Harvest Love |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Nepal með hekluðum ferningum og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 171-35 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. LITUR-1 (fram-/bakst): UMFERÐ 1-3: grár UMFERÐ 4: camel UMFERÐ 5-6: beige UMFERÐ 7: ljós grár UMFERÐ 8: beige UMFERÐ 9: camel UMFERÐ 10: grár Heklið síðan með grár. LITUR-2 (ermar): Heklið með grár til og með 5.-3.-3. umf. Síðan 1 umf beige, 1 umf camel, 3 umf grár, 1 umf ljós grár, 1 umf beige og 1 umf camel. Haldið áfram með grár. HEKLLEIÐBEININGAR-1 Í byrjun hverrar umf með tbst er fyrsta tbst skipt út fyrir 4 ll. Umf endar með 1 kl í 4. ll. Í byrjun hverrar umf með þbst er fyrsta þbst skipt út fyrir 5 ll. Umf endar með 1 kl í 5. ll, heklið kl að byrjun næsta tbst. HEKLLEIÐBEININGAR-2 (á við um öxl): Í byrjun hverrar umf með tbst heklið 4 ll, endið umf með 1 tbst í síðasta þbst í umf. Byrjið hverja umf með þbst með 5 ll, endið umf með 1 þbst í síðasta tbst í umf. ÚRTAKA: Heklið 1 þbst, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta þbst, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 st. TVÍBRUGÐINN STUÐULL (TBST) SAMAN: 3 tbst heklaðir saman í 1 tbst þannig: Heklið 1 tbst, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 tbst til viðbótar alveg eins, heklið 1 tbst til viðbótar, en nú er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni. ÞRÍBRUGÐINN STUÐULL (ÞBST) SAMAN: 3 þbst heklaðir saman í 1 þbst þannig: Heklið 1 þbst, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 þbst til viðbótar alveg eins, heklið 1 þbst til viðbótar, en nú er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni. FIMMBRUGÐINN STUÐULL: Bregðið þræðinum 5 sinnum um heklunálina, sækið þráðinn undir ll-bogann, * bregðið þræðinum um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum 2 næstu l á heklunálinni *, endurtakið frá *-* 5 sinnum til viðbótar = 1 l á heklunálinni. FJÓRBRUGÐINN STUÐULL: Bregðið þræðinum 4 sinnum um heklunálina, sækið þráðinn undir ll-bogann, * bregðið þræðinum um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum 2 næstu l á heklunálinni *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar = 1 l á heklunálinni. FJÓRBRUGÐINN STUÐULL (FBST) SAMAN: 3 fbst heklaðir saman að 1 fbst þannig: ** Bregðið þræðinum 4 sinnum um heklunálina, sækið þráðinn undir ll-bogann, * bregðið þræðinum um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum 2 næstu l á heklunálinni *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar, **, endurtakið frá **-** 2 sinnum til viðbótar (= 4 l á heklunálinni), bregðið þræðinum um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum allar l = 1 l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Heklið fyrst einn ferning alveg eins í öllum stærðum. Heklið síðan áfram hringinn og fram og til baka á ferningnum (mismunandi eftir stærðum). FERNINGUR: Heklið 6 ll með heklunál nr 5,5 með litnum grár og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. Haldið áfram hringinn eftir A.1 – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-1 og LITUR-1. Heklið síðan A.2, A.3 alls 3 sinnum á breiddina, endið með A.4. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.2-A.4 er lokið eru 55 þbst meðfram hverri hlið og 4 hornbogar. Ferningurinn mælist ca 48 x 48 cm. STÆRÐ S/M: Heklið síðan hringinn eftir A.5 yfir þbst meðfram hverri hlið, um hvern hornboga er heklað A.6. Þegar A.5/A.6 er lokið hafa aukist út 10 þbst meðfram hverri hlið (= 65 þbst). Klippið frá. Heklið nú vinstri öxl meðfram hlið-1 (sjá mynsturteikningu) með byrjun frá röngu þannig: Ekki er lengur heklað yfir miðju 9 þbst (= hálsmál). Byrjið að hekla næstu þbst þannig: Heklið A.8 yfir fyrstu 13 þbst, A.5 út umf eins og áður, um hornbogann er heklað A.5 (þ.e.a.s. í umf 1 í A.5 er heklað um ll-bogann). Þegar A.5 hefur verið heklað til loka á hæðina er 1 umf hekluð þannig: Heklið 1 tbst í hvern þbst. Klippið frá. Heklið nú hægri öxl meðfram enda á hlið 1, með byrjun frá horni frá röngu: - LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-2! Heklið A.5 yfir ll-bogann, A.5 þar til eftir eru 13 þbst á undan hálsmáli (= 9 þbst), heklið A.7 yfir næstu 13 þbst. Þegar A.5 hefur verið heklað til loka á hæðina er hekluð 1 umf með 1 tbst í hvern þbst. Klippið frá og festið enda. STÆRÐ L/XL - XXL/XXXL: Heklið síðan í hring eftir A.5 yfir þbst meðfram hverri hlið, um hvern hornboga er heklað A.6. Þegar A.5/A.6 hefur verið heklað til loka hafa verið auknir út 10 þbst meðfram hverri hlið (= 65 þbst). Klippið frá. Heklið nú fram og til baka meðfram enda í hlið 1 (sjá mynsturteikningu), síðan meðfram hlið 2,3,4 og byrjun í hlið 1 með byrjun frá röngu þannig: Ekki er lengur heklað yfir miðju 9 þbst (= háls). Byrjið að hekla í næstu þbst þannig: Heklið A.8 yfir fyrstu 13 þbst, A.5 út umf eins og áður, síðan er heklað A.6 um hornin og A.5 meðfram hliðum eins og áður – heklað er svona fram til og með síðasta horni (þ.e.a.s. meðfram hlið 2,3 og 4), síðan er heklað meðfram byrjun í hlið 1 þannig: A.5 þar til 13 þbst eru eftir á undan hálsi (= 9 þbst), heklið A.7 yfir næstu 13 þbst. Þegar A.7/A.8 er lokið á hæðina eru 75 þbst meðfram hlið, 2,3 og 4 og 25 þbst í hvorri hlið við hálsmál. Heklið nú mismunandi eftir stærðum. STÆRÐ L/XL (axlir): Heklið nú vinstri öxl, frá röngu þannig: - LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-2! Heklið 1 tbst í hvern þbst til loka umf á hlið 1, um fyrsta ll-bogann í hornboganum er heklaður fimmbrugðinn stuðull. Klippið frá og festið enda. Heklið hægri öxl á sama hátt, en byrjið um hornbogann í byrjun frá hlið 1 frá röngu. STÆRÐ XXL/XXXL: Næsta umf byrjar frá röngu. Heklið A.5 yfir A.8, haldið áfram með A.5 meðfram hlið 1,2,3,4 og 1 og A.6 umf hornin eins og áður, endið með A.5 yfir A.7. Þegar A.5/A.6 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru axlirnar heklaðar á sama hátt og í stærð L/XL, klippið frá og festið enda. BAKSTYKKI: Heklið á sama hátt og framstykki, en án þess að fækka l við hálsmál, þ.e.a.s. heklið A.5 yfir allar l meðfram hlið 1 (í stað A.7/háls/A.8). FRÁGANGUR: Saumið axlasauma – saumið í ysta lykkjubogann. Saumið hliðarsauma þannig: Byrjið ca 8 cm frá neðri kanti (= klauf) og saumið upp þar til eftir eru ca 19-21-23 cm að öxl (= handvegur). ERMI: Stykkið er heklað í hring frá handveg og út. Byrjið frá miðju undir ermi á hlið. Heklið 50-55-60 tbst með heklunál nr 5,5 með litnum grár jafnt yfir hringinn í handveg (heklið í/um þbst/ll-bogann) – LESIÐ LITUR-2 og munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR-1 LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM! Heklið nú þannig: Heklið A.5 (= 10-11-12 mynstureiningar á breiddina). Haldið áfram hringinn þar til heklaðar hafa verið 5-4-4 mynstureiningar á hæðina, heklið síðan A.9 yfir A.5 alls 1 sinni á hæðina og A.5 yfir A.9 alls 2 sinnum á hæðina, síðan í stærð L/XL er hekluð 1 umf með 1 tbst í hvern þbst. JAFNFRAMT er fækkað um 5 þbst jafnt yfir í umf með þbst (= 1 mynstureining færri í hverri umf með úrtöku) þannig: STÆRÐ S/M: 5., 7. og 13. umf. STÆRÐ L/XL-XXL/XXXL: 5., 7., 11. og 13. umf. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð eru 35-35-40 tbst í umf (= 7-7-8 mynstureiningar á breiddina). Klippið frá og festið enda, ermin mælist ca 43-40-38 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Heklið hina ermina á sama hátt. HÁLSMÁL: Heklið kant í kringum hálsmálið með litnum grár. Byrjið á öxl og heklið þannig: * 1 fl um ystu l, 2 ll, hoppið ca 1½ cm áfram *, endurtakið frá *-* í kringum allt opið, endið með 1 kl í fyrstu fl. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (41)
Pavlína wrote:
Krásný model, těším se na návod :)
21.07.2016 - 11:14Sheila wrote:
Wow, I would definitely make this in a heart beat. Would love to do it in icy winter colors of blues and shimmering whites.
11.07.2016 - 21:24Saskia De Winter wrote:
Deze trui is prachtig!
28.06.2016 - 19:18Raquel Nunez wrote:
I love it! It will be my first autumn garnement
28.06.2016 - 15:02Susan wrote:
Looking forward to making this one!
28.06.2016 - 11:16Catherine Menez wrote:
Super tendance, mes ados vont adorer
25.06.2016 - 23:49Eva Schneider wrote:
Wunderschönes design - freue mich auf die anleitung...
12.06.2016 - 13:41Lauren McRoberts wrote:
I love ths one! The large granny square makes it unique.
12.06.2016 - 01:04Patricia ALEXANDER wrote:
Pretty and casual, looks fairly easy to crochet.
11.06.2016 - 01:09Ginny wrote:
Very light ad pretty!
06.06.2016 - 00:13