Afternoon in Provence Cardigan |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca eða DROPS Nord og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með V-hálsmáli, gatamynstri, blöðruermum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 250-6 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------ UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Jafnóðum sem lykkjum er aukið út fyrir laskalínu, eru nýjar lykkjur prjónaðar inn á ermum í mynstri eins og útskýrt er í A.1, þ.e.a.s. lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til nægilega margar lykkjur eru í heilt gatamynstur. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar aukið er út, eru prjónaðar í sléttprjóni. ATH: Þegar útaukning á ermum fer frá annarri hverri umferð til 4. hverrar umferðar, þá kemur mynstrið ekki til með fylgja lengur mynsturteikningu. Passið uppá að mynstrið haldi áfram rétt á hæðina. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 4 lykkjum með merki í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (í mynstri kallast þessar lykkjur laskalínulykkjur og laskalínulykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður frá röngu þannig: Á UNDAN LASKALÍNULYKKJU: Prjónið uppsláttinn snúinn. Á EFTIR LASKALÍNULYKKJU: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat. V-HÁLSMÁL: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju á eftir 10 fyrstu lykkjum í byrjun umferðar (kantur að framan + 1 lykkja sléttprjón) / á undan 10 síðustu lykkjum í lok umferðar (1 lykkja sléttprjón + kantur að framan). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður þannig / séð frá röngu: Á UNDAN 10 LYKKJUM: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat. Á EFTIR 10 LYKKJUM: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 7 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja sléttprjón. Í næstu umferð (= ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu 1 cm eftir síðustu útaukningu fyrir V-hálsmáli. Síðan er fellt af fyrir 2 næstu hnappagötum með ca 10-10½-10½-10-10½-10 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Byrjið á að prjóna 2 lausa kanta að framan í stroffi. Síðan eru fitjaðar upp lykkjur á milli þessa kanta að framan fyrir öxl og hálsmáli aftan í hnakka. Síðan er berustykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, er lykkjunum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Stykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið, síðan eru framstykkin og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka hvert fyrir sig. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru kantar að framan saumaðir saman mitt að aftan áður en þeir eru saumaðir við hálsmál aftan í hnakka. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 9 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með 1 þræði í hvorum lit (= 2 þræðir). Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 lykkju í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til kantur að framan mælist 14-14-14-17-17-18 cm, endið eftir 1 umferð frá röngu. Geymið stykkið. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 9 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með 1 þræði í hvorum lit (= 2 þræðir). Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til kantur að framan mælist 14-14-14-17-17-18 cm, endið eftir 1 umferð frá réttu, ekki klippa þráðinn frá. ÖXL OG HÁLSMÁL AFTAN Í HNAKKA: Nú eru fitjaðar upp 58-58-60-66-66-70 nýjar lykkjur í lok umferðar, síðan eru settar 9 lykkjur frá hægri kanti að framan til baka á prjóninn og prjónað er stroff eins og áður yfir þessar 9 lykkjur = 76-76-78-84-84-88 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, en 9 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eru prjónaðar í stroffprjóni eins og áður. BERUSTYKKI: Setjið 4 merki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Merkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 10 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 15-15-15-17-17-17 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 22-22-24-26-26-30 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 15-15-15-17-17-17 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju. Það eru 10 lykkjur í umferð á eftir síðasta merki (= hægra framstykki). Prjónið fram og til baka í sléttprjóni á framstykkjum og bakstykki, MYNSTUR A.1 á ermum – lesið útskýringu að ofan (A.1 er prjónað á milli 1. og 2. merkis og á milli 3. og 4. merkis) og 9 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Jafnframt er aukið út fyrir LASKALÍNA og V-HÁLSMÁL – lestu útskýringu að ofan, þetta er gert samtímis, lestu því báða kaflana að neðan áður en prjónað er áfram. Byrjið mitt að framan frá réttu. LASKALÍNA: Aukið út hvoru megin við 4 laskalínulykkjurnar í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 14-12-14-28-26-30 sinnum. Útaukningu fyrir laskalínu er nú lokið í stærð XL. Í hinum stærðum er síðan prjónað eins og útskýrt er að neðan. STÆRÐ S, M, L, XXL og XXXL: Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverir umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykkjum/bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykkjum/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð (aukið er út til skiptist 4 og 8 lykkjur). ATH: Þegar aukið er út í 4. hverri umferð á ermum, passið uppá að gatamynstrið passi yfir hvert annað á hæðina. Aukið svona út 10-14-14-4-2 sinnum á framstykkjum/bakstykki (5-7-7-2-1 sinnum á ermum). V-HÁLSMÁL: Aukið út fyrir V-hálsmáli innan við ystu 10 lykkjur í hvorri hlið í 4. hverri umferð alls 10-10-11-12-12-14 sinnum. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan þegar útaukningu fyrir V-hálsmáli er lokið – lesið útskýringu að ofan. ALLAR STÆRÐIR: Þegar öll útaukning fyrir laskalínu og V-hálsmáli er lokið, eru 268-276-296-332-340-368 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 22-24-25-25-27-29 cm mælt frá uppfitjunarkanti mitt að aftan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið fyrstu 47-50-52-57-60-64 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 49-47-53-61-59-65 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi), prjónið 76-82-86-96-102-110 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 49-47-53-61-59-65 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 47-50-52-57-60-64 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar eru síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 186-202-214-234-250-270 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-10-12-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu – merkiþræðirnir eru notaðir þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 9 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT. Prjónið þar til stykkið mælist 20-20-21-22-22-22 cm. Nú skiptist stykkið við báða merkiþræðina, þannig að það myndast klauf í hvorri hlið og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 51-55-58-63-67-72 lykkjur. Í næstu umferð (= rétta) byrjar stroffið JAFNFRAMT því sem aukið er út um 15-17-18-19-21-22 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjum er ekki aukið út yfir kant að framan) = 66-72-76-82-88-94 lykkjur, prjónað er þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning) þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 2 lykkjur í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 8 cm, fellið af með ítalskri affellingu eða fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 51-55-58-63-67-72 lykkjur. Í næstu umferð (= rétta) byrjar stroffið JAFNFRAMT því sem aukið er út um 15-17-18-19-21-22 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjum er ekki aukið út yfir kant að framan) = 66-72-76-82-88-94 lykkjur, prjónað er þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið 2 lykkjur í garðaprjón, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning) þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 8 cm, fellið af með ítalskri affellingu eða fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. BAKSTYKKI: = 84-92-98-108-116-126 lykkjur. Í næstu umferð (= rétta) byrjar stroffið JAFNFRAMT því sem aukið er út um 29-33-35-39-41-45 lykkjur jafnt yfir = 113-125-133-147-157-171 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið 2 lykkjur í garðaprjón, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning) þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 2 lykkjur í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 8 cm, fellið af með sama hætti og áður. ERMAR: Setjið 49-47-53-61-59-65 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna / hringprjóna 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 57-57-65-73-73-81 lykkjur. Setjið 1 merki í miðju á 8-10-12-12-14-16 nýjum lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og haldið áfram með A.1 hringinn á erminni. ATH: Passið uppá að mynstrið haldi rétt áfram yfir lykkjur frá berustykki, lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri mitt undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona hverjum 2-2-2-1½-1½-1½ cm alls 4-3-5-8-6-8 sinnum = 49-51-55-57-61-65 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 36-35-34-34-33-31 cm frá skiptingunni. Nú eru eftir 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd á undan stroffi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 9-9-7-7-5-3 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 58-60-62-64-66-68 lykkjur. Þegar stroffið mælist 8 cm, fellið af með ítalskri affellingu eða fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-43-42-42-41-39 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið saman kanta að framan mitt að aftan og saumið kanta að framan við hálsmál aftan í hnakka. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (15)
Sietske Nicolai wrote:
Dankjewel Roos!! Onder het mom van 3x scheepsrecht (pffft) nu op de goeie weg.
10.05.2024 - 08:28Roos wrote:
Sietske, je moet eerst 12× alle 8 steken meerderen voor de raglan. Zie het stukje onder RAGLAN. En daarnà pas 14x de om en om 4 en 8 steken, zoals jij hebt gedaan. Groet van een mede -breister.
06.05.2024 - 22:45Sietske Nicolai wrote:
Ik heb het meerderen van de raglan idd om en om gedaan, op de goede kant. Ik ben als volgt te werk gegeaan: na de markeerdraden (bij PAS) ben ik gestart bij MAAT S M L… (ik brei M), het stukje RAGLAN dus overgeslagen. Elke heengaande naald (goede kant) 4 st gemeerderd, in eke daarop volgende heengaande naald 8 st. Na 14x /7x heb ik dan nog lang geen 25cm. Maak ik een denkfout? Reactie mag ook via mail.
28.04.2024 - 22:19DROPS Design answered:
Dag Sietske,
Een collega breister is zo vriendelijk geweest om je vraag te beantwoorden. Kun je hiermee verder? Veel breiplezier!
09.05.2024 - 10:49Roos wrote:
De maat van de biezen lijkt niet te kloppen. Ik brei maat L, dus 14 cm bies = 28 cm totaal. Op het eind moet de bies dichtgenaaid en aan de achterhals/ bovenkant mouwen genaaid. Dit zijn de 60 steken die tussen de biezen zijn opgezet. Bij mij meet dit stuk 42 cm. Hoe laat ik dit netjes passen ?
27.04.2024 - 14:06DROPS Design answered:
Dag Roos,
De 60 opgezette steken zouden ongeveer 35 cm moeten meten met een stekenverhouding van 17 steken. De stof van de hals moet verdeeld worden over de bies die je er aan naait, maar als je al 42 cm hebt, dan heb je wel veel stof om te verdelen. Je zou een stukje aan de biezen kunnen breien om dit op te lossen.
28.04.2024 - 10:12Sietske Nicolai wrote:
Het breien van de pas is mij niet duidelijk. Er staat: brei zoals uitgelegd hieronder in de andere maten. Ik maak maat M, ben dus hier gestart met raglan (afwisselend 4 en 8 st meerderen) en de V hals. Als ik dit 14x op voorpanden heb gedaan en 7x op mouwen dan meet het werk nog lang geen 25 cm. Zie ik iets over het hoofd?
26.04.2024 - 18:55DROPS Design answered:
Dag Sietske,
Heb je het meerderen van de raglan om en om gedaan? Dus alleen aan de goede kant en niet aan de verkeerde kant?
28.04.2024 - 10:14Sietske Nicolai wrote:
Het patroon geeft niet duidelijk aan of er met 1 of 2 draden wordt gewerkt. Ik heb 2 biezen (2 draden), moeten de extra steken schouders/halslijn (en de rest) met 1 draad?
23.04.2024 - 16:48DROPS Design answered:
Dag Sietske,
Het hele werk, dus ook alle biezen, wordt met 2 draden gebreid; 1 draad van elke kwaliteit.
24.04.2024 - 11:23Myrthe Van Zijl wrote:
De afmetingen lijken niet te kloppen. Van nek tot Markeer draad in maat M is 24 cm, van Markeer draad tot boord is 20 cm, boord is 8 cm = 52 cm totaal. Dat is dus niet 56 cm van schouder tot onderkant zoals het patroon zegt.
28.03.2024 - 11:10DROPS Design answered:
Dag Myrthe,
Je hebt nog een stukje vanaf de schouder tot het begin van de raglanlijn, dit is 4 cm als je het werk plat neerlegt. Zie ook de maattekening.
28.03.2024 - 17:35Evelien wrote:
Ik snap dit niet: Ga verder met meerderen voor de raglan op iedere andere naald maar op iedere andere meerdering, meerdert u alleen op de voorpanden/ het achterpand. Dus meerder op de voorpanden/het achterpand op iedere andere naald en op de mouwen iedere 4e naald (dus meerder afwisselend 4 en 8 steken). Hoe kom je aan 4 en 8 steken afwisselend?
21.03.2024 - 21:09DROPS Design answered:
Dag Evelien,
Op naald 1 meerder je niet, op naald 2 meerder je op de voor- en achterpanden (4 steken gemeerderd op deze naald), op naad 3 meerder je niet, op naald 4 meerder je op de voor- en achterpanden én op de mouwen (8 steken gemeerderd op deze naald).
24.03.2024 - 19:13Irene Connors wrote:
There are no instructions for this pattern 😕
16.02.2024 - 22:04Daniela wrote:
The instructions are missing. The Pattern instructions are just a repeat of the first part about sizes, materials, needles, knitting tension etc.
16.02.2024 - 12:37DROPS Design answered:
Thanks for noticing, pattern is now online; Happy knitting!
19.02.2024 - 15:45