnåtgång?
25.02.2024 - 21:26DROPS Design answered:
Hej Anneli. Det är olika antal meter per nystan för dessa 2 garn - 167 m per 50 g alpaca, 210 m per 25 g kidsilk så därför blir det olika vikt. Mvh DROPS Design
27.02.2024 - 07:14Diana Roald wrote:
I am working from the English version and when I got to row 9 of A2 there there is a mistake in the pattern (both English US and UK). For the first cable (row 3 of A2) it says place the cable needle in front. I see now from the Norwegian version that this should have been "place cable needle in back". My question is: Can I leave the first cable left leaning (cable in front") and now do a right leaning on row 9 of A2 (cable in back)? Or do I have to rip out everything back to row 3 of A2?
11.02.2024 - 16:34Karin wrote:
Flot snoning
19.01.2024 - 05:49