Morning Moon |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, V-hálsmáli og rúllukanti. Stærð S-XXXL.
DROPS 249-15 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR (á við um kanta að framan): Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út fyrir laskalínu á undan/eftir merkiþræði þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. UPPSLÁTTURINN ER PRJÓNAÐUR ÞANNIG: Þegar prjónað er fram og til baka, prjónið uppsláttinn frá röngu á undan/eftir merkiþræði þannig: Á UNDAN MERKIÞRÆÐI: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Á EFTIR MERKIÞRÆÐI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Þegar prjónað er í hring, prjónið uppsláttinn í næstu umferð á undan/eftir merkiþræði þannig: Á UNDAN MERKIÞRÆÐI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Á EFTIR MERKIÞRÆÐI: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. V-HÁLSMÁL: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út þannig: Prjónið vinstri kant að framan eins og áður, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, endið með hægri kant að framan eins og áður. Í næstu umferð (= ranga) prjónið uppsláttinn þannig: Á EFTIR HÆGRI KANTI AÐ FRAMAN: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Á UNDAN VINSTRI KANTI AÐ FRAMAN: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 4 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður þannig: Á UNDAN MERKIÞRÆÐI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Á EFTIR MERKIÞRÆÐI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Fyrst eru prjónaðir tveir kantar að framan hvor fyrir sig, síðan eru lykkjur fitjaðar upp fyrir berustykki á milli þeirra og prjónað er ofan frá og niður. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Þegar V-hálsmálið hefur verið prjónað til loka, setjið framstykkin saman og prjónað er í hring. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptast lykkjur fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Fitjið upp 4 lykkjur á sokkaprjóna 4 með DROPS Belle. Prjónið A.1 fram og til baka í 17-17-17½-17½-18-18½ cm. Klippið þráðinn og leggið stykkið til hliðar. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Fitjið upp 4 lykkjur á sokkaprjóna 4 með DROPS Belle. Prjónið A.2 fram og til baka í 17-17-17½-17½-18-18½ cm. Síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Nú eru fitjaðar upp lykkjur fyrir berustykki á milli kanta að framan eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið yfir vinstri kant að framan eins og áður frá réttu, fitjið upp 76-76-78-78-80-82 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið yfir hægri kant að framan eins og áður frá réttu = 84-84-86-86-88-90 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður. Setjið 4 merkiþræði í stykkið án þess að prjóna þannig: Teljið 6 lykkjur (= framstykki), setjið 1 merkiþráð, teljið 18 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð, teljið 36-36-38-38-40-42 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merkiþráð, teljið 18 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð, það eru 6 lykkjur eftir í umferð (= framstykki). Prjónið fram og til baka í sléttprjóni með 4 kantlykkjum að framan eins og áður í hvorri hlið, jafnframt er aukið út fyrir LASKALÍNU og V-HÁLSMÁL – lesið útskýringu að ofan. Lestu því allan næsta kafla áður en prjónað er áfram. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir merkiþráðum (= 8 lykkjur fleiri) alls 22-26-29-34-35-36 sinnum í annarri hverri umferð. Síðan er einungis aukið út á framstykki/bakstykki (= 4 lykkjur fleiri) 0-0-0-0-3-6 sinnum. Auknar hafa verið út alls 176-208-232-272-292-312 lykkjur fyrir laskalínu. Aukið út fyrir V-hálsmáli í báðum hliðum í 4. hverri umferð 1 sinni, síðan er aukið út í annarri hverri umferð 11-11-12-12-13-14 sinnum. Auknar hafa verið út alls 12-12-13-13-14-15 lykkjur fyrir V-hálsmáli á hvoru framstykki. Þegar aukið hefur verið út til loka í V-hálsmáli, prjónið 1 umferð frá röngu, síðan eru framstykkin sett saman frá réttu þannig: Prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, setjið síðustu 4 lykkjur á kaðlaprjón sem haldið er bakvið stykkið, síðan eru prjónaðar síðustu 4 lykkjur frá réttu á hinu framstykkinu, setjið 1 merki í umferð (umferðin byrjar hér), prjónið lykkjur af kaðlaprjóni slétt. Síðan er stykkið prjónað í sléttprjóni hringinn jafnframt því sem aukið er út til loka fyrir laskalínu. Þegar aukið hefur verið út til loka bæði í laskalínu og V-hálsmáli eru 284-316-344-384-408-432 lykkjur í umferð. Prjónið síðan hringinn án þess að auka út þar til stykkið mælist 19-21-23-25-28-30 cm frá miðju að aftan. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Byrjið mitt að framan, prjónið 41-45-49-54-59-64 lykkjur sléttprjón (= hálft framstykki), setjið næstu 60-68-74-84-86-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (í hlið undir ermi), prjónið 82-90-98-108-118-128 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 60-68-74-84-86-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 41-45-49-54-59-64 lykkjur í sléttprjóni (= hálft framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 184-200-220-240-264-288 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í nýjar lykkjur í hvorri hlið, þannig að það eru 92-100-110-120-132-144 lykkjur fyrir framstykki og bakstykki. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 10-10-10-10-9-7 cm frá skiptingunni. Aukið út 2 lykkjur í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona út alls 2-2-2-2-2-3 sinnum í hverjum 10-10-10-10-10-7 cm = 192-208-228-248-272-300 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 30-30-30-30-29-29 cm frá skiptingunni. Nú er prjónaður rúllukantur neðst á peysunni. Byrjið umferð í hlið undir ermi og prjónið 1 umferð (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið 3 umferðir slétt. Fellið af. Peysan mælist 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 60-68-74-84-86-88 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / hringprjóna 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 70-78-86-96-100-104 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í nýjar lykkjur undir ermi, umferðin byrjar hér. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 3-4-3-4-2-4 cm frá skiptingu. Fækkið 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverjum 6-4-3-2-2-1½ cm alls 6-9-12-16-17-18 sinnum = 58-60-62-64-66-68 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 45-44-43-42-39-38 cm, það er eftir ca 1 cm að loka máli. Prjónið 1 umferð (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið 3 umferðir sléttprjón. Fellið af. Ermin mælist ca 46-45-44-43-40-39 cm. FRÁGANGUR: Kantar að framan frá hvoru framstykki eru saumaðir saman = mitt að aftan, saumið síðan kanta að framan við lykkjur í kringum hálsmál. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (13)
Knitter wrote:
Cottage village
19.01.2024 - 21:49Mariana wrote:
Sandy
19.01.2024 - 20:05AndreaW wrote:
"Perfectly Basic"
19.01.2024 - 09:26