Brown Butterflies Cardigan |
|
|
|
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með V-hálsmáli, I-cord og stuttum puffermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 248-19 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 6 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. ÚTAUKNING (á við um í hliðum á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið er út um 4 lykkjur í umferð með því að auka út lykkjum hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 4 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið síðan útaukningu við merkiþráðinn í hinni hliðinni (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA-1 (á við um í hliðum á fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkað er um 4 lykkjur í umferð með því að fækka lykkjum hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 4 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Endurtakið síðan úrtöku við merkiþráðinn í hinni hliðinni (= 4 lykkjur færri). ÚRTAKA-2 (á við um V-hálsmál): Öll úrtak er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR KANTI AÐ FRAMAN ÞANNIG (8 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN KANTI AÐ FRAMAN ÞANNIG: Prjónið þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið kant að framan eins og áður (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-3 (á við um handveg og hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 4 lykkjur sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 4 lykkjur sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri). FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur sléttprjón (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur sléttprjón (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið fjórðu og fimmtu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (= ranga), er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 4, 12, 19 og 26 cm. M: 4, 12, 19 og 27 cm. L: 4, 12, 20 og 28 cm. XL: 5, 13, 21 og 29 cm. XXL: 5, 14, 22 og 30 cm. XXXL: 5, 14, 22 og 31 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp að handveg. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka hvort fyrir sig, fram og til baka. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp og prjónað er í hring fram að handvegi, síðan er ermin prjónuð til loka fram og til baka. Stykkin eru saumuð saman. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 217-235-255-273-301-323 lykkjur á hringprjón 3 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 8 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 8 kantlykkjur að framan með I-cord. Prjónið svona þar til stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm. Öll mál á lengdina eru gerð frá uppfitjunarkanti! Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið sléttprjón með 8 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður, jafnframt sem í fyrstu umferð er fækkað um 29-31-35-37-41-43 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan) = 188-204-220-236-260-280 lykkjur – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – lesið útskýringu að ofan. Setjið 1 merkiþráð 51-55-59-63-69-74 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 86-94-102-110-122-132 lykkjur á milli merkiþráða á bakstykki). Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar fækka á lykkjum og auka út í hliðum. Þegar stykkið mælist 6-6-6-7-7-7 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverjum 6-6-6-7-7-7 cm alls 3 sinnum = 176-192-208-224-248-268 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 23-24-25-26-27-28 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri) = 180-196-212-228-252-272 lykkjur. Þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm (1 cm á eftir síðasta hnappagatinu), byrjar úrtaka fyrir V-hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. Samtímis er einnig lykkjum fækkað fyrir handvegi, þetta gerist áður en úrtöku fyrir V-hálsmáli er lokið, passaðu því uppá þetta þegar prjónað er áfram! Fækkið um 1 lykkju fyrir V-hálsmáli innan við kant að framan í byrjun og lok umferðar – lestu ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-4-4-4-5-5 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 6-6-7-7-7-8 sinnum. SKIPTING FYRIR HANDVEG: Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu, prjónið lykkjur og fækkið þannig: Prjónið eins og áður þar til eftir eru 3-3-4-4-5-5 lykkjur á undan fyrri merkiþræði, fellið af 6-6-8-8-10-10 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til eftir eru 3-3-4-4-5-5 lykkjur á undan seinni merkiþræði, fellið af 6-6-8-8-10-10 lykkjur fyrir handveg og prjónið eins og áður út umferðina. Hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. HÆGRA FRAMSTYKKI: Byrjið frá réttu, prjónið fram og til baka í sléttprjóni með 8 kantlykkjum að framan í I-cord eins og áður, haldið áfram með úrtöku fyrir V-hálsmáli, en þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir og næsta umferð er prjónuð frá réttu, byrjar úrtaka fyrir handveg og lykkjum er fækkað fyrir handveg í annarri hverri umferð þannig – lesið ÚRTAKA-3: Fækkið um 2 lykkjur alls 1-2-3-4-4-5 sinnum og fækkið um 1 lykkju alls 6-6-6-6-9-10 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir V-hálsmáli og handvegi eru 28-30-30-32-33-34 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð frá röngu er lykkjum fækkað yfir fyrstu 20-22-22-24-25-26 lykkjur fyrir öxl = 8 kantlykkjur að framan. Prjónið fram og til baka eins og áður yfir kantlykkjur að framan í 6-6-7-7-7-8 cm, fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Byrjið frá réttu, prjónið fram og til baka í sléttprjóni með 8 kantlykkjum að framan í I-cord eins og áður, haldið áfram með úrtöku fyrir V-hálsmáli, en þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir og næsta umferð er prjónuð frá réttu, byrjar úrtaka fyrir handveg og lykkjum er fækkað fyrir handveg í annarri hverri umferð þannig – lesið ÚRTAKA-3: Fækkið um 2 lykkjur alls 1-2-3-4-4-5 sinnum og fækkið um 1 lykkju alls 6-6-6-6-9-10 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir V-hálsmáli og handvegi eru 28-30-30-32-33-34 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað yfir fyrstu 20-22-22-24-25-26 lykkjur fyrir öxl = 8 kantlykkjur að framan. Prjónið fram og til baka eins og áður yfir kantlykkjur að framan í 6-6-7-7-7-8 cm, fellið af. BAKSTYKKKI: = 76-84-90-98-108-118 lykkjur. Byrjið frá réttu, prjónið fram og til baka í sléttprjóni, en þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir og næsta umferð er prjónuð frá réttu, byrjar úrtaka fyrir handvegi og lykkjum er fækkað fyrir handvegi í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig – munið eftir ÚRTAKA-3. Fækkið um 2 lykkjur alls 1-2-3-4-4-5 sinnum og síðan 1 lykkju alls 6-6-6-6-9-10 sinnum = 60-64-66-70-74-78 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fellið af miðju 18-18-20-20-22-24 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið síðan sléttprjón, en þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir úrtöku fyrir hálsmáli og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli – munið eftir ÚRTAKA-3 = 20-22-22-24-25-26 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMAR: Ermin er prjónuð í hring. Fitjið upp 82-86-90-94-98-100 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan. Setjið 1 merkiþráð í byrun umferðar (= mitt undir ermi), látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 10-10-8-7-5-4 cm frá uppfitjunarkanti. Nú á að fækka lykkjum mitt undir ermi og ermakúpan er síðan prjónuð eins og útskýrt er að neðan. ERMAKÚPA: Byrjið 3-3-4-4-5-5 lykkjur á undan merkiþræði, fellið af 6-6-8-8-10-10 lykkjur fyrir handveg og prjónið sléttprjón út umferðina. Síðan er stykkið prjónað til loka fram og til baka, JAFNFRAMT er fellt af fyrir ermakúpu í hvorri hlið, fækkið lykkjum í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-3-1-1-0-0 sinnum og síðan 1 lykkju 18-16-19-21-24-25 sinnum = 36-36-40-40-40-40 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 18-18-20-20-20-20 lykkjur. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 26-26-25-25-25-25 cm frá uppfitjunarkanti. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma – byrjið yst við handveg og saumið lykkju á móti lykkju (8 kantlykkjur að framan eru ekki saumaðar í axlasaumi). Saumið ermar í – stillið af að e.t.v. auka efni á ermakúpunni sé dregið saman mitt ofan á ermi, þannig að ermin passi í handveginn. Saumið saman kantlykkjur að framan mitt að aftan með sauminn inn að röngu og saumið kantinn við hálsmálið aftan í hnakka. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |