DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 704.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Aiden Socks

Prjónaðar tátiljur fyrir börn með köðlum og stroffprjóni úr DROPS Lima. Stærð 1 mán – 4 ára.

DROPS Baby 31-24
DROPS Design: Mynstur li-004-by
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Lengd á fæti: 10-11-12 (14-16) cm

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50-50-50-50 (50-50) g litur 0206, ljós beige

DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferð með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 704.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veljið mynstur fyrir rétta stærð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TÁTILJUR- STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring frá miðju undir sóla og upp að stroffi. Umferðin byrjar fyrir miðju að aftan.

TÁTILJA:
Fitjið upp 38-42-46 (58-66) lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Lima.
Setjið 1 prjónamerki 19-21-23 (29-33) lykkjum inn í stykkið (= miðja að framan). Prjónið 1 umferð slétt. Aukið síðan út þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir er 1 lykkja á undan prjónamerki við miðju að framan, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= 4 lykkjur fleiri).
UMFERÐ 2: Prjónið slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt, það eiga ekki að myndast göt. Endurtakið umferð 1 og 2 alls 3 sinnum = 50-54-58 (70-78) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið 2 umferðir slétt. Prjónið 1 umferð brugðið. Sólinn á nú að vera prjónaður til loka og haldið er áfram að prjóna mynstur yfir allar lykkjur þannig:
Prjónið A.1a (= 25-27-29 (35-39) lykkjur), (prjónamerki við miðju að framan), prjónið A.2a (= 25-27-29 (35-39) lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur hringinn. Þegar A.1a og A.2a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 40-44-48 (52-60) lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.1b yfir A.1a og A.2b yfir A.2a. Endurtakið A.1b og A.2b á hæðina þar til stykkið mælist alls 7-9-12 (12-14) cm. Prjónið A.1c yfir A.1b og A.2c yfir A.2b = 44-48-52 (56-64) lykkjur. Prjónið síðan stroff þannig: Prjónið A.1d yfir A.1c og A.2d yfir A.2c.
Þegar stykkið mælist 13-16-20 (21-24) cm (nú eru eftir 2 cm), prjónið 2 göt fyrir snúru í hlið þannig: Prjónið 7-9-9 (11-11) lykkjur eins og áður, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 gat), prjónið 2 lykkjur eins og áður, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 gat), prjónið síðan eins og áður út umferðina. Haldið áfram með stroffprjón eins og áður, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt. Þegar stykkið mælist 15-18-22 (23-26) cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum.
Saumið saum undir tátilju í ystu lykkjubogana.

Prjónið aðra tátilju á sama hátt, en þegar lykkjum er fækkað fyrir gati fyrir snúru er lykkjum fækkað í lok umferðar, þ.e.a.s: Prjónið eins og áður þar til eftir eru 13-15-15 (17-17) lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið síðan eins og áður út umferðina.

SNÚRA:
Klippið 2 þræði Lima ca 1 meter. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Brjótið uppá stroffið ca til helminga niður og þræðið snúrunni í gegnum götin, hnýtið slaufu. Gerið eina snúru fyrir hvora tátilju.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga að myndast göt
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 lykkjur slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
symbols = engin lykkja
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Aiden Socks

Enni / Tänkimäätein, Finland

Aiden Socks

Grace, United States

Jola's socks

Zuzana, Czech Republic

Aiden Socks #2

Sofylo, France

Aiden Socks #1

Sofylo, France

Aiden Socks

Mirijam, United Kingdom

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 31-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (24)

country flag Alison wrote:

I am doing 6-9 months A1a section. First row is 27 stitches, it becomes 25 stitches after the first row. But second row of A1a has 26 stitches in the pattern. Am I reading the pattern incorrectly?

19.04.2022 - 12:16

DROPS Design answered:

Dear Alison, first row in A.1 is worked over 27 sts but there are 26 sts after this row - see next to last symbol in the diagram key: you will decrease 1 stitch by slipping 1, knitting 2 and passing over the slipped stitch over the knitted stitches. See also how to work this kind of cable here. Happy knitting!

19.04.2022 - 13:11

country flag Renate Bannink wrote:

Ik wil met dit baby slofjes beginnen maar hoe begin ik met dit patroon?

06.02.2022 - 12:58

DROPS Design answered:

Dag Renate,

Het patroon begint bij de paragraaf 'SLOFFEN'. Daar staat aangegeven hoeveel steken je op moet zetten. (De reeks getallen corresponderen met de verschillende maten). Maak wel eerst een proeflapje om te controleren of de stekenverhouding klopt.

11.02.2022 - 15:08

country flag Daniela wrote:

Buongiorno, Non ho capito come procedere quando il modello dice di unire in tondo. Sono arrivata al punto di unire in tondo il lavoro, dopo aver concluso l'ultimo giro di A2a e ho 40 maglia (taglia 1/3 mesi). Avendo finito sul diritto ora devo unire in tondo ma unisco tenendo il lato rovescio esterno? Non capisco che passaggi fare dopo per unire in tondo e iniziare a fare A1.b su A1a, avendo finito con A2. Grazie

21.09.2021 - 15:44

DROPS Design answered:

Buongiorno Daniela, le pantofole sono lavorate in tondo dall'inizio del lavoro. Abbiamo corretto l'inizio delle spiegazioni. Buon lavoro!

22.09.2021 - 18:33

country flag Sarah wrote:

Oh jetzt habe ich es verstanden. Nicht 2 rechts zusammenstricken und die abgehobene Masche wie zum Abketten überziehen, sondern 1 abheben, 2 normal rechts stricken und dann die abgehobene überziehen. Tut mir leid, doch kein Fehler 😃

08.09.2021 - 22:21

country flag Sarah wrote:

Hallo, Im Muster A1 und A2 sind Fehler. Überall, wo ich von 3 Maschen auf 1 Masche abnehmen soll, soll ich in der Reihe darüber zwischen 2 rechten Maschen 1 Umschlag arbeiten, um wieder auf 3 Maschen zu kommen. Das funktioniert nicht. 3>1 und dann aus 2>3?

08.09.2021 - 22:06

DROPS Design answered:

Liebe Sarah, meinen Sie das 9. Symbol? Hier werden 3 Maschen zu 2 Maschen abgenommen: die erste dieser 3 M abheben, die 2 nächsten Maschen rechts stricken (nicht zusammen), und die abgehobene Masche überziehen = es sind nur noch 2 Maschen; bei der nächsten Runde stricken Sie 1 M rechts, 1 Umschlag, 1 M rechts = wieder 3 M. Dieses Video zeigt, wie man, so ein Zopf strickt, es kann vielleicht Ihnen helfen. Viel Spaß beim stricken!

09.09.2021 - 08:45

country flag Shelly Ann Browne wrote:

I am confused as to how to proceed after starting the first row of A1 and then what do I do next. It talks about going vertically, and I am wondering if it is not in the round any more then?

23.12.2019 - 15:10

DROPS Design answered:

Dear Mrs Browne, you first work pattern A.1a, A.2a one time in height (= all rows in diagram = 7 rows) = there are now 40 to 60 sts depending on the size. Then work diagram A.1b over A.1a and diagram A.2b over A.2a (diagrams b are 4 rows). Happy knitting!

02.01.2020 - 10:33

country flag Dominique RENAULT wrote:

Merci merci👍👍

15.11.2019 - 13:48

country flag RENAULT DOMINIQUE wrote:

Bonjour...quand on glisse 1 maille que l'on tricote ensemble les 2 mailles suivantes et que l'on passe par dessus la maille glissée....il reste 1 maille...alors que le diagramme en montre 2 🤔 je n'arrive pas a comprendre, je me trompe où ? Merci de prendre du temps pour me répondre😀 j'adore votre site 👍👍👍

15.11.2019 - 10:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Renault et merci. On doit glisser 1 maille, puis tricoter les 2 mailles suivantes séparément (et pas ensemble), puis on passe la maille glissée par-dessus la maille tricotée = il reste 2 mailles. Au tour suivant,on tricote: 1 m end, 1 jeté, 1 m end = on a de nouveau 3 m. Bon tricot!

15.11.2019 - 11:33

country flag Franzi wrote:

Bis zur Muster Beschreibung A1 verstehe ich die Anleitung danach komme ich einfach nicht nicht weiter. Vielleicht sind es auch die Musterbilder die mich einfach verwirren ich weiß einfach nimmer weiter. Dabei stricke ich öfters Muster. Danke schon einmal im Vor raus für die Hilfe.

17.09.2019 - 11:35

DROPS Design answered:

Lieber Franzi, Sie stricken zuerst A.1a und A.2a einmal in der Höhe = 7 bis 11 Reihen je nach der Größe, dann stricken Sie A.1b über A.1a und A.2b über A.2b (= 4 Reihen) bis die Arbeit 7-14 cm (siehe Grösse) misst, dann stricken Sie die Diagramme c = 1 Reihe in A.1c/A.2c ( = Zunahmen) und dann stricken Sie die Diagramme D (= 2 Reihen) bis die Arbeit 13-24 cm misst). Vergessen Sie nicht, die Diagramme für die gewünschte Größe zu wählen. Viel Spaß beim stricken!

17.09.2019 - 13:29

country flag Fanny wrote:

Bonjour ! Lorsque il est dit de glisser une maille à l'endroit, de tricoter 2 mailles endroit et de passer la maille glissée sur la maille tricotée, faut-il tricoter ensemble les deux mailles à l'endroit ou alors passer la maille glissée par dessus les deux mailles endroit ? Merci beaucoup pour votre site qui est une mine d'idée et d'astuces, encore bravo !

16.12.2018 - 22:37

DROPS Design answered:

Bonjour Fanny, cette vidéo montre comment tricoter cette petite torsade: on glisse 1 m, on tricote 2 m et on passe la m glissée par-dessus les 2 m tricotées. Bon tricot!

17.12.2018 - 10:19