DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9680.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Pale Blossom

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, v-hálsmáli og I-cord. Stærð S - XXXL.

DROPS 248-35
DROPS Design: Mynstur z-1026
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-250-250-300-300-350 g litur 100, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100-125-125-125 g litur 53, ljós ferskja

TÖLUR:
DROPS TALA NR 521: 3 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm.

PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 24 umferðir á hæð með sléttprjóni með 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9680.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING-1 (frá réttu):
Aukið út um 1 lykkju til vinstri:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
Aukið út um 1 lykkju til hægri:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

ÚTAUKNING-2 (frá röngu):
Aukið út um 1 lykkju til vinstri:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
Aukið út um 1 lykkju til hægri:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

2 KANTLYKKJUR I-CORD HÆGRA FRAMSTYKKI:
RÉTTA:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt.
RANGA:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt, prjónið út umferðina.

2 KANTLYKKJUR I-CORD VINSTRA FRAMSTYKKI:
RÉTTA:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt, prjónið út umferðina.
RANGA:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur brugðið saman, 2 lykkjur I-cord. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu 1 cm á eftir síðustu útaukningu fyrir V-hálsmáli, fellið síðan af fyrir 2 næstu hnappagötum með ca 6-6-6-7-7-7 cm millibili.

I-CORD AFFELLING (neðri kantur fram- og bakstykki og kantur í hálsmáli að aftan):
UMFERÐ 1 (rétta):
Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman.
UMFERÐ 2 (rétta):
Lyftið til baka 3 lykkjum frá hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman.
Endurtakið UMFERÐ 2 þar til 3 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af.
Saumið lítið spor sem bindur saman byrjun og lok á I-cord við stykkið.

I-CORD AFFELLING (ermi):
Í lok umferðar og eftir að síðasta lykkjan í umferð hefur verið prjónuð:
Fitjið upp 3 nýjar lykkjur á hægri prjón frá réttu.
Lyftið 3 nýju lykkjunum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sem prjóna á með sitji 3 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn á stykkinu, þannig að það myndist lítill hólkur).
UMFERÐ 1 (rétta):
Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman.
UMFERÐ 2 (rétta):
Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman.
Endurtakið UMFERÐ 2 þar til 3 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af.
Saumið lítið spor sem bindur saman byrjun og lok á I-cord.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf.
Stykkið er prjónað fram og til baka. Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka.
Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkin eru prjónuð.
Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni. Prjónið niður á við að handvegi jafnframt því sem lykkjur eru auknar út að hálsmáli. Endurtakið á hinni öxlinni. Við handveginn eru framstykkin og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við fram og til baka á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin er prjónaður upp I-cord kantur aftan í hnakka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 24-24-26-28-28-30 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.

Lesið ÚTAUKNING-1 og næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt.
Lesið ÚTAUKNING-2 og prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 3 lykkjur brugðið, aukið út til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur brugðið.

Haldið svona áfram og aukið út á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu alls 26-30-30-34-38-42 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 76-84-86-96-104-114 lykkjur á prjóni. Setjið 1 merki yst í hlið. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 12-13-13-13-14-15 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi.

Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir ÚTAUKNING-1.
Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 2-2-3-3-4-4 sinnum = 80-88-92-102-112-122 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 14-15-16-16-17-18 cm, mælt yst meðfram handvegi, endið með eina umferð frá réttu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykkin eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð).
Prjónið upp 26-30-30-34-38-42 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð frá kanti efst á bakstykki, sjá D í teikningu með máli). Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð héðan. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað frá réttu þannig: 2 KANTLYKKJUR I-CORD – lesið útskýringu að ofan, 2 lykkjur brugðið, sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 7 cm, aukið út lykkjur við hálsmál eins og útskýrt er að neðan.

Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 4 lykkjur eins og áður, aukið út til vinstri, prjónið út umferðina – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið út 1 lykkju í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 10 sinnum, síðan í hverri umferð 4-6-6-7-8-8-9 sinnum (alls 16-16-17-18-18-19 útaukningar fyrir hálsmáli).

JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24-25-25-27-28-29 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir ÚTAUKNING-1.
Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 2-2-3-3-3-3 sinnum = 44-48-50-55-60-65 lykkjur.
Haldið áfram þar til stykkið mælist 26-27-28-30-31-32 cm, endið með einni umferð frá réttu, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið hægra framstykki. Öll útaukning fyrir V-hálsmáli á nú að vera lokið.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið upp 26-30-30-34-38-42 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð frá kanti efst á bakstykki, sjá E í teikningu með máli). Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð héðan. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón þar til 4 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið, 2 KANTLYKKJUR I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 7 cm, aukið út lykkjur við hálsmál eins og útskýrt er að neðan.

Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, prjónið 4 lykkjur eins og áður – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið út 1 lykkju í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 10 sinnum, síðan í hverri umferð 4-6-6-7-8-8-9 sinnum (alls 16-16-17-18-18-19 útaukningar fyrir hálsmáli).

JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24-25-25-27-28-29 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 3 lykkjur, aukið út til vinstri, prjónið út umferðina – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 2-2-3-3-3-3 sinnum = 44-48-50-55-60-65 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 26-27-28-30-31-32 cm, passið uppá að síðasta umferð sé prjónuð frá réttu.

Næsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: Prjónið yfir 44-48-50-55-60-65 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur í lok umferðar (í hlið undir ermi), prjónið frá röngu yfir 80-88-92-102-112-122 lykkjur á bakstykki, fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur (í hlið undir ermi), prjónið yfir 44-48-50-55-60-65 lykkjur frá vinstra framstykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 180-196-208-228-248-272 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 2 kantlykkjum + 2 lykkjum brugðið í hvorri hlið við miðju að frama. Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, mælt frá efsta punkti á framstykki. Fellið af með I-CORD – lesið útskýringu að ofan.

ERMAR:
Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg (ATH! Það er ekki þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 6-7 cm niður á framstykki = mitt ofan á öxl).
Notið hringprjóna 4,5, byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi og prjónið upp 78-82-88-90-94-100 lykkjur í kringum handveg – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merki meðfram handvegi. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu, þetta er gert til að ermin passi betur og fái betra form.
Byrjið mitt undir ermi.

Umferð 1 (rétta): prjónið 9-10-11-11-11-12 lykkjur fram hjá merki, snúið.
Umferð 2 (ranga): prjónið 9-10-11-11-11-12 lykkjur fram hjá merki, snúið.
Umferð 3 (rétta): prjónið 5-5-5-5-6-4 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið.
Umferð 4 (ranga): prjónið 5-5-5-5-6-4 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið.

Endurtakið 3. og 4. umferð þar til prjónaðar hafa verið 34-35-36-36-41-40 lykkjur fram hjá merki mitt ofan á ermi (það hefur verið snúið við 6-6-6-6-6-8 sinnum í hvorri hlið). Prjónið frá réttu að byrjun umferðar (mitt undir ermi). Setjið 1 merkiþráð hér, merkiþráðurinn er notaður þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu.

Síðan er prjónað í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur eins og útskýrt er að neðan. Þegar ermin mælist 7-7-7-7-7-9 cm, mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp (öll mál á lengdina eru gerð mitt ofan á ermi), fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 2 sinnum, síðan er lykkjum fækkað í hverjum 1½-1½-1½-2-2-2 cm 8-8-8-5-4-3 sinnum, það hefur fækkað alls 10-10-10-7-6-5 sinnum = 58-62-68-76-82-90 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 26-25-25-24-22-21 cm. Fellið af með I-CORD – munið eftir útskýringu að ofan.

I-CORD KANTUR Í HÁLSMÁLI að aftan:
Notið hringprjón 4,5 og fitjið upp 2 lykkjur í umferð með 1 þræði í hvorri tegund, prjónið síðan upp lykkjur meðfram kanti í hálsmáli, byrjið við aðra axlalínuna frá réttu og prjónið upp innan við 1 lykkju af hinni axlalínunni. Prjónið upp 24-24-26-28-28-30 lykkjur. Klippið þráðinn. Byrjið í annarri hliðinni þar sem lykkjur voru prjónaðar upp og fellið af með I-CORD – munið eftir útskýringu að ofan.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstra framstykki.

Mynstur

symbols = lykkjur fyrir vinstri öxl að framan (d) eru prjónaðar upp meðfram vinstri öxl að aftan (D), lykkjur fyrir hægri öxl að framan (e), eru prjónaðar upp meðfram hægri öxl að aftan (E)
symbols = prjónstefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 248-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Vera Billing wrote:

Fel i beskrivningen: höger framstycke. Ska väl stickas som vänster fast spegelvänt? Det står 'ökning varje varv', bör vara 'vart 4:e varv' för att stämma med vänster framstycke! Väl? Så har jag nu gjort...

16.04.2024 - 23:17

country flag Marie Therese LENHARDT wrote:

Bonjour, j'aimerai beaucoup tricoter ce gilet mais avec des manches longues. Dans ce cas, combien me faudra t'il de pelotes supplémentaires en tout ? Merci pour votre réponse.

26.03.2024 - 08:36

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lenhardt, comme ce modèle a été tricoté avec des manches 3/4, nous n'avons pas la quantité nécessaire pour manches longues - mais vous pouvez vous baser sur un modèle similaire de même tension avec des manches longues; votre magasin DROPS saura également vous conseiller, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

02.04.2024 - 10:16

country flag Elis wrote:

Jag har en fråga om halsökningar vid framstycket storlek M. Det står i mönstret att vid 27 cm ska alla ökningar vid v-hals ska vara klara. När man ökar enligt mönstret så är ökningarna vid v- hals klara vid 20 cm. Jag förstår inte varför det blir fel. Masktätheten stämmer enligt beskrivningen. Tacksam för hjälp.

19.03.2024 - 21:32

DROPS Design answered:

Hej Elis. Jag ser att det har blivit ett fel i den svenska översättningen. Det ska ökas först på vartannat varv och sedan på vart fjärde varv (inte varje varv). Ber om ursäkt för det och detta är nu rättat. Mvh DROPS Design

20.03.2024 - 07:08

country flag Nicole De Pauw wrote:

Brei het achterpand van boven naar beneden en minder aan elke kant voor de schouders welke ietwat diagonaal worden. dit is niet juist er wordt gemeerderd aan elke kant van de schouder

02.03.2024 - 17:50

country flag Inger Ö wrote:

Stämmer verkligen ökningen av maskor vid halsringningen ” vartannat varv 10 ggr och varje varv 6ggr”? Det verkar inte stämma mot bilden på koftan.

23.02.2024 - 08:58

DROPS Design answered:

Hej Inger, jo hvis du har 18 m x 24 varv på 10 cm, så kommer halsen til at se ud som på billedet hvis du følger udtagningerne ifølge opskriften :)

01.03.2024 - 13:57

country flag Renate wrote:

Hallo, ich stricke das Modell in Größe L. Ich habe eine Frage zu den Längen für das Rückenteil und die Vorderteile: das Rückenteil soll nach 16 cm Gesamtlänge stillgelegt werden, die beiden Vorderteile enden nach 28 cm, bevor Rückenteil und die Vorderteile zusammengelegt werden. Was habe ich falsch verstanden? Vielen Dank für Ihre Hilfe. Gruß Renate

18.02.2024 - 16:11

DROPS Design answered:

Liebe Renate, die Schulter kommen bei diesen Modellen nicht genau an der Schulterlinie am Körper aber etwas hinten, so werden die Armlöcher kürzer beim Rückenteil (16 cm) als beim Vordeteil (28 cm), so sind es aber (16+28)/2 = 22 cm hoch, siehe Maßskizze - schauen Sie mal auch die Videos: Vorderteile, separat gestrickt und Vorderteil, zusammen gestrickt, so sieht man besser wie die Schulter ausssehen. Viel Spaß beim stricken!

19.02.2024 - 09:28

country flag Anna wrote:

Marshmallow dream

21.01.2024 - 17:56