DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Perfectly Peach Jacket

Prjónuðu peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í perluprjóni með laskalínu, V-hálsmáli og I-cord. Stærð XS - XXL.

DROPS 248-23
DROPS Design: Mynstur ai-483
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

GARN:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-400-400-450-500 g litur 54, sæt apríkósa

TÖLUR:
DROPS TALA NR 522: 4 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: Lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
Í BYRJUN UMFERÐAR:
Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 7 lykkjur í garðaprjóni.
Í LOK UMFERÐAR:
Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 7 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 lykkjur með merki í.
Þær 4 lykkjur með merki eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð (= ranga) er uppslátturinn prjónaður þannig – það á ekki að myndast gat:
Á UNDAN LYKKJU MEÐ MERKI:
Prjónið uppsláttinn snúið brugðið.
Á EFTIR LYKKJU MEÐ MERKI:
Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón, prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann.
Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur.

V-HÁLSMÁL:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út fyrir V-hálsmáli innan við 9 kantlykkjur að framan og 1 lykkju í sléttprjóni á báðum framstykkjum.
Aukið út þannig: Prjónið vinstri kant að framan, prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón, prjónið hægri kant að framan.
Í næstu umferð (= ranga) er uppslátturinn prjónaður þannig – það á ekki að myndast gat:
Á EFTIR HÆGRI KANTI AÐ FRAMAN:
Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi uppsláttinn slétt, stingið vinstri prjóni inn í uppsláttinn og setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón, prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann.
Á UNDAN VINSTRI KANTI AÐ FRAMAN:
Prjónið uppsláttinn snúinn brugðið.
Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 6 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, prjónið afgang af kanti að framan eins og áður. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu 1 cm á eftir síðustu útaukningu fyrir V-hálsmáli. Síðan er fellt af fyrir næstu 3 hnappagötum með ca 7-8-8-8½-8½-9 cm millibili.
Neðsta hnappagatið á að vera staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Öll úrtaka er gerð í umferð í sléttprjóni.
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin merkiþráðinn þannig: Byrjið við merkiþráðinn, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði í lok umferðar, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu eru notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið með þá lengd sem passar og skiptið eftir þörf.
Byrjað er að prjóna 2 lausa kanta að framan. Síðan eru fitjaðar upp lykkjur á milli þessa kanta að framan fyrir berustykki.
Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. Í lokin eru lausu kantar að framan saumaðir niður við kant í hálsmáli við hnakka.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Fitjið upp 9 lykkjur á prjón 5 með DROPS Air og prjónið þannig:
RÉTTA:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 7 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan.
RANGA:
Prjónið 7 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
Prjónið svona fram og til baka þar til kantur að framan mælist 17-17-17-17½-18-18 cm, síðasta umferð er prjónuð frá réttu. Klippið þráðinn og leggið stykkið til hliðar.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Fitjið upp 9 lykkjur á prjón 5 með DROPS Air og prjónið þannig:
RÉTTA:
Prjónið 7 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
RANGA:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 7 lykkjur í garðaprjóni.
Prjónið svona fram og til baka þar til kantur að framan mælist 17-17-17-17½-18-18 cm, síðasta umferð er prjónuð frá réttu. Snúið og haldið áfram að prjóna berustykki eins og útskýringu að neðan.

BERUSTYKKI:
Berustykki er prjónað fram og til baka með KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD í hvorri hlið, lesið útskýringu að ofan. Fyrsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður yfir hægri kant að framan frá röngu, fitjið upp 65-65-65-67-69-69 nýjar lykkjur í umferð, prjónið til loka eins og áður yfir vinstri kant að framan frá röngu = 83-83-83-85-87-87 lykkjur.
Setjið 4 merki í stykkið eins og útskýrt er að neðan, þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar:
Teljið 10 lykkjur (framstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 17 lykkjur (ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 25-25-25-27-29-29 lykkjur (bakstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 17 lykkjur (ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, það eru 10 lykkjur eftir í umferð (framstykki).

Nú er berustykkið prjónað fram og til baka með kanti að framan og mynstri, jafnframt því sem aukið er út fyrir V-hálsmáli og laskalínu – lestu því alla kaflana fram að skiptingu áður en þú prjónar áfram.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Prjónið MYNSTUR frá réttu þannig: Prjónið vinstri kant að framan, prjónið A.1 yfir vinstra framstykki fram að fyrsta merki, * prjónið A.2, endurtakið A.3 fram að næsta merki *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, prjónið A.4 yfir hægra framstykki, endið með hægri kanti að framan.
Prjónið frá röngu þannig: Prjónið hægri kant að framan, prjónið brugðið þar til 9 lykkjur eru eftir (munið eftir að snúa uppslættinum í sitt hvora áttina), endið með vinstri kant að framan.
Perluprjón / A.3 er endurekið á hæðina – mynsturteikning sýnir perluprjón í hverri umferð frá réttu, síðan eru útauknar lykkjur prjónaðar inn í mynstur. JAFNFRAMT heldur útaukning áfram fyrir V-hálsmáli og laskalínu eins og útskýrt er að neðan.

V-HÁLSMÁL:
Aukið út fyrir V-HÁLSMÁL – lesið útskýringu að ofan, innan við kant að framan og 1 slétt lykkja í hvorri hlið í 4. hverri umferð alls 11-11-12-12-13-14 sinnum (ásamt útaukningu eins og útskýrt er í mynsturteikningu). 1 cm eftir síðustu útaukningu fyrir V-hálsmáli, er fellt af fyrir fyrsta hnappagati í hægri kanti að framan – lesið HNAPPAGAT að ofan.

LASKALÍNA:
Aukið út hvoru megin við lykkjur með merki í eins og útskýrt er að ofan í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu = 8 lykkjur fleiri) alls 11-20-21-22-23-23 sinnum (ásamt útaukningu eins og útskýrt er í mynsturteikningu). Síðan heldur útaukningin áfram fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykkjum/bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykkjum/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð (aukið er út til skiptis um 8 og 4 lykkjur). Aukið svona út með 11-3-4-4-4-7 sinnum á framstykkjum/bakstykki (5-1-2-2-2-3 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 22-23-25-26-27-30 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 16-21-23-24-25-26 sinnum á ermum.

Haldið áfram að prjóna fram og til baka með kanti að framan og perluprjóni/A.3 þar til öll útaukning hefur verið gerð til loka. Á eftir síðustu útaukningu eru 257-281-299-309-321-339 lykkjur í umferð. Síðan er prjónað fram og til baka í perluprjóni án útaukningar þar til stykkið mælist 20-21-23-24-25-27 cm frá miðju að aftan. Síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
Prjónið vinstri kant að framan eins og áður, prjónið næstu 35-38-41-42-45-50 lykkjur í perluprjóni/A.3,setjið næstu 49-55-59-61-61-61 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (í hlið undir ermi), prjónið næstu 71-77-81-85-91-99 lykkjur í perluprjóni/A.3, setjið næstu 49-55-59-61-61-61 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (í hlið undir ermi, prjónið næstu 35-38-41-42-45-50 lykkjur í perluprjóni/A.3 og endið með að prjóna hægri kant að framan eins og áður.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 175-191-205-215-231-253 lykkjur. Haldið áfram að prjóna perluprjón/A.3 með kanti að framan í hvorri hlið eins og áður þar til stykkið mælist 22-24-24-25-26-26 cm frá skiptingu – stillið af að síðasta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 18-20-22-24-26-28 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 193-211-227-239-257-281 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, endið með kant að framan eins og áður. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af.
Peysan mælist ca 51-54-56-58-60-62 cm frá öxl.

ERMAR:
Setjið 49-55-59-61-61-61 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / hringprjóna 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 57-65-71-75-77-79 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið perluprjón / A.3 hringinn eins og áður – stillið af að mynstrið haldi áfram frá berustykki og yfir á ermi. Þegar ermin mælist 4-4-4-4-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í ca hverjum 6½-4-3-3-3-3 cm alls 6-9-12-12-13-12 sinnum = 45-47-47-51-51-55 lykkjur. Haldið áfram þar til ermin mælist 43-43-42-42-41-40 cm frá skiptingu. Nú eru eftir 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-7-7-5-5-5 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 50-54-54-56-56-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm.
Fellið af. Ermin mælist ca 47-47-46-46-45-44 cm frá skiptingu.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið uppfitjunarkantinn í kanti að framan saman og saumið kanta að framan við hálsmál aftan í hnakka – kantar að framan eru strekktir létt þegar þeir eru saumaðir.

Mynstur

symbols = lykkja með merki – prjónið slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður þannig: Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, stingið vinstri prjóni inn í uppsláttinn og setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón, prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 248-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Turbang Claire wrote:

Peut-on le tricoter sans aiguilles circulaires, juste des aiguilles droites ? Merci et je vous souhaite une excellente journée .

19.02.2024 - 18:27

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Turbang, tout à fait, l'empiècement et le dos/les devants peuvent juste être tricotés sur aiguille circulaire, pour les manches, cette leçon pourra vous aider à faire les ajustements nécessaires. Bon tricot!

20.02.2024 - 07:47

country flag Aurore wrote:

Aurore

20.01.2024 - 14:55

country flag Sylvie wrote:

Orangeade

18.01.2024 - 20:21

country flag Katja Salomies wrote:

Peach party

18.01.2024 - 18:30

country flag Claudia wrote:

Fresh summer fruit

18.01.2024 - 16:20

country flag Signe wrote:

Apricot cardigan

18.01.2024 - 15:50

country flag Margarete wrote:

Apricose

18.01.2024 - 15:48

country flag Wilma wrote:

Peachy Warmth

18.01.2024 - 13:24

country flag Sabine HENRICH wrote:

C'est un beau design adapté au quotidien et la couleur est fraîche !

18.01.2024 - 13:21