Vísbending #3 - Fram- og bakstykki

Nú þegar við höfum prjónað hálsmálið og berustykkið þá höldum við áfram og prjónum neðri hlutann á fram- og bakstykki.

Vantar þig aðstoð? Farðu þá neðst á síðuna til að sjá hvar þú getur fengið aðstoð og sent inn spurningar.


Nú höldum við áfram?

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 140-148-156-164-172-180-188 lykkjur. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum 85, ljós beige þar til stykkið mælist 15-18-21-24-25-26-27 cm frá skiptingu.

Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-14-14-16-16-18-20 lykkjur jafnt yfir = 152-162-170-180-188-198-208 lykkjur.

Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Peysan mælist ca 36-40-44-48-50-52-54 cm frá öxl.

Nú er fram- og bakstykkið tilbúið!

Nú höfum við skipt berustykkinu í fram- og bakstykki og ermar og prjónað fram- og bakstykki til loka. Það þýðir að #3. vísbendingin í þessu KAL hefur verið leyst. Ertu klár í framhaldið? Smelltu á Næst > til að komast í næsta skref.

Mundu að senda myndir af peysunni þinni í myndasafnið okkar. Smelltu hér til að senda inn tengil!


Þarftu aðstoð?

Hér fyrir neðan finnurðu lista yfir úrræði til að hjálpa þér að klára hálsmálið á jólapeysunni þinni.

Ertu enn í vafa? Þú getur skilið eftir spurningar með því að nota eyðublaðið neðst á síðunni og einn af prjónasérfræðingum okkar mun þá reyna að aðstoða þig!

Skrifaðu athugasemd eða spurningu við þessa vísbendingu

Netfangið þitt verður ekki birt. Það verður að merkja við svæði merktri með *.