DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11352.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Petite Fleur Cardigan

Hekluð peysa með marglitu mynstri, blómum og hringlaga berustykki, hekluð ofan frá og niður með 3/4 löngum ermum. Stærð S - XXXL. Stykkið er heklað úr DROPS Cotton Merino.

DROPS 188-7
DROPS Design: Mnstur cm-079
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-650-750-800 g litur 01, natur
50-50-50-100-100-100 g litur 05, púðurbleikur
50-50-50-50-50-50 g litur 15, sinnepsgulur

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 stuðlar og 9 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 7 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11352.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Allar umferðir með stuðlum byrja á 3 loftlykkjum (koma í stað fyrsta stuðul).
Allar umferðir með fastalykkjum byrja með 1 loftlykkju (kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju).
Þegar ermar eru heklaðar fram og til baka og heklað er saman í lok/byrjun á umferð, byrja allar umferðir með stuðlum með 3 loftlykkjum (koma í stað fyrsta stuðul) og enda með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, snúið stykki.
Í 2. umferð í A.7 byrjar og endar umferðin þannig: Heklið 1 keðjulykkju í hverja og eina af 2 fyrstu lykkjum frá fyrri umferð, 3 loftlykkjur (koma í stað fyrsta stuðul), umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Heklað er bæði frá réttu og frá röngu.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA:
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 105 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur = 95 lykkjur) deilið þessum lykkjufjölda sem eftir er með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 13,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 fastalykkjur í sömu lykkju til skiptis í 13. og 14. hverja lykkju.
Ef fækka á lykkjum jafnt yfir er í þessu dæmi heklað til skiptis í 12. og 13. hverja og 13. og 14. hverja lykkju saman.

LITAMYNSTUR:
Þegar skipt er um lit í byrjun á umferð er keðjulykkjan í lok fyrri umferðar hekluð með nýja litnum.
Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðasta stuðul með fyrri lit, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin, síðan er hekluð næsta lykkja.
Þegar heklað er með tveimur litum, leggið þráðinn á þeim lit sem ekki er heklað með yfir lykkjurnar frá fyrri umferð og heklið utan um þráðinn þannig að hann sjáist ekki innan í lykkjunum, þráðurinn fylgir með áfram.
Þegar ekki eru fleiri stuðlar eftir í umferð sem á að hekla í sama lit, þarf liturinn ekki að fylgja áfram með í stykkinu, ef aftur á móti á að nota hann í næstu umferð er hann tekinn upp í næstu umferð, en passið uppá að þráðurinn komi alltaf á bakhlið á stykki.
Passið uppá að fylgiþræðirnir herði ekki á stykkinu og að þráðurinn verði ekki stífur þegar hann er tekinn upp frá fyrri umferð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki og fram- og bakstykki eru heklað fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru heklaðar fram og til baka og eru heklaðar saman í lok hverrar umferðar.

BERUSTYKKI:
Heklið 123-128-132-138-143-149 loftlykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorir hlið á stykki og 1 loftlykkja til að snúa við með) með heklunál 4 með litnum púðurbleikur. Heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni (= 1 fastalykkja) – lesið HEKLLEIÐBEININGAR, 1 fastalykkja í hverja af næstu 2-0-4-3-1-0 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af 6 næstu loftlykkjum *, heklið frá *-* = 105-109-113-118-122-127 fastalykkjur.
Heklið næstu umferð frá röngu þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og aukið út um 7-15-23-22-30-29 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA= 112-124-136-140-152-156 fastalykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig – lesið LITAMYNSTUR:
Heklið A.1 yfir fyrstu 6 lykkjur, A.2 yfir 16-20-24-24-24-24 lykkjur (= 4-5-6-6-6-6 mynstureiningar með 4 lykkjum) (= vinstra framstykki), heklið A.3 yfir 2-2-2-3-3-4 lykkjur (= 2-2-2-3-3-4 mynstureiningar með 1 lykkju), A.2 yfir 12 lykkjur (= 3 mynstureiningar), A.3 yfir 2-2-2-3-3-4 lykkjur (= 2-2-2-3-3-4 mynstureiningar) (= vinstri ermi), A.2 yfir 36-40-44-44-56-56 lykkjur (= 9-10-11-11-14-14 mynstureiningar) (= bakstykki), A.3 yfir 2-2-2-3-3-4 lykkjur (= 2-2-2-3-3-4 mynstureiningar), A.2 yfir 12 lykkjur (= 3 mynstureiningar), A.3 yfir 2-2-2-3-3-4 lykkjur (= 2-2-2-3-3-4 mynstureiningar) (= hægri ermi), A.2 yfir 16-20-24-24-24-24 lykkjur (= 4-5-6-6-6-6 mynstureiningar) og endið með A.1 yfir síðustu 6 lykkjur (= hægra framstykki).
Þegar A.1 til A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 152-164-176-200-212-236 lykkjur í síðustu umferð. Stykkið mælist ca 6 cm.
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig:
Heklið A.4 yfir fyrstu 7 lykkjur, heklið A.5 þar til eftir eru 12 lykkjur (= 11-12-13-15-16-18 mynstureiningar með 12 lykkjum) JAFNFRAMT er fækkað um 1 stuðul, heklið A.6 yfir næstu 5 lykkjur og endið með A.4 yfir síðustu 7 lykkjur.
Þegar A.4 og A.6 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 232-251-270-308-327-365 lykkjur í síðustu umferð (2 stuðlar heklaðir saman = 1 lykkja). Stykkið mælist ca 16 cm. Nú er stykkið heklað til loka með litnum natur þannig:
Heklið svona frá röngu JAFNFRAMT þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 232-250-271-307-328-364 stuðla (þ.e.a.s. aukið er út um 0-0-1-0-1-0 stuðla og fækkað er um 0-1-0-1-0-1 stuðla): Heklið 1 stuðul í hvern og einn af fyrstu 5 stuðlum, A.7 yfir 33-36-42-48-51-57 stuðla (= 11-12-14-16-17-19 mynstureiningar með 3 lykkjum), A.8 yfir 3 stuðla, A.7 yfir 36-39-42-48-51-57 stuðla (= 12-13-14-16-17-19 mynstureiningar), A.8 yfir 3 stuðla, A.7 yfir 72-78-81-93-102-114 stuðlar (= 24-26-27-31-34-38 mynstureiningar), A.8 yfir 3 stuðla, A.7 yfir 36-39-42-48-51-57 stuðla (= 12-13-14-16-17-19 mynstureiningar), A.8 yfir 3 stuðla, A.7 yfir 33-36-42-48-51-57 stuðla (= 11-12-14-16-17-19 mynstureiningar) og endið með 1 stuðul í hvern af síðustu 5 stuðlum.
Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.7 og A.8 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 256-274-295-331-352-388 stuðlar í síðustu umferð.
Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 5 stuðlum, endurtakið A.7 þar til eftir eru 5 stuðlar (= 82-88-95-107-114-126 mynstureiningar) og endið með 1 stuðul í hvern af síðustu 5 stuðlum.
Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 19-21-22-24-26-28 cm frá kanti í hálsmáli, stillið af að næsta umferð sé umferð einungis með stuðlum.
Nú skiptist fram- og bakstykki og ermar þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 5 stuðlum, A.7 eins og áður yfir næstu 33-36-39-45-51-57 stuðla, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 2-1-1-1-0-0 stuðlum (= framstykki), hoppið yfir næstu 53-57-62-68-70-75 stuðla (= ermi), heklið 8 loftlykkjur undir ermi, heklið 1 stuðul í 1-0-1-1-1-0 stuðla, heklið A.7 eins og áður yfir næstu 69-75-78-90-99-114 stuðla, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 0-1-2-2-0-0 stuðlum (= bakstykki), hoppið yfir næstu 53-57-62-68-70-75 stuðla (= ermi), heklið 8 loftlykkjur undir ermi, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 2-1-1-1-0-0 stuðlum, A.7 eins og áður yfir næstu 33-36-39-45-51-57 stuðla og endið með 1 stuðul í hvern af síðustu 5 stuðlum (= framstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 166-176-187-211-228-254 lykkjur. Haldið áfram með 1 stuðul í hvern af fyrstu og síðustu 5 stuðlum og heklið mynstur A.7 yfir þær lykkjur sem eftir eru JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 0-2-0-0-1-2 stuðla jafnt yfir (A.7 er endurtekið þá 52-56-59-67-73-82 sinnum á breidd) = 166-178-187-211-229-256 stuðlar. Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar skiptust er fækkað um 3 stuðla í næstu umferð (stillið af að lykkjum sé fækkað í umferð einungis með stuðlum). Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-4-3-4-2½ cm millibili alls 5-5-3-4-3-5 sinnum = 151-163-178-199-220-241 lykkjur. Í hvert skipti sem lykkjum er fækkað er hekluð 1 mynstureiningu minna af A.7 á breiddina.
Þegar stykkið mælist 14 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar skiptust, er aukið út um 3 stuðla jafnt yfir (stillið af að aukið sé út í umferð einungis með stuðlum).
Aukið svona út í hverjum cm alls 13-13-14-14-14-14 sinnum = 190-202-220-241-262-283 lykkjur. Í hvert skipti sem aukið er út er hekluð 1 mynstureining fleiri á A.7 á breiddina.
Haldið áfram þar til stykkið mælist 30-30-31-31-31-31 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar skiptust (= 49-51-53-55-57-59 cm frá kanti í hálsi) – endið eftir eina umferð með stuðlum. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Stykkið er heklað fram og til baka (þ.e.a.s. til skiptis frá réttu og frá röngu) og er heklað saman með 1 keðjulykkju í hverja umferð.
Byrjið á að hekla í 5. loftlykkju af 8 loftlykkjum sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki með litnum natur þannig: Heklið 1 keðjulykkju, 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), 1 stuðull í hverja af næstu 3 loftlykkjum, 1 stuðull í næstu 1-0-1-1-0-0 stuðla, A.7 yfir næstu 51-57-60-66-69-75 stuðla (= 17-19-20-22-23-25 sinnum á breidd), 1 stuðull í næstu 1-0-1-1-1-0 stuðla og endið með 1 stuðul í hverja af síðustu 4 loftlykkjum undir ermi = 61-65-70-76-78-83 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð.
Í næstu umferð með stuðlum er fækkað um 4-5-4-4-3-5 stuðla jafnt yfir = 57-60-66-72-75-78 lykkjur. A.7 er nú endurtekið 19-20-22-24-25-26 sinnum hringinn í umferð.
Þegar ermin mælist 4 cm frá þar sem stykkið skiptist frá fram- og bakstykki, fækkið um 3 stuðla jafnt yfir í umferð (stillið af að lykkjum sem fækkað í umferð einungis með stuðlum). Fækkið lykkjum svona með 4-4-3-2-2-1½ cm millibili alls 3-3-4-4-4-4 sinnum = 48-51-54-60-63-66 lykkjur. Í hvert skipti sem lykkjum er fækkað er A.7 endurtekið 1 sinni færri á breiddina.
Haldið áfram þar til stykkið mælist 16-14-14-13-11-9 cm frá þar sem ermin skiptist á fram- og bakstykki. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið fram og til baka yfir loftlykkjuumferð í hálsmáli þannig:
UMFERÐ 1 (= frá réttu með litnum natur): Byrjið yfir kant að framan, festið enda við stykki með 1 keðjulykkju í 1. kantlykkju að framan, heklið 2 loftlykkjur (= 1 hálfur stuðull), heklið 1 hálfan stuðul í hverja fastalykkju út umferðina = 105-109-113-118-122-127 hálfir stuðlar.
UMFERÐ 2 (= frá röngu með litnum púðurbleikur): Heklið 1 fastalykkju í hvern hálfan stuðul = 105-109-113-118-122-127 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan. Fyrsta talan er saumuð í ca 2 niður frá hálsmáli, síðan er tölurnar saumaðar í með ca 7-8 cm millibili. Tölum er hneppt á milli 2. og 3. stuðuls í hægri kant að framan.

Mynstur

symbols = loftlykkja með litnum púðurbleikur
symbols = fastalykkja í lykkju með litnum púðurbleikur
symbols = fastalykkja í fremri lykkjuboga í lykkju frá röngu með litnum natur
symbols = fastalykkja í lykkju með litnum natur
symbols = fastalykkja um lykkju/á milli lykkju með litnum natur
symbols = stuðull í lykkju með litnum natur
symbols = stuðull í lykkju með litnum púðurbleikur
symbols = stuðull um loftlykkju með litnum natur
symbols = heklið 4 stuðla saman í sömu lykkju með litnum púður bleikur þannig: Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 3 stuðla til viðbótar í sömu lykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, dragið þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = heklið 4 stuðla saman í sömu lykkju með litnum sinnepsgulur þannig: Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 3 stuðla til viðbótar í sömu lykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, dragið þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = heklið 2 stuðla saman í sömu lykkju með litnum natur þannig: Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar í sömu lykkju, dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = umferðin hefur nú þegar verið hekluð, byrjið á næstu umferð
symbols = loftlykkja með litnum natur
symbols = heklstefna
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (39)

country flag Andrea wrote:

I’m working on the Petite Fleur pattern. In the first A4 -A6 section of yoke, do I reverse the order of pattern sections on the wrong side? Also do I increase on wrong side as it says decrease on right side? Thank you.

07.01.2024 - 21:06

DROPS Design answered:

Dear Andrea, when working on the wrong side, work : A.4 over A.4, A.5 over A.5 and A.6 over A.6. You don't need to work increases, only work the decreases indicated in the pattern, in the rows indicated. Happy crocheting!

08.01.2024 - 00:35

country flag Claire wrote:

Bonjour, J’ai besoin de votre aide. Dans le diagramme À.8, au rang 3, il y à 3 groupes de 3 brides donc 9 brides. Est-ce que je dois être du côté endroit où du côté envers de mon travail ? Merci de votre aide.

08.08.2022 - 03:09

DROPS Design answered:

Bonjour Claire, le 1er rang de A.8 se fait sur l'envers, le 3ème rang sera aussi un rang sur l'envers. Bon crochet!

08.08.2022 - 07:52

country flag Claire wrote:

Je m’excuse mais je pense que ma question n’était pas assez précise. Est-ce que A4 je le fais une fois au début et une fois à la fin du rang seulement et A6 une fois à la fin du rang seulement ?

20.06.2022 - 16:08

DROPS Design answered:

Bonjour Claire, tout à fait, A.4 et A.6 sont les mailles de bordure des devants, vous allez ainsi les crocheter 1 seule fois ainsi: les 7 m de A.4, puis vous répétez 12 fois 1.5 (en diminuant 1 maille au 1er rang), il reste 12 mailles, vous crochetez les 5 mailles de A.6 et les 7 mailles de A.4. Bon crochet!

21.06.2022 - 08:28

country flag Claire wrote:

Une autre question. Section A4 à A6 est-ce que je comprends bien Rang 1: A4 (7 mailles) 1 diminution une fois seulement sur le rang - 12fois A5 - terminer par A6 (5 mailles) et A4 (7 mailles). Merci de m’aider à continuer mon travail.

19.06.2022 - 23:17

DROPS Design answered:

Bonjour Claire, c'est bien cela, vous devez diminuer 1 maille en répétant le 1er rang des 12 motifs de A.5, crochetez A.4 et A.6 sans diminuer. Bon crochet!

20.06.2022 - 08:06

country flag Sara wrote:

Bonjour, Dans les diagrammes 5 et 6, si je comprends bien je ne dois pas tricoter en aller retour car le rose et jaune peuvent se retrouver à l’envers alors je tricote ces rangs de droite à gauche Merci

12.06.2022 - 06:16

DROPS Design answered:

Bonjour Sara, les diagrammes se crochètent en allers et retours, alternativement sur l'endroit et sur l'envers, cette vidéo montre comment crocheter plusieurs couleurs sur un même rang, alternativement sur l'endroit et sur l'envers en faisant suivre les autres couleurs en même temps. Bon crochet!

13.06.2022 - 09:22

country flag Claire wrote:

Merci de l’info. J’aimerais savoir lorsque je tricote les 6 rangs , combien je devrais avoir de mailles après avoir crocheté le 1,e rang, le 2e rang, le 3e rang, le 4e rang, le 5e et au 6e je dois avoir 152 mailles. Merci

25.05.2022 - 22:24

DROPS Design answered:

Bonjour Claire, ajoutez des marqueurs entre chaque diagramme à crocheter, vous pourrez ainsi vérifier votre nombre de mailles entre chaque marqueur, A.2 doit toujours rester à 4 mailles, mais le nombre de mailles de A.3 va changer comme le montre le diagramme, ces marqueurs vous aideront à bien vérifier à chaque fois, ainsi, vous aurez les 152 mailles à la fin des 6 rangs. Bon crochet!

27.05.2022 - 08:56

country flag Claire wrote:

Je n’ai pas 152 mailles après avoir crochèté À.1 à À.3. Dans le diagramme au dernier rang j’ai À.1 2x 6 brides = 12 brides À.2. 92 brides À.3. 4 x 6 brides = 24 brides Ce qui donne 128 brides et non 152 tel qu’indiqué dans le patron. De l’aide s’il vous plaît Merci.

24.05.2022 - 08:47

DROPS Design answered:

Bonjour Claire, chaque A.3 doit être crocheté 2 fois, autrement dit, vous aurez: A.1 (= 6 m), A.2 (= 16 m) (devant), A.3 (= 12 m / raglan), A.2 (= 12 m / manche), A.3 (= 12 m/ raglan), A.2 (= 36 m/dos), A.3 (= 12 m/raglan), A.2 (= 12 m/ manche), A.3 (= 12 m/raglan), A.2 (= 16 m), A.1 (= 6 m), ainsi vous avez bien: 6+16+12+12+12+36+12+12+12+16+6=152 mailles. Bon crochet!

24.05.2022 - 13:43

country flag Yasemin wrote:

Hej! Har virkat oket i stl L och efter A.4 till A.6 och nu ska jag ha 271 stolpar. Så långt stämmer allt, men när jag virkar vidare enligt mönstret A.7 till A.8 blir det för stort. 295 stolpar i slutet blir det inte. Hamnar på över 400 stycken! Jag gör något fel men var? Allt stämmer enligt mönstret. Tacksam för svar.

12.09.2021 - 11:11

DROPS Design answered:

Hej Yasemin. Ökningarna sker i diagram A.8. (I diagram A:7 har du lika många stolar, 3 st, när du börjar med diagrammet som när det är färdigvirkat). När A.8 är färdigvirkat så har du 9 stolpar och du började med 3. Du har alltså ökat 6 stolpar per diagram och du har 4 diagram A.8 per varv. 6x4= 24 stolpar. 271+24=295 stoplar. Mvh DROPS Design

22.09.2021 - 08:03

country flag Ah Vu wrote:

Thank you very much for your taking time reply, I am grateful for your help

11.04.2021 - 14:33

country flag Anh Vu wrote:

I am just finishing from A1-6 for size small (232 sts) , not even get in to A7 and A8 to get in to 252 sts . My piece already measures 19 cm from neck edge for divide body and sleeves is it correct to continue for devide body and sleeves without reaching 252 sts. My tension is correct 18 treble crochets x 9 rows = 10 cm in width and 10 cm vertically.

10.04.2021 - 21:38

DROPS Design answered:

Dear AnhVu, if you divide the body and sleeve stitches before you reach the 252 stitches, the body and the sleeves will be too thight. Please check if you use the crochet tension, and started with the right amount of stitches. If everything is correct, you will have to adjust the number of stitches to the correct number, by increasing evenly (it would be best if you dont do the increases at once but divide them into two increase rows. Happy Crafting!

11.04.2021 - 02:54