DROPS Daisy
DROPS Daisy
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13112.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Gentle Wind Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Daisy og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, V-hálsmáli og I-cord. Stærð S - XXXL.

DROPS 248-4
DROPS Design: Mynstur da-001
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS DAISY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-450-500-550-600 g litur 02, marsipan
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-125-125-150-150-175 g litur 56, marsipan

TÖLUR:
DROPS TALA NR 629: 4 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: Lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni með 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Daisy
DROPS Daisy
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13112.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING-1:
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

ÚTAUKNING-2:
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
RÉTTA:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt og prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni.
RANGA:
5 lykkjur garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
RÉTTA:
Prjónið 5 lykkjur garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt.
RANGA:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 5 lykkjur garðaprjón.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, prjónið út umferðina eins og áður. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu 1 cm á eftir síðustu útaukningu fyrir V-hálsmáli, síðan er fellt af fyrir 3 næstu hnappagötum með ca 9½-9½-10-10-10-10½ cm millibili. Fellið af fyrir síðasta hnappagatinu í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og stroffs.

LEIÐBEININGAR:
Þegar stuttar umferðir eru prjónaðar, þá kemur oft lítið gat þegar stykkinu er snúið – það er hægt að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Setjið þráðinn yfir á hægri prjón og herðið á þræðinum vel að aftan (með þessu þá myndast tvær lykkjur á prjóni).
Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf.
Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkin eru prjónuð.
Á framstykkjum er fyrst prjónaður kantur að framan sem sauma á meðfram hnakka í frágangi, síðan eru framstykkin prjónuð með því að taka upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki.
Prjónið niður á við að handvegi jafnframt því sem lykkjum er aukið út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Við handveg eru framstykkin og bakstykkið sett á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við fram og til baka á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við, fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpuna og síðan er ermin prjónuð í hring. Kantur að framan frá hvoru framstykki er saumaður saman, saumur = mitt að aftan, saumið kant að framan við lykkjur í kringum hálsmál.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 30-32-34-36-36-38 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir).
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt.
UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið.
Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 13-14-14-15-16-18 sinnum (= 26-28-28-30-32-36 prjónaðar umferðir), á eftir síðustu útaukningu eru 82-88-90-96-100-110 lykkjur á prjóni. Setjið 1 merki yst í hlið. Héðan er nú stykkið mælt!
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Prjónið síðan í sléttprjóni þar til stykkið mælist 13-14-14-14-13-14 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handvegi.

ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG:
UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-1-2-3-4-4 sinnum (= 2-2-4-6-8-8 prjónaðar umferðir) = 84-90-94-102-108-118 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan þar til stykkið mælist 14-15-16-17-17-18 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með umferð frá réttu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er prjónaður vinstri kantur að framan og vinstra framstykki meðfram vinstri öxl frá bakstykki – lesið útskýringu að neðan.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir).
Prjónið VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til kantur að framan mælist 8-9-9-10-10-10 cm, endið með umferð frá röngu, prjónið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan á vinstra framstykki.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt á borð með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði/hjálparprjóni snúi að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl.
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að öxl þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið fyrstu 7 lykkjur frá kanti að framan, prjónið síðan upp 1 lykkju í hverri prjónaðri umferð innan við ystu lykkju (prjónaðar eru upp 26-28-28-30-32-36 lykkjur meðfram vinstri skáhallandi öxl) = 33-35-35-37-39-43 lykkjur.
Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum upp-töku-kanti.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið sléttar lykkjur út umferðina.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan.
Prjónið UMFERÐ 3 og 4 þar til stykkið mælist 7-7-7-7-8-8 cm.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Nú byrjar útaukning fyrir V-hálsmáli, jafnframt því sem einnig er aukið út í hlið fyrir handveg.
Útaukning í hlið byrjar áður en útaukningu fyrir V-hálsmáli er lokið, lestu því báða 2 næstu kafla, til að fá yfirlit yfir þegar útaukning fyrir handveg byrjar.

ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan, 2 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri – munið eftir ÚTAUKNING-1 og prjónið slétt út umferðina.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 10-11-12-13-13-14 sinnum (= 20-22-24-26-26-28 prjónaðar umferðir).
Síðan er aukið út þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið sléttar lykkjur út umferðina.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan, 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri – lesið ÚTAUKNING-1 og prjónið slétt út umferðina.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan.
Prjónið UMFERÐ 1 og 4 alls 5 sinnum (= 20 prjónaðar umferðir) = alls 15-16-17-18-18-19 útaukningar fyrir V-hálsmáli. Haldið áfram í sléttprjóni og kantlykkjur að framan.

ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 23-24-24-24-25-26 cm, aukið út í hlið við handveg þannig (munið eftir að útaukning fyrir V-hálsmáli er ekki lokið):
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri – munið eftir ÚTAUKNING-1, 3 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-1-2-3-4-4 sinnum (= 2-2-4-6-8-8 prjónaðar umferðir). Þegar öll útaukning fyrir V-hálsmáli og handveg hefur verið gerð til loka, eru 49-52-54-58-61-66 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan þar til stykkið mælist 24-25-26-27-29-30 cm, mælt frá upp-töku-kanti efst á framstykki, endið með umferð frá röngu.
Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er prjónaður hægri kantur að framan og hægra framstykki meðfram hægri öxl á bakstykki – lesið útskýringu að neðan.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir).
Prjónið HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til kantur að framan mælist 8-9-9-10-10-10 cm, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn og setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, prjóna á síðan yfir kant að framan þegar lykkjur eru prjónaðar upp fyrir hægra framstykki.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp inn að hálsmáli þannig:
Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (prjónaðar eru upp 26-28-28-30-32-36 lykkjur meðfram hægri skáhallandi öxl), prjónið síðan 7 lykkjur frá kanti að framan inn í umferð eins og áður = 33-35-35-37-39-43 lykkjur í umferð.
Öll mál á lengdina eru gerð frá þessum upp-töku-kanti.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 7-7-7-7-8-8 cm.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Nú byrjar útaukning fyrir V-hálsmáli, jafnframt því sem einnig er aukið út í hlið fyrir handveg.
Útaukning í hlið byrjar áður en útaukningu fyrir V-hálsmáli er lokið, lestu því báða 2 næstu kafla, til að fá yfirlit yfir þegar útaukning fyrir handveg byrjar.

ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 9 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri – munið eftir ÚTAUKNING-1, 2 lykkjur slétt, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið brugðið út umferðina.
Endurtakið UMFERÐ 1 og 2 alls 10-11-12-13-13-14 sinnum (= 20-22-24-26-26-28 prjónaðar umferðir).
Síðan er aukið út þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan.
UMFERÐ 2 (=ranga): Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið brugðið út umferðina.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt þar til 9 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 7 kantlykkjur að framan.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið brugðið út umferðina.
Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 5 sinnum (= 20 prjónaðar umferðir) = alls 15-16-17-18-18-19 útaukningar fyrir V-hálsmáli.
1 cm á eftir síðustu útaukningu, byrjar úrtaka fyrir HNAPPAGAT – lestu því útskýringu að ofan. Haldið áfram í sléttprjóni og kantlykkjur að framan.

ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 23-24-24-24-25-26 cm, aukið út í hlið við handveg þannig (munið eftir að útaukning fyrir V-hálsmáli er ekki lokið):
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur, aukið út 1 lykkju til vinstri – munið eftir ÚTAUKNING-1, prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið brugðið út umferðina.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-1-2-3-4-4 sinnum (= 2-2-4-6-8-8 prjónaðar umferðir).
Þegar öll útaukning fyrir V-hálsmáli og handveg hefur verið gerð til loka, eru 49-52-54-58-61-66 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan þar til stykkið mælist 24-25-26-27-29-30 cm, mælt frá upp-töku-kanti efst á framstykki, endið með umferð frá réttu.
Nú eru stykkin sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið frá röngu yfir 49-52-54-58-61-66 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 4-6-8-8-12-12 nýjar lykkjur í lok umferðar (í hlið undir ermi), prjónið frá röngu yfir 84-90-94-102-108-118 lykkjur á bakstykki, fitjið upp 4-6-8-8-12-12 nýjar lykkjur (í hlið undir ermi), prjónið frá röngu yfir 49-52-54-58-61-66 lykkjur frá vinstra framstykki = 190-206-218-234-254-274 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og kantlykkjur að framan og prjónið fram og til baka frá miðju að framan yfir allar lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist 28-29-30-31-31-32 cm frá handvegi.
Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff jafnframt því sem aukið er út um 22-22-22-26-26-26 lykkjur jafnt yfir í umferð (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 212-228-240-260-280-300 lykkjur, prjónið þannig:
Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukningu) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 6 cm, fellið af.
Framstykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm mælt frá upp-töku-kanti, peysan mælist 56-58-60-62-64-66 cm, framstykkið er ca 2 cm lengra en loka mál – þetta er vegna þess að upp-töku-kanturinn er ekki mitt ofan á öxl, heldur aðeins niður á bakstykki.

ERMAR:
Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg (ATH! Það er ekki þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 5-6 cm niður á framstykki = mitt ofan á öxl). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 5 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir) og byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 68-74-80-82-90-94 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur í kringum handveg hvoru megin við merki.
Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu, þetta er gert til að ermin passi betur og fái betra form, umferðin byrjar mitt undir ermi þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 9-10-10-10-11-11 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 9-10-10-10-11-11 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 10-11-8-6-5-5 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 10-11-8-6-5-5 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu.
Prjónið umferð 3 og 4 þar til snúið hefur verið við 3-3-4-5-6-6 sinnum í hvorri hlið.
Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ VAR VIÐ:
Síðasta skipti í umferð 4 er endurtekin, endið umferð með því að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðar (mitt undir ermi).
Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, það á að nota merkiþráðinn þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Nú er prjónað í hring í sléttprjón yfir allar lykkjur jafnframt því sem lykkjum er fækkað undir ermi þannig:
Þegar ermin mælist 4-4-5-6-6-6 cm, mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp (öll mál á lengdina eru gerð mitt ofan á ermi), fækkað er um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 2-2-3-3-4-4 sinnum, síðan er lykkjum fækkað í hverjum 4½-3½-2½-2½-2-1½ cm alls 6-8-9-9-11-12 sinnum, fækkað hefur verið 8-10-12-12-15-16 sinnum = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 38-37-38-37-37-35 cm frá öxl. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) jafnframt því sem aukið er út um 16-18-16-18-20-18 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 68-72-72-76-80-80 lykkjur. Þegar stroffið mælist 10-10-10-10-10-10 cm, fellið af. Ermin mælist ca 48-47-48-47-47-45 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstra framstykki. Saumið kanta að framan saman (= mitt að aftan) og saumið þá við kant í hálsmáli.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 248-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (32)

country flag Patricia Dufourd wrote:

Question : concernant la bordure devant gauche : faut-il d'abord tricoter l'icord sur 9cm et ensuite relever les mailles le long de l'épaule gauche ? ce n'est pas très clair pour moi. Pour tricoter l'icord je n'ai pas trouvé la vidéo sur votre site Merci par avance de votre réponse Cordialement

12.03.2024 - 14:29

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dufour, vous devez tricoter ces 7 mailles pendant 9 cm comme indiqué au tout début des explications sous BORDURE DEVANT GAUCHE AVEC I-CORD:; autrement dit, 2 m de bordure I-cord + 7 mailles point mousse, vu sur l'endroit. Cette bordure sera ensuite assemblée à celle du devant droit puis cousue le long de l'encolure dos. Après ces 9 cm, vous relevez les mailles le long du devant gauche - cf onglet vidéo pour voir comment relever les mailles et tricoter les devants. Bon tricot!

12.03.2024 - 15:45

country flag Marie Thérèse wrote:

Bonsoir Ma question concerne la référence DROP YOU 8 : est elle abandonnée ? Si oui quelle référence la remplace. Cordialement

23.02.2024 - 22:49

DROPS Design answered:

Bonjour Marie-Thérèse, DROPS Loves You 8 faisait partie du groupe de fils C, vous pouvez donc le remplacer par un autre fil du groupe C (cf liste, ou bien par 2 fils du groupe de fils A - plus d'infos ici. Bon tricot!

26.02.2024 - 07:49

country flag Susi wrote:

Ich meinte natürlich die Kombination mit Kid Silk, Garngruppe A, wie angegeben. Nicht Alpaka Silk.

08.02.2024 - 13:28

country flag Susi wrote:

Warum findet der Garnumrechner keine alternative Option für die Daisy ? Nach Maschenprobe kämen doch auch andere Garne in Gruppe B wie Merino Extrafine oder Karisma , kombiniert mit Alpaka Silk, infrage. Oder nicht ?

08.02.2024 - 13:26

DROPS Design answered:

Liebe Susi, danke für den Hinweis, jetzt finden Sie Alternative für Daisy - aber vergessen Sie nicht die Alternative mit Kid-Silk (und nicht Brushed Alpaca Silk) zu stricken. Viel Spaß beim stricken!

09.02.2024 - 15:47

country flag Gabrielle Herring wrote:

Summer Wheat

21.01.2024 - 17:30

country flag Eveli wrote:

Quiet luxury

21.01.2024 - 14:32

country flag Jonilla Keller wrote:

Sieht sehr schön flauschig und wärmend aus

20.01.2024 - 22:20

country flag Fernanda Kazic wrote:

Café con leche!

20.01.2024 - 22:09

country flag Aga wrote:

Creamy Sweater

20.01.2024 - 15:31

country flag Lady Mille Maglie wrote:

What about "Easy Like a Sunday Morning "

20.01.2024 - 14:13