Winter Skies |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hekluð ermalaus peysa úr 2 þráðum DROPS Alpaca með gatamynstri, röndum og sjalkraga, hekluð ofan frá og niður. Stærð S-XXXL.
DROPS 173-36 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll. Í byrjun á hverri umf með fl er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5 – sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð. RENDUR: Allar rendur eru heklaðar með 2 þráðum. Heklið 3 mynstureiningar (1 mynstureining á hæðina = 4 síðustu umf í mynstri) á hæðina með rönd 1-5, síðan er rönd 6 hekluð til loka. RÖND 1: 1 þráður natur + 1 þráður ljós perlugrár. RÖND 2: 2 þræðir ljós perlugrár. RÖND 3: 1 þráður ljós perlugrár + 1 þráður ljós grár. RÖND 4: 2 þræðir ljós grár. RÖND 5: 1 þráður ljós grár + 1 þráður milligrár. RÖND 6: 2 þræðir milligrár. HNAPPAGAT: Heklið hnappagöt á hægri kant að framan í umf með st. Byrjið frá röngu og heklið þannig: Heklið fyrstu 5 st í kanti að framan, heklið 1 ll, hoppið yfir 1 l og haldið síðan áfram með st út kantinn að framan. Heklið hnappagat þegar stykkið mælist: STÆRÐ S/M: 23 og 30 cm. STÆRÐ L/XL: 24 og 31 cm. STÆRÐ XXL: 25 og 32 cm. STÆRÐ XXXL: 26 og 33 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður í stykkjum og saumað saman í lokin. BAKSTYKKI: Hægri öxl: Heklið 48-53-59-63 ll með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum ljós perlugrár (= 2 þræðir) með heklunál nr 6. Klippið frá og heklið vinstri öxl: Heklið 50-55-61-65 ll með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum ljós perlugrár (= 2 þræðir) með heklunál nr 6, snúið við og heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 st í hverja af næstu 4-2-1-5 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* alls 6-7-8-8 sinnum = 42-46-51-55 st. Haldið síðan áfram með fyrstu umf í A.5 (= 18 ll), heklið 1 st í 1. ll frá ll-umf (= hægri öxl), heklið 1 st í hverja af næstu 5-3-2-6 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* alls 6-7-8-8 sinnum = 42-46-51-55 st fyrir hvora öxl. Snúið við og heklið RENDUR – sjá útskýringu að ofan og MYNSTUR frá réttu þannig – byrjið á umf 2 í mynstri: Heklið A.1a – sjá útskýringu fyrir rétta stærð (= 1 l), A.2 (= 5 st) 1-0-1-0 sinnum á breidd, A.3 (= 9 st) yfir næstu 36-45-45-54 st, A.5 yfir 18 ll fyrir hálsmáli, A.3 yfir næstu 36-45-45-54 st, A.4 1-0-1-0 sinnum, A.1a. Heklið 1 umf til baka í mynstri (= umf 3). Haldið svona áfram með mynstur, en nú er heklað frá umf 4 í mynstri A.3 yfir A.5 (þ.e.a.s. heklið alls 10-12-12-14 mynstureiningar A.3 á breidd). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 til A.4 hefur verið heklað til loka eru endurteknar síðustu 4 umf í mynstri á hæðina. Þegar rönd 2 hefur verið hekluð til loka mælist stykkið ca 28 cm. Klippið frá. Haldið nú áfram frá rönd 3 og hoppað er yfir mynstureiningar í hvorri hlið fyrir ermum eftir stærðum eins og útskýrt er frá að neðan – byrjið frá röngu: S/M - XXL: ATH: Byrjið að hekla frá umf 3 í mynstri. Hoppið yfir A.1a, A.4, 1 mynstureining A.3 og fyrsta ll-boga í næstu mynstureiningu A.3 fyrir ermi. Byrjið í næsta ll-boga (= 3 ll) og heklið A.1a, heklið A.2, A.3 alls 6-8 sinnum á breidd, A.4, A.1a. ATH: Nú eru eftir samsvarandi mynstur í lok umf eins og það sem hoppað var yfir í byrjun umf. L/XL - XXXL: ATH: Byrjið að hekla frá umf 3 í munstri. Hoppið yfir A.1a, 1 mynstureining A.3 og hoppið yfir 2 næsta ll-boga í næstu mynstureiningu A.3. Byrjið í næsta ll-boga (= síðasta ll-boginn í A.3) og heklið A.1a, heklið A.3 alls 8-10 sinnum á breidd, heklið A.1a í næsta ll-boga. ATH: Nú eru eftir samsvarandi mynstur í lok umf eins og það sem hoppað var yfir í byrjun umf. Haldið svona áfram þar til rönd 5 hefur verið hekluð til loka á hæðina. Heklið rönd 6 þar til stykkið mælist 82-84-87-89 cm frá öxl. HÆGRA FRAMSTYKKI/ERMI: Heklið kragann þannig: Heklið 21 ll með 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum ljós perlugrár með heklunál nr 6, snúið við og heklið þannig: 1 fl í 2. ll frá heklunálinni (= 2 fl), hoppið yfir 1 ll, heklið 1 fl í hverja af næstu 4 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 fl í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum = 18 fl. Snúið við og setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = rétta! Heklið nú stuttar umf þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 1 st í hverja fl. UMFERÐ 2: Heklið 1 st í hvorn af næstu 2 st, 1 hst í næstu 2 st, 1 fl í hvorn af næstu 2 st, 1 kl í næstu 2 st, snúið við. UMFERÐ 3: Heklið 1 kl í næstu 2 l, 1 fl í hvora af næstu 2 l, 1 hst í hvora af næstu 2 l, 1 st í hvora af þeim 2 l sem eftir eru. Snúið við. UMFERÐ 4: Heklið 1 st í hverja l. Snúið við. UMFERÐ 5: Heklið 1 st í hvern st. Haldið svona áfram að endurtaka umf 2-5 þar til stysta hliðin á kraganum mælist 8 cm, passið að síðasta umf sé hekluð frá röngu! Klippið frá. Heklið nú öxl þannig: Heklið 50-55-61-65 lausar ll með 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum ljós perlugrár (= 2 þræðir) með heklunál nr 6, snúið við og heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), heklið 1 st í hverja af næstu 4-2-1-5 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* alls 6-7-8-8 sinnum = 42-46-51-55 st. Snúið við og heklið mynstur frá röngu þannig – byrjið frá umf 2 í mynstri: ATH: Rendurnar eru heklaðar eins og á bakstykki! Heklið A.1a, A.2 alls 1-0-1-0 sinnum, A.3 yfir næstu 36-45-45-54 st. Haldið áfram með mynstur yfir 18 l frá kraga frá réttu þannig: A.4, A.1b yfir þá 13 st sem eftir eru (= kantur að framan). Þegar mynstur A.1 til A.4 hefur verið heklað til loka eru endurteknar síðustu 4 umf á hæðina. Þegar rönd 2 hefur verið hekluð til loka mælist stykkið ca 28 cm. Klippið frá! MUNIÐ EFTIR HNAPPAGATI! Haldið nú áfram frá rönd 3 og hoppað er yfir mynstureiningar í hvorri hlið fyrir ermum eftir stærðum eins og útskýrt er frá að neðan – byrjið frá röngu: S/M - XXL: ATH: Byrjið að hekla frá umf 3 í mynstri. Heklið A.1b yfir kant að framan eins og áður (= 13 l), heklið A.4, A.3 alls 2-3 sinnum á breiddina, A.2 og endið með A.1a í næsta ll-boga (= 3 ll). Snúið við og haldið síðan svona áfram fram og til baka. L/XL - XXXL: ATH: Byrjið að hekla frá umf 3 í mynstri. Heklið A.1b yfir kant að framan eins og áður (= 13 l), heklið A.4, A.3 alls 3-4 sinnum á breiddina og endið með A.1a í næsta ll-boga. Haldið svona áfram þar til rönd 5 hefur verið hekluð til loka á hæðina. Haldið nú áfram með rönd 6 þar til stykkið mælist 82-84-87-89 cm frá öxl – stillið af eftir bakstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI/ERMI: Heklið öxl þannig: Heklið 50-55-61-65 lausar ll með 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum ljós perlugrár (= 2 þræðir) með heklunál nr 6. Snúið við og heklið þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), heklið 1 st í hverja af næstu 4-2-1-5 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá 6-7-8-8 sinnum = 42-46-51-55 st. Klippið frá og heklið kraga þannig: Heklið 21 ll með 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum ljós perlugrár með heklunál nr 6. Snúið við og heklið þannig: 1 fl í 2. ll frá heklunálinni (= 2 fl), hoppið yfir 1 ll, heklið 1 fl í hverja af næstu 4 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 fl í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum = 18 fl. Setjið eitt prjónamerki í síðustu l sem hekluð var = rétta! Snúið við. Heklið nú stuttar umf með byrjun frá röngu þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið 1 st í hverja fl, snúið við. UMFERÐ 2: Heklið 1 st í hvorn af næstu 2 st, 1 hst í næsta st, 1 fl í hvorn af næstu 2 st, 1 kl í næsta st, snúið við. UMFERÐ 3: Heklið 1 kl í fyrstu l, 1 fl í hvora af næstu 2 l, 1 hst í næstu l, 1 st í hvora af næstu 2 l, snúið við. UMFERÐ 4: Heklið 1 st í hverja l, snúið við. UMFERÐ 5: Heklið 1 st í hvern st, snúið við. Haldið svona áfram og endurtakið umf 2-5 þar til stysta hliðin á kraganum mælist 8 cm, stillið af að síðasta umf sé hekluð frá röngu. Klippið ekki frá. Snúið stykki og heklið mynstur frá réttu þannig – byrjið á umf 2 í mynstri: Heklið A.1b yfir fyrstu 13 l, A.2, heklið A.3 yfir fyrstu 36-45-45-54 st á vinstri öxl, A.4 alls 1-0-1-0 sinnum, A.1a. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar mynstur A.1 til A.4 hefur verið heklað til loka eru síðustu 4 umf endurteknar á hæðina. Þegar rönd 2 hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist stykkið ca 28 cm. Klippið frá. Haldið nú áfram frá rönd 3 og hoppað er yfir mynstureiningar í hvorri hlið fyrir ermum eftir stærðum eins og útskýrt er frá að neðan – byrjið frá röngu: S/M - XXL: ATH: Byrjið að hekla frá umf 3 í mynstri. Hoppið yfir A.1a, A.4, 1 mynstureining A.3 og fyrsta ll-boga í næstu mynstureiningu A.3 fyrir ermi. Byrjið í næsta ll-boga (= 3 ll) og heklið A.1a, A.2, A.3 alls 2-3 sinnum á breidd, A.2, heklið A.1b í þær 13 l sem eftir eru. L/XL - XXXL: ATH: Byrjið að hekla frá umf 3 í mynstri. Hoppið yfir A.1a, 1 mynstureining A.3 og hoppið yfir 2 næstu ll-boga í næstu mynstureiningu A.3. Byrjið í næsta ll-boga (= síðasta ll-bogann í næstu mynstureiningu A.3) og heklið A.1, haldið áfram með A.3 alls 3-4 sinnum á breiddina, A.2, A.1b yfir þær 13 l sem eftir eru. Haldið svona áfram þar til rönd 5 hefur verið hekluð til loka á hæðina. Haldið nú áfram með rönd 6 þar til stykkið mælist 82-84-87-89 cm frá öxl – stillið af eftir bakstykki. FRÁGANGUR: Leggið axlir frá bakstykki og framstykki að hvorri annarri og saumið axlasauma með 1 þræði natur með því að sauma eina og eina l saman. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt með 1 þræði í litnum ljós grár, saumið í ystur lykkjubogana í l eina og eina þar til eftir eru 26 cm fyrir klauf neðst niðri á hvorri hlið. Heklið kant í kringum ermar þannig: Byrjið mitt undir ermi og heklið með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum ljós perlugrár (= 2 þræðir) með heklunál nr 6 þannig: * heklið 1 fl, 3 ll, hoppið yfir 1 cm *, endurtakið frá *-* í kringum alla ermina og endið með 1 kl í fyrstu fl í umf. Heklið alveg eins í kringum hina ermina. Saumið kragann samann fyrir miðju að aftan með litnum natur, saumið síðan kragann við kant í hálsi. Saumið tölur í vinstra kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (43)
Annette wrote:
Non riesco a capire l'inizio: "Spalla destra: Con l’uncinetto n° 6 e 1 capo del colore panna/ecrù + 1 capo del colore grigio chiaro perla (= 2 capi) avviare 48-53-59-63 cat. Tagliare il filo e lavorare la spalla sinistra." perchè devo avviare le catenella per la spalla destra e spezzare il filo, e poi mentre si lavora la spalla sinistra che centra la destra?
05.10.2022 - 19:05DROPS Design answered:
Buonasera Annette, questo modello ha una costruzione particolare, si avviano le maglie della spalla destra e poi si continua sulla sinistra. Buon lavoro!
05.10.2022 - 23:19Andrea wrote:
Gracias por contestar voy a intentar
19.02.2022 - 23:26Andrea wrote:
HOLA!!! Ahora me quedé en esta parte después de la espalda talle M. Agradecería que me expliques un poco más esta parte. Saltar para la manga A.1a, A.4, 1 repetición de A.3 y el primer arco de la sig repetición de A.3. Comenzar en el sig arco (= 3 p.de cad) y trabajar A.1a, A.2, A.3 un total de 6-8 vcs en el ancho, A.2, A.1a. ATENCIÓN: Al final de la fila queda sin trabajar el mismo patrón que hemos saltado al inicio de la fila. GRACIAS
16.02.2022 - 13:01DROPS Design answered:
Hola Andrea, para la sisa, a ganchillo, en lugar de cerrar puntos como al trabajar con dos agujas, se dejan puntos o p.de cad sin trabajar; se saltan. De este modo, dejamos un espacio para la sisas. Se salta o no trabaja las instrucciones de la primera frase y se comienza en el 2º arco de la 2ª repetición de A.3. Después se trabaja como se explica. No se trabaja hasta el final de la fila, solo hasta el final de la explicación. Por lo tanto, al final de la fila va a quedar unos puntos sin trabajar. Estos puntos deberían coincidir con los saltados al inicio de la fila y forman la segunda sisa.
19.02.2022 - 18:49Andrea wrote:
Gracias por responder ahora me queda más claro. Saludos Andrea
15.02.2022 - 03:06Andrea wrote:
Olvide decir que estoy usando un hilo multicolor. es decir un solo hilo por eso no sigo lo de las franjas. Andrea
08.02.2022 - 01:13DROPS Design answered:
Hola Andrea, puedes ver la respuesta debajo.
13.02.2022 - 19:32Andrea wrote:
Gracias por contestar anteriormente a mi duda. Ahora surgió otra sigo en la espalda talla M y es la de las 12 repeticiones que no comprendo (Continuar con el patrón de la misma manera pero ahora trabajar desde la 4ª fila desl diagrama A.3 sobre A.5 (es decir, trabajar 10-12-12-14 repeticiones de A.3 en total en el ancho). Además después de las 18 cadenas del cuello, éstas se unen con las cadenas del hombro derecho? Perdón pero está medio complicado. Saludos Andrea
08.02.2022 - 00:59DROPS Design answered:
Hola Andrea, como en esta fila solo se trabaja A.3, se trabajan los primeros A.3 como antes (5 repeticiones sobre 45 puntos), 2 repeticiones de A.3 sobre los puntos de A.5 de la fila anterior (18 puntos centrales) y trabajar otras 5 repeticiones de A.3 sobre los siguientes 45 puntos. Por lo tanto, trabajar 12 repeticiones de A.3 en la vuelta. Sobre las cadenas del cuello, sí, se unen a los puntos del hombro derecho.
13.02.2022 - 19:32Andrea Wetney wrote:
Hola me encantan sus diseños pero en este en particular tuve dificultades en la explicación y por lo que veo no soy la única. Quedé en la parte de la espalda para talla M donde dice = 9 puntos altos sobre los 45 p. a. qué se supone que haga??\r\nAndrea
31.01.2022 - 17:02DROPS Design answered:
Hola Andrea, tienes que trabajar una repetición de 9 puntos altos, que se repite a lo largo de los 45 p.a (es decir, 5 veces).
31.01.2022 - 23:42Alice wrote:
Non riesco a capire le spiegazioni. Cosa vuol dire "saltare per la manica"? Non dovrebbe esserci un aumento o diminuzione per le maniche? Perché nel dietro non mette dietro/maniche se sono lavorate insieme? Grazie
29.12.2021 - 00:32DROPS Design answered:
Buonasera Alice, dove indica "saltare", semplicemente non deve lavorare su quelle maglie. Buon lavoro!
29.12.2021 - 22:18Inga wrote:
Hei Skal venstre og høyre krage hekles forskjellig? Det er forskjell i oppskriften med tanke på halvstaver og kjedemasker i de forkortede rundene.
11.08.2020 - 14:29DROPS Design answered:
Hej Inga, kraverne er ens men spejlvendte og det skal der være taget højde for i opskriften. God fornøjelse!
20.08.2020 - 13:46Sandra wrote:
I must be missing something as I can’t find how many chain to start with, I have gone through a few times with no success, hope you can point me in the right direction. Thanks in advance
11.08.2020 - 12:13DROPS Design answered:
Dear Sandra, you will find the number of chains in each size to cast on under: BACK PIECE: Right shoulder: Work 48-53-59-63 ch with 1 strand off white and 1 strand light pearl grey (= 2 strands) on hook size 6 mm. Cut the yarn and work left shoulder... Happy crocheting!
11.08.2020 - 13:38