DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Berry Me Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Air eða DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, köðlum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 250-33
DROPS Design: Mynstur ai-477
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
350-400-400-450-500-550 g litur 39, magenta

Eða notið
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
650-750-800-900-950-1050 g litur 06, kirsuber

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 24 umferð á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING-1 (frá réttu):
Aukið út um 1 lykkju til vinstri:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
Aukið út um 1 lykkju til hægri:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

ÚTAUKNING-2 (frá röngu):
Aukið út um 1 lykkju til vinstri:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
Aukið út um 1 lykkju til hægri:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

ÚTAUKNING-3 (frá réttu):
Aukið út brugðið til vinstri:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.
Aukið út brugðið lykkju til hægri:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.1/A.3 og A.2/A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf.
Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við, jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Bakstykkið er látið bíða á meðan framstykkið er prjónað. Framstykkið er prjónað fyrst í 2 hlutum.
Byrjað er að prjóna upp lykkjur meðfram hægri öxl, prjónið samtímis sem aukið er út við hálsmál.
Endurtakið á vinstri öxl. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu fyrir hálsmáli er lokið. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Framstykkið og bakstykkið er sett inn á sama prjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna, áður en stykkið skiptist fyrir klauf. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveginn. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring.
Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. Framstykkið er prjónað með mynstri, bakstykkið er prjónað í sléttprjóni.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 31-31-33-35-37-37 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Air eða DROPS Paris. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Lesið ÚTAUKNING-1 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt.
Lesið ÚTAUKNING-2 og prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 3 lykkjur brugðið, aukið út til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur brugðið.

Haldið svona áfram og aukið út á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu alls 24-28-28-32-34-38 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 79-87-89-99-105-113 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 merki yst í hlið. Héðan er nú stykkið mælt!
Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 11-12-12-13-12-13 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi.

Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir ÚTAUKNING-1.
Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 3-3-4-4-5-5 sinnum = 85-93-97-107-115-123 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 13-13-14-15-15-16 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan.

FRAMSTYKKI:
Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð):
Prjónið upp 24-28-28-32-34-38 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð frá kanti efst á bakstykki, sjá D í teikningu með máli). Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð héðan!
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, næsta umferð er prjónuð þannig - frá réttu: 3 lykkjur sléttprjón, A.1, sléttprjón yfir síðustu 6-10-10-14-10-14 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með A.3 yfir allar lykkjur í A.1 (aukið er út um 2 lykkju í A.1 á undan fyrsta kaðli) = 26-30-30-34-36-40 lykkjur. Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út lykkjur við hálsmá eins og útskýrt er að neðan.
Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju brugðið til vinstri, prjónið mynstur eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru – lesið ÚTAUKNING-3. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 3 sinnum, útauknar lykkjur eru prjónaðar brugðið frá réttu = 29-33-33-37-39-43 lykkjur. Prjónið 1 umferð með mynstri frá röngu, klippið þráðinn og leggið stykkið til hliðar. Prjónið síðan hægri öxl eins og útskýrt er að neðan.

Prjónið upp 24-28-28-32-34-38 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð frá kanti efst á bakstykki, sjá E í teikningu með máli). Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð héðan!
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað þannig – frá réttu: 6-10-10-14-10-14 lykkjur slétt, A.2, 3 lykkjur slétt. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með A.4 yfir lykkjur í A.2 (aukið er út um 2 lykkjur í A.2 á undan fyrsta kaðli) = 26-30-30-34-36-40 lykkjur. Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út lykkjur við hálsmál eins og útskýrt er að neðan.

Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju brugðið til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir ÚTAUKNING-3. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 3 sinnum, útauknar lykkjur eru prjónaðar brugðið frá réttu = 29-33-33-37-39-43 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. ATH! Passið uppá að prjónaðar séu jafn margar umferðir á hægri og vinstri öxl!

Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir 29-33-33-37-39-43 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 25-25-27-29-31-31 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið síðan mynstur eins og áður yfir 29-33-33-37-39-43 lykkjur frá vinstra framstykki = 83-91-93-103-109-117 lykkjur (vegna kaðla eru 4 lykkjur fleiri á framstykki en á bakstykki). Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 6-10-10-14-10-14 lykkjur brugið, A.3, 3 lykkjur slétt, 31-31-33-35-37-37 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, A.4, 6-10-10-14-10-14 lykkjur brugðið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6-10-10-14-10-14 lykkjur slétt, A.4, 3 lykkjur brugðið, A.5 yfir næstu 31-31-33-35-37-37 lykkjur, 3 lykkjur brugðið, A.3, 6-10-10-14-10-14 lykkjur slétt.
Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 22-24-25-26-27-28 cm.
Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir ÚTAUKNING-1.
Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 3-3-4-4-5-5 sinnum = 89-97-101-111-119-127 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 25-27-28-29-31-32 cm.
Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið mynstur eins og áður yfir 89-97-101-111-119-123 lykkjur í umferð, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón yfir 85-93-97-107-115-127 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur í lok umferðar (í hlið undir ermi) = 186-202-214-234-254-274 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 10-10-12-16-18-20 lykkjur undir hvorri ermi. Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu. Merkiþræðirnir eru notaðir þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið. Haldið áfram í sléttprjóni og mynstri hringinn þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki.
Nú skiptist framstykkið og bakstykkið, þannig að það myndast klauf í hliðum. Setjið 91-99-105-115-125-135 lykkjur frá bakstykki á þráð eða á hjálparprjón og prjónið síðan einungis yfir lykkjur frá framstykki.

FRAMSTYKKI:
= 95-103-109-119-129-139. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 39-43-45-51-53-59 lykkjur jafnt yfir = 134-146-154-170-182-198 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* og endið með 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur í sléttprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 12 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá efsta punkti á öxl á framstykki.

BAKSTYKKI:
= 91-99-105-115-125-135. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 43-47-49-55-57-63 lykkjur jafnt yfir = 134-146-154-170-182-198 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið á sama hátt og framstykki.

ERMAR:
Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg (ATH! Ekki þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 6-8 cm niður á framstykki = mitt ofan á öxl
Notið hringprjón 4,5, byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi og prjónið upp 74-78-86-88-92-98 lykkjur í kringum handveg – passið uppá að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur meðfram handvegi hvoru megin við merki. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu, þetta er gert til að ermin passi betur og fái betra form.
Byrjið mitt undir ermi.

Umferð 1 (rétta): Prjónið slétt 9-10-10-11-11-12 lykkjur fram hjá merki, snúið stykki.
Umferð 2 (ranga): Prjónið brugðið 9-10-10-11-11-12 lykkjur fram hjá merki, snúið.
Umferð 3 (rétta): Prjónið slétt 4-4-4-4-4-3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið.
Umferð 4 (ranga): Prjónið brugðið 4-4-4-4-4-3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið.

Endurtakið 3. og 4. umferð þar til prjónaðar hafa verið 29-30-34-35-39-36 lykkjur fram hjá merki mitt ofan á ermi (nú hefur verið snúið við 6-6-7-7-8-9 sinnum í hvorri hlið). Prjónið frá réttu að byrjun á umferð (mitt undir ermi). Setjið 1 merkiþráð hér, það á að nota merkiþráðinn þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu.

Prjónið síðan í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur. Þegar ermin mælist 7-7-8-8-10-10 cm, mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp (öll mál á lengdina er gerð mitt ofan á ermi), fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 3-3-4-4-5-6 sinnum, síðan er lykkjum fækkað í hverjum 3-2½-2½-2-2-1½ cm 10-11-13-13-13-14 sinnum, fækkið alls 13-14-17-17-18-20 sinnum = 48-50-52-54-56-58 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 44-43-44-42-41-40 cm. Það eru ca 8 cm að loka máli.
Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-10-12-10-12-10 lykkjur jafnt yfir = 60-60-64-64-68-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 8 cm.
Fellið af. Ermin mælist ca 52-51-52-50-49-48 cm.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkjur ca 100 til 112 lykkjur á hringprjón 3,5. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) hringinn í 10 cm. Fellið af.
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni

symbols = engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið frá röngu / slétt frá réttu, það á að myndast gat
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, það á ekki að myndast gat

symbols = lykkjur fyrir vinstri öxl að framan (d) eru prjónaðar upp meðfram vinstri öxl að aftan (D), lykkjur fyrir hægri öxl að framan (e), eru prjónaðar upp meðfram hægri öxl að aftan (E)
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 250-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Hanneke wrote:

Goedendag, maat M, bij het voorpand, nadat 28 st zijn opgenomen en averecht gebreid, dus bij 1e patroonnaald, moeten 3 st in tricotst gebreid en dan A1. Moet dit niet averecht tricot zijn? Nu wordt het recht gebreid vóór de kabel en averecht aan de andere kant. Kabel komt niet mooi tot z'n recht. M vr groet.

09.05.2024 - 10:46

DROPS Design answered:

Dag Hanneke,

Nee, dit moeten tricotsteken zijn. De averechte steken naast de kabel komen er later bij. Deze 3 tricotsteken zitten bij de hals en als je goed kijkt kun je ze op de derde foto zien.

10.05.2024 - 09:25

country flag Esther Vradis wrote:

Ce magnifique modèle m'a séduit mais j'avais peur de me lancer mais grâce à vos explications et vidéos cela devient additif. Bon tricot à tous/toutes.

15.04.2024 - 23:36

country flag Vradis-Willa Esther wrote:

Pour la "petite tresse" du motif (sur 3 mailles) il est indiqué : Glisser 1 maille et tricoter 2 mailles endroit, passer la maille glisser par dessus les mailles tricotée. Il nous reste .... 1 seule maille.. Deux rangs après on fait 1 (seule)jetée Du coups on "diminue" 1 maille tout les 4 rangs ??? J'ai du défaire et je passe la maille glissée sur une seule maille tricotée (et non sur les 2 mailles comme indiqué).

15.04.2024 - 19:39

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Vradis-Willa, pour cette petite torsade, on ne diminue qu'une seule maille: on glisse 1 maille comme pour la tricoter à l'endroit, on tricote les 2 mailles suivantes à l'endroit (mais pas ensemble), puis on passe la maille glissée par-dessus les 2 mailles tricotées = il reste 2 mailles, au rang suivant sur l'endroit, on fait 1 jeté = on a de nouveau 3 mailles. Bon tricot!

16.04.2024 - 13:28

country flag Mme Yousra Mawazini wrote:

C'est taille S que je tricotte. Je constate une erreur quand je fais le motif A1 suivi du A3. Je ne peux pas répéter le A3 tel qu'illustré.cIl y a une erreur que je vois clairement là où il y a les trois mailles qui forment un genre de petite entorse. Je sais qu'on augmente 2 mailles avant la 1ère entorse, ici la question, comment faire alors.

15.04.2024 - 08:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Mawazini, A.1 en taille S se tricote donc sur 15 mailles augmentées à 17 avant la torsade; vous répétez les 4 rangs des petites torsades comme avant (en cas de doute, reprenez ces petites torsades au 1er rang de A.1), et répétez les grandes torsades de A.3 tous les 10 rangs (9 rangs entre chaque torsade). Bon tricot!

15.04.2024 - 08:29

country flag Mme Yousra Mawazini wrote:

C'est taille S que je tricotte. Je constate une erreur quand je fais le motif A1 suivi du A3. Je ne peux pas répéter le A3 tel qu'illustré.cIl y a une erreur que je vois clairement là où il y a les trois mailles qui forment un genre de petite entorse.

15.04.2024 - 08:07

country flag Yousra Mawazini wrote:

Bonjour, pour l'épaule gauche, on fait d'abord le motif A1 sur 24 m, puis A3 sur 26 m (2 mailles ont été augmentée avant la 1ère torsade) par la suite on continue avec A3 sur les 10 rangs suivant. Sauf que, je vois qu'il y a une erreur, et la petite torsade sur 3 mailles ne fonctionne plus, comme s'il y un rang de plus. Pouvez-vous m'expliquer comment faire.

13.04.2024 - 23:48

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Mawazini, quelle taille tricotez-vous? Car dans les diagrammes XXL et XXXL, A.1 se commence sur 21 mailles, on augmente 2 mailles avant la 1è!re torsade pour tricoter A.3 sur 23 mailles au total. Lorsque vous répétez A.3 en hauteur, répétez les torsades comme avant pour avoir les bons croisements quand il faut, même s'ils ne sont plus faits aux mêmes rangs qu'avant. Bon tricot!

15.04.2024 - 07:43

country flag Magdimansour wrote:

Bonjour, pour l'épaule gauche, on fait d'abord le motif A1 sur 24 m, puis A3 sur 26 m (2 mailles ont été augmentée avant la 1ère torsade) par la suite on continue avec A3 sur les 10 rangs suivant. Sauf que, je vois qu'il y a une erreur, et la petite torsade sur 3 mailles ne fonctionne plus, comme s'il y un rang de plus. Pouvez-vous m'expliquer comment faire.

13.04.2024 - 23:46

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Magdimansour, A.1 se tricote sur 21 mailles dans les tailles XXL et XXXL, et on augmente 2 mailles au 4ème rang pour avoir 23 mailles. Lorsque vous répétez A.3 par la suite, répétez le bon nombre de rangs pour la grande torsade mais continuez les petites torsades comme avant, autrement dit, il est possible qu'elles ne se fassent pas aux mêmes rangs qu'avant, mais il faut bien conserver le rythme des petites torsades comme avant. Bon tricot!

15.04.2024 - 07:41

country flag Miri wrote:

Hallo Ich möchte gerne den Pulli stricken aber ein anderes Garn nutzen. Nun bekomme ich beim Umrechnen allerdings sehr verschiedene Ergebnisse raus, je nachdem ob ich mich nach DropsAir oder DropsParis richte. An welchem Garn sollte ich mich eher orientieren?

30.03.2024 - 12:16

DROPS Design answered:

Liebe Miri, benutzen Sie die kleinere Angabe/Lauflänge für Ihre Größe - je nach Lauflänge wird die Garnmenge in gram verschieden sein. Viel Spaß beim stricken!

02.04.2024 - 14:25

country flag Arlene Ruhle wrote:

How do I download free patterns

22.03.2024 - 17:34

DROPS Design answered:

Dear Ariene, right above the line that says "Pattern Instructions" there is a line where you can select the language, and in there is a printer icon. Click on that and that gives you the PDF pattern. Happy Knitting!

23.03.2024 - 22:52

country flag Mariolina wrote:

Buongiorno vorrei fare un maglione della taglia 58/60 mi fate vedere alcuni modelli con spiegazioni semplici? grazie

29.02.2024 - 15:35

DROPS Design answered:

Buongiorno Mariolina, può trovare le misure dei nostri modelli per le diverse taglia in fondo ad ogni pagina del modello: le confronti con un modello in suo possesso e può trovare la taglia corretta. Buon lavoro!

02.03.2024 - 11:35