DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8448.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Forest Mystery

Prjónuð peysa úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, gatamynstri og klauf í hliðum. Stærð S-XXXL

DROPS 243-11
DROPS Design: mynstur li-165
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
600-650-700-800-850-1000 g litur 7810, khaki

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8448.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU:
Aukið út til vinstri á EFTIR A.1 / 3 lykkjur í hálsmáli:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
Aukið út til hægri á EFTIR A.2 / 3 lykkjur í hálsmáli:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU:
Aukið út til vinstri á EFTIR A.2:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
Aukið út til hægri á UNDAN A.1:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Efsti hlutinn á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niðurhandvegi. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi.
Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað fram í hring á hringprjón niður að klauf. Lykkjur eru prjónaðar upp í kringum hvorn handveginn. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka, síðan í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í hring.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 39-39-43-43-47-47 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Lima.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Nú er prjónað þannig – frá réttu: A.1, 15-15-19-19-23-23 lykkjur sléttprjón, A.2.
JAFNFRAMT er aukið út á EFTIR A.1 (séð frá réttu) og á UNDAN A.2 – lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU.
Í næstu umferð (ranga) er aukið út á eftir A.2 og A.1 - lesið ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU.
Haldið svona áfram og aukið alveg eins út bæði frá réttu og frá röngu alls 34-38-40-44-46-50 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Eftir síðustu útaukningu eru 107-115-123-131-139-147 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka, haldið áfram með A.1 og A.2 í hvorri hlið.
Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir svona, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 15-16-16-17-18-19 cm mælt frá prjónamerki. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykki samkvæmt útskýringu að neðan.

FRAMSTYKKI:
Byrjið við vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð) – sjá teikningu.
Prjónið upp 34-38-40-44-46-50 lykkjur á hringprjón 4 innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp lykkjur jafnt yfir á milli hálsmáls og prjónamerki í hlið).
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað þannig – frá réttu:
Prjónið sléttprjón þar til 12 lykkjur eru eftir, endið með A.2. Þegar stykkið mælist 7 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í byrjun á hverri umferð frá réttu eins og útskýrt var að ofan, aukið síðan út 3 lykkjur (einungis er aukið út frá réttu). Aukið út 1 lykkju alls 4 sinnum = 38-42-44-48-50-54 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá réttu, klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið hægri öxl samkvæmt útskýringu að neðan.

Prjónið upp 34-38-40-44-46-50 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp lykkjur jafnt yfir frá prjónamerki í hlið og inn að hálsmáli). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað þannig – frá réttu: Prjónið A.1, prjónið síðan sléttprjón út umferðina. Þegar stykkið mælist 7 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál.
Aukið út í lok hverrar umferðar frá réttu samkvæmt útskýringu að ofan, aukið út innan við 3 lykkjur (einungis er aukið út frá réttu). Aukið út um eina lykkju alls 4 sinnum = 38-42-44-48-50-54 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu.

Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón og mynstur yfir 38-42-44-48-50-54 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 31-31-35-35-39-39 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið síðan sléttprjón eins og áður yfir 38-42-44-48-50-54 lykkjur frá vinstra framstykki = 107-115-123-131-139-147 lykkjur.
Haldið áfram með sléttprjón og mynstur fram og til baka. Haldið áfram þar til stykkið mælist 25-26-28-29-30-31 cm, endið eftir umferð frá röngu. Nú er fram- og bakstykkið sett saman samkvæmt útskýringu að neðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið eins og áður yfir 107-115-123-131-139-147 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 6-6-10-10-14-18 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið), prjónið eins og áður yfir 107-115-123-131-139-147 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 6-6-10-10-14-18 nýjar lykkjur í lok umferðar = 226-242-266-282-306-330 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og haldið áfram með A.1 og A.2 eins og áður á bakstykki og framstykki.

Prjónið í hring þar til stykkið mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm, mælt frá efsta punkti á öxl (endið eftir heila mynstureiningu af A.1 / A.2 á hæðina). Setjið síðustu 113-121-133-141-153-165 lykkjur frá bakstykki á þráð og prjónið áfram yfir lykkjur frá framstykki samkvæmt útskýringu að neðan:

Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan 0-0-2-2-0-2 lykkjur slétt, 2-2-2-2-2-2 lykkjur brugðið, 2-2-2-2-2-2 lykkjur slétt, 0-0-0-0-2-2 lykkjur brugðið, 0-0-0-0-2-2 lykkjur slétt, A.3, sléttprjón yfir næstu 87-95-103-111-119-127 lykkjur og aukið út 47-51-55-59-63-71 lykkjur jafnt yfir (= 134-146-158-170-182-198 lykkjur á eftir útaukningu), prjónið A.3 0-0-0-0-2-2 lykkjur slétt, 0-0-0-0-2-2 lykkjur brugðið, 2-2-2-2-2-2 lykkjur slétt, 2-2-2-2-2-2 lykkjur brugðið, 0-0-2-2-0-2 lykkjur slétt, 2 lykkjur garðaprjón = 160-172-188-200-216-236 lykkjur. Haldið áfram að prjóna þannig – fyrsta umferð frá röngu:

2 lykkjur garðaprjón, 0-0-2-2-0-2 lykkjur brugðið, 2-2-2-2-2-2 lykkjur slétt, 2-2-2-2-2-2 lykkjur brugðið, 0-0-0-0-2-2 lykkjur slétt, 0-0-0-0-2-2 lykkjur brugðið, A.3, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 15-15-17-17-19-21 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið, A.3, 0-0-0-0-2-2 lykkjur brugðið, 0-0-0-0-2-2 lykkjur slétt, 2-2-2-2-2-2 lykkjur brugðið, 2-2-2-2-2-2 lykkjur slétt, 0-0-2-2-0-2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með stroff og A.3/ A.4 í hvorri hlið í 16 cm. Fellið af.

Prjónið á sama hátt yfir lykkjur frá bakstykki.

VINSTRI ERMI:
Notið hringprjón 3 og prjónið upp frá réttu 53-55-59-61-63-65 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram framstykki) og 32-34-34-36-38-40 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 89-93-97-101-105 lykkjur meðfram handvegi.

Setjið 1 prjónamerki mitt í lykkjurnar sem prjónaðar voru upp. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpuna, þetta er gert til að fá betra form og flíkin passi betur.

Umferð 1 (ranga): Prjónið 18 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 2 (rétta): Prjónið 18 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 3 (ranga): Prjónið 22 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 4 (rétta): Prjónið 22 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 5 (rétta): Prjónið 26 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 6 (rétta): Prjónið 26 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 7 (ranga): Prjónið að byrjun umferðar.

Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 4-4-5-5-6-7 cm, mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp (öll mál á lengdina eru gerð mitt ofan á ermakúpu) .

Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 4 – afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu.
Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist alls 6-6-7-7-8-9 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 12-13-14-15-16-17 sinnum = 61-63-65-67-69-71 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-36-34-34-32-30 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir ermi. Það eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-18-16-23-21-19 lykkjur jafnt yfir = 81-81-81-90-90-90 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið A.4 hringinn í 10 cm. Fellið af aðeins laust.
Ermin mælist ca 48-47-46-46-45-44 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.

HÆGRI ERMI:
Prjónið á sama hátt og vinstri ermi, nema prjónið upp lykkjur gagnstætt, þ.e.a.s. prjónið upp 32-34-34-36-38-40 frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram bakstykki) og 53-55-59-61-63-65 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram framstykki). Saumið botninn við handveg – sjá teikningu.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við aðra öxlina og prjónið upp frá réttu innan við kantlykkju ca 104 til 120 lykkjur á stuttan hringprjón 3. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroffprjón hringinn (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 9 cm. Fellið af. Ef óskað er eftir að hafa kant í hálsmáli tvöfaldan er stroffið brotið niður að innanverðu á stykki. Saumið nokkur spor við hvora öxl þannig að kantur í hálsmáli fellur fallega að flíkinni.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 22.09.2023
Búið er að bæta við útskýringu á ermakúpu efst á ermi.
Yfirfarið á vefsvæði: 14.12.2023
Leiðrétting í stroffi neðst á fram- og bakstykki.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er í mynsturteikningu, það á að myndast gat

symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 2 lykkjur, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri).
symbols = engin lykkja þar sem búið er að fækka um þessa lykkju áður, hoppaðu yfir í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = botninn á handvegi er saumaður þannig: Saumið b við B

symbols = lykkjur fyrir vinstri öxl að framan (d) eru prjónaðar upp meðfram vinstri öxl að aftan (D), lykkjur fyrir hægri öxl að framan (e), eru prjónaðar upp meðfram hægri öxl að aftan (E)

symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (32)

country flag Birgit Jessen wrote:

Hallo! Ich bin jetzt da wo rechtes und linkes Vorderteil zusammen auf eine Nadel kommen (mit Halsausschnitt in der Mitte), da heißt es in der Anleitung: Dann glatt rechts und im Muster wie zuvor in Hin- und Rück-Reihen stricken. In dieser Weise weiterarbeiten, bis die Arbeit eine Länge von 25-26-28-29-30-31 cm hat, nach einer Rück-Reihe enden. Von wo werden die 26 cm (bei Größe M) gemessen? Vom Halsausschnitt? VG Birgit

04.05.2024 - 17:32

DROPS Design answered:

Liebe Frau Jessen, die 26 cm messen Sie an der Kante beim Armloch, vom Anfang der Schulter an; siehe auch 14. Foto bei dieser Lektion (15 cm in der Lektion). Viel Spaß beim Stricken!

06.05.2024 - 08:12

country flag Jaenna wrote:

Ich verstehe nicht wo genau die Markierung am Ärmel angebracht werden soll. In der Anleitung steht „1 Markierer in der mittleren der aufgefassten Masche anbringen“ Soll das heißen oben an der Schulter mittig aller aufgefassten Maschen ? Vielen Dank

04.04.2024 - 19:12

DROPS Design answered:

Liebe Janna, ja genau, dh in der mittleren Maschen von den 85-89-93-97-101-105 Maschen die aufgefassen wurde, die Markierung wird ganz oben am Schulter sein. Viel Spaß beim Stricken!

05.04.2024 - 08:05

country flag Creations wrote:

I think the key for the chart is incorrect. The mock cable should be flanked by 2 reverse stockinette stitches each side and therefore the X in the key for the chart should read "purl on right side, knit on wrong side" Can you confirm please? Thanks

26.02.2024 - 09:43

DROPS Design answered:

That's the case, the x are for the reversed stocking stitch, so that there are P2 on each side of the mock cable, then depending of the diagram (eg where you will work the mock cables) you will have a different number of sts in stocking stitch on either side of these P2. Happy knitting!

26.02.2024 - 13:45

country flag Liliane Kopp wrote:

Hej! Jag gör den minsta storleken S. Har nu kommit till framstycket och gjort halsringningen fram. Man ska sedan fortsätta tills \"arbetet mäter 25 cm\" och sedan sätta ihop fram- och bakstycket. Jag undrar varifrån man ska mäta, från axeln halsringningen eller vad? Verkar mest rimligt att man ska mäta från halsringningen, eftersom bakstyckets övre fläta på bilderna ligger bakom axeln. Men jag blir lite osäker, tacksam för hjälp!

07.02.2024 - 13:45

DROPS Design answered:

Hei Liliane. Ja, fra halsringningen :) mvh DROPS Design

16.02.2024 - 09:11

country flag Emmanuelle wrote:

Bonjour, après les rangs raccourcis du haut de la manche, il est dit de continuer en aller-retour en commençant par un rang envers (dans la traduction française). Or le rang précédent (7) se faisant déjà sur l'envers, le suivant (8) ne devrait-il pas être logiquement un rang sur l'endroit ? Merci pour votre réponse.

25.01.2024 - 17:24

DROPS Design answered:

Bonjour Emmanuelle, c'est exact, après les rangs raccourcis, on continue en jersey, en commençant sur l'endroit, merci pour l'info, correction faite. Bon tricot!

26.01.2024 - 08:39

country flag Jessie Davies wrote:

I don’t think my question was clear: are there increases before the ribbing on the back the same as the front? Same number of stitches? The pattern does not indicate an ncrease. Many thanks

09.12.2023 - 01:57

DROPS Design answered:

Dear Jessie, yes, you knit the back like you have knitted the front. Same number of stitches and the same increases. Happy Knitting!

10.12.2023 - 21:19

country flag Susi wrote:

Zitat : "PULLOVER – KURZBESCHREIBUNG DER ARBEIT: Der Pullover wird glatt rechts mit 1 Faden von jeder Garnqualität in Streifen gestrickt." Da stimmt doch der Text nicht. Wir haben weder 2 Garne, noch Streifen bei diesem Modell. Oder ?

05.12.2023 - 09:46

country flag Jessie Davies wrote:

Body there is an increase of stitches just before the ribbing for the front. Is there a similar increase for the back or stay with the same number of stitches?

03.12.2023 - 23:10

DROPS Design answered:

Dear Mrs Davies, correct you will work the back piece the same way as you worked the rib for front piece. Happy knitting!

04.12.2023 - 08:40

country flag Elisabeth wrote:

Hallo! Mir ist da was aufgefallen und wollte fragen, ob das korrekt ist. Ich stricke den Pullover in L und bin gerade bei dem Abschnitt, wo man im Rumpfteil auf Nadelgr. 3 gewechselt hat. Ich habe die Zunahmen gemacht und nun das erste Mal A4 gestrickt. Müsste es nun nicht mit 2Ma li weitergehen? So, wie es angegeben ist, hätte man am Übergang von A4 zum Rippenmuster nun 4 Ma re hintereinander, weil A4 ja bereits 2Ma re enthält.

12.11.2023 - 11:52

DROPS Design answered:

Liebe Elisabeth, eine Korrektur erfolgt hier bei der Zunahmen kurz vor der Passe, und dann im Diagram A.5 sowie die Maschenanzahl bei der 1. Reihe der Passe. Viel Spaß beim stricken!

07.12.2023 - 08:32

country flag Mimi wrote:

Hello! I need some clarification please I am at the back piece. When I increase on both RS and WS. Do I continue to increasing and repeat the A1 and A2 pattern from 1row to 4row too ? OR do I just do increases until my 115 stitches? Thank you! "Continue increasing from both the right and wrong side a total of 34-38-40-44-46-50 times. After the last increase there are 107-115-123-131-139-147 stitches. Continue with stocking stitch, A.1 and A.2 on each side. "

01.11.2023 - 20:12

DROPS Design answered:

Dear Mimi, you will continue increasing from both right side and wrong side = every row until you have increased a total of 38 times in size M, you will have then 115 sts on needle. At the same time continue working A.1 and A.2, repeat the 4 rows in diagram. Happy knitting!

02.11.2023 - 17:32