Rustic Roots |
|
|
|
Hekluð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er heklað ofan frá og niður með v-hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 217-27 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/tvíbrugðinn stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, heklið 1 loftlykkju í byrjun á umferð. Þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu lykkju. Í hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum, heklið 4 loftlykkjur í byrjun á umferð. Þessar 4 loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta tvíbrugðna stuðul í umferð. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í eina lykkju. ÚRTAKA (á við um ermar): Heklið 2 fastalykkjur saman í 1 fastalykkju: * Stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 lykkja færri). Heklið 2 tvíbrugðna stuðla saman í 1 tvíbrugðinn stuðul: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul alveg eins. Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 tvíbrugðinn stuðull færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka í stykkjum, ofan frá og niður. Ermar eru heklaðar fram og til baka, ofan frá og niður. Að lokum eru stykkin saumuð saman og heklaður er kantur í kringum hálsmál. BAKSTYKKI: Hægri öxl: Heklið 21-23-23-24-25-27 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU, með heklunál 4,5 með Sky. Snúið og heklið mynstur þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Heklið 4 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja loftlykkju = 21-23-23-24-25-27 tvíbrugðnir stuðlar. UMFERÐ 2 (ranga): Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá og heklið vinstri öxl. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Vinstri öxl: Heklið 21-23-23-24-25-27 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU, með heklunál 4,5 með Sky. Snúið og heklið mynstur þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Heklið 4 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja loftlykkju = 21-23-23-24-25-27 tvíbrugðnir stuðlar. UMFERÐ 2 (ranga): Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Heklið nú stykkin 2 hekluð saman þannig: UMFERÐ 3: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir á vinstri öxl, heklið 2 tvíbrugðna stuðla í næstu lykkju, heklið 18-18-20-20-22-22 lausar loftlykkjur (= hálsmál), heklið síðan yfir lykkjur frá hægri öxl þannig: Heklið 2 tvíbrugðna stuðla í fyrstu lykkju, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af 20-22-22-23-24-26 lykkjum sem eftir eru = 62-66-68-70-74-78 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með tvíbrugðnum stuðlum frá réttu og fastalykkjum frá röngu. Þegar stykkið mælist 17-17-17-15-14-12 cm frá öxl, byrjar útaukning fyrir handveg. Aukið út um 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í ystu lykkju í hvorri hlið á stykki í hverri umferð alls 2-3-4-6-8-10 sinnum í hvorri hlið = 66-72-76-82-90-98 lykkjur. Í lok næstu 2 umferða eru heklaðar 5-5-6-7-8-9 lausar loftlykkjur fyrir handveg = 76-82-88-96-106-116 lykkjur. Nýjar lykkjur eru heklaðar inn í mynstur, þ.e.a.s. önnur hver umferð með fastalykkjum og tvíbrugðnum stuðlum. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm frá öxl – stillið af að endað sé eftir umferð með fastalykkjum, er bakstykkið tilbúið. Klippið þráðinn frá og festið. FRAMSTYKKI: Hægri öxl: Heklið 21-23-23-24-25-27 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU, með heklunál 4,5 með Sky. Snúið og heklið mynstur þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Heklið 4 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja loftlykkju = 21-23-23-24-25-27 tvíbrugðnir stuðlar. UMFERÐ 2 (ranga): Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Haldið áfram fram og til baka með tvíbrugðnum stuðlum frá réttu og fastalykkjum frá röngu, JAFNFRAMT í næstu umferð byrjar útaukning fyrir V-hálsmáli. Aukið út um 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í aðra lykkju við hálsmál í annarri hverri umferð (= hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum) 2-2-3-3-4-4 sinnum, síðan er aukið út um 1 lykkju alveg eins í hverri umferð (þ.e.a.s. í lok hverrar umferðar með tvíbrugðnum stuðlum og í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum) 8-8-8-8-8-8 sinnum (= alls 10-10-11-11-12-12 lykkjur fleiri fyrir V-hálsmáli). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-17-17-15-14-12 cm frá öxl, byrjar útaukning fyrir handveg. Aukið út um 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í ystu lykkju í hlið í hverri umferð alls 2-3-4-6-8-10 sinnum og í lok næstu umferða frá röngu eru heklaðar 5-5-6-7-8-9 lausar loftlykkjur fyrir handveg. Þegar öll útaukning fyrir V-hálsmáli og handveg er lokið eru 38-41-44-48-53-58 lykkjur fyrir hægri öxl – stillið af að endað sé eftir eina umferð frá réttu. Klippið þráðinn frá og geymið stykkið. Vinstri öxl: Heklið 21-23-23-24-25-27 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU, með heklunál 4,5 með Sky. Snúið og heklið mynstur þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Heklið 4 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja loftlykkju = 21-23-23-24-25-27 tvíbrugðnir stuðlar. UMFERÐ 2 (ranga): Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Haldið áfram fram og til baka með tvíbrugðnum stuðlum frá réttu og fastalykkjum frá röngu, JAFNFRAMT í næstu umferð byrjar útaukning fyrir V-hálsmáli. Aukið út um 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í aðra lykkju við hálsmál í annarri hverri umferð (= hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum) 2-2-3-3-4-4 sinnum, síðan er aukið út um 1 lykkju alveg eins í hverri umferð (þ.e.a.s. í byrjun hverrar umferðar með tvíbrugðnum stuðlum og í lokin á hverri umferð með fastalykkjum) 8-8-8-8-8-8 sinnum (= alls 10-10-11-11-12-12 lykkjur fleiri fyrir V-hálsmáli). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-17-17-15-14-12 cm frá öxl, byrjar útaukning fyrir handveg. Aukið út um 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í ystu lykkjuna í hlið í hverri umferð alls 2-3-4-6-8-10 sinnum og í lok næstu umferða frá röngu eru heklaðar 5-5-6-7-8-9 lausar loftlykkjur fyrir handveg. Þegar allar útaukningar fyrir V-hálsmáli og handveg er lokið eru 38-41-44-48-53-58 lykkjur fyrir hægri öxl – stillið af að endað sé eftir eina umferð frá réttu. Heklið nú stykkin 2 saman frá röngu þannig: Snúið og heklið eins og áður yfir lykkjur á vinstri öxl, heklið síðan yfir lykkjur frá hægri öxl = 76-82-88-96-106-116 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með aðra hverja umferð með tvíbrugðnum stuðlum og fastalykkjum. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm frá öxl – stillið af að endað sé eftir umferð með fastalykkjum, er bakstykkið tilbúið. Klippið þráðinn frá og festið enda. ERMI: Heklið 40-41-42-42-42-40 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU, með heklunál 4,5 með Sky. Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja lykkju frá réttu og heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju frá röngu – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið með því að hekla 2 lykkjur í ystu lykkju í hvorri hlið á ermi. Haldið áfram fram og til baka og aukið út í hverri umferð þar til auknar hafa verið út alls 5-6-6-8-9-11 lykkjur í hvorri hlið = 50-53-54-58-60-62 lykkjur. Í lok næstu 2 umferða eru heklaðar 5-5-6-7-8-9 lausar loftlykkjur (= handvegur) = 60-63-66-72-76-80 lykkjur. Nýjar lykkjur eru heklaðar inn í mynstur, þ.e.a.s. önnur hver umferð með fastalykkjum og tvíbrugðnum stuðlum. Þegar stykkið mælist ca 3 cm frá þar sem heklaðar voru 5-5-6-7-8-9 lausar loftlykkjur fyrir handveg í hvorri hlið, byrjar úrtaka í hvorri hlið á ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið í hverri umferð 2-3-4-8-8-10 sinnum og í 4. hverri umferð 6-6-6-4-4-4 sinnum = 44-45-46-48-52-52 lykkjur. Haldið áfram þar til ermin mælist alls 52-52-52-52-52-52 cm – stillið af að endað sé eftir umferð með fastalykkjum. Klippið þráðinn frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma í lykkjur eina og eina svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið saman saum undir ermum og síðan niður yfir fram- og bakstykki þar til eftir eru ca 17 cm (= klauf). KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið í horni í V-hálsmáli að framan og heklið frá röngu þannig: Festið þráðinn með 1 fastalykkju í hornið, * heklið 2 loftlykkjur, hoppið yfir 1 cm, heklið 1 fastalykkju *, heklið frá *-* hringinn allt hálsmálið og stillið af að endað sé með 1 fastalykkju í hlið á fyrstu fastalykkju sem var hekluð í hornið á V-hálsmáli. Snúið og heklið frá réttu þannig: Heklið 3 loftlykkjur, heklið síðan 2 stuðla um hvern loftlykkjuboga í kringum hálsmál. Klippið þráðinn frá. Leggið aðra umferðina með stuðlum yfir hina umferðina með stuðlum í horni á V-hálsmáli og saumið nokkur ósýnileg spor þannig að umferðirnar með stuðlum festist við hvora aðra. Klippið þráðinn frá og festið enda. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (9)
Betty wrote:
Bonjour, C'est mon premier "vrai" ouvrage réalisé. Les explications sont claires, même pour une super débutante. Je pense que je le réaliserai à nouveau, mais légèrement cintré à la taille. Merci pour vos modèles et aides à la réalisation.
12.12.2023 - 15:40Christina Laryea wrote:
Hej. Kan i oplyse mål på de forskellige størrelser? Pft og mvh Christina
27.02.2023 - 15:21DROPS Design answered:
Hej Christina, du finder blusens mål i måleskitsen nederst i opskriften :)
28.02.2023 - 14:43Anabrlla wrote:
Buongiorno, ho 1 domanda: quando il pattern dice: Aumentare 1 maglia lavorando 2 maglie nella maglia di vivagno verso il lato su ogni riga 2-3-4-6-8-10 volte in totale, il 'verso il lato' si riferisce al lato vivagno o all'interno del maglione Grazie
05.02.2022 - 09:35DROPS Design answered:
Buonasera Annabella, si fa riferimento proprio all'esterno del lavoro. Buon lavoro!
05.02.2022 - 21:02Deborah wrote:
Wat word er bedoeld met: hier worden aanvullend dubbele stokjes op gehaakt?
18.03.2021 - 17:32DROPS Design answered:
Dag Deborah,
Normaal vervangen de 4 lossen het eerste dubbele stokje op de toer, maar nu worden deze 4 lossen er extra bij gehaakt, dus niet in plaats van het eerste dubbele stokje, maar aanvullend.
21.03.2021 - 11:04Anja wrote:
Hoeveel bollen worden er gebruikt?
18.01.2021 - 14:57DROPS Design answered:
Dag Anja,
Bovenaan bij de materialenlijst staat per maat aangegeven hoeveel gram je nodig hebt. (Het eerste getal is voor maat S, het tweede getal voor maat M, enzovoort). 1 bol weegt 50 gram, dus als er bijvoorbeeld 400 gram staat heb je 8 bollen nodig.
22.01.2021 - 16:07Sophie wrote:
Bonjour, il n'ya pas une erreur pour les augmentations de la manche ? Si on les fait sur 11 rang, ça fait une manche courte !
30.11.2020 - 13:16DROPS Design answered:
Bonjour Sophie, quand les augmentations sont faites 11 fois de chaque côté (XXXL), vous avez crocheté 22 rangs au total et vous montez encore 9 mailles en l'air à la fin des 2 rangs suivants pour les emmanchures. Vous continuez ensuite la partie "longue" de la manche en diminuant de chaque côté. J'espère avoir pu vous débloquer. Bon crochet!
30.11.2020 - 16:09Annette Labori Brattberg wrote:
Jeg stusser på størrelsen på heklenålen ift bytte til tynnere eller tykkere nål. Er det ikke motsatt?
20.10.2020 - 16:37VICTORIA wrote:
ESTA PRENDA ES LINDA PARA JOVENES , SUELTA INFORMAL, LINDA
05.08.2020 - 18:36Kine wrote:
I NEED to make this one!! ❤️Love❤️
04.06.2020 - 20:48