DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale

Escapade

Peysa með hekluðum ferningum að aftan, hekluð í hring frá bakstykki úr DROPS Delight. Stærð S – XXXL

DROPS 180-31
DROPS Design: Mynstur de-175
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
450-500-500-550-600 g litur 18, haustskógur
150-150-200-200-200 g litur 17, hindberjaterta

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 22 stuðlar og 12 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð. 1 heklaður ferningur mælist ca 12 x 12 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Hver umferð með stuðlum, byrjar á 3 loftlykkjum og endar á 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. (Þessar 3 loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls í umferð).

RENDUR:
Heklið 1 umferð með litnum haustskógur (á við um umferð með 3 stuðlum + 1 loftlykkju í mynsturteikningu A.2-A.6).
Heklið 1 umferð með litnum hindberjaterta (á við um umferð með 3 loftlykkjum + 1 stuðli í mynsturteikningu A.2-A.6).
Endurtakið þessar 2 umferðir áfram í stykkinu.

SKIPT UM ÞRÁÐ:
Til að litaskiptin í Delight verði falleg þegar skipt er um dokku, er mikilvægt að finna dokku sem byrjar á þeim lit sem sú fyrri endaði á.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Heklaðir eru 9 ferningar sem saumaðir eru saman í einn stóran ferning á bakstykki. Síðan er heklað hringinn utan um þennan ferning og hoppað er yfir lykkjur fyrir handveg. Síðan er heklað fram og til baka fyrir framstykki. Að lokum eru ermarnar heklaðar í hring.

HEKLAÐUR FERNINGUR:
Heklið 6 loftlykkjur með heklunál 4 með litnum haustskógur og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan MYNSTUR hringinn eftir mynsturteikningu A.1.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Lesið SKIPT UM ÞRÁÐ!
1 ferningur á að mælast 12 x 12 cm. Heklið alls 9 ferninga.

FRÁGANGUR AF FERNINGUM:
Leggið ferningana niður með 3 ferninga á breidd og 3 ferninga á hæð.
Heklið ferningana saman – fyrst á lengdina og síðan á breiddina þannig:
Leggið 2 ferninga með röngu á móti röngu og heklið saman frá réttu: * 1 fastalykkja um hornið á fyrsta ferningi, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja um hornið á næsta ferning, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í næstu lykkju á fyrri ferning, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í næstu lykkju á seinni ferning, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í næstu lykkju á fyrri ferning, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í næstu lykkju á seinni ferning *, heklið frá *-* en á milli hverra setta með ferningum sem heklaðir eru saman, heklið 1 loftlykkju. Heklið svona saman alla ferningana. ATH: Passið uppá að samskeytin verði falleg á milli allra ferninga þegar ferningarnir eru heklaðir saman á lengdina.
Klippið frá og festið enda. Setjið 1 prjónamerki í ystu umferð á stykki – HÉÐAN NÚ MÆLT!

Heklið síðan 1 umferð með stuðlum í kringum allan ferninginn þannig – byrjið efst í hægra horni (= 1. horn – sjá mynsturteikningu): Heklið 1 fastalykkju um loftlykkjuboga í horni, 3 loftlykkjur – lesið HEKLLEIÐBEININGAR, 2 stuðlar + 2 loftlykkjur + 2 stuðlar um sama loftlykkjuboga, heklið síðan 1 stuðul í hvern og einn af 23 stuðlum á hverjum ferning + 1 stuðul á milli allra ferninga efst á bakstykki = 75 stuðlar meðfram hverri hlið með 2 loftlykkjum í hverju horni. Heklið síðan hringinn um ferkantaða bakstykkið eftir mismunandi stærðum þannig:

Stærð S/M:
Heklið RENDUR – sjá útskýringu að ofan og heklið frá 1. horni þannig:
UMFERÐ 1: Heklið A.2a um loftlykkjuboga í horni, A.2b yfir næstu 3 stuðla, A.2c þar til 6 stuðlar eru eftir á undan næsta horni, A.2d yfir næstu 6 stuðla, A.2a um loftlykkjuboga í næsta horni. Heklið 42 lausar loftlykkjur og hoppið yfir 42 stuðla (= handvegur), heklið A.2c yfir næstu 27 stuðla, A.2d, A.2a um loftlykkjuboga í horni, A.2b, A.2c þar til 6 stuðlar eru eftir á undan næsta horni, A.2d, A.2a um loftlykkjuboga í horni, A.2b, A.2c yfir næstu 27 stuðlum, heklið 42 lausar loftlykkjur (= handvegur), hoppið yfir 42 stuðla, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. UMFERÐ 2: Heklið næstu umferð í mynsturteikningu alveg eins, en heklið 14 mynstureiningar A.2c um loftlykkjuumferð fyrir handveg á hvorri hlið.
Nú er pláss fyrir 24 mynstureiningar A.2c + A.2b og A.2d, meðfram hverri hlið á ferhyrning og A.2 í hverju horni.
Haldið síðan áfram þar til mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið síðan 2 síðustu umferðirnar í mynsturteikningu A.2a, A.2b, A.2c og A.2d þar til stykkið mælist 20 cm – endið eftir eina umferð með 3 stuðlum + 1 loftlykkju! Klippið frá. Heklið síðan FRAMSTYKKI – sjá útskýringu að neðan.

Stærð L, XL, XXL og XXXL:
Heklið RENDUR – sjá útskýringu að ofan og heklið frá 1. horni þannig:
* Heklið A.2 um loftlykkjuboga í horni, A.2b yfir næstu 3 stuðla, A.2c þar til 6 stuðlar eru eftir á undan næsta horni, A.2d yfir næstu 6 stuðla *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Nú þegar heklaðar hafa verið 2 umferðir er stærð L og XL lokið.
Þegar heklaðar hafa verið 4 umferðir er stærð XXL og XXXL lokið.
Síðan eru endurteknar 2 síðustu umferðirnar í mynsturteikningu A.2a, A.2b, A.2c og A.2d og handvegur heklaður þannig:
UMFERÐ 1: Heklið A.2a um loftlykkjuboga í 1. horni, A.2b, A.2c þar til 6 stuðlar eru eftir á undan næsta horni, A,2d, A.2a um loftlykkjuboga í næsta horni. Heklið 45-45-48-51 lausar loftlykkjur og hoppið yfir 45-45-48-51 stuðla (= handvegur), heklið A.2c yfir næstu 36-36-45-42 stuðla, A.2d, A.2a um loftlykkjuboga í horni, A.2b, A.2c þar til 6 stuðlar eru eftir á undan næsta horni, A.2d, A.2a um loftlykkjuboga í horni, A.2b, A.2c yfir næstu 36-36-45-42 stuðlum, heklið 45-45-48-51 lausar loftlykkjur (= handvegur), hoppið yfir 45-45-48-51 stuðla, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.
UMFERÐ 2: Heklið næstu umferð í mynsturteikningu alveg eins, en heklið 15-15-16-17 mynstureiningar A.2c um loftlykkjuumferð fyrir handveg í hvorri hlið. Haldið áfram að endurtaka 2 síðustu umferðirnar í mynsturteikningu A.2a, A.2b, A.2c og A.2d þar til stykkið mælist 20 cm – endið eftir eina umferð með 3 stuðlum + 1 loftlykkju! Klippið frá. Heklið síðan FRAMSTYKKI – sjá útskýringu að neðan.

ALLAR STÆRÐIR:
FRAMSTYKKI:
Framstykki er heklað fram og til baka hvor fyrir sig. Rendur halda áfram eins og áður.
Byrjið frá röngu og festið enda með 1 fastalykkju um loftlykkjuboga í 1. horni – sjá stjörnu á mynsturteikningu!
Heklið A.3a um loftlykkjuboga (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), A.3b fram að 4. horni, heklið A.3c um loftlykkjuboga í horni (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar). Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið 2 síðustu umferðirnar í mynsturteikningu þar til framstykkið mælist 24-26-27-28-29 cm – endið eftir eina umferð eins og síðasta umferð í mynsturteikningu! Klippið frá og festið enda. Endurtakið í hinni hliðinni alveg eins, nema nú er heklað fram og til baka frá 3. til 2. horni – sjá mynsturteikningu!

Endið með eina umferð stuðlum í kringum alla peysuna: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul/1 stuðul um hverja loftlykkju og heklið (3 stuðla, 1 loftlykkju, 3 stuðla) í ysta stuðul í hverju og einu af fjórum hornunum. Klippið frá og festið enda.

ERMAR:
Ermin er hekluð í hring frá handveg. Munið eftir HEKLLEIÐBEININGUM! Setjið eitt prjónamerki undir handveg. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Byrjun á umferð er hér! Byrjið með að hekla 84-92-92-96-104 stuðla jafnt yfir í kringum op á ermum með litnum hindberjaterta. Haldið áfram hringinn með röndum eins og áður og mynstri þannig: Heklið A.4 yfir fyrstu 16 stuðlana, heklið A.5 yfir næstu 48-56-56-60-68 stuðla, heklið A.6 yfir síðustu 20 stuðla. Haldið áfram hringinn. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina er fækkað 1 sinni hvoru megin við prjónamerki. Síðan er mynstrið endurtekið frá umferð merktri með ör í mynsturteikningu 3-4-4-3-4 sinnum til viðbótar á hæðina (= 4-5-5-4-5 úrtökur hvoru megin við prjónamerki). Haldið síðan áfram með mynstur alveg eins án úrtöku, þar til ermin mælist 54 cm – endið eftir eina umferð eins og síðasta umferð í A.4-A.6. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = Heklið 6 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Umferðin byrjar og endar í svörtum punkt í hring
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuhring/loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 stuðull á milli 2 lykkja
symbols = Heklið 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða bandi um heklunálina og að draga bandið í gegn (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næsta stuðul, en þegar draga á bandið í gegn í lokin, er það dregið í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri).
symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð, byrjið á næstu umferð
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju frá byrjun umferðar
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjum
symbols = mynstrið er endurtekið frá þessari umferð
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 180-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Yrsa Saranpää wrote:

Det lyckas att virka utan att ta av garnet om man virkar 2 varv från avan, 2 varv från rätan...

07.07.2023 - 11:08

country flag Yrsa Saranpää wrote:

Hej, jag har nu kommit till framstyckena. Vad jag förstår när man virkar ett varv i taget så måste man ju efter varje varv ta av garnet och börja på nytt i motsatta hörnet eftersom man virkar fram och tillbaks med 2 garn. Eller har jag missat nåt knep? Blir en massa ändor att fästa..

06.07.2023 - 15:35

DROPS Design answered:

Hej Yrsa, ... går det at virka fra den side hvor du har garnet?

07.07.2023 - 10:47

country flag Yrsa Saranpää wrote:

... jo nu ser jag.. stjärnan betyder ju att det varvet är virkat.. tack nu kan jag fortsätta :)

21.06.2023 - 21:39

country flag Yrsa Saranpää wrote:

Undrar om det skall vara en luftmaska mellan alla stolpar som man virkar på det första varvet runt de 9 rygglapparna? Eftersom sedan först randningsvarvet skall vara stolpar med märkning " runt luftmaskan/bågen/ringen och inte " stolpe i stolpe? .... eller nu ser jag ett annat alternativ.. är först randningsvarvet den andra raden på mönstret?

21.06.2023 - 21:30

country flag Kristin wrote:

Ik heb de vierkantjes aan elkaar gehaakt zoals beschrijving, zo heb ik boordje van ons 1cm tussen de vierkanten. Als ik dan rondom haak zou ik volgens de beschrijving 23 stokjes haken in de vierkanten en 1 stokje tussen de vierkanten? dit is te weinig 1 stokje tussen de vierkanten, het werk gaat trekken dan?

23.03.2023 - 17:13

DROPS Design answered:

Dag Kristin,

Toch is het de bedoeling om 1 stokje te haken tussen de vierkanten, zodat je daarna uitkomt met het aantal steken om het werk te kunnen vervolgen. Vaak trekt het werk wel bij na verloop van tijd, maar als het echt te strak zit zou je kunnen kijken of je met een dikkere naald kunt werken.

24.03.2023 - 19:30

country flag Kristin wrote:

Na het haken van de vierkanten heb ik rondom een rij stokjes gehaakt. Dan telpatroon A.2a in de hoek om de vossenlus maar dan loop ik vast: telpatroon A.2b kan ik niet lezen. Volgens mijn 2 stokjes om de lossenlus?? maar ik heb geen vossenlus, enkel stokjes. Na de 3 stokjes staat er niets?? moeten hier lossen gehaakt worden? zo ja hoeveel? idem telpatroon A.2c

23.03.2023 - 11:44

DROPS Design answered:

Dag Kristin,

De eerste toer van A.2 is al gehaakt, dus je begint met het lezen van de tweede toer, dus de toer waar je de streepjes met zwartje vierkantje ziet. Je haakt dus steeds afwisselend 1 losse, 3 steken overslaan en 3 stokjes tussen 2 steken van de vorige toer.

08.05.2023 - 21:04

country flag Natasha Cole wrote:

Why do you have to write your patterns in such a way that it is impossible to understand beats me. I have finished joining my squares at the back but the rest of the instructions are meaningless to me.

31.03.2020 - 21:14

DROPS Design answered:

Dear Mrs Cole, after square are joined, you will work around all squares and crochet now diagram A.2 shaping armholes - see your size. Armholes are simply worked by skipping stitches replace by chains, there is then a hole = armhole where sleeves will be then worked later from (and top down). You continue then working the large square and continue each front piece separately in rows - see also measurement chart. Hope this can help, but do not hesitate to contact your DROPS store for any further individual assistance, even per mail or telephone. Happy crocheting!

01.04.2020 - 08:45

country flag Whitehouse wrote:

Bonjour, Pouvez vous m’expliquer comment vous obtenez le même nombre de mailles de chaque côté des emmanchure sachant que vous terminez la première emmanchure en bas avec A2d qui compte 6 brides et que vous commencez la deuxième emmanchure par le bas avec A2b qui compte 3 brides. Cela m’occasionne un décalage premièrement de trois brides entre l’emmanchure gauche et droite mais aussi un décalage de 25 motifs à gauche et 24 à droite au deuxième tour. Merci de m’aider

17.09.2019 - 15:25

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Whitehouse, vous sautez le même nombre de mailles pour chacune des emmanchures, vous aurez donc le même nombre de motifs le long de chaque côté du carré et au-dessus des chaînettes des emmanchures. Bon crochet!

17.09.2019 - 15:48

country flag Maria wrote:

Si para la sisa hago 48 cadenas y después trabajo 16 repeticiones de 4 puntos son 64 puntos. Está bien?

20.06.2019 - 01:00

DROPS Design answered:

Hola Maria. Es correcto. Los puntos se trabajan alrededor de la cadeneta de 48 puntos.

27.06.2019 - 23:19

country flag Chrissie wrote:

Gefällt mir super! Schöne Herbstfarben!

03.07.2017 - 20:10