DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 21450.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Irish Morning

Prjónuð oversize / stór peysa úr DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, röndum, V-hálsmáli og I-cord. Stærð XS - XXL.

DROPS 249-14
DROPS Design: Mynstur ks-228
Garnflokkur A + A + A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS- S - M - L - XL - XXL

GARN:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-125-150-150-175-175 g litur 34, salvíugrænn
100-100-125-125-125-150 g litur 01, natur
75-100-100-100-100-125 g litur 47, pistasíuís
75-75-75-75-100-100 g litur 45, mjúk mynta

TÖLUR:
DROPS TALA NR 522: 4 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5,5: Lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm.

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með sléttprjóni með 4 þráðum = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 21450.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING-1 (frá réttu):
Aukið út til vinstri:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
Aukið út til hægri:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

ÚTAUKNING-2 (frá röngu):
Aukið út til vinstri:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
Aukið út til hægri:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
RÉTTA:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt og prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni.
RANGA:
5 lykkjur garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
RÉTTA:
Prjónið 5 lykkjur garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt.
RANGA:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 5 lykkjur garðaprjón.

RENDUR:
Prjónaðar eru rendur þannig:
16-20-20-24-26-30 umferðir á bakstykki / 14-16-16-18-22-24 umferðir á framstykkjum / 12 umferðir á ermum með 4 þráðum í litnum natur.
2 umferðir með 3 þráðum í litnum natur + 1 þræði í litnum mjúk mynta
4 umferðir með 3 þráðum í litnum mjúk mynta + 1 þræði í litnum natur
2 umferðir með 2 þráðum í litnum natur + 2 þráðum í litnum mjúk mynta
2 umferðir með 1 þræði í litnum natur + 2 þráðum í litnum mjúk mynta + 1 þræði í litnum salvíugrænn
4 umferðir með 4 þráðum í litnum mjúk mynta
2 umferðir með 1 þræði í litnum pistasíuís + 2 þráðum í litnum mjúk mynta + 1 þræði í litnum natur
6 umferðir með 2 þráðum í litnum pistasíuís + 2 þráðum í litnum mjúk mynta
2 umferðir með 1 þræði í litnum mjúk mynta + 3 þráðum í litnum pistasíuís
6 umferðir með 4 þráðum í litnum pistasíuís
4 umferðir með 2 þráðum í litnum natur + 2 þráðum í litnum pistasíuís
2 umferðir með 3 þráðum í litnum pistasíuís + 1 þræði í litnum salvíugrænn
4 umferðir með 1 þræði í litnum salvíugrænn + 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum pistasíuís + 1 þræði í litnum mjúk mynta
6 umferðir með 3 þráðum í litnum natur + 1 þræði í litnum salvíugrænn
2 umferðir með 2 þráðum í litnum salvíugrænn + 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum mjúk mynta
4 umferðir með 1 þræði í litnum salvíugrænn + 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum pistasíuís + 1 þræði í litnum mjúk mynta
4 umferðir með 2 þráðum í litnum salvíugrænn + 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum pistasíuís
4 umferðir með 2 þráðum í litnum salvíugrænn + 2 þráðum í litnum pistasíuís
4 umferðir með 3 þráðum í litnum salvíugrænn + 1 þræði í litnum pistasíuís
Prjónið að loka máli með 4 þráðum í litnum salvíugrænn

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu 1 cm á eftir síðustu útaukningu fyrir V-hálsmáli, síðan er fellt af fyrir 3 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9-10-9½-10 cm millibili. Fellið af fyrir síðasta hnappagatinu í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf.
Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkin eru prjónuð.
Byrjið framstykkin á að prjóna lausan kant að framan, síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram annarri öxlinni á bakstykki. Prjónið niður á við að handvegi jafnframt því sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni.
Við handveg eru framstykkin og bakstykkið sett á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við fram og til baka á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu.
Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lausu kantarnir að framan saumaðir við uppfitjunarkantinn aftan í hnakka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 22-22-24-24-26-26 lykkjur á hringprjón 7 með 4 þráðum í litnum natur.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónaðar eru RENDUR – lesið útskýringu að ofan.

Lestið ÚTAUKNING-1 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt.
Lesið ÚTAUKNING-2 og prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 3 lykkjur brugðið, aukið út til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur brugðið.

Haldið svona áfram og aukið út á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu alls 18-20-20-22-24-26 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 58-62-64-68-74-78 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hlið. Héðan er stykkið mælt!
Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 11-12-12-13-13-14 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir ÚTAUKNING-1.
Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 2-2-3-3-3-3 sinnum = 62-66-70-74-80-84 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 14-15-16-17-17-18 cm, mælt yst meðfram handvegi. Bakstykkið mælist alls ca 25-28-29-31-32-34 cm frá uppfitjunarkanti, endið með eina umferð frá réttu. Klippið þræðina, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið kanta að framan og framstykkin eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 7 með 4 þráðum í litnum natur.
Prjónið VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til kantur að framan mælist 8-8-9-9-9-9 cm, endið með eina umferð frá röngu, prjónið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan, vinstra framstykki.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið frá réttu yfir 7 kantlykkjur að framan, prjónið síðan upp 18-20-20-22-24-26 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónuð er upp 1 lykkja í hverri umferð frá kanti efst á bakstykki, sjá D í teikningu með máli) = 25-27-27-29-31-33 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð héðan. Prjónið sléttprjón með 7 kantlykkjur að framan við miðju að framan og RENDUR – munið eftir útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 7 cm, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út þannig – frá réttu:
Prjónið 8 lykkjur, aukið út til vinstri, prjónið út umferðina – munið eftir ÚTAUKNING-1.
Aukið út 1 lykkju í annarri hverri umferð, alls 9 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 2-2-3-3-4-4 sinnum.

JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 21-22-22-23-25-26 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir ÚTAUKNING-1.

Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 2-2-3-3-3-3 sinnum = 38-40-42-44-47-49 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og kantlykkjur að framan eins og áður þar til stykkið mælist 24-25-26-27-29-30 cm, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, passið uppá að síðasta umferðin sé prjónuð frá réttu og endað sé í sömu rönd og á bakstykki. Klippið þræðina. Prjónið síðan hægra og vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 7 með 4 þráðum í litnum natur.
Prjónið HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til kantur að framan mælist 9-9-10-10-11-11 cm, endið með eina umferð frá röngu, prjónið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan, hægra framstykki. Klippið þræðina.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið upp 18-20-20-22-24-26 lykkjur með 4 þráðum í litnum natur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð frá kanti efst á bakstykki, sjá E í teikningu með máli), prjónið síðan inn 7 kantlykkjur að framan í umferð = 25-27-27-29-31-33 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð héðan. Prjónið sléttprjón með 7 kantlykkjur að framan við miðju að framan og rendur. Þegar stykkið mælist 7 cm, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út þannig – frá réttu:
Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, prjónið 8 lykkjur eins og áður – munið eftir ÚTAUKNING-1.
Aukið út 1 lykkju í annarri hverri umferð, alls 9 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 2-2-3-3-4-4 sinnum. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan.

JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 21-22-22-23-25-26 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 3 lykkjur, aukið út til vinstri, prjónið út umferðina – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 2-2-3-3-3-3 sinnum = 38-40-42-44-47-49 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og kantlykkjur að framan eins og áður þar til stykkið mælist 24-25-26-27-29-30 cm, passið uppá að síðasta umferð sé prjónuð frá réttu og endað sé í sömu rönd og á bakstykki og vinstra framstykki.

Næsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: Prjónið yfir 38-40-42-44-47-49 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 4-4-6-6-8-10 nýjar lykkjur í lok umferðar, prjónið frá röngu yfir 62-66-70-74-80-84 lykkjur á bakstykki, fitjið upp 4-4-6-6-8-10 nýjar lykkjur, prjónið yfir 38-40-42-44-47-49 lykkjur frá vinstra framstykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 146-154-166-174-190-202 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni, kantlykkjur að framan og rendur.
Prjónið þar til stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykkin. Prjónið 1 umferð frá réttu þar sem aukið er út um 22-22-22-26-26-30 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 168-176-188-200-216-232 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið stroff þannig – frá röngu: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 55-57-59-61-63-65 cm, mælt frá efsta punkti á öxl.

ERMAR:
Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg (ATH! Það er ekki þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 5-6 cm niður á framstykki = mitt ofan á öxl). Notið hringprjón 7 og 4 þræði í litnum natur og prjónið RENDUR – munið eftir útskýringu að ofan, byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi og prjónið upp 56-58-62-66-70-74 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur í kringum handveg hvoru megin við merki .
Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu, þetta er gert til að ermin passi betur og fái betra form, umferðin byrjar mitt undir ermi þannig:

UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 7-7-7-8-8-9 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 7-7-7-8-8-9 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 6-6-5-5-4-4 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 6-6-5-5-4-4 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu.
Prjónið umferð 3 og 4 þar til prjónaðar hafa verið 25-25-27-28-28-29 lykkjur fram hjá merki mitt ofan á ermi (það hefur verið snúið við 4-4-5-5-6-6 sinnum í hvorri hlið). Prjónið frá réttu að byrjun umferðar (mitt undir ermi). Setjið 1 merkiþráð hér, það á að nota merkiþráðinn þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu.

Prjónið síðan hringinn í sléttprjóni yfir allar lykkjur. Þegar ermin mælist 7-7-8-8-9-10 cm, mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp (öll mál á lengdina eru gerð mitt ofan á ermi), fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 2-2-3-3-4-4 sinnum, síðan er lykkjum fækkað í hverjum 4½-4-4-3-2½-2½ cm 8-8-8-10-10-11 sinnum, fækkað hefur verið alls 10-11-11-13-14-15 sinnum = 36-38-40-40-42-44 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 46-45-46-45-44-43 cm.
Það eru ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-6-8-8-10-8 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-48-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 6 cm.
Fellið af. Ermin mælist ca 52-51-52-51-50-49 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstra framstykki. Saumið saman lausu kanta að framan mitt að aftan og saumið þá við uppfitjunarkantinn aftan í hnakka.

Mynstur

symbols = lykkjur fyrir vinstri öxl að framan (d) eru prjónaðar upp meðfram vinstri öxl að aftan (D), lykkjur fyrir hægri öxl að framan (e), eru prjónaðar upp meðfram hægri öxl að aftan (E)
symbols = prjónstefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 249-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Charline wrote:

Bonjour ! Les explications disent que tout le modèle se tricote en point mousse, mais sur la photo le gilet semble être tricoté en jersey (dans l'explication en anglais aussi il est mentionné "garter stitch"). Je voudrais m'assurer qu'il s'agit bien ou non d'un jersey avant de me lancer 🙌

04.04.2024 - 22:13

DROPS Design answered:

Bonjour Charline, le gilet se tricote effectivement en jersey avec la bordure des devants. au point mousse (raison pour laquelle il est expliqué au début comment tricoter du point mousse). Bon tricot!

05.04.2024 - 08:16

country flag Isabel wrote:

Cardigan bosque

22.01.2024 - 00:29

country flag Paulina Krol wrote:

Morning grass

20.01.2024 - 08:09

country flag Karen wrote:

Pine Breezes

20.01.2024 - 04:39

country flag Jeyagowri Ravichandran wrote:

Emerald Lines Cardigan

19.01.2024 - 15:09

country flag Randi Kristine wrote:

Spring Forest

19.01.2024 - 13:31

country flag Ana wrote:

Cloudberry dreams

18.01.2024 - 23:45

country flag Ms K wrote:

Verdant Horizons

18.01.2024 - 23:44

country flag Sylvie wrote:

Arc en ciel

18.01.2024 - 20:22

country flag Michèle wrote:

Printemps

18.01.2024 - 16:19